Bókmentir - 10.10.1926, Blaðsíða 1

Bókmentir - 10.10.1926, Blaðsíða 1
I.árg. i.ttl. Íf: )[$ ilil 1926, okt. tttgefandi: Pjetur tt.ttuðmundsson. F 0 R M A L I. j Islenskar iDÓkmentir eru svo fá- ; skrúðugar, aó landsmenn geta ekki hjá Því komist aó kaupa mikið af út- j lendum hókum, ef Þeir eiga ekki aö verða eftirhátar annara Þ.jóða í menta:- málum. Það mun ekki fara fjarri sarni; að nokkur ár undanfarin hafi sala út-l lendra hóka hjer á landi numið nær 200.000 kr. árlega. Það liggur í aug-{ um uppi, að Þegar svo mikið er lagt í! sölurnar fyrir útlendar hækur, varðarj miklu, að Þessu fje sje vel varið.En jeg veit fyrir víst, að mikið skortir á að svo sje. Hygg jeg Það ekki of- mælt, að helmingurinn af Þessu fje fari fyrir hækur, sem lítið eða ekk- ert mentagildi hafa. Það á sjer ýms- ar orsakir ao svo miklu fje er á glæ kastað. En sú orsökin mun ekki veiga- minst, að ailur Þorri manna lætur við Þaö lenda, að velja úr hókum,sem fyrir liggja hjer hjá hóksölum.Sn Þar getur aldrei verið um auðugan garö aö gresja, af'eðlilegum ástæðum, sem ekki er rúm til að rekja hjer. Allur .Þorri manna veit ekkert um hókmentir frændÞjóðanna, stórra og smárra,eða hverju Þar er úr aö veija. Þetta stafar af Því, hve nauðalítið er gert til Þess að leiðheina almenningi i Þessum efnum. Þaö er ekki nema endur og sinnum, að útlendra ágætishóka er getið í hlöðum okkar og timaritum. Ritkorn Þetta á að vera tilraun til að hæta ofurlitið úr Þessu. Því er ætlaö að í'iyt ja. f ræðslu um útlend- ar hókmentir. Þvi er ætlað að hirta nöfn góðra hóka og umsagnir um ágæt • isrit, sem mentafúsum mönnum væri fengur í að eignast. Þui er einnig ætlað aö geta islenskra úrvalshóka og flytja leiðheiningar um val á Þeim og óhlutdrægar umsagnir. Að visu er mik- ið til af ritdómum um íslenskar hækur í hlöðum og timaritum, En Þar sem Þessir ritdómar eru að jafnað.i ein- tómt lof, en hækurnar oft lítils virði er almenningur litlu nær fyrir Þá rit- dóma. Jeg hefi Þegar trygt mjer að- stoð nokkurra ágætra mentamanna við Þetta verk, og hýst við að Þeim fari fjölgandi, sem vilja leggja Þar hönd á plóginn og ieggja riti Þessu lið. Jafnframt Því að gefa ut Þetta rit hefi jeg tekiö mjer fyrir hendur að útvega útlendar hækur, hæði Þær sem getið verður i ritinu og aðrar, eftir óskum. Jeg hefi trygt mjer svo góð sambönd erlendis, að jeg get innan skams útvegað allar hækur, sem á markaði eru, hvaðanæva úr löndum. Islenskar hækur útvega jeg líka eftir óskum. En Þess vil jeg geta, að jeg tel mönnum óÞarft að hafa mig fyrir millilið um kaup é hókum, sem eru á markaoi hjer,-oftast hen+ugra að fá Þær frá næsta hóksala. Cöru méli er að gegna um hækur, sem horfnar eru af markaði, Þær mundi jeg oft geta út- vegað, notaðar eða ónotaðar. Þeir sem Þurfa að fá fræðslu um einhverjar sjerstakar hækur, ættu að senda fyrirspurnir til Bókm. Mun jeg gera mjer far um að svara slíkum fyr- irspurnum svo fullnægjandi, sem kost- ur er á. Stutt svör veRa hirt hjer ritinu. Aí'erðskrár yfir útlendar hækur mun jeg reyna að útvega eftir óskun, en hurðargjald undir Þær yrðu Þeir að greiða, sem um hiðja. Rit Þetta á að koma út mánaðarlega fyrst um sinn. Það verður sent flest- um kennurum á landinu, sem mjer er kunnugtjum, prestum, læknum og ýmsun öðrum mentamönnum, lærðum og ólærðum. Auk Þess sendi jeg Það hverjum, sem sjerstaklega óskar að fá Það, meðan upplag hKKpp hrekkur. ^Ritið verður sent ókeypis til næsta nýárs. Hvernig útgáfu Þess verður háttað næsta ár get jeg ekki sagt um að sinni. Það fer aö nokkru eftir Því, hvernig Þessari litlu tilraun minni verður tekið af Þjóðinni. P.G.G.

x

Bókmentir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókmentir
https://timarit.is/publication/1358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.