Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 2
Veður Suðvestan 5-13 m/s með skúrum í dag og hiti 4 til 9 stig, en léttskýjað austanlands og hiti upp í 12 stig þar. sjá síðu 16 Stöndum saman og kaupum álfinn – fyrir unga fólkið 10x10 DBL Kubbur SÁÁ – til betra lífs  Fornleifa leitað við Árbæ Fornleifarannsóknir standa enn yfir á bæjarstæði Árbæjar innan marka Árbæjarsafns. Sólrún Inga Traustadóttir fornleifafræðingur segir töluvert af gripum hafa fundist. Markverðastar séu vísbendingar um byggingar sem eru eldri en ritaðar heimildir gefa til kynna. Fréttablaðið/Sigtryggur ari sAMFÉLAG Fyrrverandi knattspyrnu- kappinn Guðjón Árni Antoníusson hefur tekið við starfi aðstoðarskóla- stjóra í Gerðaskóla í Garði. Guðjón Árni ákvað í fyrra að draga sig úr leik eftir að hafa lengi glímt við eftirköst höfuðmeiðsla í boltanum. Hann hefur kennt íþróttir í grunn- skóla frá 2008 og segist spenntur að takast á við nýtt hlutverk. ,,Ástæðan fyrir að ég hætti var röð höfuðhögga sem höfðu mikil áhrif á mig. Bæði fékk ég spörk í höfuðið og bolta í höfuðið á skömmum tíma,“ segir Guðjón Árni sem spilaði í 15 ár með meistaraflokki Keflavíkur að undanskildum þremur árum, frá 2012-2014. Hann fékk sitt fyrsta höfuðhögg á æfingu árið 2013 og stuttu seinna fékk hann annað og svo þriðja höfuðhöggið sem hafði slæmar afleiðingar. „Þetta byrjaði að hafa áhrif á mínar hversdagslegu athafnir. Ég gat ekki sinnt einföldustu hlutum. Ég upplifði móðukennda sjón, svima og jafnvægisleysi,“ segir Guðjón Árni sem var iðulega undir læknis- hendi hjá ýmsum læknum vegna höfuðáverkanna. „Þegar ég fékk grænt ljós um að fara aftur í boltann þá létti mér mjög mikið. Ég vildi bara spila, þetta var mín ástríða.“ Guðjón segir fræðslu um höfuð- áverka lengi hafa verið ábótavant í íþróttaheiminum og hana þyrfti að bæta, en þó hafi ákveðin vitundar- vakning átt sér stað undanfarið og umræðan sé hægt og rólega að opnast. Leikmenn hafi oftar en ekki falið slík meiðsli fyrir sjálfum sér og öðrum enda keppnisskap mikið. ,,Ég vissi eiginlega ekki neitt um þetta. Það voru aðrir sem höfðu lent í þessu, bæði í handbolta og fótbolta, og varð ég samferða þeim í gegnum bataferlið. Þar fékk ég að kynnast alvöru málsins,“ segir Guðjón Árni en Sara Hrund Helgadóttir, fyrrver- andi knattspyrnukona í meistara- flokki Grindavíkur, steig fram fyrir um hálfu ári og sagði frá þrálátum höfuðverkjum og vanlíðan í mörg ár, eftir að hafa hlotið höfuðmeiðsli í leikjum en hún fékk heilahristing sex sinnum. ,,Það tók mig þrjú ár að átta mig á því að heilsan væri ofar öllu. Ef heilsan er ekki í lagi þá er ekkert í lagi. Það er lagt mikið upp úr því að þú þurfir að vera harður og því er slegið upp að það sé eitthvað töff að harka af sér. Sem það verður þó ekki ef þú ert að glíma við varanleg- an skaða vegna höfuðáverka. Eftir svona höfuðáverka er mikilvægt að hvíla sig og hlúa að heilsunni. Menn þurfa að passa sig og taka ekki of mikla áhættu,“ segir Guðjón Árni. gunnthorunn@frettabladid.is Höfuðmeiðsli ekki fengið næga athygli Höfuðmeiðsli í íþróttum eru algeng og draga oft dilk á eftir sér. Slík meiðsli ber að taka alvarlega segir fyrrverandi knattspyrnumaður í meistaraflokki sem sjálfur lenti í röð höfuðhögga. Starfar nú sem aðstoðarskólastjóri í Garðinum. guðjón Árni segir að leikmenn feli oft höfuðáverka. Fréttablaðið/SteFÁn Það tók mig þrjú ár að átta mig á því að heilsan væri ofar öllu. Ef heilsan er ekki í lagi þá er ekkert í lagi. Guðjón Árni Antoníusson kópAvoGur Velferðarráð Kópa- vogs samþykkti á mánudag að leyfa gæludýrahald í félagslegum íbúðum í eigu bæjarins. Með samþykktinni verður heimilt  að halda hund eða kött með því skilyrði að sé sameigin- legur inngangur að íbúðum þurfi tveir þriðju hlutar þeirra sem nota þann inngang að samþykkja dýra- haldið. Ef um er að ræða sérinngang að félagslegri íbúð þá er hunda- og kattahald leyfilegt þar. – gar Mega nú halda hunda og ketti nýjar lendur opnast köttum í Kópavogi. Fréttablaðið/andri DóMsMáL Sigurður Kristinsson játaði sök að hluta þegar ákæra héraðssaksóknara vegna stór- felldra skattalagabrota var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hinir tveir ákærðu, Unnur Birgisdóttir, tengdamóðir Sigurðar, og Armando Luis Rodriquez, neit- uðu sök. Þau eru öll ákærð fyrir að hafa svikið undan skatti í gegnum fyrirtæki Sigurðar, SS verk, og nema meint skattsvik þeirra um 105 millj- ónum króna. Þau eru öll ákærð fyrir að hafa hvorki staðið skil á virðis- aukaskatti né staðgreiðslu opin- berra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna fyrirtækisins. Sigurður neitaði að hafa skilað röngum virðisaukaskattskýrslum árin 2014 og 2015 þar sem 34 millj- ónir eiga að hafa verið offramtaldar í formi innskatts. Hann viðurkenndi hins vegar vanskil á virðisaukaskatti upp á tæplega þrjár milljónir króna og vangreiðslur opinberra gjalda upp á tæpar 15 milljónir. Sigurður hefur verið talsvert í fréttum að undanförnu vegna rannsóknar sem hann hefur sætt í Skáksam- bandsmálinu og varðar stórfelldan fíkniefnainnflutning frá Spáni. Þá er hann eiginmaður Sunnu Elviru Þor- kelsdóttur sem slasaðist alvarlega þegar hún féll milli hæða á heimili þeirra hjóna á Malaga á Spáni. – sks Játaði sökina að hluta Sigurður Kristinsson mætir í héraðs- dóm Fréttablaðið/Sigtryggur ari 1 6 . M A í 2 0 1 8 M I ð v I k u D A G u r2 F r É t t I r ∙ F r É t t A B L A ð I ð 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 8 -0 5 6 C 1 F C 8 -0 4 3 0 1 F C 8 -0 2 F 4 1 F C 8 -0 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.