Tíminn - 09.02.1918, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.02.1918, Blaðsíða 3
TÍMINN 27 frá Alþingi — fara fram á þennan hált. Með því móti hefði hún get- að sparað kostnað við verkstjórn og fengið miklu meiri vinnu fyrir peninga þá, sem fyrir þelta fara. Pví að ekki treysti eg svo dygð verka- manna, að þeir vinni betur yflr- leitt þótt vinnan sé veitt þeim af náð og miskunnsemi. 10. janúar 1918. Jón H. Þorbergsson. LaBdsrÉBinprínn 1914-15 og óreiðan (lar. Það var rifjað upp fyrir mönn- um í siðasta blaði hvað fundið væri meðal annars að reiknings- skilum landsstjórnarinnar fyrir fjárreiðum landsins 1914—15, og hlýtur öllum að liggja það í aug- um uppi hversu viðurhlutamikið það væri fyrir þjóðina í heild sinni að gera sér slík reiknings- skil að góðu, enda mun mega telja þau eitt hið mesta hneikslismál sem fyrir okkur heíir komið. Það er í lögum hér á landi að sérhver verzlun hafl fullkomið bókliald svo af því megi sjá hvernig hag hennar er farið. Er það þá ekki óafsakanlegt, að i þessu sama landi skuli einhver stærsta viðskiftastofnunin, sjálf fjármáladeild landsstjórnarinnar, skila reikningum í slíku ásigkomu- lagi sem lýst hefir verið, reikning- um sem um stórfelda liðu gefa þær einar upplýsingar sem innbyrðis eru í megnustu mótsögnum. Reikningsskilin í heild sinni bera þess vott að þörf sé gagngerðrar umbótar. En stærstu skekkjurnar í landsreikningnum hafa vakið mesta athyglina sem vonlegt er. Mörgum manninum varð ekki um sel er þeir lásu um þetta liér í blaðinu í sumar. Varð þeim helzt fyrir að leita á náðir þingmanna um frek- ari fræðslu í þessu efni, og bar það þá við að sumir þingmanna löldu þetta alt í bezta lagi, þingið hefði ráðið hér fullkomnar bælur á. Þingið gerði aðallega þrent í þessu máli, það vísaði »ruglingn- um i reikningsfærslu landssjóðs- verzlunarinnar« til stjórnarinnar, ákvað að telja skyldi sjóði um áramót og veitti skrifstofustjóra fjármáladeildarinnar launin hans að eftirlaunum. En með því að Tímanum.sem hafist hafði handa um þetta mál þótti ekki nóg að gert með þessu, þá tók hann að hreyfa málinu að nýju. Honum voru engar mála- mynda-aðgerðir nógar í þessu efni, hann vildi að fyrst yrði ráðin sú bót á þessum reikningsskilum sem frekast yrði framkvæmd og mælti með sérstakri rannsóknarnefnd, vildi að hér yrði alt tekið sem föstustum tökum bæði til þess að hér þyrfti ekki að verða »auð siða« í fjármálasögu landsins, og þó einkum til þess að slik reiknings- skil ættu sér ekki* oftar stað, held- ur yrði stofnað til þess bókhalds í fjármáladeildinni sem að engu stæði að baki þvi sem lög lands- ins heimta jafnvel af hverri smá- verzlun sem er, bókhalds sem sýndi það á hverjum tíma hvernig hag landsins væri í raun og veru farið. Og því fremur virtist ástæða til hvatningar í þessu efni, sem með- ferð reikningsskilanna í þinginu mætti hinu mesta umburðarlyndi og hlífð, og ekkert stjórnmálablað- anna nema Tíminn mintist einu orði á þetta mál. Hr. G. Sv. alþingismaður hefir telcið til máls um þessi reiknings- skil í ísafold nú nýverið, en ekki víkur hann þar að málinu í heild sinni, heldur að eins að fjárskift- um landssjóðs og landsverzlunar. Rekur Gísli mótsagnirnar í lands- reikningnum um þetta atriði og skýrir frá aðgerðum þingsins í tilefni af þeim. Segir hann sam- þykt landsreikninganna á alþingi hafa átt sér stað með þessum for- mála: »Eftir því sem ráða má af athugasemdum yflrskoðunar- manna og svörum ráðherra, er svo mikill ruglingur í reikn- ingsfærslu landssjóðsvezlunar- innar, að eigi má við una. Til þess að kippa þessu í lag, virðist eigi annað fært, en að landsstjórnin láti gera ná- kvæma reikninga yfir verzlun þessa frá byrjun, og fái síðar, að loltinni umboðslegri end- urskoðun, yfirskoðunarmönn- um til athugunar, og láti þeir siðan alliugasemdir með svör- um og tillögum fylgja lands- reikningnum.« Formáli þessi er nú að vísu betri en ekki neitt. En nú vildi eg mega spyrja hr. G. Sv., hvað kom það Qármáladeild landsstjórnar- innar við, þólt ruglingur væri á reikningsfærslu landsverzlunarinn- ar. Gat hún elcki samið rétlan reikning yfir fé það sem hún hafði látið af hendi fyrir því? Það var hvort sem var opinbert leyndar- mál að einmitt landsverzlunin framdi hið megnasta lagabrot hvað alt bókhald snerti og hafði gert frá fyrstu tíð. Var þá nokkurt vit í þvi að ætla að hafa landsverzl- unina að heimild fyrir því hvað landssjóður legði henni mikið fé. Og hvers vegna seilist þingið hér um hurð að loku með því að nefna landssjóðsverzlunina og rugl- ing í reikningum þar, en ekki á landsreikninginn? En sleppum þessu. Gísli bætir við: »Af framanskráðu er það nú ljóst að hér er um að ræða rugling í reikningsfœrslu, eins og fjárhagsnefndin kemst að orði, i viðskiftum landssjóðs og landsverzlunar, talsvert mikinn, en heldur ekki nokk- urn skapaðan hlut annað en rugling í reikning8færsln« (auðkent af mér). Talar Gísli hér ekkert um of? Gætir hann ekki að þvl að lands- verzlunin npitar því, samkvæmt skýrslu hr. Þórðar Sveinssonar, að hafa tekið við svona miklu fé. Hún er ekki að bera það upp á lands- sjóð að hann eigi 644 þúsundum 524 krónum og 27 aurum meira hjá sér en liann viti af. Finnur hann ekki óvissuna í orðalagi fjár- máladeildarinnar þegar hún telur að í landsverzlun »eigi að standaa svo og svo miklar fjárhæðir, í stað þess blátt áfram að segja að þær »standi« þar. Og þykir honum það ekkert óvarlegt að fara með slíka fullyrðing þegar hann gætir að þvi, að fjárhæðin sem landsverzl- uninni er færð til skuldar er upp á eyri sú fjárhæð, sern þarf til þess að »afballancera« lands- reikninginn, koma öllu heim? Maður getur vonað, að liér sé um rugling einan í reikningsfærslu að ræða, en það er tilgangur Tím- ans með afskiftum sínum af þessu máli, að þar þurfi menn ekki að lifa í von heldur vissu, og vill hann í því sambandi beina þeirri fyrirspurn til hr. G. Sv., hvort það sé á nokkurn hátl upplgst að lands- reikningnum og peningaforða lands- sjóðs beri saman i rann og veru. Eitt af eftirminnilegustu verkum Einars Arnóssonar-sljórnarinnar var það, að hún gekk rikt eftir glöggum reikningsskilum frá ýms- um er höfðu opinbert fé undir höndum, svo sem landssímastjóra og póstmeistara, og gerði þeim að skila fé ársfjórðungslega í stað þess að áður höfðu þeir gert skila- grein einusinni ó ári. Mæltist þetta vel fyrir hjá öllum almenningi og hlaut stjórnin lof af. En því und- arlegar kemur mönnum það fyrir, að einmitt þessi sama stjórn skuli sjálf ekki ynna af hendi gleggri reikningsskil en raun er á orðin1). Að lokum vil eg láta þess getið, að yfirskoðunarmenn töldu hvorki landssjóð né póstsjóð nú um ára- mótin þrátt fyrir fyrirmæli síðasta þings. Styður það mjög skoð- unina um hinn rikjandi linleskju- hátt í öllum þessum málum. Guðbrandur Magnússon. frá úilSndntn. Hér í blaðinu hefir áður verið skýrt frá ummælum Lloyd George, forsætisráðherra Breta, um friðar- skilmála þá, er Bandamenn mundu gera, eða sæltu sig við. Um sömu mundir lét Wilson forseti í ljós svipaðar skoðanir á því máli. — Nú hafa Miðríkin svarað þessum kostum. Svör Czernins ráðherra í Austurríki eru allákveðin. Hann vonar að hægt sé að koma friði á án landvinninga. Samkomulag milli Austurríki og Bandaríkja N.A. muni auðsótt. Vill hann koma á friðar- fundi og vonar að til sátta drægi ef fulltrúar ófriðarþjóðanna kæmi 1) Þess skal getið, sem fyr, að Björn Kristjánsson fjármálaráðherra undir- ritaði reikninginn 1915,. og síðasta hönd lðgð á það verk i hans stjórnartíð. fram með kröfur sínar. Hertling ríkiskanzlari Þjóðverja er ekki pins eftirgefanlegur. Segir hann að Þýzkaland verði að standa óhagg- að eins og Bismarck gekk frá því. Þjóðverjar muni aldrei sleppa til- kalli til Elsass-Lothringen. Um framtíð Belgíu og Norður-Frakk- lands sé að eins hægt að taka á- kvörðun á friðarfundi. Bandamenn sé eigi sammála um það, hver eigi að vera landamæri Þýzkalands,.en Þjóðverjar séu sigurvegarinn, og enn þá einu sinni verði Bandamenn að endurskoða stefnuskrá sína, sem Þjóðverjar séu svo fúsir að taka til íhugunar. Þessum svörum er tekið mjög kuldalega í löndum Bandamanna og mun friðarlireyfing þessi alger- lega úr sögunni. Verkfall mikið hefir verið hafið í Berlín, sem alt að hálf miljón manna tekur þátt í. Er þess kraf- ist af verkamönnum að friðarum- leitunum sé haldið áfram. Af vopnaviðskiftum er ekkert öðru nýrra að frélta. Að vísu er barist af ámóta grimd sem áður, en þar verður engu um þokað. í Finnlandi er hver höndin upp á móti annari. Rússnezkir »maxi- malistar« hafa skorist þar í leik- inn og er þó landið talið fullvalda þjóðveldi. Stjórnin rekin frá völd- um og algert stjórnleysi í landinu. Ofan á þetta bætist vistaskortur og margvíslegar deilur. Þeim ríkjum, sem viðurkent hafa fullveldi Finn- lands, hafa borist áskoranir um að skerast í leikinn og reyna að koma friði og stjórn á í landinu. Kosningar eru nýlega afstaðnar í Canada. Bar samsteypustjórn Sir Robert Bordens sigur úr býtum, en stefnuskrá hennar er að lög- leiða herskyldu. Sir W. Laurier, foringi frjálslyndaflokksins var þar hæglátari í þeim kröfum. Er úr- slitum þessum tekið með miklum fögnuði í Bretlandi. Loftárásir eru nú háðar jafnt af beggja hálfu. Þjóðverjar gera árás- ir á London með Zeppelinsloftskip- um, en Bandamenn fljúga til þýzkra borga og varpa þar niður sprengi- kúlum. Eru að þessu miklar og illar búsifjar. Hafísinn hefir töluvert fjarlægst Austurland síðustu vikuna. OfbeldÍ8vevk. Það hefir bólað töluvert á því undanfarið, að ólrygt hefir verið að ganga um götur bæjarins. Hefir verið ráðist á menn og þeir barðir og meiddir. Innbrot hafa og átt sér stað. — Lögreglan hafði hendur í hári þeirra sem ó- eirðunum ullu áfgötunum og er nú verið að leiða vitni í máli þeirra. Voru þeir druknir og var sá mað- ur sektaður um 300 kr. sem seldi þeim vínið. Mun mörgum í hug koma í þessu sambandi hvernig ástandið hefði verið hér nú í dýr- tíðarmyrkrinu og löggæzluleysinu, ef aðflulningsbannlögin hefðu ekki verið gengin i gildi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.