Freyr - 01.12.1924, Blaðsíða 1

Freyr - 01.12.1924, Blaðsíða 1
I. ÁRGANGUR. JOLIN Fornhelga dýrðar-hátíð, heill sé þér! Hjartnanna kærleiksríka tengiband! Fagnar þér sérhver maður, lýður, land, Lífsþrá sem á og himinljós þitt sér. Söngvar þér hljóma helgum véum frá. Harmþrungin andvörp beina þér sinn óm, Eæn þér er send, sem ekki eru orðin tóm, Andlegu magni stemd í von og þrá. Kserleikans eld þú kveikir brjóstum í, Kveður við æskulífsins glaumur hár, Öreigans lífi ertu vonarsól. Úr rökkurdjúpi röðull skín á ný, Raunirnar léttir, þerrir sorgartár, Bndurfædd, heilög, alt-blessandi JÓL. Fréttir. Conservatívar hafa náð völd- um á Englandi. Þannig snerist nú þjóðarviljinn í það sinn. — McDonald-stjórnin hefir reynst fremur liðlétt í heimamáJun- um, segir Bandaríkjablað, en komið mjög vel frain í utanrík- ismálum. Henni gekk lítið sem ekkert að bæta hag verkalýðs- ins í landinu, og tapaði fyrir það trausti síns flokks að sumu Ieyti. Þó var það ekki aðal- atriðið í falli stjórnarinnar, heldur bróðurleg samtök gömlu flokkanna um að koma henni frá. Hátollaflokkur Bandaríkjanna náði völdum í síöustu kosning- um þar. Er það mörgum ráð- gáta. Menn skilja naumast hvemig slíkt gat atvikast, eftir alt sem á undan var gengið. Ku Klux Klan félagsskapnum er af sumum þakkaður sigur sam- veldismanna. Aðrir halda að kosningaryk með fáeinum gull- ltornum innanum, hafi fokið í augu kjósendanna. Nú virðist vera /Btríðshugur um allan heim. Margir spá stríði bráölega og byggja meðal annars á því, hvað mikið er tal- að um frið meðal stjómenda; ýmsra landa. Menn þykjast hafa tekið eftir því, að slíkt hafi jafnan verið fyrirboði stríða í liðinni tíð. Bandaríkjablöö eru að ívara þjóðina við að gæta sín, og í sambandi við það benda á vígbúnað Japaníta. England og Frakkland smíða loftskip af krafti, rétt eins og eitthvað standi til, en Bandaríkin sofa vtert á gullhrúgunni enn sem komið er. Bretar brugðu sér yfir til Egyptalands um daginn til að stilla þar til friðar. Þeir eru al- staðar og æfinlega að semja frið. -----Ö---- TIL LÁRU SALVERSON. Mig langar að kveða þér kvæði sem kveðju frá íslenzkri sál, er þekt hefir sjálfrar og sinna iö sorgdjúpa, hugþekka mál. Þó norrænar ritir ei rúnir, þú ritar af norrænni sál af samhug í samræmi andans, oss samýðgi vekur þitt mál. Þú skilur vort andlega eðli, því í þér býr “víkingsins sál”, svo skilur þig lands þessa lýður, því landnemans þýðirðu mál. Vér þökkum þér, ljúfasta Lára! og lesum þig hugbljúg og klökk og sendum þér kærasta kveðju af kærleiltans brennandi þökk. -----0------

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/1347

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.