Fram

Tölublað

Fram - 19.05.1917, Blaðsíða 1

Fram - 19.05.1917, Blaðsíða 1
Útgefandi: Hlutafélag á Siglufirði. Ritstjórar: Friðb. Níelsson og Hannes Jónasson. 1. ár. Siglufirði 19. maí. 1917. 27. blað. 77/ minnis. Pósthúsíð opið virka daga 11—2 og 5—7 sunnudaga 11—12 Landssíminn opinn virka daga 8,30—2 og 3,30—8 sunnudaga 10—12 og 4—7 Bókasafnið opið sunnudaga 2—3 og mið- vikudaga 4—5 Félagslíf. Rar eð eg hefi nú í huga að koma því í framkvæmd, að stofna hér ung- mennafélag; þá vildi eg að þessar línur yrðu til þess að ungmenni snéru huga sínum að þessum félagsskap, og yrði eg ánægður ef eg sæi eins góðan árangur af þessum línum mínum, eins og þeiin fyrri. það sem aðalega hefir kvatt mig til að koma þessu svo fljótt í fram- kvæmd, er það: Að nú hefi eg heyrt áhuga hjá nokkrum í þessa átt, og svo finst mér það aiveg óbærilegt að um 100 ungmenni sem eru hér og ættu öll hægt með að starfa sam- an — ogvinnaað einhverju til góðs og gagns —skuli ekki hafa nokk- urn félagsskap með sér. Þetta er að mörgu leyti fremur skaðlegt og mjög iniklu er 'kastað frá sér á þessum árum, ef menn reyna aldrei að styðja með öðrum eða beita kröftum sínum í réttaátt. Og einmitt þetta, — ef menn fara alveg á mis vió það — getur orð- ið til þess, að gjöra þá þröngsýna og sérvitra, í ríkum mæli. Aóal starf félagsins verður: Að hlúa að öllu er má verða til and- legs og líkamlegs þroska, og vekja frjálsar og göfugar skoðanir. Retta vona eg að ætti að takast minsta kosti að miklu leyti; þó okk- ur ef til vill vanti nógu góða menn til að leiðbeina okkur, en eg held að við sigrum flest ilt, ef við höf- um það hugíast að standa sem einn maður og störfum ö 11 í þeim anda. Stofnfundur verður haldinn í Bió á sunnudaginn 20. maí kl. 6 síðd. Eg óska aðsemflestir sæki fund- inn, þó þeir séu ekki ákveðnir í að gjörast stofnendur. Guðm. Skarphéðinsson. Tíðin hefir verið mjög hagstæð alla þessa viku’ stöðugt logn og hitar svo snjóinn leysir nú óðum. Fáein orð til Sigurðar Kristjánssonar. Það tæki oflangan tíma að elta uppi allar öfgar og rangan skilning hjá Sigurði Kristjánssyni, í ritsmíði hans í síðasta blaði Frams, þessar Iínur skoðast því ekki sem svar. Eg vil ekki neyða hann til þessað fara á stúfana aftur, virðist synd að tefja hann frá verkum þeim er hann hefir á hendi nú, þau eru honum dálítið nýnæmi, nefnilega sala á nauðsynja vörum. Eg þori óhræddur eins og hann að láta lesendur Frams dæma um okkar á milli, það er að segja þá, er nokkra þekkingu hafa á málinu, og ekki eru blindaðir af neinni sérstöðu í mannfélaginu. Eitt ætla eg þó að taka fram, að þeir sem hafa 4000,00 kr. og máske alt að 6000,00 króna eyðslu til heimilis síns handa 5 manns, þekkja ekkert hvað það er, að hafa einungis 1500,00 kr. og þaðanaf minna, handa 6—7 manns. Þeir geta því trútt um talað óhóf á noktun nauðsynjavöru, og sparnað á þeim sviðum. Að endingu þakka eg Sigurði Kristjánssyni fyrir hönd lesenda blaðsins fyrir þær upplýsingar er hann hefir gefið þeim um fyrirætl- anir mínar í framtíðinni, einungis hefir honum yfirsést lítið eitt. Eg hefi aldrei sagt honum eða sýnt, með hvaða vörutegundir eg ætlaði að versla, og það af þeirri einföldu ástæðu, að eg hefi aldrei ákveðið, að hafa verslun hér í sumar. Að minsta kosti það atriði í grein hans er ðburður, sem aldrei hefði átt að fæðast í heiminn. H. j. Útflutning. frá Ba.nda.rik. Útlend blöð hafa það eftir áreið- anlegum fregnum frá Washington, að þrátt fyrir hinn mikla kafbátahern- að Rjóðverja, hafi Bandaríkin flutt út vörur fyrir 551,278,000 dollara í marzmánuði. Aðeins hefir einn mán- uður orðið hærri n. I. janúarmánuð- ur í vetur, en það var líka mesta mánaðar verzlun í sögu landsins. Rödd úr sveit. / Fátt er að frétta héðan markvert. F*að sem okkur bændunum hefir verið allmikið umhugsunarefni er fólkseklan. Undanfarin sumur hefir víða ver- ið svo, að á stórum og blómlegum jörðum hefir ekki verið annað fólk en hjónin og börnin máske í ó- megð. Nærri má geta hver eftir- tekjan hefir verið. Má því svo að orði kveða, að mörg jörðin sé í eyði, þó á þeim sé búið að nafn- inu til. Fólkið er orðið afardýrt og spursmál á hvort tilvinnandi sé að taka það, og það sem allra verst er að margt af hví reynist lélegt til vinnu og dugiaust. Og sé dug- legum manni borgað hátt kaup, koma slæpingjarnir á eftir og vilja hafa það sama. Retta má ekki svo til ganga, það á hver að njóta sinna verka og því er það algjör- lega ranglátt að borga sama kaup þeim er sýnir áhuga og dugnað við vinnuna og hinum sem reynist gagnstætt. En sem sagt, fólk er orðið svo kröfuhátt á alla lund að slíkt þarf að breytast til hins betra. Sem dæmi þessu til sönnunar er, að nýskeð bað bóndi stúlku að vera kaupa- konu hjá sér, hún var til með þ3ð, en hún vildi hafa 25 kr. á vikuna og svo tók hún það fram að hún vildi ekki ganga á blautt engi, ekki þjóna manni, ekki hafa mjaltir á hendi og ekki sinna börnum. Petta voru nú kostirnir. Petta er nú mentun og menning ísl. þjóðarinn- ar, að fólk er ekki farið að fást til að gjöra algeng og heiðarleg verk jafnve! þó það setji kaup á odd. Og von ernúað vel fari fyrirþessu fólki, ef að því kemur að það eigi með sig sjálft og það kann ekki til algengrar vinnu. En þetta mál álít eg sé svo nauðsynlegt og þess vert að tekið sé til ýtarlegrar at- hugunar það, hvað komi til að fóló vilji ekki gefa sig í góða og algenga vinnu og með hverju móti hægt sé að bæta vinnubrögðin í landinu. Ekki virðast menn vera ánægðir yfir aukaþinginu síðasta. Virðist ekki það hafa legið fyrir, að ekki hefði mátt dragast þar til reglulegt þing kom saman. Fer þetta þing- hald alt að verða þjóðarplága, því þar er það sama uppi á teningum og annarstaðar:, málurn flaustrað lítt athuguðum fram og vinnubrögð lítil en kostnaður mikill, fyrir litla smáþjóð á erfiðum tímum. Okkur bændunum hefir jafnan verið álasað fyrir barlóm en það er að ástæðulausu. Hinir svokölluðu embættismenn eiga hann engu síð- ur. Má það þó merkilegt heita, þó ætla mætti að þeir sem mentyn hafa hlotið til muna, myndu leiða nýjan kjark, þreks og manndáðar, fram í hvern einasta afdal og út á hvert einasta annes, þegar eitthvað syrtir í álinn. Enn svo er ekki. Bréfið hans Guðm. lándlæknis 6. des. f. á. til Stjórnarráðsins ber þess ljósan vott, að það eru em- bættismennirnir sem emja volæðis- sönginn út yfir land og lýð. Eg minnist ekki að hafa séð öllumairi vílsöng en í áðurnefndu bréfi jafn- vel ekki frá allra svörtustu og erf- iðustu tímum þjóðarinnar. í áður- nefndu bréfi laridi. géfur hann það fyllilega í skyn að læknisstaðan sé ekki lengur líívænleg staða, og til frekari áréttinga orðum srnum þyk- ist hann hafa ábyggileg rök fyrir því, að læknar ætli sér að slá em- bættunum frá sér og að stunda sveitabúskap og sjávarútveg. Allir sem þekkja þessar atvinnugreinar landbúskap og sjávarúíveg, kannast við að því fylgir barátta og erfiði og mjög mikið efamál, ekki síst á erfiðum og viðsjálum tímum, hvort atvinnugreinar þessar bera sig eða ekki. —; Pví er þetta aðeins vind- bóla út í loftið að slá því fram, að embættismenn sem búnir eru að verja tíma og peningum til náms og sestir í embætti, sem gefa þeim fleiri hundruð krónur í föst laun og álitlega upphæð í aukjatekjur fari að slá embættunum frá sér og stunda aðra atvinnu er gefa óviss- ann arð. Og mikið tná það vera ef læknum þætti ekki þessar atvinnu- greinar (landbúskapur og sjávarútv.) »afskaplega ófrjáls og lýandi.« Menn þurfa ekki að búast við því að hafa upp peninga og þurfa ekkert fyrir þeim að hafa. Og hversu ófrjáls sem læknisstaðan kann að vera þá hafa læknar sýnt það, með landl. í broddi fylkingar að læknastaðan ar ekki svo ófrjáls aö þeir geti ekki jafnhliða sint mjog mikii: . . i störfum, svo sem setið á þingi o. fl.

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.