Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Hörður spreytir sig í Noregi Hörður Sveinsson, framherji Keflavíkur í knattspyrnu, hélt á laugardag til norska félagsins Start þar sem hann verður við æfingar í vikutíma. Hörður skoraði fimm mörk í 18 leikjum í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði auk þess eftirminnilegt mark í bik- arúrslitunum gegn KA. Hörður, sem er 21 árs, hefur leikið alls 50 deild- arleiki fyrir Keflavík og skorað í þeim 10 mörk. Petrúnella til Njarðvíkur Körfuknattleikskonan Petrúnella Skúladóttir úr Grindavík hefur ákveðið að ganga til liðs við Njarðvík. Hún kvað ástæðuna vera að hún byggi í Njarðvík og hefði haft hug á að skipta í nokkurn tíma. „Njarðvíkingar eru með ungt og efnilegt lið og ég er viss um að þetta verður mjög gaman.” Petrúnella, sem er 19 ára göm- ul, hefur leikið með meista- raflokki Grindavíkur síðustu fimm ár og einnig með A- landsliði Íslands en hefur ekki fengið að spila mikið í vetur. Petrúnella mun að öllum líkindum fá leikheimild með Njarðvík eftir um mánuð. Keflavík sigrar á fimleikamóti Stelpurnar í H-2 úr Fimleikadeild Keflavíkur gerðu góða ferð til Hveragerðis á dögunum og sigruðu á Byrjendatrompmóti Hamars. Keppendur voru á aldrin- um 10-14 ára og komu þeir víðs vegar af landinu. Alls voru 11 lið skráð til leiks og sigruðu Keflavíkurstúlkur með 24,01 stig. Glæsilegur ár- angur hjá stelpunum sem hafa æft trompfimleika í tæp tvö ár. Fr e y j a S i g u r ð a r d ó t t i r t r y g g ð i s é r Í s l a n d s -meistaratitilinn í Galaxy Fitness sl. laugardagskvöld er hún sigraði í öllum keppnis- greinum með glæsibrag. Eftir að hafa slegið Íslandsmet í armbeygjum helgina áður gerði hún sér lítið fyrir og sló það aftur með tilþrifum. Metið hennar úr síðasta móti var 77 en nú tók hún heil 89 stykki. Sú sem kom næst henni var „ein- ungis” með 69. „Það er got t að koma a f t- ur svona sterk,” sagði Freyja í samtali við Víkurfréttir en hún byrjaði nýlega að æfa aftur eftir að hafa tekið sér barnsburð- arleyfi. Þátttaka í stórum mótum er afar krefjandi bæði hvað varðar æfingar og mataræði, en dag- skráin er þéttbókuð hjá Freyju. „Ég fer á HM í september á næsta ári og í millitíðinni á bikarmótið hér heima þannig að það er nóg framundan. Ég ætla þessvegna að halda mínu striki og ekki slá slöku við.” Þess má einnig til gamans geta að Jakob Már Jónharðsson, eig- inmaður Freyju, lenti í fjórða sæti í karlaf lokki og sigraði í tímaþrautinni. Keflavík og Grindavík mætast í undanúr-slitum Hópbílabikars kvenna á laugardag. Róðurinn verður eflaust þungur fyrir Grindavík því Keflavíkurstúlkur hafa leik- ið afburða vel það sem af er vetri og virðast til alls lík- legar. Grindavík hefur engu að síður sterka leikmenn innan sinna raða sem vita hvað til þarf í þessum efnum. Gengi liðanna hefur verið mi- sjafnt í vetur, en Grindavík hefur ekki staðið undir vænt- ingum sem til þerra voru gerðar á meðan Keflavík trónir ósigrað á toppi 1. deildarinnar. „Við höfum verið að slípa okkur saman að undanförnu og höfum verið í stöðugri framför,“ sagði Henning Henningsson, þjálfari Grindavíkur, og sagðist sáttur við stígandann í liðinu um þessar mundir. „Leikurinn við Keflavík er stór áskorun fyrir okkur ví að þær eru með besta liðið í dag. Við vissum hins vegar að við þyrftum einhvern tíma að leggja þær ef við ætl- uðum að taka bikarinn. Staðan í deildinni skiptir ekki máli, heldur vilji og rétt hugarfar.“ Sverrir Þór Sverrisson hjá Keflavík býst við hörkuleik. „Þetta er fyrsti alvöruleikurinn í vetur og titillinn er í húfi. Við ætlum okkur að vinna þennan leik og fara í úrslitin. Freyja Íslandsmeistari Úrslit vikunnar Intersport-deildin Skallagr.-Njarðvík 91-92 Nja: Friðrik Stefánsson 24, Brenton Birmingham 18, Matt Sayman 15, Jóhann Ólafsson 14, Guðmundur Jónsson 12. Ska: Jovan Zdravevski 29, Clifton Cook 20, Ragnar Steinsson 16. KR-Keflavík 90-88 Kef: Anthony Glover 31, Nick Bradford 18, Gunnar Einarsson 16. KR: Damon Garris 23, Cameron Echols 20, Ólafur Ægisson 16. Grindavík-Tindast. 102-95 Gri: Darrel Lewis 33/14/9, Páll Axel Vilbergsson 28, Morten Szmiedowicz 11, Justin Miller 11. Tin: Bethuel Fletcher 30/10/12, Svavar Birgisson 26, Nicola Cvetkovic 18/10, Axel Kárason 14. Keflavík-Grindavík 84-73 Kef: Nick Bradford 26/12, Anthony Glover 15, Gunnar Einarsson 11, Arnar Freyr Jónsson 11. Gri: Justin Miller 23/19, Darrel Lewis 18, Páll Axel Vilbergsson 10. Njarðvík-Snæfell 81-83 Nja: Matt Sayman 22/5/10, Páll Kristinsson 19, Friðrik Stefánsson 12/13, Brenton Birmingham 11, Anthony Lackey 10/13. Snæ: Desmond Peoples 21/12, Pierre Green 20, Hlynur Bæringsson 17. Keflavík-Madeira Kef: Magnús Gunnarsson 24, Nick Bradford 23/13, Gunnar Einarsson 22, Anthony Glover 20/12. Mad: Hatton 30, McCottry 25. 1. deild kvenna Haukar-Njarðvík 65-54 Nja: Ingibjörg Vilbergsdóttir 25, Jaime Woudstra 18/10. Hau: Helena Sverrisdóttir 16/19, Ragnheiður Theodórsdóttir 15. KR-Grindavík 34-58 Gri:Sólveig Gunnlaugsdóttir 15, Erla Reynisdóttir 12. KR: Helga Þorvaldsdóttir 10. Knattspyrnudeildir Keflavíkur og UMFN halda umfangsmikið knattspyrnumót í Reykjaneshöll um helgina í samvinnu við 10-11. Þetta mót er nú haldið annað árið í röð og munu 11 íþróttafélög af suður- og suðvesturl- andi senda 5. f lokks lið drengja til mótsins. Þátttakendur verða vel á f jórða hundrað drengja á aldrinum 10 og 11 ára og munu flest- ir þeirra gista í Holtaskóla. Einnig má reikna með að fjöldi foreldra munu koma og fylgjast með börnum sínum keppa í Reykjaneshöllini um helgina. Segja aðstand- endur keppenda að ánægjulegt sé að íþrótta- hreyfingin geti tekið virkan þátt í að fá fólk til þess að sækja Reykjanesbæ heim. Óhætt er að gera ráð fyrir að fyrirtæki og þjónustuaðilar á svæðinu muni njóta góðs af þessum heimsókn- um. Fjöldi sjálfboðaliða mun leggja mótshöl- durum lið til þess að gera mótið sem veglegast. Mótið hefst kl. 10 á laugardagsmorgun og lýk- ur um kl. 14:00 á sunnudaginn með verðlaun- aafhendingu. Þátttakendur munu gera ýmsilegt annað en að leika knattspyrnu, m.a. skoða flugvélar hjá Iceandair, fara í bíó og í sund, halda pizz- uveislu svo eitthvað sé nefnt. Bæjarbúar eru hvattir til þess að líta við í Reykjaneshöllinni og fylgjast með sprækum og kátum strákum í fótbolta um næstu helgi. Stórmót í Reykjaneshöll um helgina Keflavík og Grindavík mætast í Hópbílabikarnum L U T Stig Njarðvík 7 6 1 12 Keflavík 7 5 2 10 Snæfell 7 5 2 10 Fjölnir 7 5 2 10 Skallagrímur 7 4 3 8 Haukar 7 3 4 6 Grindavík 7 3 4 6 ÍR 7 3 4 6 KR 7 3 4 6 Tindastóll 7 3 4 6 Hamar 7 2 5 4 KFÍ 7 0 7 0 Intersport-deildin Ju s t i n Mi l l e r, l e i k m a ð -u r k ö r f u k n a t t l e i k s l i ð s Grindavíkur, er farinn heim á leið og mun ekki leika meira með liðinu í vetur. Hann hélt aftur til Bandaríkj- anna á þriðjudag til að vera við hlið móður sinnar sem er að kljást við erfið veikindi. M i l l e r l é k 7 l e i k i m e ð Grindavík og skoraði um 14 stig í leik, tók 11 fráköst og varði 2 skot . Frammistaða hans var misjöfn í leikjunum, en hann var besti maðurinn á vellinum í sigri Kef lavíkur á Grindavík í síðustu umferð þar sem hann skoraði 23 stig og tók 19 fráköst. MILLER FARINN SPORT MOLAR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.