Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 01.10.1982, Blaðsíða 8
8 sÝninyarsalir Nýlístasafnið: I dag verður opnuð sýning á ýmsum verkum eftir Dieter Roth. M.a. verða sýndar bækur, grafík og plötur. Þetta er sýning sem enginn má missa af. Kjarvalsstaðir: Bragi Ásgeirsson sýnir málverk, vatnslitamynd- ir og teikningar í vestursal. f forsal er sýning á nokkrum Kjarvalsmyndum sem eru í eigu Reykjavikurborgar. Lístmunahúsið: Á laugardaginn er opnun á leirmunasýningu Kolbrúnar S. Kjarval. Þetta er sölusýning og stendur yfir til 24. október. Sýningin er opin kl. 10-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar lokað á mánudögum. Listsýningarsalurinn, Glerárgötu 34, Akureyri: Þorvaldur Þorsteinsson, ungur Akureyringur, opnar sýningu á 50 vatnslita- og teiknimyndum á laugardaginn kl. 15. Sýningin stendurtil 10l október og verður opin kl. 20-22 virka daga en kl. 15-22 um helgar. Gallerí Lækjartorg: Þýska lisíakonan, Erika Stumpf sýnir 40-50 verk eftir sig, einkum landslagsmyndir, mynd- skreytingar við Ijóð o.fl. Sýningin stendur fram til 3. október. Gallerí Langbrók: Sýning Langbróka er opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um helgar. Listasafn Eínars Jónssonar: Myndir Einars eru til sýnis tvo daga í viku, mið- vikudaga og sunnudaga kl. 13.30 til 16. Á efstu hæð hússins er íbúð Einars og konu hans og er hún til sýnis gestum. Ásgrímssafn: Nú eru einkum sýndar vatnslitamyndir og hafa margar þeirra sjaldan sést áður. Þar gefur að líta landslagsmyndir, blómamyndir og flokka mynda úr þjóðsögum. Opið sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgangur ókeypis. Mokka: Olga von Leuchtenberg sýnir olíumyndir, acryl- myndir og vatnslitamyndir. Gott kaffi á meðan á glápinu stendur. Árbæjarsafn: Opið samkvæmt umtali. Upplysingar i síma 84412 kl. 9-10 alla virka daga. Höggmyndasafn Asmundar Sveinssonar: Safmð er opið þriðjudaga, fimmtudaqa oo laugardagakl. 14-16. Kirkjumunir f versluninni Kirkjumunir, Kirkjustræti 10, stend- ur nú yfir sýning á list- og kirkjumunum eftir Sigrúnu Jónsdóttur. Hún er opin á verslunar- tíma og auk þess til kl. 16 laugardaga og sunnu- daga. Iciklnís Þjóðleikhúsíð Föstudagur kl. 20. Garðveisla eftir Guðmund Steinsson. Leikstjóri: María Kristjánsdottir. Laugardagur kl. 20 Garðveisla Sunnudagur kl. 14 Gosi Sunnudagur kl. 20 Garðveisla. Litla svíðið: Sunnudagur kl. 20.30. Tvíleikur eftir Tom Kempinski i þýðingu Úlfs Hjörvar. Leikstjóri: Jill. Brooke Árnason. Leikfélag Reykjavlkur: Sunnudagur kl. 20.30. Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson, frumsýning. Þriðjudagur kl. 20.30. Jói eftir Kjartan Ragn- arsson. Alþýðuleikhúsið: Á laugardaginn sýnir Pældi'ði hópurinn Súr- mjólk með sultu á fjölskylduhátið í Fellaskóla og verður það nánar auglýst. íslenska óperan: Buum til óperu, Söngleikur fyrir börn í tveimur þáttum. Tónlist: Benjamin Britten, texti: Eric Crozier í þýðingu Tómasar Guðmundssonar. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Frumsýning laugardag kl. 17. Sunnudagur kl. 17. Búum til óperu. Á laugardaginn koma Gilwellskátar saman til endurfunda á Úlfljótsvatni. Þetta er samkoma þeirra sem lokið hafa alþjóðlegu Gilwellþjálfun- inni sem er veigamikill þáttur i starfi skáta- hreyfingarinnar um víða veröld. Sérstaklega verður fjallað um Úlfljótsvatn og framtið þess, einkum þátt Gilwellskáta í vexti og viðgangi staðarins. Dagskrá hefst kl. 17 með helgistund í Úlfljótsvatnskirkju og talar Jónas B. Jónsson fyrrum skátahöfðingi. Stjórnandi er Björgvin Magnússon D.C.C. Samtök um kvennaat- hvarf: Skrifstofa okkar að Gnoðavogi 44, 2. hæð er opin alla virka daga kl. 13-15. Sími: 31575. Gírónúmer samtakanna er 44442-1 Föstudagur í. október 1982 ^Dústurinn Fræðimenn á sviði myndlistar hafa haldið því fram að í sjálfu sér sé málaralistin ekki til heldur ein- stakir málarar. Mér er þó nær að halda að íslensk máiaralist sé til, sú sem septembermennirnir sýna. Þetta er varfærin list, búra- leg fremur en hún sé gerð af leiftrandi gáfum, tortryggin, veð ur ekki elginn og stendur fyrir sínu hvar sem væri og þolir sam- anburð við list erlendra þjóða. Einhvern veginn er list þessi sí- fellt hrædd við að hnjóta og hleypur þess vegna ekki þrefalda hæð sina í snilldarlegri fíflsku, þannig að áhorfandinn standi á öndinni og viti ekki hvort verið sé að hæðast að honum eða skapa snilld. Sumardýrðin flýr, og við Frá Septem ’82 — varfærin list, búraleg fremur en hún sé gerö af leiftr- andi gáfum... í september fer söngfug/ erum stödd andspænis þeim þroska sem verður ekki meiri. Sagan er sögð hjá flestum. Pá fer áhorfandinrt að brjóta heilann um verkin. ímyndunar- aflið berst ekki á flugi inn í hrifn- ingarvímu eða andúð sökum ný- sköpunar verkanna. Verk þessi eru ekki unnin af þreyttum mönnum, en þó eru þeir rosknir og ráðsettir. Allir nema einn, sem er ævinlega til í glens: Sigur- jón Ólafsson. , Svo er þarna Guðmunda And- résdóttir, málari sem hefur ein- hverra hluta vegna oft farið frarn hjá áhorfendum. Hún er þó með sérkennilegri málurum okkar, ekki bara vegna þess hvernig hún skrifar litinn á strigann, oft með mótsagnakenndum pensilförum og rofnuin og auðsæjum, heldur vegna þess að form hennar hafa orðiö með tímanum að söguþræ- ði: eitt málverk bætir viö sögu annars, með þeim hætti að hvert málverk er á vissan hátt kafli eða málsgrein. Það er með Guð- mundu Andrésdóttur, eins og Ágúst Petersen, að hún notar litinn á vissan hátt til þess aö má út formin, þótt slíkt sé miklu meira áberandi hjá Ágústi, flytja þau af myndfletinum yfir í auga áhorfandans líkt og skugga. En þaö gerist jafnan ef stefnt er saman rauðum og grænum lit, skærum. Þetta vissu fátæk börn er þráðu myndlist en áttu enga, aðra en þá sem hægt er að laða fram með því að kreista fast aftur augun, þá lætur vöðvaherpingurinn kring- um augun, augun framleiða sína eigin mynd í myrkrinu, í líki rauðra og grænna hringa, seni svífa síðan burt ef augun eru opnuð. Um sjónina og list eru til tvær ágætar bækur eftir R.L.Gregory og heitir önnur Greinda augað, en hin er Augað og heilinn, og er vel þess virði að líta á fróðleik bókanna, einkurn fyrir þá sem brjóta heilann um það hvernig við skynjuni myndlist. Listmálarinn er skáld sem skrifar með pensli. íslenskir mál- arar eru yfir höfuð bókniennta- lega sinnaðir í verkum sínum og margir hverjir frásagnakenndir. Ragnheiður Jónsdóttir lætur.vera loðin konukynfæri'á bók í grafík- verki sínu. Stafirnir og efni bókar innar sem er kvenkyns, fæðast af síðunum. Nöfnin á verkum Guðmundu Andrésdóttur eru í ætt við ljóð: Ótta. Birta. Á brún- um flcti. Gróandi. Rökkur. Straumar. Glæður. Á gráum fleti. Kvöldljóð. Vorþeyr. Dvöl. Húm. Nöfnunum á málverkun- um er hægt að raða upp með ýms- urn hætti og hrynjandinn fæst með því að lesa nöfnin hratt. Ef nöfnin eru lesin hratt framan við myndirnar á sýningunni nýtur áhorfandinn þeirra með sér- kennilegum hætti: saman fer, ljóð, litur, hljóð, og form. Annað dæmi um hvernig list- málarar skrifa með pensli var að finna í Nýlistasafninu, á sýningu Kees og Rúnu. Stundum voru þó fingur notaðir fyrir pensil: texti var rifinn niður í mjóar ræmur sem minntu á línur sem voru ekki festar lárétt, eins og í okkar skrift, heldur lóðrétt eins og í kín- verskri skrift. Á ræmunum var skrifaður texti en hann rofinn með því að ræmunum var þannig raðað að textinn rofnaði og varð samhengislaus, eins og við stæð- um andspænis ókennilegri skrift, kínverskri. Þessu var svo fyrir komið á borða, en bókaborðar eða myndborðar eru einkenn- andi fyrir austrænar bókmenntir og frásagnarlist. Kees var einnig með rofinn texta á sínum myndum. Og svo var þarna myndlist í ætt við skuggaleikhús frá fyrrverandi ný- lendum Hollendinga í Asíu. Jurt- ir og hlutir voru notaðir á áþekk- an hátt og brúður frá Balí. Skugg- inn einn var eftir á afar við- kvæmum pappír. líkt og við- kvæmni sem hvílir á hv;rful - leikanum. Hverfulieikinn er einnig leikur. Sigurjón Ólafsson var með tálguð leikverk sín á Sept- embersýningunni: drumba sjó- rekna sem mesti myndhöggvari heimsins hafði mótað, náttúran sjálf. Vindar, veðrin, hafið. Þetta ,eru mestu mýndhöggvarar nátt- úrunnar. Við lifum því og hrær- umst í þeirri höggmynd sem heimurinn er. Sigurjón tálgar ör- lítið sínar náttúrulegu ■ högg- myndir, líkt og hann vilji draga fram sjálfur vissa eðlisþætti trés- ins. Hann leggur stund á fegurð sem dregur betur fram hina eðli- legu fegurð efniviðarins. í þess- um verkum er ekki verið að móta. En þarna örlar líka á smíði í stað höggmyndalistar, og saman er stefnt útskurði og höggmynd, vegna þess að við höggmyndina er oftast neglt eitthvað áþekkt gömlum íslenskum útskurði. Verkið Köttur er dæmigert fyrir Sigurjón. Það er sambland af leik, lipurð, kímni og blekk- ingu. Sigurjón hefur áður gert mynd af Konu með kött, en í raun og veru er sú mynd af tveimur kisum. Lurkurinn sem á að tákna köttinn á Septembersýningunni er ekki óáþekkur lengri kisunni, konunni, sem heldur á hinni kis- unni í höggmyndinni. Myndverk gerð á ólíkum tímum tengjast þannig fyrir sakir minningarinn- ar. En sá er munurinn á kettinum nú og kisunum sem kúra í steini, að kötturinn hér er í umhverfi. Hann er að skríða í gegnum spjöld á hurð með kringlóttu gati. Kötturinn er þannig meira lif- andi. Lögð er áhersla á lipurð kattarins með götunum á spjöld- unum. Ef þarna væru engin spjöld sem lurknum (kettinum) er rennt gegnum, þá væri lurkurinn bara ósköp venjulegur lurkur en ekki köttur. Jafnvel barn ætti erfitt með að ímynda sér slíkan lurk sem kött. Þannig er listin. Allt hefur merkingu og tilgang. I ^ouee Syonácrrek En besta plata þessa árs Jonee Jonee — Svonatorrek. Hljómsveitin Jonee Jonee hef- ur vakið nokkra athygli að undanförnu og þá einkum fyrir það hversu undarleg hljóðfæra- skipan hljómsveitarinnar er, þ.e. bassi, trommur og söngur. Það hefur oft verið hin ágætasta skemmtun að hlusta á þá á hljóm- leikum og þá ekki síst vegna þess að þeir hafa haldið prógrammi sínu innan skikkanlegra tímatak- markana, þaö hefur verið hressi- legt og keyrt í gegn um það af krafti. Þegar ég frétti að Jonee Johee væru að taka upp plötu var ég satt að segja efins um að þeir ættu nokkurt erindi á plast, til þess væru þeir of einhæfir. Nú þegar platan er kontin heyri ég að ég hafði rétt fyrir mér að nokkru leyti, ekki öllu þó. I heild má segja að þetta gangi svona nokk- urn veginn stórslysalaust fyrir sig en þó held ég að lítil plata hefði verið alveg nóg. Hvað sem hver segir þá er það nú heldur einhæft að hlusta á heila plötu þar sem hljóðfæra- leiknum er haldið uppi af góðum trommara, sæmilegum bassa- leikara og frekar gloppóttum söngvara. Eg get nú ekki gert að því að mér finnst Jonee Jonee ólíkt skemmtilegri Jrar sem þeir skreyta tónlist sína með saxófón- leik, eins og í lögununi Haust og Staðreyndin um lífið, jafnvel |ió hann sé svolítið falskur. Verstir þykja mér þeir í lögum eins og t.d. Jonee Jonee, þar senr þeir hljóma eins og léleg stæling á Purknunr. Einhversstaðar las ég það eftir þeim Jonee mönnum haft að platan nyti sín best ef aðeins væri hlustað á lítinn hluta hennar (eitt eða örfá lög) í einu. Það er líklega rétt hjá þeint, þeir eru ágætir í smáskömmtum og þá komum við aftur að því hvort hún hefði ekki bara átt að vera lítil. Jæjæ... Kevin Rowland & Dexy’s Midnight Runners— too-Rye-Ay. Fyrir rúmum tveimur árum fór í fyrsta sæti breska vinsældarlist- ans lag sem heitir Geno með all- merkilegri hljómsveit sem kallar sig Dexy’s Midnight Runners og rúmum tveimur mánuðum síðar fór stór plata með þeim hátt á lista. Lítið fór fyrir vinsældum þessarar hljómsveitar hér á ís- landi, eins og allt of algengt er um góðar hljómsveitir. í heimalandi þeirra, Englandi, virtust þeir líka ætla að verða svokallað „one hit wonder". Þeit hafa gefiö út fjöld- an allan af litlum plötum á þessu tímabili, sem ekkert hafa selst að ráði. Til að bæta gráu ofan á svart hefur saga hljómsveitarinnar ver- ið svona álíka og strætisvagnabið-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.