Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Blaðsíða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Blaðsíða 99
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 1 99 urinn hirðir ekki einu sinni um að fylgja félaga sínum og besta vini til graf- ar en heldur rakleitt af stað gangandi til þorpsins. Hann velur sér erfiðari og lengri leið yfir heiðina, frekar en Ófær- una fyrir fjallið, því hann vill ekki vera í námunda við hafið framar, hvað þá feta spor þeirra Bárðar til baka einungis nokkrum klukkustundum eftir að þeir fóru þar um fullir vonar og hugljómun- ar. Strákurinn hefur þegar lifað sinn Paradísarmissi. Hann er búinn að missa alla og gælir við þá hugmynd að týna sjálfur lífinu á leiðinni, gefa sig á vald þögninni. Það á þó ekki fyrir stráknum að liggja að hverfa úr þessum heimi enn sem komið er. Orðin sem urðu Bárði að bana, draga hann upp úr hverjum skafl- inum á fætur öðrum þegar þögnin er komin ískyggilega nærri. Bókinni ætlar hann nefnilega að skila og það gerir hann, þótt það kosti hann næstum lífið. Enda veit hann manna best að dauðinn er ekki auðveld lausn, „það er ábyrgðar- hluti að deyja“ (H&H bls. 99). Með vissum hætti má segja að dauði Bárðar fleyti stráknum í átt að betra lífi. Hann eignast nýja vini í Plássinu; Geir- þrúði, Helgu og Kolbein, en þau búa saman í einskonar andófi við valda- mesta fólkið í þorpinu – aðhyllast við- horf sem eru mun nútímalegri og umburðarlyndari en tímarnir í kringum 1900 þoldu. Strákurinn fær inni hjá þeim. Ást hans á orðum og trúmennska gagnvart stórvirki Miltons í eigu Kol- beins færir hann undir þeirra verndar- væng. Strákurinn lifir sem sagt af og undir lok fyrsta bindis Himnaríkis og helvítis hefur hann snúið baki við sjómennsk- unni, við lífi því sem faðir hans og for- feður hafa lifað fram að þessu. Líf hans hefur tekið nýja stefnu, enda er hann kominn í annars konar samfélag. Þétt- býlið hefur tekið við af forneskjulegum kotbúskap og fiskiróðrum á árabátum. Sjálfstraust stráksins hefur einnig eflst til mikilla muna samhliða því að honum opnast nýir möguleikar. Hann er líka skemmtilega hégómlegur, áttar sig fljótt á því að það breytist einnig ýmislegt við að komast í þokkaleg föt í fyrsta skipti á ævinni. Mestu skiptir þó að lífsviðhorf fólksins í húsi Geirlaugar mótast af ást á bókum, jafnræði og samhjálp, sem minnir á viðhorfin sem móðir stráksins hefur lýst í bréfum sínum til hans þar sem hún segir af sér og föður hans til að halda vakandi minningum hans um þau og þá drauma sem þau áttu sér. Strákur- inn er í einhverjum skilningi kominn í „föðurhús“ í fyrsta sinn frá því að pabbi hans drukknaði og heimilið var leyst upp. Gildir þá einu þótt kvenmaður sé í forsvari fyrir húsinu á tímum sem rétt mörkuðu árdaga kvenréttinda – Geir- þrúður er nefnilega á við hvaða karl sem er. Og það er sem sagt í hennar húsi sem við finnum strákinn í upphafi annars bindis trílógíunnar, Harmi englanna. Orð sem hjálparsveitir Harmur englanna er tákn fyrir snjóinn. Það er engu líkara en svo margir hafi drukknað að englarnir geti ekki hætt að gráta. Af snjó er því svo sannarlega nóg í þessum miðhluta sögunnar af strákn- um. Og ef saga vináttunnar við Bárð var sögð í tengslum við hafið í Himnaríki og helvíti, þá þroskast vináttan við Jens landpóst í réttu hlutfalli við fannfergið í Harmi englanna. Meðfram því að gera þorpslífinu skil er þetta miðjubindi trí- lógíu Jóns Kalmans þó fyrst og fremst saga af lærdómi og orðum. Af átökum þeim tengdum, áhrifamætti þeirra og hversu langt menn ganga til að koma orðum og visku til skila. Það virkar með nokkrum ólíkindum á lesandann, þegar strákurinn er loksins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.