Fram - 19.05.1917, Blaðsíða 3
Nr. 27
FRAM
95
HERRAR O G DÖMUR!
I
ef þið viljið fá ykkur verulega góða. og fallega
SKO fyrir sumarið þá komið sem fyrst í
verzlunina „BERGEN“
verzlunin hefir einnig hina heimsfrægu Hedebo-
skó brúna og svarta. Flýtið ykkur að ná í eina!
Virðingarfylst.
Ferd. Jóhannsson.
og auglýst var í síðasta blaði, voru
það nær 700 drættir. Voru þeir dregn-
ir upp á tæpum klukkutíma, og kom-
ust þó ekki nærri allir að sem vildu.
— Vér þökkum öllum þeim er að
henni studdu á einhvern hátt.
Lagarfoss
Rom hingað, eins og til stóð á
laugardagskvöldið var, hafði hann
töluvert af nauðsynjavörum til kaup-
manna hér, og kom það sér sann-
arlega vel, því lítið mun hafa verið
til af sumum tegundum. Lítið mun
þó hafa komið af viðbiti, og er það
slæmt, því alment munu menn vera
því nær viðbitislausir.
Kosning
á einum manni í hreppsnefnd og
tvo í sóknarnefnd fer fram í barna-
skólanum kl. 6 í kvöld. Þar verður
líklega ekkert á boðstólum af heima-
tilbúnum krydduðum níðræðum um
náungann; en vonandi er þó að
menn sæki þennan fund ekki ver
en miðsvetrarfundinn í vetur, og
sýni þánnig ekki minni áhuga fyr-
ir alvarlegum og friðsömum störf-
um en opinberum skömmum og
rifrildi. Og ekki væri síður ástæða
fyrir kvennþjóðina að fjölmenna á
fundinn í kvöld en á miðsvetrar-
fundinn.
Höfrungahla up
allstórt kom hér inn á fjörðinn
í morgun, var farið bæði á vélbát-
um og árabátum til veiða, og lukk-
aðist bátunum loks í félagi að reka
heilan hóp af skepnum þessum inn
í fjarðarbotn og þar á grunn. Tók
þá til skothríð allsvæsinn, er mun
hafa líkst stórskotaliðsáhlaupi og
linti ekki fyr en öll dýrin voru dauð.
Hve mörg þau eru vitum vér ekki,
því þetta gjörðist rétt áður en blað-
ið fór í pressuna.
Spádómur.
Maður nokkur heitir Gabriel Neith,
og er stjörnufræðingur, ritstjóri, rit-
höfundur og fyrirlesari.
Maður þessi spáði ýmsu fyrir ár-
ið 1916, og hefirmargt af því kom,
ið fram. Hann hefir einnig spáð
fyrir 1917, og setjum vér hér nokkra
af þeim spádómum.
1. Meiri viðburðir verða í heim-
inum árið 1917 en nokkru sinni
áður. Verða þeir bæði af völd-
um náttúrunnar og mannanna.
2. Stríðið heldur áfram til 1918,
þá getur friður komist á að sumr-
inu.
3. Mikil breyting verður í heim-
inum nálægtjafndægrumaðhaust-
inu; verður þá mikil ábyrgð lögð-
á herðar Bandaríkjunum. Eftir að
Mars er liðinn, fær forsetinn á
kveðið fylgi þjóðarinnarí alþjóða-
málum
4. Fyrstu vikuna í Ágúst breytist
ef til vill hugur þjóðanna í Ev-
rópu viðvíkjandi stríðinu, en ef
friðarsamningar takast ekki ,færist
blóðaldan yfir ný svæði.
5 Rekking á guðlegum hugsun-
um vekur að líkindum nýja stefnu
í skáldskap og leikaralist.
6 Stjörnuteikn þau er hafa áhrif
á keisarann. spá honum veik-
indum, og ef til vill slysum.
7. Georg Bretakonungur er und-
ir þeim áhrifum, er boða hætt-
u að því er heilsu og líf snertir.
Lögb.
Endurreisn Frakklands.
Nokkurra manna nefnd frá Ame-
ríku hefir nýlega heimsótt Frakk-
land til þess, að athuga möguleg-
leika á þátttöku Bandaríkjanna í því
að byggja upp aftur hin eyðilögðu
héruð þar. Nefnd þessari taldist svo
til, að full 750 þorp og bæir væru
alveg eyðilagðir, og að 2250 bæir
og þorp, sem nú eru í höndum
Þjóðverja, munu verða að meiru og
minna Ieyti eyðil. Nefndinni reikn-
ast svo til, að aðeins í Frakklandi
rnuni koma til með að vanta 1,500,000
manns til vinnu, þegar hinu mikla
uppgjöri er lokið, og býst hún því
við að nota verði vélar í stað vinnu-
fólks meira en nokkru sinni áður
hefir verið.
Hinn svokallaði Dýravinur.
Ekki svaraði eg honum fyrir það
að mig bíti nein sök fyrir meðferð
á hestum. En sem verkstjóri við
fyrgreinda yinnu, gat eg ekki tekið
rógi hans og álygum þegjandi. En
ráða vil eg honum að lesa upp
ritsmíði sína í 23 tölubl. »Fram,«
því hann hefir sjáanlega verið bú-
inn að gleyma henni þegar hann
ritar í 25 tölubl. því þar ber hann
á móti kaflanum sem byrjar svona.
»Pað var um flóðtíma o. s. frv.«
Fer því upp á land og finnur þar
sandblett, nenni ekki að elta hann
lengur, get búist við honum næst
þegar hann fer af stað uppí Hvann-
eyrarskál eða út á landsenda. Og
eftir niðurlagi seinni greinar hans
að dæma, get eg búist við honum
eins langt frá deiluefni okkar, eins
og austrið er frá vestrinu.
En það get eg fullvissað hann
um þótt hann færi að taka bann-
lögin og brot á þeim, — náttúr-
lega til að fága sig, en sverta aðra.
— þá verður það ekki einu sinni
Pílatusar-þvottur, hvað þá betri.
Mun ekki eyða rúmi í »Fram« til
að munnhöggvast við hann meira,
þótt eg ef til vill gæti stungið upp
í hann dúsu.
Guðm. Bíldahl.
S I L K I
margar teg. nýkomið í
verzlun
Helga Haflíðasonar
Ný komið:
Gerduft
Eggjaduft
Búðingsduft
Syltetöj
Pickles
Bayerskar pylsur
Grænar baunir
Steikt nýru
KjötboIIur
Leverpostej
Súputeningar o. m. fl.
í v e r z I u n
Sig. Kristjánssonar.
Sam tíningur.
Olga, elsta dóttir fyrverandi Rússa-
keisara, varð brjáluð þegar stjórn-
arbyitingin skall á.
Á tímabilinu 11. febr. til 31. marz
varð herkosnaður Breta 130 miljón-
ir króna á dag, og var það með
lang mesta móti.
í Bretlandi var klukkunni flýtt um
1 tíma á páskunum, og verður seink'-
að aftur 17. sept.
Pegar Pjóðverjar urðu að hörfa
til baka í Frakklandi við Bapaume
og Péronne, eyðilögðu þéir alt er
þeir gátu á því svæði er þeir fóru
Handsápur
Og
Pvottasápur
nýkomnar í
Snorrabúð.
Sauðskinn
fást í
Snorrabúð.
Lögrétta
er stæðsta blað áglandinu
er fjölbreyttasta blað á land-
inu
er fróðlegasta blað á land-
inu.
Árg.^minst 60 blöð, kostar
kr. 7,50 og fæst hjá
Friðb. Níelssyni.
yfir. Hvert tré var höggvið, jafnvel
ávaxtatré. Pað er skiljaniegt, að
þessi óþarfa eyðilegging vakti gremju
og reiði hjá frakkneskum hermönn-
um. Svona aðfarir hafa meiri áhrif
en snjöllustu ræður hershöfðingja,
og langar blaðagreinar, og gera betur
enaltannað frönsku þjóðinni skiljan-
legt að þeir óvinir, er fremja slrkt athæfi,
verða að bíða ósigur, ef nokkurn-
tíma á að verða íriður á jörðu.
Hið nýja rússneska ráðaneyti sam-
anstendur af þessum mönnurn:
C. Lvoff, innanríkis- og forsætisráðh.
Miljukoff, utanríkisráðherra.
Gutchkoff, her- og flotaraálaráðh.
Tereshtchenkó, fjármálaráðherra.