Fréttablaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 12
Rafvirkjar
LED flóðkastarar
Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið
að þínum þörfum með Appi
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
olafsson.is
ÚKRAÍNA Fjölþjóðlegt rannsóknar-
teymi, sem Hollendingar leiða,
greindi í gær frá því að rannsókn
teymisins hefði leitt í ljós að rúss-
nesk eldflaug var notuð til að skjóta
niður flug MH17 yfir austurhluta
Úkraínu árið 2014 þegar vélin var
á leið frá Amsterdam til Kúala
Lúmpúr. Alls fórust 298 almennir
borgarar þegar flugvélin var skotin
niður, 283 farþegar og fimmtán
manna áhöfn. Enginn lifði árásina
af en Hollendingar voru stærstur
hluti hinna látnu, alls 193.
Rússar hafa lengi verið sakaðir
um að bera ábyrgð á málinu. Fljót-
lega eftir árásina sökuðu meðal ann-
ars Þjóðverjar og Bandaríkjamenn
þá um að hafa komið að málinu.
Öryggismálastofnun Hollendinga
greindi frá því árið 2015 að rúss-
nesk Buk-eldflaug hefði grandað
vélinni. Henni hafi verið skotið frá
svæði undir stjórn aðskilnaðar-
sinna, hliðhollra Rússlandi, í Aust-
ur-Úkraínu. Ári síðar komst fyrr-
nefnt rann sóknar teymi (JIT) að því
að eldflaugakerfið hefði komið frá
Rússlandi og til Úkraínu sama dag
og flugvélin var skotin niður.
Samkvæmt yfirlýsingu JIT frá
því í gær hefur teymið nú staðfest
að Buk-eldflaugin kom frá 53. loft-
varnaherdeild rússneska hersins.
„Öll farartækin í bílalestinni sem
flutti eldflaugina tilheyrðu rúss-
neska hernum,“ sagði Wilbert
Paulissen, einn rannsakenda.
Rússar tóku illa í yfirlýsinguna
og höfnuðu allri aðkomu sinni að
málinu. Varnarmálaráðuneytið
hvatti rannsóknarteymið til þess að
skoða „raunverulegar staðreyndir“
um málið.
„Ekki ein einasta loftvarnareld-
flaug úr eldflaugakerfi rússneska
hersins hefur farið yfir landa-
mærin við Úkraínu. Aldrei nokk-
urn tímann,“ sagði meðal annars í
yfirlýsingu ráðuneytisins. Þá sagði
þar enn fremur að rússneski herinn
hefði áhyggjur af þeim ásetningi
rannsóknarteymisins að réttlæta
fullyrðingar sínar með því að reiða
sig á myndir af samfélagsmiðlum
sem hefði verið átt við með mynd-
vinnsluforritum.
„Það veldur okkur áhyggjum
að rannsakendur hundsi og hafni
vitnisburði fólks úr nærliggjandi
samfélögum í Úkraínu. Vitnis-
burðurinn hefur bent til þess að
eldflaugaskotið hafi komið af yfir-
ráðasvæði úkraínska hersins,“ sagði
í yfirlýsingu Rússa aukinheldur.
Rannsóknarteymið hefur hins
vegar greint frá því að fjöldi vitna
hafi séð umrædda bílalest rússneska
hersins koma til Úkraínu. Rússar
lögðust á sínum tíma gegn því að
Sameinuðu þjóðirnar myndu skipa
rannsóknarteymi, beittu sum sé
neitunarvaldi sínu í öryggisráðinu. Í
kjölfarið var hið óháða rannsóknar-
teymi skipað og samanstendur það
af rannsakendum frá Austurríki,
Belgíu, Malasíu, Hollandi og Úkra-
ínu. – þea
Rússar hafi átt eldflaugina
sem grandaði flugi MH17
Buk-eldflaugakerfi til sýnis í Moskvu, höfuðborg Rússlands. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
NORÐUR-KÓREA Ákvörðun Donalds
Trump, forseta Bandaríkjanna, um
að aflýsa leiðtogafundi sem átti að
halda með Kim Jong-un, einræðis-
herra Norður-Kóreu, í Singapúr
þann 12. júní, olli alþjóðasamfélag-
inu vonbrigðum í gær.
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, var
einn af þeim sem lýstu vonbrigðum
sínum með ákvörðunina. „Ég hvet
alla aðila málsins til þess að halda
áfram viðræðum og finna réttu
leiðina að friðsamlegri og sann-
reynanlegri kjarnorkuafvopnun á
Kóreuskaga,“ sagði Guterres í yfir-
lýsingu. Undir þetta tók meðal ann-
ars utanríkisráðuneyti Singapúr.
Ákvörðunin varð til þess að
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu,
boðaði þjóðaröryggisráð sitt á fund
í forsetabústaðnum, hinu svokall-
aða Bláa húsi. Ljóst er að Moon þótti
liggja á fundinum enda var boðað til
hans í kringum miðnætti að suður-
kóreskum tíma. Sagði hann svo
fjölmiðlum að hann hvetti til þess
að fundurinn færi fram. „Kjarnorku-
afvopnun á Kóreuskaga og varan-
legur friður eru sögulega mikilvæg
verkefni sem má ekki slá á frest.“
Trump greindi frá ákvörðun
sinni í bréfi sem hann sendi Kim
og gerði svo sjálfur opinbert. Var
ákvörðunin tekin eftir að Norður-
Kóreumenn sögðust hafa sprengt
kjarnorkuvopnatilraunastöð sína í
Punggye-ri. Í bréfinu sagði Trump
ákvörðunina tekna vegna „þeirrar
miklu reiði sem mátti greina í nýj-
ustu yfirlýsingu“ einræðisríkisins.
„Þið talið um kjarnorkuvopnabúr
ykkar, en okkar er svo stórt og öflugt
að ég bið til drottins um að aldrei
þurfi að nota það. Mér fannst eins
og undursamlegt samband væri að
byggjast upp á milli okkar. Einhvern
daginn mun ég aftur hlakka mikið
til þess að hitta þig en í millitíðinni
vil ég þakka þér fyrir að sleppa
bandarískum gíslum sem nú eru
komnir heim til fjölskyldna sinna,“
sagði í bréfi Trumps.
Trump bætti því við að ef Kim
snerist hugur ætti hann að hafa
samband. Hegðun Norður-Kóreu-
manna hafi gert það að verkum að
heimurinn, og sérstaklega Norður-
Kórea, hafi misst af gullnu tækifæri
til að tryggja frið og velsæld.
Yfirlýsingin sem Trump vísaði til
var gefin út fyrr í gær. Choe Son-hui,
einn varautanríkismálaráðherra
Norður-Kóreu, sagði þar að ríki sitt
myndi ekki grátbiðja um viðræður
og varaði við kjarnorkustyrjöld ef
viðræðuleiðin gengi ekki upp. Vitn-
aði Choe einnig til nýlegra ummæla
Mike Pence, varaforseta Bandaríkj-
anna, um að það gæti farið eins fyrir
Norður-Kóreu og fór fyrir Líbýu.
Muammar Gaddafi, einræðis-
herra Líbýu, var drepinn í áhlaupi
uppreisnarmanna árið 2011. Banda-
ríkin studdu uppreisnarmennina í
gegnum NATO en átta árum áður
hafði Líbýa gefið kjarnorkuáætlun
sína upp á bátinn, líkt og vonast er
til að Norður-Kórea geri nú.
„Þar sem ég er viðriðinn mál-
efni Bandaríkjanna get ég ekki
sagst hissa á þessum fávíslegu og
heimskulegu ummælum sem vella
úr kjafti bandaríska varaforsetans.
Hvort sem Bandaríkin vilja hitta
okkur við fundarborðið eða á kjarn-
orkuvígvellinum veltur á ákvörð-
unum og hegðun Bandaríkjanna
sjálfra,“ sagði Choe.
Eftir kúvendingu Norður-Kóreu
í upphafi árs og farsælan fund
með Moon á landamærasvæðinu
á Kóreu skaga á dögunum hefur
togstreitan aukist aftur á síðustu
dögum. Svo virðist sem ummæli
Johns Bolton, þjóðaröryggisráðgjafa
Bandaríkjaforseta, um hina svoköll-
uðu líbýsku leið, hafi vakið Norður-
Kóreumenn til reiði. Hótuðu þeir
skömmu eftir að ummælin féllu að
aflýsa fundinum en nú er ljóst að
Trump varð fyrri til. Þá hefur einnig
verið tekist á um hvað felst í kjarn-
orkuafvopnun og hefur Norður-
Kórea sagt ómögulegt að ríkið losi
sig einhliða við sprengjur sínar.
„Svo virðist sem við séum aftur
farin að uppnefna og hóta kjarn-
orkustríði, stuttu áður en fundur-
inn átti að fara fram. Sumir gætu
sagt að þetta sé sígilt einkenni um
umræðuhefð Norður-Kóreumanna
en þessa þróun hefði auðveldlega
mátt koma í veg fyrir,“ sagði Laura
Bicker, blaðamaður BBC í Suður-
Kóreu, í fréttaskýringu sinni í gær.
Sagði Bicker að viðkvæmar við-
ræður krefðust þess að menn vönd-
uðu sig þegar þeir töluðu og þótti
henni ljóst að Norður-Kóreumönn-
um fyndist ríkisstjórn Trumps ekki
nógu öguð í málflutningi sínum.
Að mati Bicker er hins vegar
áhugavert að norðurkóreskir erind-
rekar hafi ekki enn ráðist persónu-
lega á Trump í yfirlýsingum sínum
heldur beint sjónum að þeim sem
standa forsetanum nærri. Gæti það
bent til þess að Norður-Kórea vilji
ekki enn útiloka að leiðtogafundur-
inn geti farið fram.
thorgnyr@frettabladid.is
Olli vonbrigðum með
því að aflýsa fundinum
Donald Trump mun ekki funda með Kim Jong-un í Singapúr í júní. Aflýsti fund-
inum vegna reiði Norður-Kóreumanna sem hótuðu kjarnorkustríði og kölluðu
varaforsetann heimskingja. Ekki er þó öll von úti enn, að mati skýranda BBC.
Allra augu hafa beinst að þeim Donald Trump og Kim Jong-un undanfarna
daga og vikur, meðal annars augu þessa suðurkóreska hermanns. Nú er ljóst
að ekkert verður af fundi þeirra, að minnsta kosti í bili. NORDICPHOTOS/AFP
TÆKNI Mark Zuckerberg, stofnandi
og forstjóri Facebook, er sakaður
um að hafa þróað aðgerðaáætlun
fyrir Facebook sem miðaði að því
að nýta sér mikið magn persónu-
legra upplýsinga notenda til þess að
fyrirtæki hans gæti grætt milljarða
og gert út af við keppinauta. Fyrr-
verandi sprotafyrirtækið Six4Three
ber upp þessar ásakanir en The
Guardian greindi frá málinu, sem
hefur staðið yfir í rúm tvö ár, í gær.
Málið var upphaflega höfðað í
lok 2015 þegar Facebook lokaði á
aðgengi notenda að gögnum vina
sinna á samfélagsmiðlinum. Hafði
Six4Three þá varið um 25 millj-
ónum króna í að þróa hið afar
umdeilda app Pikinis. Appið var
hægt að nota til þess að finna mynd-
ir af vinum notandans á Facebook
þar sem umræddir vinir voru í sund-
fötum einum klæða. Umfang máls-
ins hefur hins vegar vaxið mikið á
undanförnum vikum.
Í síðustu viku fékk dómari í
San Mateo afhenta tölvupósta og
skilaboð sem gengu á milli toppa
Facebook, meðal annars Zucker-
bergs sjálfs, þar sem rætt var um að
„vopnvæða“ persónuupplýsingar.
Guardian greindi svo einnig frá
því í gær að Facebook sé sakað um
að hafa notað miðla sína og forrit
til þess að safna upplýsingum um
bæði notendur samfélagsmiðlanna
og vini þeirra, jafnvel þá sem ekki
höfðu skráð sig á Facebook eða
tengda miðla. Er Facebook gefið
að sök að hafa lesið sms-skilaboð,
fylgst með staðsetningu notenda
og skoðað myndir á snjallsímum
notenda sem ekki hafði verið hlaðið
upp á miðilinn. – þea
Segja Facebook stunda persónunjósnir
Mark Zuckerberg stendur í ströngu þessa dagana vegna bresta í meðferð per-
sónulegra upplýsinga notenda Facebook-miðilsins. NORDICPHOTOS/GETTY
Öll farartækin í
bílalestinni sem
flutti eldflaugina tilheyrðu
rússneska hernum.
Wilbert Paulissen,
einn rannsakenda
2 5 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
6
-B
C
6
4
1
F
E
6
-B
B
2
8
1
F
E
6
-B
9
E
C
1
F
E
6
-B
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K