Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 11
*M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 0 4 9 R e n a u lt 3 x a t v in n u b íl a r 5 x 2 0 m a rs www.renault.is Þú tankar sjaldnar á Renault sendibíl RENAULT KANGOO, DÍSIL 1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL Verð: 2.217.000 kr. án vsk. 2.750.000 kr. m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT TRAFIC, DÍSIL 1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL Verð frá: 2.943.000 kr. án vsk. 3.650.000 kr. m. vsk. Eyðsla frá 6,5 l/100 km* RENAULT MASTER, DÍSIL 2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL Verð frá: 3.669.000 kr. án vsk. 4.550.000 kr. m. vsk. Eyðsla 7,8 l/100 km* Fótbolti Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var tekinn af velli í hálfleik vegna meiðsla þegar lið hans, Randers, tryggði sæti sitt í efstu deild með sigri gegn Lyngby í umspili um það að forðast fall úr dönsku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gær. Íslenskir knattspyrnuáhugamenn hugsa fyrst og fremst um þátttöku lykilleikmanna okkar á HM í sumar þessa dagana og hvarflaði hugur þeirra strax að því að þeir gætu tekið þátt á mótinu í sumar þegar fregnir bárust af meiðslunum. Hannesi Þór var bæði efst í huga að hafa bjargað sér frá falli og að meiðslin væru ekki alvarleg þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. „Ég fann fyrir eymslum í nára þegar svona 20 mínútur voru liðn- ar af leiknum. Þetta var svo komið á það stig að ég átti erfitt með að sparka almennilega í boltann. Mig langaði að klára leikinn, en um leið hafði ég þá tilfinningu að ég gæti gert illt verra með því að sparka af alefli í boltann,“ segir Hannes Þór. „Ég lét þjálfarann vita hvernig staðan var í hálfleik og það var hans ákvörðun að taka mig út af. Ég met það þannig að þetta sé væg fyrsta stigs tognun í nára sem hefði getað orðið verri. Þjálfarinn mat það svo að það væri betra að skipta mér út af og það var líklega skynsamleg ákvörðun,“ segir Hannes Þór um meiðslin sem hann fann fyrir. „Það er ofboðslega góð tilfinn- ing að hafa náð að bjarga okkur frá falli eftir kaflaskipt tímabil. Þessi tilfinning er ekkert ósvipuð því að fagna titli. Við byrjuðum tímabilið mjög illa og það leit allt út fyrir að við myndum falla. Eftir að deild- inni var skipt í efri og neðri hluta þá höfum við hins vegar spilað vel og tryggðum okkur sætið með sigr- inum í gær,“ segir Hannes um tíma- bilið hjá Randers. „Ég held að þetta séu þannig meiðsli að ég muni ekki verða lengi frá. Ég þekki líkama minn nokkuð vel og met það þannig að meiðslin séu lítils háttar. Ég ætla að fagna sætinu í kvöld með liðsfélögunum. Svo tekur við bara stutt frí og svo fer maður á fullt að huga að næstu verkefnum með landsliðinu og einbeitingin fer fullt á HM-undir- búninginn,“ segir Hannes Þór um framhaldið hjá sér. hjorvaro@frettabladid.is Meiðsli Hannesar Þórs ekki alvarleg Hannes Þór Halldórsson og félagar hans hjá Randers eru sloppnir við fall eftir skin og skúrir á leiktíðinni. Hannes fór meiddur af velli í lokaleik Randers í dönsku úrvalsdeildinni, en hann telur að hann verði ekki lengi frá vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum. Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður fagnar sigri Randers í leik liðsins fyrr á þessari leiktíð. noRdicpHotos/getty Ég held að þetta séu þannig meiðsli að ég muni ekki verða lengi frá. Ég þekki líkama minn nokkuð vel og met það þannig að meiðslin séu lítils háttar. Hannes Þór Halldórsson S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 11Þ r i ð J U D A G U r 2 2 . m A í 2 0 1 8 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D A -A 2 1 C 1 F D A -A 0 E 0 1 F D A -9 F A 4 1 F D A -9 E 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.