Alþýðublaðið - 10.08.1939, Blaðsíða 1
AIÞTÐDBIADQ)
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ARGANGUR
FIMMTUDAGINN 10. ágúst 1939
181. TÖLUBLAÐ
;ex tonarar selja í 6 ferðim tll
Hýzkilaids fyrir 356 Dns. krönur!
..— ■ ■■ ...
Togarinn Venus seldi í einni ferð fyrir 86 þus. kr.
---- -»--
Rfkisstiórnln reynir að I á sðluleyfin aukin
Enskt herskip að
mæliBgnm utan við
hðfnina í morgnn?
ENSKT HERSKIP var í
morgun lengi að
sveima hérna fyrir utan
eyjarnar, og héldu margir
því fram, að það væri þar
að mælingum, hvort sem
það er rétt eða ekki.
Brezka aðalræðismanns-
skrifstofan skýrði Alþýðu-
blaðinu svo frá í morgun,
að þetta væri fiskieftirlits-
skip, sem ætti að gæta að
togurum og hefði það til-
kynnt komu sína hingað.
Ætlar það að dvelja hér í
Reykjavíkurhöfn í . eina
viku. Þetta er alveg nýtt
skip, hljóp af stokkunum í
janúarmánuði. Það er búið
öllum nýtízku tækjum og
er um 1200 tonn og er því
frekar lítið, en mjög fal-
legt. Það heitir „Pelican“
og kom það inn á höfnina
um kl. 12 í dag.
Brezka aðalræðismanns-
skrifstofan bar á móti því,
að skipið hefði verið að
mælingum. Það hefði að-
eins verið að bíða eftir því
]'• að komast inn í höfnina.
ATTA togarar stunda nú veiðar fyrir ísfiskmarkaðinn í
Þýzkalandi, og hafa þeir selt svo vel undanfarið, að
það er algerlega einsdæmi í ágústmánuði. Hafa sex togarar
selt í aðeins sex ferðum fyrir 154.108 ríkismörk, — eða
356.158 íslenzkar krónur.
Max Pemberton 3. ág. 108 smál. fyrir 23,335 Rm. eða 54,003 ísl. kr.
Karlsefni 4. ág. 108 smál. fyrir 23,137 Rm. eða 53,534 ísL kr.
Bragi 5. ág. 113 smál. fyrir 27,150 Rm. eða 63,820 ísl. kr.
llelgafell 7. ág. 107 smál. fyrir 24,352 Rm. eða 56,346 ísl. kr.
Venus 8. ág. 138 smál. fyrir 37,300 Rm. eða 86,325 ísl. kr.
Geir 8. ág. 93 smál. fyrir 18,834 Rm. eða 43,578 ísl. kr.
skamma stund verið að fylla
kvótann. Ríkisstjórnin hefir
nokkrar áhyggjur út af þessu,
og má því segja, að flest steðji
nú að henni, þegar jafnvel góð-
ur afli og toppsala skapar henni
erfiðleika. Mun hún hafa í
hyggju, að reyna að fá heildar-
kvótann hækkaðan — og er
vonandi, að henni takist það, þó
að á því kunni hins vegar að
vera nokkur vafi.
ísfiskskvótinn til Þýzkalands
er upp á 1 milljón ríkismarka
og má selja ísfisk í Þýzkalandi
fyrir þessa upphæð í ágústmán-
uði, september, október og nóv-
ember. Skiptist upphæðin þann-
ig á mánuðina: Ágúst 225 þús.
Rm., september 330 þús. Rm.,
október 330 þús. Rm. og nóv-
ember 115 þús. Rm.
Eins og menn sjá, eru aðeins
um 70 þús. ríkismörk eftir af
kvótanum fyrir þennan mánuð,
en leyfi mun vera fyrir hendi
til að selja nokkuð upp í kvót-
ann fyrir septembermánuð í
þessum mánuði.
Alls hefir 8 togurum verið út.
hlutað fisksöluleyfi í Þýzka-
landi. Auk þeirra, sem að ofan
getur, hefir Júpter og
Reykjaborginni verið' úthlutað
leyfum, og eru þeir nú við
veiðar eða að fara á veiðar.
Þessi sala er svo mikil, að
sýnt er, að ef veiði helzt, verður
Leiðtoqar nazista í Danzig á
heimleið frá Berchtesgaden
með fyrirskipaiir Hitlers.
-.— —-»--
Mýr stríðsæsingafundur gegn Pól
ferjuin boðaður i borginni fi kvðld
LONDON í morgun. FÚ.
ORSTER, leiðtogi naz-
ista í Danzig, og
Saska, yfirmaður áróð-
ursstarfsemi nazista þar,
flugu frá Berchtesgaden
í gær til Danzig, að
afstöðnum fundi, sem þeir
sátu þar hjá Hitler. Þeir
komu við í Prag á heimleið
og voru þar nokkurar
klukkustundir, áður en þeir
héldu áfram til Danzig.
Forster flytur ræðu á fundi
í Danzig í kvöld. Hefir verið
boðað til þessa fundar til þess
að mótmæla hótunum Pólverja
um að skjóta af fallbyssum á
Danzig, en þannig er þetta orð-
að í fundarboðinu.
Þessi orð stóðu í blaðinu
„Czas“ í Varsjá:
„Ef gerð verður tilraun til þess
að breyta stjórnskipulagi Danzig
með valdi og sameina það
Þýzkalandi, mun verða hleypt af
fallbyssum Póllands.“
Blaðið kemur út daglega og er
málgagn íhaldsflokksins, en enda
þótt það styðji stjómina, er ekki
talið, að það fúlki alltaf skoðanir
hennar. Þrátt fyrir það notar
þýzka undirróðursstarfsemin þessi
orð blaðsins sem texta, og í
þýzkum blöðum er veitzt heiptar-
lega að Pólverjum fyrir ágengn-
istilhneigingar þeirra. Er alveg
gengið fram hjá því, að Smigly-
Ryds marskálkur, yfirhershöfð-
Frh. á 4. síðu.
2800 tflnnar af grá-
Inðn til Belgin og
Hollands.
Grálúðuveiðar eru að verða
sæmilegur atvinnuvegur fyrir
þá, sem þær stunda, en það eru
aðallega smábátasjómenn í ver-
stöðvunum við Eyjafjörð, aðal-
lega í Ólafsfirði, Dalvík, Hrísey
og Höfða á Höfðaströnd.
Selfoss er að fara norður til
að taka fyrstu grálúðusending-
una á Belgíumarkað, um 900
tunnur, en alls hefir Fiskimála-
nefnd samið um sölu á 2800
tunnum af grálúðu til Belgíu og
Hollands, og eftir því, sem Al-
þýðublaðið hefir frétt, er verðið
fyrir grálúðuna mjög sæmilegt.
Alþýðublaðið spurði skrif.
stofustjóra Fiskimálanefndar í
morgun um það, hvað mætti
gera áætlun um mikla sölu á
grálúðu í sumar. Taldi hann ekki
of í lagt að áætla, að selja mætti
fyrir yfir 200 þúsund krónur,
en í fyrra var selt alls fyrir um
120 þúsund krónur. Undanfarin
ár hefir aðeins verið selt fyrir
örlítið, Er því hér að vaxa upp
næstum nýr atvinnuvegur.
Hermdarverk „írska lýðveldishersins“ á Englandi: Myndin er tekin á Kings Cross járnbraut-
arstöðinni í London, eftir sprenginguna, sem varð fyrir hálfri ag narri viku. — Hún varð ein-
um manni að bana, en 14 særðust meira og minna alvarlega.
150 manns eiga að vera
komnir i vinnu við hitaveit^
una um næstu mánaðamót.
En ætlað er, að 400—500 manns vinnl
við framkvæmdlrnar, þegar flest verður.
SÍÐARI hluta þessa mánaðar verður það mörgum verka-
mönnum bætt við í hitaveituna, að um mánaðamót er
gert ráð fyrir, að alls vinni um 150 manns. Fjölgun í vinn-
unni er undir því komin, hvenær efni það til hitaveitunnar,
sem koma á frá Kaupmannahöfn, kemur hingað, en á því er
von innan skamms.
K.R. og Valor I kvöld.
í kvöld efna knattspymufélög-
in K. R. og Valur til aukakapp-
leiks milli meistaraflokkanna, og
hefst hann kl. 8,30. Síðast þegar
félögin kepptu á meistaramótinu,
var jafntefli milli þeirra, 2 mörk
gegn 2, og munu bæði félögin
|afa í hyggju að sýna með þess-
um leik svart á hvítu, hvort hafi
yfirhöndina.
Alþýðublaðið átti í dag stutt
viðtal við verkfræðingana frá
Höjgaard & Schultz, þá Langvad
og Lundgaard, þar sem þeir sátu
í skrifstofu sinni í Tjarnargötu
10 og voru önnum kafnir við að
skoða uppdrætti af Reykjavík.
Vinnan við hitaveituna byrjaði,
eins o,g kunnugt er, fyrir rúmri
viku, og vinna nú um 40 manns
vlð upphleðslur á undirstöðum
fyrir hitaleiðslurnar i Öskjuhlíð.
Þegar þetta verk er komið vel á
Veg og efni komið til áfram-
haldandi framkvæmda, sem aðal-
lega er fólgið í því að steypa
ofan á undirstöðurnar hylkin,
sem hitaleiðslurnar eiga að liggja
í, þá verður fjölgað í vinnunni,
og töldu verkfræðingarnir hag-
kvæmast, að hleðslan og steypa
hylkjanna héldust nokkurn veg-
inn í hendur.
Hver einasta gata verð-
nr grafin upp.
— Er leiðslan frá Reykjum að
Öskjuhlíð aðalverkið?
„Nei,“ svarar Langvad verk-
fræðingur. „Aðalverkið liggur
auðvitað í innanbæjarleiðslunum,
en þær verða um 45 km. langar.
Verður að grafa upp hverja ein-
ustu götu, og verða skurðirnir
frá 20 cm. og upp í einn metra
djúpir. Eins og gefur að skilja,
verða mjög miklar tafir við
þennan skurðgröft, því að fara
verður fram hjá öllum þeim
leiðslum, sem nú eru i götunlum.
Einnig verður í sambandi við
leiðslurnar að koma fyrir milli
400—-500 skiptistöðvum í götun-
um, en á þessu verki verður ekki
byrjað fyrr en á næsta sumri.“
— Hvað búizt þið við, að
margir verkamenn vinni, þegar
fullur kraftur er kominn á fram-
kvæmcllrnar?
„Það er ákaflega erfitt að
segja urn það,“ segja báðir verk-
fræðingarnir. „Ef vinnuskilyrði
verða slæm í vetur, þurfum við
að nota sumarið þeim mun bet-
ur, því að við verðum að hraöa
verkinu sem allra mest og halda
áætlunina, en verkinu á að vera
lokið eins og kunnugt er um
áramótin 1940—1941. En við ger-
um ráð fyrir, að undir eðlilegum
kringumstæðum vinni við hita-
ve'ituframkvæmdirnar milli 400
til 500 nranns, þegar flest verð-
ur.“
Aðeins táir útlendinpar
verða við vinnuna.
— Koma margir danskir sér-
fræðingar og verkstjórar hingað
til að vinna við framkvæmdirn-
ar?
„Nei, eins fáir og írekast er
únt, og munum við leggja mikla
áherzlu á, að allir þeir verkstjór-
ar, sem við þurfum að nota, séu
íslenzkir, og eins verður með iðn-
lærða menn og aðra sérfræðinga,
Frh. k 4. síðu.
Verzlunarjðfnuðnr-
inn ðhagstæður nm
11 milljónir króna.
VERZLUNARJÖFNUÐ-
URINN var um síð-
ustu mánaðamót óhagstæð-
ur um 11 milljónir króna.
Alls hafði verið innflutt
fyrstu 7 mánuði ársins fyr-
ir 36,4 milljónir króna, en
útflutt fyrir 25 milljónir
króna.
Verzlunarjöfnuðurinn
var óhagstæður um rúmar
8 milljónir króna á sama
tíma í fyrra. Þá var inn-
flutt fyrstu 7 mánuðina
fyrir 30,9 milljónir króna
og útflutt fyrir 22,7 millj.
króna.
Verzlunarjöfnuðurinn er
því um 3 milljónum króna
óhagstæðari nú en um
mánaðamótin júlí—ágúst í
fyrra.
Ofsaakstor í gær
hafði Hffistnm
valdið stórslysi.
OFSAAKSTUR á Hafnarfjarö-
arveginum í gær haföi næst-
um valdið stórslysi.
Vörubifreið var að koma eftir
veginum með sandfarm og ók 6-
gætilega hart. Allt í einu valt
Frh. á 4. síhu.