Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 4
ín FIMMTUDAGUR 17. AG. 1939 ■ GAMLA BlO Bifreiða- stjórinn. Fyrirtaks mynd. —- Aðal- hlutverk leika: Spencer Tracy, Luise Rainer, sem allir muna eftir úr myndunum „Sjómannalíf" og „Gott land“. SK MNSLEIKDR (Singöngu eldri dansarnir) í G.T.-húsinu laugardaginn 19. þ. m. kl. 9Va e. h. Aðgöngumiðar og áskriftarlisti á sama stað frá 2 e. h. Sími 3355. Hljómsveit SGT, 5 menn. Ms. Dronning Alexandrine fer mánudaginn 21. þ. m. kl. 6 síðd. til Kaupmannahafnar (um Vestm.eyjar og Thors- havn). ■ ■■ - mtm wsm Þar eð allt farþegarúm er upptekið með skipinu, verða þeir, sem fengið hafa loforð fyrir fari, að sækja farseðla í dag og í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudag. Annars verða farseðlarnir seldir öðrum. Skepafnr. Jes Zimsen Tryggvagötu. — Sími 3025. Kartðflur, 30 aura kg. Gulrófur, ’ ' i 30 aura kg. Rabarbari, 35 aura kg. IREKKA Símar 1678 og 2148. f jarnarbúðin. — Sími 3S70. .... ts* tekf.Kí. 1 Sjómannakveðja. F.B. fimmtudag. Erum á leið til Þýzkalands. Kærar kveöjur. Skipshöfnin á Karlsefni. Eimskip: Gullfoss er á leið til Leith frá Kaupmannahöfn, Goðafoss er á leiö til Leith frá Vestmannaeyj- um, Brúarfoss er í Keflavik, Dettifoss er í Reykjavík og Sel- foss á leið til Aberdeen. Kaupið Alþýðublaðið! blaðamennirnir. Frh. af 1. síðu. ur orð, bauð gestina velkomna og lýsti staðnum. Mæltist hon- um vel, Gunnar Nielsen, pólitískur ritstjóri við Politiken, svaraði ræðunni. Um kvöldið var sólariagið mjög fagurt, og gengu blaða- mennirnir út að skoða það og skipin, sem voru 1 tugatali að leita að síld á flóanum. Um nótt- ina var gist í skólanum. Klukkan 9 í gærmorgun var lagt af stað til Akureyrar. Slag- veðursrigning var út alla Húna- vatnssýslu og Skagafjarðar- sýslu mestan hluta leiðarinnar. Miðdegisverður var snæddur að Víðivöllum í hinum bráð- myndarlega, gamla sveitabæ. Næst var stanzað í Víðimýrar- 1 kirkju og hún skoðuð, en hún I er 120 ára gömul. Enn fremur voru fleiri sveita- bæir skoðaðir, og var gestunum alls staðar tekið af mestu rausn. í Giljareitum stytti upp og gerði sólskin við og við, en þoka hellti sér yfir fjöllin á milli, og urðu erlendu blaðamennirnir hrifnir af hinu hrikalega lands- lagi. Skamma stund var stanzað við Hraun í Öxnadal, en þar fæddist Jónas Hallgrímsson, eins og kunnugt er. Klukkan 414 var komið til Akureyrar. Þar fengu gestirnir herbergi á hóteli, en síðan var þeim boðið í samkvæmissal KEA. Þar tók framkvæmda- stjóri KEA, Jakob Frímannsson, á móti þeim. Sýndi hann þeim fyrirtæki KEA og SÍS á Akur- eyri. Því næst var Gróðrarstöð- in skoðuð og flutti framkvæmda stjóri hennar, Ólafur Jónsson, fyrirlestur um hana. í gærkveldi kl. 8 hófst sam- sæti, sem bæjarstjórn Akureyr- ar hélt gestunum. Þar hélt Steinn Steinsen bæjarstjóri ræðu og enn fremur Gunnar Nielsen, Ingimar Eydal og Hans Hansen, forstjóri fréttastofu vinstrimanna í Danmörku. Gunnar Nielsen sagði m. a. í ræðu sinni: „Og nú vil ég nota tækifærið til að segja það, að við dönsku blaðamennirnir erum fullir af aðdáun yfir þeirri mikilfeng- legu þróun, sem átt hefir sér stað hér á íslandi á öllum svið- um, fjárhagslega, atvinnulega og menningarlega á þeim til- tölulega fáu árum síðan ísland fékk fullkomið sjálfstæði sitt, og, eins og sjálfsagt var, tók sér sæti við hlið annarra Norður- landaþjóða. Stórkostlegar framfarir hafa átt sér stað, og enginn efast um það, að þessi stórstíga þróun muni halda áfram á komandi ár um, ef á annað borð hið órólega ástand heimsins gefur okkur smáþjóðunum frið til starfs og dáða.“ Samsætinu lauk kl. 12. í morgun kl. 8 var lagt af stað austur. Átti að skoða Lax- árvirkjunina og brennisteins- námurnar við Mývatn, en véla- virkjun hefst þar um helgina. í nótt verður haldið til Sigluf jarð- ar með Dronning Alexandrine. ERLENDIR ferðamenn. Frh. af 1. sí&u. hér í blaðinu að nokkru leyti verið minnzt á það okur á er- lendum ferðamönnum, sem því miður viðgengst hér. Augljóst er einnig, að ef næg- ur skipakostur væri í förum til landsins, þá myndi ferðamanna- straumurinn stóraukast hingað. Hefir t. d. hinn enski umboðs- maður, sem séð hefir um Glas- gowferðir Esju, sagt, að hann 4 pAsnnd tunnur til Sifllutjarðar í gær. TIL Siglufjarðar bárust I gær um 4 þúsund tunnur síldar, aðalíega reknetaslld. Þó komu nokkur stærri skip ínn með afla, og voru það þessi Huginn, Reykjavík, með 140 tunn ur, Frigg og Lagarfoss, Ve. 140, Villi og Víðir 44, Frigg, Akranesi 103, Njáll 30, Sjöstjarnan 123 og Vébjörn 158. Til Djúpuvíkur bárust síðast- liðinn sólarhring 1700 mál, Og hef ir þá verksmiðjan alls tekið á móti um 60 þús. tunnum. S. R. vanu drengja- lötið með 40 stigum S ÍÐASTI DAGUR drengjamóts ins var í gærkveldi. Veðrið var afar illt og hefir það haft sín áhrif, en samt voru árangrar ágætir. Úrslit urðu þessi: Hástökk: 1. Sig. Finnsson, K. R. 1,55. 2. Anton Bjömsson K. R. 1,55 m. 3. Kristjón Thromberg, Á. 1,55 m. %. Ingólfur Steinsson, í. R. 1,55 m. Spjótkast: 1. Jóel Kr. Sigurðs- son, 1. R. 43,77 m. 2. Gunnar Huseby, K. R. 41,91 m. 3. Sig. Finnsson, K. R. 41, 59 m. 1500 m. hlaup: 1. Á. Kjartans- son, Á. 4,48,4 mín. 2. Matthías Guðmundsson, Á. 4,48,5 mín. 3. Garðar Þormar, K. R. 4,50,5 mín. Langstökk: 1. Sig Finnsson, K. R. 5,95 m. 2. Janus Eiríks&on, í. K. 5,83 m. 3. Anton Björnsson, R. 5,66 m. K. R. vann mótið með 40 stig- um. Ármann fékk 14, en í. K. 8. Sig. Finnsson fékk 18 stig. Leikur Ldðrasveitar- iunar ð Ansturvelli í gærkvelði. LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR lék á Austurvelli I gær- kveldi. Tókst það ágætlega, enda þótt veður væri ekki upp á það allra bezta. Meðal þeirra laga, sem Lúðrasveitin Jék, var Huldigungs- mars og er það mjöig tilþrifa- mikið lag, og stjórnaði því höf- undurinn sjálfur, Hans Griesch, en hann er kennari við tónlistar- 'skólann í Leipzig, og er staddur ihér núna í sumarleyfi sínu. Gaf hann Lúðrasveitinni þennan mars Þegar lagið hafði verið leik- ið, afhenti stjórnandi Lúðrasveit- arinnar, A. Klahn, Griesch bréf- hníf úr hvalbeini, útskorinn af Ríkharði Jónssyni, að gjöf frá Lúðrasveitinni. En áheyrendur þökkuðu Lúðrasveitinni og höf- undi marsins með lófataki. Ýms fleiri lög lék Lúðrasveitin við ágætan orðstír. I viðtall, sem Tidens Tegn hefir átt við Stefán Jóh. Stefánsson félags- málaráðherra, kemst ráðherrann svo að orði, að engin övinsemd sé ríkjandi í garð Norðmanna á íslandi. Ráðherrann neitar þeim staðhæfingum norskra blaða, að Barði Guðmundsson þjóðskjala- vörður sé óvinveittur Norðmönn- um. F.Ú. gæti útvegað um 200 farþega á viku yfir sumarmánuðina, ef góður skipakostur væri til að I flytja farþegana. Næturlæknir er Alfred Gisla&on Brávallagötu 22, sími 3894. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. ÚTVARPIÐ: 19.30 Lesín dagskrá næstu viku. 19,45 Fréttir. 20,10 Veðurfregnir. 20,20 Frá Ferðafélagi íslands. 20,25 Hljómplötur: Létt lög. 20.30 Frá útlöndum. 20,55 Hljómplötur: a) „Svanavatnið“, tónverk eftir Tschaikowsky. b) 21,30 Dcegurlög- 21,50 Fréttaágrip. Dagskrárlok. Súðin fer frá Reykjavík kl. 9 í kvöld. Póstferðir á morgun. Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar, Þingvellir, Þrasta- lundur, Hafnarfjörður, Fljótshlíð- arpóstur, Austanpóstur, Akranes, Borgarnes, Snæfellsnesspóstar, Stykkishól msp óstur, Norðanp óst- u.r, Dalasýslupóstur. Til Reykja- víkur: Mosfellssveitar-, Kjalar- n'ess-, Reykjaness-, ölfuss- og Flóapóstar, Þingveliir, Þrastalund ur, Hafnarfjörður, Meðallands-og Kirkjubæjarklausturspóstar, Akra ,nes, Borgarnes, Norðanpóstur. Skíða- og skautafélag Hafnarfjarðar efnir til berja- og gönguferðar til Þingvallanæst komandi laugardag. Þátttaka til- kynnist í Verzlun Þorvaldar Bjarnasonar fyrir hádegi á föstu- dag, og fást þar nánari upplýs- ingar um ferðina. Kaupmannahafnarblöðin . birtu i gær greinar um útvarps- fyrirlestra Sigurðar Einarssonar og Barða Guðmundssonar þjóð- skjalavarðar. Socialdemokraten segir, að það sé athyglisvert, hve íslendingarnir séu sjálfstæðir og Srjálslegir í hugsun. SigurðurEin arsson hafi í glöggu yfirliti rætt af skarpri gagnrýni um alþjóða- málin á yfirstandahdi tíma, en röksemdir Barða Guðmundssonar segir blaðið snjallar og sannfær- andi. F.Ú. DANZIGMÁLIÐ. Frh. af 1. síðu. Danzig — til Hitlers. Líta blöð- in svo á, að viðræður, sem und- anfarið hafa farið fraxn í Salz- burg milli von Ribbentrop og Czaky, utanríkismálaráðherra Ungverjalands, séu mikilvægari — og fjalli þær um ástand og horfur í Evrópu yfirleitt, en um- ræðurnar eru framhald af við- ræðum von Ribbentrops og Ci- ano greifa, að margra ætlan. Þýzk og ítölsk blöð hafa að undanfömu birt margt, sem bendir til, að ríkisstjómir Þýzkalands og ítalíu væri að vinna að því, að allsherjarsam- komulag næðist, þar sem Dan- zigmálið væri aðeins tiltölulega lítt merkt samningsatriði. En meðan sum blöð hafa rætt í þessum dúr, hafa önnur blöð haldið uppi árásum á Pólland og krafizt skilyrðislausrar af- hendingar Danzig. í Póllandi eru menn við öllu búnir, og þegar er hafin skrá- setning allra sérfróðra iðnaðar- manna, vélfræðinga o. s. frv., sem kalla verður saman strax og til styrjaldar kemur, og hafa verið stofnaðar 19 stöðvar, þar sem skrásetning allra slíkra manna fer fram. Kaupið Alþýðublaðið! „Dettifoss“ fer á laugardagskvöld 19. ágúst vestur og norður. Aukahöfn: Húsavík. HÚS TIL SÖLU. Steinhús með öllum þægindum og verzlunarbúð alveg við Mið- bæinn, útborgun 8 þús. krónur. Einnig vandað nýtízku steinhús, gólfrúm hússins 124 fermetrar, útborgun 10 þús. krónur. Mjög falleg lóð kringum húsið. Jón Magnússon, Njálsgötu 13 B. Heima kl. 6 síðdegis. Sími 2252. 39 K¥M Blð fBS Milljéfl í boði. (I will give a million!) Bráðsmellin amerísk skemmtimynd frá Fox, er sýnir á frumlega fyndinn hátt sögu um milljóna- mæring, sem leiddust auð- æfin og gerðist flakkari. Aðalhlutverkin leika: Warmer Baxter, Marjorie Weaver og Peter Lorre. M® O. G® 7® FREYJUFUNDUR annað kvöld kl. 8,30. Inntaka nýiTða. Önn- ur venjuleg fundarstörf. Fjöl- sækið stundvíslega. Æ.t. 85 ára er í dag sómakonan Ingibjörg Sveinsdóttir, Túngötu 49. Drottningin er á Akureyri. Útbreiðið Alþýðublaðið! Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að Pálína Ottadóttir kaupkona á Grettisgötu 2 andaðist 14. þ. mán. Jarðarförin ákveðin síðar. Aðstandendur. Jón Pétursson verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. þ. m. klukkan 1 e. h. F, h. aðstandenda. Sigríður Jónsdóttir. Magnús Hannesson. FIMTUDAGSDANSKLÚEBURINM. Dansle í AlfjýöuSiúsinii við Hverfisgðtia i kvold klukkan 10. HUömsveit nnðir stjórnBjarnaBPvarssðw Aðgðngumiðai! á kr. J | verða seldir frá kl. 7 í kvðld. f. s. f. K. M. R. 2. Uokks mótlð f kvðld kl. 1 keppa Fram ©§ Vfkingur og kL S.15 keppa Valiir og K. R. Hverfum tekst að vinna petta mótf -x-x-x-x-x-i-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x* t ? t t ' HAsma" y % 4 4 t t 4 t 4 4 4 4 I t t Þér getíð óhræddar safnað forða af rabarbara, berjum, tómötum og öðrum garðávöxtum, ef þér aðeíns notið BETAMON víð tiíðuvsuðuna. BETAMON ver ekki einungís ávextína skemmdum, heldur varðveítír eínníg hín dýrmætu fjörefní þeírra. Þrátt fyrir míkla Yfírburði er BETAMON ódýrara en önnur efní tíl samskonar notkunar. BETAMON fæst allsstaðar í pökkum á 0,35 og glösum á 1,25 Chemía hX — Símí 1977 X 4 f t $ 4 4 l t I ♦> t 4 4 I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.