Skagablaðið


Skagablaðið - 17.08.1989, Blaðsíða 7

Skagablaðið - 17.08.1989, Blaðsíða 7
Skaaablaðið 7 Venilegur samdráttur í rekstri Hótel Ósk á þessu sumri: „Má að miklu leyti kenna íeiðinlegu tíðarfari um“ Rekstur Hótels Óskar, sem nú Rekstur hótelsins gekk ágæt- hefur verið skírt að nýju og heitir lega á síðasta sumri eftir erfitt Gistiheimilið Hótel ðsk, hefur fyrsta ár. Hins vegar hefur stór- gengið mun verr í sumar en í dregið úr fjölda gesta þetta árið fyrra að sögn Daníels Ólafsson- og reksturinn því að vonum erf- ar, hótelstjóra. Bókanir hafa ver- iður. ið mun færri en í fyrra og lætur nærri að samdrátturinn sé um „Skýringin liggur að ég held 50%. fyrst og fremst í mjög leiðinlegu Daníel Ólafsson, hótelstjóri á Hótel Ósk, sem nú hefur verið skírt Gistiheimilið Hótel Ósk. Tilboð í tilefni FANTAMÓTSINS FANT ABORG ARI meö frönskum, sósu og gosi. Verð aðeins kr. 450,- FANTA-LAMBASTEIK OG FANTA—GÓÐIR KJÚKLINGAR með kræsingum. Verð aðeins kr. 770,- ATH! Frítt gos meö öllum mat ÁFRAM SKAGAMENN! STJÖRNUKAFFI - BESTI BITINN í BÆNUM - SKOLABRAUT14 - SÍM112269 tíðarfari í sumar en fleiri þættir hafa einnig spilað inn í,“ sagði Daníel. Hann sagði að þrátt fyrir veru- legan samdrátt hefði talsvert ver- ið um hópa í gistingu. Stærsti hópurinn hefði gist í tengslum við norræna leiklistarnámskeiðið sem haldið var síðasta hluta júlí- mánaðar. Þá voru 55 manns í gistingu hér í 9 nætur. Sú breyting hefur verið gerð á rekstri Gistiheimilisins Hótel Ósk, að Fjölbrautaskóli Vestur- lands á Akranesi yfirtók rekstur- inn af Skagaferðum þann 1. ágúst sl. Yfirtakan kom til þar sem sýnt þótti að reksturinn stæði ekki undir þeim greiðslum sem Skagaferðum bar að greiða skólanum samkvæmt samningi sem gerður var fyrir nokkrum árum. í kjölfar þessarar breytingar eru ýmsar nýjungar á döfinni að sögn Daníels. Hann sagði ætlun- ina að stórauka kynningu á gisti- heimilinu, lækka verð gistinátta og gera ferðalöngum kleift að elda sinn eigin mat á herbergjun- um með því að leggja til potta og pönnur. ísskápur hefur verið á hverju herbergi frá því hótelið tók til starfa. Kærar þakkir Eins og við sögðum frá í síð- asta tölublaði fagnaði Skagablað- ið þeim áfanga sl. fimmtudag, að þann dag voru nákvæmlega fimm ár liðin frá því fyrsta tölublaðið leit dagsins Ijós. Fjöldi gesta leit inn á ritstjórn- arskrifstofu blaðsins í tilefni tímamótanna til þess að sam- fagna blaðinu. Þáðu gestir kaffi og kökur á meðan skrafað var um heima og geima. Skagablaðið vill senda öllum þeim sem hringdu, litu við og/ eða sendu blóm og kveðjur í til- efni afmælisins, kærar þakkir fyrir. Akraneskaupstaður — Umferðarfræðsla Foreldrar 5 og 6 ára barna Umferðarfræðsla barna á Akranesi, fædd árin 1983 og 1984, fer fram í Fjölbrautaskólanum, Vogabraut 5, mánudaginn 21. ágúst og þriðjudag- inn 22. ágúst næstkomandi. Er þessi fræðsla á vegum lögreglunnar, Umferðarráðs og Umferðar- nefndar Akraneskaupstaðar. Hvert barn mætir tvisvar og er í um eina klukku- stund í senn. Farið verður yfir undirstöðuatriði um- ferðarreglna, svo sem hvernig barnið eigi að ganga yfir götu, rætt verður um leiksvæði og hvar börn eigi að sitja í bílum, sýnd verður kvikmynd, sögð saga með leikmyndum og fá börnin blað, sem þau teikna á heima og sýna seinni daginn og fá barm- merki og viðurkenningarmiða sem er „löggus- tjarna“. Fræðslan er sem hér segir: Mánud. 21. ágúst ki. 11.30 -12.30.6 ára börn Mánud. 21. ágúst kl. 13.30-14.30.5 árabörn Þriðjud. 22. ágúst kl. 11.30 -12.30.6 ára börn Þriðjud. 22. ágúst kl. 13.30 -14.30.5 ára börn Forráðamenn eru velkomnir með börnunum. LÖGREGLAN SÍM111100 (SÍMSVARI) Margt er líkt með skyldum (Like father like son) Það er ferlega hall- ærislegt að vera 18 ára menntaskólanemi með heila úr fertugum for- pokuðum skurðlækni en jafnvel enn verra að vera frægur læknir með heila úr 18 ára snar- geggjuðum töffara. En þannig er komið fyrir þeim feðgum Chris og Jack Hammond. Aðalhlutverkin leika Dudley Moore og Kirk Cameron úr hinum vin- sælu sjónvarpsþáttum, „Vaxtarverkjum". Sýnd kl. 21 í kvöld, fimmtudag, og annað kvöld, föstudag. Þrjú á flótta (Three fugitives) Nick Nolte og Martin Short eru óborganlegir í þessari sprenghlægi- legu gamanmynd, sem fær þig til að hristast sundur af hlátri. Sýnd sunnudag, mánudag og þriðju- dag kl. 21.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.