Gróðavegur - 15.12.1927, Blaðsíða 1

Gróðavegur - 15.12.1927, Blaðsíða 1
1 # GRÓÐAVEGUR Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hannes Jónasson. 1 197 42 I. árg. Siglufirði, Fimtudaginn 15. des, 1927 i. tbl. Háttvirtu lesendiir! Fað er ekki ljótt nafnið á blað- inu fiví arna og það sem besí er, blaðið mún bera nafn með rentu. Hjer sjáið þjer hvernig borið er á borð fyrir ykkur alt hið fegursta og besta, alt hið ágætasta og tilkomu- mesta, alt hið dýrmætasta og þó um leið í sj'álfu sjer hið ódýrasta sem fæst hjer í sölubúðum, af þessa heims gæðum. Vonandi er að þjer sleppið ekki tækifærinu og notið ykkur að ganga „Gróðans veg“ til kaupmannanna og birgja sjálfa ykk- ur og heimili ykkar til jólanna af öilu því er . verða má til þess að gefa ykkur sjálfum og vinurn ykkar og vandamönnum Gleðileg jól. Blað í Siglufirði. Hún er næsta ömurleg sagan af blaðaútgáfunni í Siglúfirði „Fram“ dó, „Siglfirðingur" dó, „Framtíðin" dó, „Frjettir og Auglýsingar" dóu, og „Glettingur dó, að ótöldum smá- dægurflugum, svo sem Kosninga- blöðuni og þessháttar. Öll lognuðust þessi blöð útaí enda voru þau ald- rei kraftmikil nema þá helst „Fram“. Mjer er ekki alveg Ijóst hvernig á þessari blaða-bráðapest stendur, en líklegt má þykja að hún stafi af litlum áhuga og svo því, að blöðin ekki hafa fjárhagsíega borið sig. En hvað sem því líður þá stapp- ar nærri, að ti! vanvirðu sje fyrir svo stóran, velstæðan og framgjarn- an bæ að hafa ckkert blað. Siglu- fjörður hefir sína sjerstöðu í Iand- inu, sín sjerstöku áhugamál, og hon- um veitir ekkert af að haía blað er skýri betur frá málum Siglfirðinga, framtakssemi þeirra, háttum og sið- venjum, heldur en miður góðgjarn- ir ferðalangar stundum gera eftir að hafa dvalið hjer stuttan tíma. Hjer er um þýðingarmikið mái að ræða, sem er vert þess, að það sje athugað. Jeg ætla ekki að benda á neinar leiðir að þessu _sinni, er. skýt mál- inu til þeirra manna er unna Siglu- firði fullrar virðingar, og sem ekki vilja að hann sje fyrir borð borinn í áliti þjóðarinnar. //. ./. Bæjarfrjettir. Fjárhagsáætlun fyrir Siglufjarðar- kaupstað var samþykt nýlega.Jafna á niður 110 þúsund k-ióna. „Oðinn“ kom nýskeð inn með þrjá enska togara er hann hafði tekið að veiðum í landhelgi vestur hjá Skagaströnd. Fjekk hvor þeirra 12.200 króna sekt og afli og veið- arfæri gjört upptækt. Afli, um 2000 körfur, voru seldar á uppboði í fyrradag, Sjónleikurinn „Skríll“ var sýndur hjer nýlega. Var prýðis vel með sum hlutverkin farið, en fremur Iaklega með sum, Mælt er að leik- ið verði í tvennu lagi um jólin. Má vera að það sje ^ð ganga hinn and- lega „gróðaveg“, að horfa á leiklist Siglfirðinga.' Engar skærur eru meðal manna í hjeraðinu, sem 3tendur. Alt með friði og spekt. Örlög Evrópu. Ferst í landskjálfta eftir nokkra ára- tugi, nema ísland og fáein önnur lönd? Prófessorinn í landskjálftafræði við Gleðileg jól! Bókav- Flannesar Jónassonar. Húsmæður Alt, sem þið þurfið til jólabökunar, fæst best og ódýrast í Verslun Sv. Hjartarsonar Ritsafn Gests Pálssonar fæst í Bókav. Hannesar Jónassonar. háskólann í Filadelfíu dr. William Nobles hefir nýverið spáð því, að Norðurálfa heims fari norður og niður eftir svo sem 60—70 ár. Spá- dóm sinn reisir dr. Nobles á þeirri tilgátu, að undir Norðurálfu sje jörðin öil margholuð af eldsum- brotum og öll göng full af sjóðandi hrauni. Eftir athugunuin þeim er dr. Nobles kveðst hafa gert undanfariri ár segir hann þrýstinginn neðan að á jarðskorpuna orðinn það mikinn, að jarðskorpan fái eigi lengur stað- ist ep rúma hálfa öld. Pá muni alt meginlandið sprengjast, og hrynja og grafast í Atlanz og Miðjarðarhafi. Dr. Nobles telur þetta munu verða mestu umbylting, sem enn hafi orð- ið í sögu jarðarínnar. Segir hann Evrópa verði 100 sinnum minni en nú og meðal þeirra landa sem eftir standi verði Island. Ef þessi spádómur Dr. Nobles, rætist verður ekki amalegt að eiga heima á gamla íslandi eftir 50-60 ár.

x

Gróðavegur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gróðavegur
https://timarit.is/publication/1359

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.