Helgarpósturinn - 04.12.1986, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 04.12.1986, Blaðsíða 4
SKODANAKÖNNUN HEtGARPOSTSIWS Pingmönnum Alþýöuflokksins myndi fjölga úr 6 í 18 eöa 19 KRATAR KOMNIR A HÆLA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS • Alþýöuflokkurinn meö tœplega 30% fylgi • Rösklega helmingi stœrri en Alþýðubandalag % Alþýðubandalag á í vök að verjast á Reykjanesi og Framsókn í Reykjavík Enn heldur Alþýðuflokkurinn áfram að auka fylgi sitt um land allt og nýtur flokkurinn samkvœmt skoðanakönnun Helgarpóstsins fylgis 28,6% kjósenda á landsvísu. Sjálfstœðisflokkurinn hefur nú að- eins rösklega 6% meira fylgi en Al- þýðuflokkurinn á öllu landinu eða 34,7%. Allar tölur miðast við þá sem tóku afstöðu. Óákveðnir voru um 33%. Samkvœmt þessum niður- stöðum fengi Sjálfstœðisflokkurinn 22 eða 23 þingmenn kjörna miðað við nýju kosningalögint en Alþýðu- flokkurinn 18 eða 19. Ovissan felst í niðurröðun jöfnunarsœta og ,,Flakkarans", þ.e. 63. þingmanns- ins. Könnunin var gerð 1. og 2. des- ember, þ.e. eftir að úrslit prófkjöra lágu fyrir. Þá sýnir þessi könnun, að Alþýðu- flokkurinn er orðinn rúmlega helm- ingi stærri en Alþýðubandalagið, sem fær 13,6% fylgi á landsvísu. Jafnframt er Framsókn með meira fylgi en Alþýðubandalagið eða 16.2%. Alþýðuflokkurinn hefur þannig styrkt stöðu sína sem næststærsti stjórnmálaflokkurinn á íslandi, en snemma í nóvember birti Morgun- blaðið niðurstöður skoðanakönnun- ar Félagsvísindastofnunar um fylgi flokkanna, þar sem kratar fengu 24,1% en Sjálfstæðisflokkur 33,6%. Staða sjálfstæðismanna er nánast hin sama og í könnun Félagsvísinda- stofnunar, en sé tekið mið af skoð- anakönnun HP í október hafa kratar aukið fylgið um 7,4%, en sjálfstæð- ismenn tapað um 6%. Svo virðist sem Alþýðuflokkurinn auki fylgi sitt fyrst og fremst á kostn- að sjálfstæðismanna. Hins vegar verður að taka tillit til þess, að nú hefur Félag frjálslyndra jafnaðar- manna (sterku öflin í BJ) gengið til liðs við krata með 3 þingmenn. Þá hefur fylgi annarra flokka einnig minnkað miðað við könnun Félags- vísindastofnunar. Ef miðað er við könnun HP í október eykur kvenna- listinn örlítið við sig. í októberkönnun HP þótti sýnt, að Framsóknarflokkurinn sækti í sig veðrið í þéttbýli. Þessi sókn hefur stöðvast. í Reykjavík er Framsókn komin niður í 7,8% úr 11,4% í októ- ber, en á Reykjanesi, þar sem Stein- grímur Hermannsson fer fram hefur fylgið aukizt um 1 '/2%. Þessar niður- stöður þýða það, að Framsókn kem- ur ekki manni að í Reykjavík og Steingrímur rétt mer þingsæti í Reykjaneskjördæmi. I heild fengi Framsóknarflokkur- inn 16,2%, Alþýðubandalag 13,6% FRIÐRIK SOPHUSSON, VARAFORM. SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS: „MUNUM BREGÐAST VIÐ ÞESSARI VIÐVÖRUN## „Eg vil taka það fram að skoðana- kannanir eru skoðanakannanir, en ekki kosningar. Þær geta hins vegar verið mönnum gagnlegar sem vís- bending um hreyfingar sem eiga sér stað í þjóðfélaginu. Það er ljóst að meginniðurstaða þessarar könnunar er sú, að Alþýðu- flokkurinn græðir á kostnað Sjálf- stæðisflokksins. Þetta er ítrekun á stöðu, sem kominn er í ljós áður og er alvarleg viðvörun fyrir sjálfstæðis- menn. Við tökum að sjálfsögðu mark á þeirri viðvörun og bregð- umst við henni. Þarna kemur í Ijós, að kjósendur hafa á undanförnum vikum haft hugann við gjaldþrotamál og önnur slík leiðindamál, svo sem Hafskips- og Útvegsbankamálin. Niðurstaða könnunarinnar sýnir einnig, að okkur hefur ekki tekist að koma til skila þeirri lausn okkar að losa um pólitísk bönd á bankakerfinu. Þar að auki höfum við sjálfstæðismenn vanrækt að rifja nægilega upp ár- angur núverandi ríkisstjórnar og minna fólk á hvernig ástandið var þegar við tókum við. Eg vil að lokum minna menn á hvernig fór í kosningunum 1978, eftir samsteypustjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, en þá hugðust margir kjósendur okkar veita flokknum aðhald með því að kjósa Alþýðuflokkinn. Þetta gerðu þeir í trausti þess að mynduð yrði við- reisnarstjórn. En eina tryggingin sem menn hafa fyrir því að viðhorfa Sjálfstæðisflokksins og sjónar- miða hans njóti í ríkisstjórn lands- ins, er með því að kjósa D-listann.“ Áðspurður um það hvort listi Sjálf- stæðismanna í Reykjavík væri end- anlega frágenginn og bindandi, sagði Friðrik svo ekki vera. Listinn Samhliða könnun HP á fylgi stjórnmálaflokkanna spurðum við hvort fólk styddi ríkisstjórnina. Niðurstaðan var sú, að 52% styðja hana, en 48% ekki. Hér er miðað við þá, sem tóku afstöðu. Einnig var leitaö eftir skoðunum fólks á því hvers konar ríkisstjórn þaö vildi sjá að loknum kosningum. Flestir vildu nýja Viöreisn eöa 4 HELGARPÓSTURINN væri bindandi fyrir kjörnefnd, en Fulltrúaráðið hefði vald til þess að gera við hann hvað sem það vildi. -JL SVAVAR GESTSSON, FORMAÐUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS: „REYKJAVÍKUR- LISTINN MÆLIST VEL FYRIR## ,,Ég er sannfærður um, að Al- þýðubandalagið fær mun betri kosningu en þessar tölur gefa til kynna. Fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar fengum við um 15% í Reykjavik í skoðanakönnun HP, en vorum síðan með rúm 20% í kosn- ingunum. Þær tölur, sem nú koma fram, benda til þess að við fáum svipað fylgi og þá. Það er einnig greinilegt, að listinn í Reykjavík mælist vel fyrir, þótt hann sé að vísu ekki fullfrágenginn enn.“ .jl PÁLL PÉTURSSON, ÞINGFLOKKSFORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS: „SETJUM MARKIÐ VIÐ 25%/# „Ég get ekki annað 'en verið sæmilega hress með þessa útkomu. Við erum á uppleið og það er enn góður sprettur í kosningar, svo ég á von á því að við eigum eftir að bæta meira við okkur. Það er þó engin ástæða til þess að vera yfir sig lukkulegur fyrr en Framsóknarflokkurinn er kominn í upp undir fjórðung kjósenda og það er markmið sem við setjum okkur. Hlutur flokksins í Reykjavík er vissulega rýr og þar er eflaust um að kenna óheppilegum átökum, sem þar áttu sér stað í prófkjörinu. Talan ber þess greinileg merki. Við vorum hins vegar með 11.4% í Reykjavík í október og þessi tala á eftir að hækka, þegar mönnum er runnin versta reiðin. Það líður ekki á löngu þar til það verður. Mér er þó engin launung á því, að ég sé eftir Haraldi 30,5%, en á hcela slíkrar stjórnar kom sama stjórnarmynstur og er nú, þ.e. samsteypustjórn Sjálfstœðis- flokks og Framsóknarflokks með 27,5%. Þá vildu 15,1% samstjórn Alþýðuflokks, Framsóknar og Al- þýðubandalags og 10% vildu aö Sjálfstœöisflokkurinn fœri einn meö stjórn landsins. Ólafssyni af þingi." Um hlut kvenna og áhrif óánægju þeirra á gengi í könnuninni, sagði Páll. „Það er mikill misskilningur hjá framsóknarkonum að vera óánægð- ar með sinn hlut, enda eru þær það alls ekki allar. Konur gjalda þess að vera mun færri en karlar í flokks- starfinu, en þær sem þar hafa látið til sín taka, hafa flestar verið afar farsælar í starfi. Framsóknarflokk- urinn hefur líka sýnt konum mikinn trúnað við kosningar í ráð og nefnd- ir og ég held að við getum verið stoltir af því.“ -JL JÓN BALDVIN HANNIBALSSON, FORMAÐUR ALÞÝÐUFLOKKSINS: „ANDSTÆÐINGAR EIGA ÞAKKIR SKILDAR" Þar gerðuð þið Helgarpóstsfólk mig orðlausan... Að vísu skal ég játa, að ég er ekki eins hissa og ég ætti að vera. Ég er eiginlega hættur að fara út á götu — kemst þar ekkert nema fetið fyrir fólki, sem tekur í höndina á mér, og krökkum, sem senda mér sigurmerki út um bíl- glugga á rúntinum. Eg hef það á tilfinningunni, að fólk kunni að meta það sem við höf- um á okkur lagt, m.a til þess að laða nýtt hæfileikafólk að stjórnmálum. Alþýðuflokkurinn er í vitund fólks að verða endurnýjunarafl — kannski von manna um að nú takist að endurreisa virðingu á stjórn- málastarfsemi. Svo má ekki gleyma andstæðingunum. Við getum aldrei nógsamlega þakkað það að eiga slíka andstæðinga." Varðandi góðan byr Alþýðu- flokksins í höfuðborginni, hafði for- maðurinn eftirfarandi að segja: „Frábært gengi flokksins í Reykja- vík má fyrst og fremst þakka því, að fólk hefur nú séð hvaða hugur fylgir máli hjá okkur í þeirri viðleitni að greiða götu nýrra hæfileikamanna til stjórnmálaþátttöku. Persónulega heyri ég líka, að menn meta það við formann Alþýðuflokksins að hann er tilbúinn til að víkja úr sæti til þess að gera þetta kleift." -JL 52% STYÐJA STJÓRNINA Ný Viðreisn vinsœlust eftir kosningar og Kvennalisti 6,4%. í Reykjavík tapar Framsókn nokkru fylgi niður í 7,8%, Alþýðu- bandalag fer úr 16,5 í október í 14% í höfuðborginni, en Kvennalistinn úr 7,4% í 10,8%. Alþýðuflokkurinn hefur hins vegar stokkið úr 18,8% í október í 30,6% nú í Reykjavík. Mið- að við októberkönnunina hrynur Sjálfstæðisflokkurinn úr 45,5% í 36,3%. Það athyglisverðasta við þessa könnun er e.t.v. niðurstaðan á Reykjanesi. Þar er Sjálfstæðisflokk- urinn enn stærsti flokkurinn, en það má ekki miklu muna, að kratar séu jafnstórir. Þar fá þeir nú 36,5% nú (25% í október), en sjálfstæðismenn fá 39,4% (50% í október). Þetta þýð- ir að báðir flokkar fá 4 þingmenn hvor. Jöfnunarsætin á Reykjanesi eru 2 og er líklegast, að þau renni til sjálfstæðismanna annars vegar og Alþýðubandalags hins vegar. Þann- ig er Ólafur Ragnar Grímsson (2. sæti G-lista) fjarri þingsæti sam- kvæmt þessari könnun. Varðandi jöfnunarsæti í Reykja- vík, sem eru 4 talsins, benda niður- stöðurnar til þess að í þau setjist 6. maður krata, 7. maður sjálfstæðis- manna, 3. maður Alþýðubandalags og 2. maður kvennalista. Ólíklegt er að Framsókn fái nokkurt jöfnunar- sæti, en ef svo yrði færi það til Reykjavíkur. I öðrum kjördæmum en Reykja- vík og Reykjanesi er Sjálfstæðis- flokkurinn áfram öflugastur með 30,8% fylgisins. Framsókn með 24,5% og Alþýðuflokkurinn með 22,8%. Þá kemur Alþýðubandalag- ið með 16,5% og Kvennalisti með 4,6%. Flokkur mannsins og BJ fá í það heila frá 0,2% upp í 0,6%. Án þess, að það væri sérstaklega kann- að kom fram í svörum stuðnings- manna Framsóknarflokksins í Norð- urlandi eystra, að hugsanlegur framboðslisti Stefáns Valgeirssonar hlyti eitthvað fylgi, einkum í Norð- ur-Þingeyjarsýslu og kæmi stuðn- ingur við hann einna helzt niður á efsta manni Alþýðubandalagsins, Steingrími J. Sigfússyni. -H.H. GREINARGERÐ SKÁÍS Þessi skoðanakönnun var gerð dagana 1—2. desember. Hringt var í 800 einstaklinga skv. tölvuskrá yfir símanúmer fyrir allt landið. Spurn- ingunum var beint til þeirra sem svöruðu og voru 18 ára eða eldri og var miðað við jafnt hlutfall kynja. Úrtakið skiptist í þrjú svæði: Reykjavík (306 símanúmer), Reykja- nes (182 símanúmer) og lands- byggðin, þ.e. kjördæmi önnur en Reykjavík og Reykjanes (312 síma- númer). Spurt var: 1. Ef kosið væri til Alþingis núna, hvaða flokk myndirðu kjósa? 2. Styður þú ríkisstjórnina eða ekki? 3. Hvernig stjórn vildir þú fá eftir kosningar? Niðurstöðurnar birtast í meðfylgj- andi töflum. Ef kosið væri til Alþingis núna hvaða flokk myndirðu kjósa? Allt landið: fjöldi % af % þeirra heild sem tóku afstöðu Alþýðuflokkur 152 19,0 28,6 Framsóknarflokkur 86 10,8 16,2 Bandalag jafnaðarmanna 1 0,1 0,2 Sjálfstæðisflokkur 184 23,0 34,7 Alþýðubandalag 72 9,0 13,6 Kvennalisti 34 4,3 6,4 Reykjavík: fjöldi % af % þeirra heild sem tóku afstöðu Alþýðuflokkur 48 15,7 30,6 Framsóknarflokkur 12 3,9 7,8 Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0 0,0 Sjálfstæðisflokkur 57 18,6 36,3 Alþýðubandalag 22 7,2 14,0 Kvennalisti 17 5,6 10,8 Reykjanes: fjöldi % af % þeirra heild sem tóku afstöðu Alþýðuflokkur 50 27,5 36,5 Framsóknarflokkur 16 8,8 11,7 Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0 0,0 Sjálfstæðisflokkur 54 29,7 39,4 Alþýðubandalag 11 6,0 8,0 Kvennalisti 6 3,3 4,4 Landsbyggðin: fjöldi % af % þeirra Alþýðuflokkur 54 heild 17,3 sem tóku afstöðu 22,8 Framsóknarflokkur 58 18,6 24,5 Bandalag jafnaðarmanna 1 0,3 0,4 Sjálfstæðisflokkur 73 23,4 30,8 Alþýðubandalag 39 12,5 16,5 Kvennalisti 11 3,5 4,6 Þannig myndu þingsæt n skiptast: Alþýðuflokkur 18 eða 19 Framsóknarflokkur 10 eða 11 Sjálfstæðisflokkur 22 eða 23 Alþýðuþandalag 8 eða 9 Kvennalisti 4 62 Mjög mjótt er á munum hvar síðasta þingsætið, „flakkarinn", lendir. A, D og G-listar eru hnífjafnir, en B-listi fyglgir fast á hæla þeim.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.