Skagablaðið - 09.01.1992, Blaðsíða 1
Ragga Rur, „Iþrótta-
maðurársins 1991“
Ragnheiður Runolfsdóttir var
í síðustu viku kjörin „íþrótta-
maður ársins“ af íþróttafrétta-
mönnum eins og rækilega hefur
verið tíundað í fjölmiðlum síð-
ustu dagana. Hún bætti svo enn
einni skrautfjöðrinni í hatt sinn á
mánudagskvöld er hún var út-
nefnd „Iþróttamaður Akraness“
í sjötta sinn á síðustu sjö árum.
ví miður var hún farin af
landi brott þegar kjörið var
kunngert en það kom í hlut for-
eldra hennar að taka við verð-
laununum í hennar stað. Ragn-
heiður hlaut yfirburðakosningu í
báðum tilvikum. Hún hlaut 310
stig af 380 mögulegum í fyrra
kjörinu en hér heima hlaut hún
fullt hús stiga, 100 af 100 mögu-
legum.
Ragnheiður er aðeins önnur
konan í sögunni til að hljóta titil-
inn „fþróttamaður ársins" og
jafnframt annar Akurnesingur-
inn til að hljóta þessa útnefn-
ingu. Guðjón Guðmundsson,
sundkappi, hlaut titilinn árið
1972.
— Sjá nánar á bls. 5 í blaðinu í
dag.
Frá vinstri Sigurður Ragnarsson í Blikkverki, þá Eggert Benedikt, Jón
H., Porsteinn og loks Jón G. með rykmœlibúnaðinn ósamsettan að
hluta og hlífðarkassana fyrir framan sig. Á myndina vantar Hjört.
Ragnheiður hampar bikarnum glœsilega sem fylgir nafnbótinni „íþróttamaður ársins“ á heimili foreldra
sinna í síðustu viku.
Starfsmenn Islenska jámblendifélagsins hanna og smíða einstæðan rykmælibúnað:
Starfsmenn íslenska járn-
blendifélagsins hafa undanfarin
misseri unnið að þróun og hönn-
un á búnaði sem mælir þéttleika
ryks í útblæstri kísiljárnsofns.
Sýnt hefur verið fram á beint
samspil á milli rykmagns og
rekstrarhagkvæmni ofnins.
Minna ryk leiðir af sér hagkvæm-
ari rekstur. Tækið, sem byggir á
notkun leysigeisla við mæling-
una, hefur þegar verið selt í
nokkrum eintökum til Noregs.
ggert Benedikt Guðmunds-
son, rafmagnsverkfræðing-
ur, er einn þeirra starfsmanna ís-
lenska járnblendifélagsins sem
unnið hefur að tilraunum og
þróun á þessum búnaði. Hann
sagði í samtali við Skagablaðið,
að sú hugmynd að mæla rykmagn
væri margra ára gömul. Hins
vegar hefði það ekki verið fyrr en
á árinu 1989 að farið var að vinna
skipulega að því að hanna búnað
sem nýst gæti til þessara mæ-
linga.
„Ástæða þess að við fórum út í
það að reyna að þróa okkar eigin
búnað var sú að ekki voru til
neinir mælar á markaðnum sem
hentuðu þeim aðstæðum sem við
búum við. Flestir voru þess eðlis
að þær mældu rykmagn í reyk
sem búið var að sía. Svona tæki
þarf að geta gefið okkur upplýs-
ingar jafnharðan, áður en rykið
er síað úr reyknum, og það var
einfaldlega ekki til. Pví réðumst
við í það að hanna það.“
Tækið sem þeir Grundartanga-
menn hafa þróað og hannað
mælir þéttleika ryks í útblæstri
frá ofninum. Til jress er notaður
leysigeisli. Komið er fyrir tækja-
búnaði sitt hvoru megin á reyk-
háfnum og borað gat á hann.
Geislanum er skotið í gegn og
við hinn endann er tæki sem
mælir útkomuna. Geislinn hefur
þá eiginleika að hann getur mælt
mjög rykmettaðan reyk. Því hef-
ur tækið reynst mjög vel við að-
stæður eins og þær sem eru við
kísiljárnvinnslu að Grundar-
tanga.
„Markmiðið með þessum til-
raunum er fyrst og fremst það að
auka hagkvæmni í rekstrinum.
Eftir því sem minna ryk fer út fer
minna hráefni til spillis,“ sagði
Eggert.
Auk Eggerts hafa margir
starfsmenn íslenska járnblendi-
félagsins lagt hönd á plóginn við
þróun og hönnun þessa mælibún-
aðar. Má þar m.a. neína Jón
Gunnlaugsson, véltæknifræðing,
Hjört Gunnarsson, rafmagns-
tæknifræðing og eðlisfræðingana
Jón Hálfdanarson og Þorstein
Hannesson. Samvinna hefur ver-
ið við Raunvísindastofnum há-
skólans um þetta verkefni.
Samið hefur verið við Blikk-
verk sf. hér á Akranesi um smíði
kassa utan um búnaðinn og lauk
Eggert miklu lofsorði á handverk
starfsmanna Blikkverks.
Banastys í fyrrakvöld
Banaslvs varö a AManesatlegg].u;mum skammt utan bæjar-
markanna, um kl. 18.30 í fyrrakvöid. Þar rákust saman lítil
fólksbifreiö og pallbifreíð, sem kom m gagnstæðri átt Falið er aö
ökumaðut fólksbifreiðarinnat hai'i látist samstundis við árekstur-
inn, sem varð mjög harður. Ökumaður pallbifrciðarinnar slasað-
Fyrsta barn ársins á fæðingardeild Sjúkrahúss Akraness reynd-
ist sveinbarn frá Skálpastöðum I í Borgarfirði. Það fæddist að
morgni 3. janúar. Litli guttinn var 3540 grömm að þyngd og 52 sm
að lengd. Foreldrar eru Hildur Jósteinsdóttir (t.v. á mynd) og
Bjarni Guðmundsson. Síðar sama dag kom fyrsti Skagamaður
ársins í heiminn. Það kom í hlut þeirra hjóna Steinunnar Sigurð-
ardóttur (t.h. á mynd) og Bjarna Vésteinssonar að leggja hann til.
Þeim fæddist stúlka, 3545 grömm að þyngd og 53 sm að lengd.