Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Blaðsíða 120

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Blaðsíða 120
D ó m a r u m b æ k u r 120 TMM 2012 · 1 ekki síður en endurminningar – en sá þáttur er öflugastur fremst í bókinni. Þar er farið í stökkum yfir Reykjavík bernskuára Þórðar, hlaupið upp og niður virðingastiga þar sem efst tróna danskir kaupmenn og þeirra frúr, þar sem hver skal þekkja sinn stað þótt duttlungar kynlífsins, fals og snobberí valdi gjarna óreiðu í lagskiptingunni. Þessar lýsingar hafa þann annmarka, að sögumanni finnst óþarft að útskýra eitt eða neitt, það er sem Þórður geri ráð fyrir því, að þeir fáu sem kynnu að gægjast yfir öxlina á honum þegar hann stendur í þessum „prívatskrifum“ sínum, eigi fyrirfram reynsluaðgang að þessum heimi. En þær eru bráð- skemmtilegar, hraðinn mikill og ærslin og ríkar eru þær af fyndnum stórýkjum: „það var álitið mikil upphefð fyrir skáldið Einar Benediktsson að vera gift- ur náfrænku barnapíunnar hjá Thom- sen“ (sem rétt áður er kallaður „einn voldugasti kaupmaður veraldar“ (7–8). Nokkru síðar fer gamanið að kárna. Kjaftasögusafnið sem Þórður hafði dregið saman fer að snúast um fjöl- skyldu biskups, einkum ramman hnút á kvennamálum biskupssonar. Um leið gerist Þórður æ óáreiðanlegri sögumað- ur og bregður sér síðan á gandreið í fantasíu þar sem níð og last um menn og æðri máttarvöld stíga hrikalegan dans þegar hann lætur persónur sinnar biskupssögu koma til himna og trufla með húsnæðisvandkvæðum sínum í nýrri tilveru geypilegt hómósexúelt kyn- svall í hásölum Himnaríkis. Ég tel líklegt að þessi svarta messa geymi rammasta guðlast sem sett hefur verið á blað – og minnir það í sjálfu sér á þann þátt í fari Þórðar sjálfs sem hann talar oft um og ekki án sjálfsháðs reynd- ar: Hann svífst einskis, ósvífnin er tak- markalaus. Hann heldur því fram snemma í bókinni að svo hafi alltaf verið: „Það verður ekki ofsögum sagt af eigingirni minni og annari skít- mennsku. Ég hugsaði aldrei um aðra en sjálfan mig, átti ekki vott af tilliti til annarra, ekki vott af siðferðiskennd“ (27). Vitanlega eru þetta ýkjur eins og flest sem Þórður segir – allir taka visst tillit til annarra manna, þótt ekki væri nema til að þjóna sinni eigingirni! Og dæmið sem hann nefnir um tillitsleysi sitt þarna er fremur saklaust: hann kaupir fjórtán ára unglingur epli fyrir aleiguna og étur þau öll sjálfur – þótt hann efist um að móðir hans hafi þá átt aura fyrir brauði. En bæði guðlastið, sem fyrr var nefnt, sem og staðhæfingar um nafnkennt fólk og einkamál þess sem dreift er um alla bók, ýta undir það að lesandinn finni ekki einungis sér- kennilegt sjálfsháð að baki ítrekuðum staðhæfingum hans um það hve mikið fúlmenni og glæpamaður hann sjálfur sé. Svo mikið er víst að Þórður hefur til- tölulega snemma á lífsleiðinni ákveðið að hætta að vera rola og aumingi, eins og hann segir, og vinna sína sigra í kyn- lífi, listalífi og á umhverfi sem hlýtur að vera honum fjandsamlegt með því að vera reiðubúinn til að ganga fram af öllum með hrikalegum sleggudómum, afdráttarlausu lasti og miskunnarlausu níði. Stunda sínar „tilraunir með dramb og hroka“ jafnvel þótt það kunni að kosta einhvern lífið eins og hann gefur til kynna að gerst hafi í raun. Hann talar á einum stað um „svæsna tilraun sem endaði með dauða tilraunadýrsins“(71). Lesandinn fær hinsvegar fátt að vita um það hvernig slík lífsstefna verður til. Hvernig til verður þessi íslenski Nietzsche aner sem vill lifa sterku lífi handan við gott og illt. Í ævisöguljóði eftir Elías Mar sem sá fyrst dagsljós fyrir jól er vikið að Þórði, „kaldhæðna öldungnum sem lífið hafði gert mis- kunnarlausan“.3 Af því ferli fær lesand-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.