Tíminn - 13.07.1918, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.07.1918, Blaðsíða 1
I TÍMINN lcemur út einu sinni i viku og kostar 4 kr. árgangurínn. AFGREIÐSLA i Hegkfavik Laugaveg 18, simi 286, út um kutd i Laufási, simi 91. II. ár. Rcykjayík, 13. júlí 1918. 29. blað. ,Hjarta heimsins‘. Svo nefna Frakkar stundum höf- uðborg sína. Og nú er hún sögð í hættu. Herir Bandamanna láta undan síga geisilegu ofurefli. Her- stjórar Miðveldanna hafa að sögn heitið að taka París. Og t’jóðverj- ar gera sér vafalaust von um að næðu þeir þeirri borg, bilaði kjark- ur Frakka svo að þeir yrðu að semja frið. En þó svo yrði að París félli í hendur Miðveldanna, þá eru síður en svo líkur til að friður komist á. Eftir væru af andstæðingum Þjóðverja nánustu frændur þeirra ulan Norðurlanda, Engilsaxar í öll- um hlutum heims. Og sá kynþátt- ur hefir, eins og Rómverjar, haft þann sið, að heyja stríð hálfan mannsaldur, tapa oft, láta undan síga, þola hverskonar þjáningar, en láta aldrei undan fyr en sigur var unninn að lokum. En hvernig færi um hjarta heims- ins, ef barist væri á þeim slóðum vikum og mánuðum saman? Yrði París lögð í rústir eins Löwen eða Reims? Sennilega. Stríðsguðinn þyrmir nú engu sem verður á vegi hans. Samt væri það hörmulegt ef glæsilegasta borg veraldarinnar yrði lögð í rústir. Það væri alheims- tjön. Veröldin öll á ekki nema eina París, og hún hefir verið að skap- ast og fullkomnast í þúsund ár. Mestu listamenn listelskustu og smekkvisustu þjóðar heimsins hafa í allar þessar aldir verið að reisa þetta dásamlega undur mannlegrar snilli. Og svo á það ef til vill að leysast sundur fyrir eldi og járn- um eftir nokkra daga eða vikur. Það væri þung fórn. En Frakk- ar myndu færa hana. Og kæmist franski þjóðbálkurinn lifandi úr eldraun þeirri sem hann stendur í, þá myndi París rísa upp aftur í nýrri mynd. Pví að y>hjarta heims- ins« hættir ekki að slá meðan listaþjóðin mikla lifir. :i. Slysfarir. Látin er nýlega Valgerður Sæ- .mundsdóttir húsfreyja á Járngerð- arstöðum í Grindavík, systir Bjarna Sæmundssonar adjunkts. Var hún við þvott við laug skamt frá bæn- um, féll í laugina og druknaði. — Maður nokkur, Arnfinnur Jónsson, frá Eyri í Gufudalssveit, druknaði á Reykjavikurhöfn á miðvikudag- inn var. Hafði hann farið einn á bát út í mótorbát og mun hafa fallið útbyrðis. Breytingar á yerzlunmni. Það er nú orðið öllum almenn- ingi kunnugt að miklar breytingar hafa orðið á verzlun landsins. Hafa um það og ýmsar ráðstafanir út af brezku samningunum verið prentaðar roknastórar og dýrar auglýsingar í mörgum blöðum, einkum þeim sem bezt hafa geng- ið fram í því að ófrægja lands- stjórnina og verzlunarstefnu henn- ar. Virðist stjórnin vera að launa þeim með því að halda lífinu í þeim á þennan hátt. Hefir áður verið bent á það hér í blaðinu að þetta er óforsvaranleg ej'ðsla og þarfleysa. En sem betur fer fer ekki sam- an hve aðferðin er röng um að birta breytingarnar og hitt hversu þarfar þær eru sjálfar. Skal nú nokkuð vikið að því í hverju þessar breytingar eru fólgn- ar. Pví að hvorttveggja ber til, að auglýsingarnar gefa ekki ljósa hug- mynd um það, og þær hafa verið birtar í útbreiðsluminstu blöðunum. Fellur efnið af sjálfu sér í þrjá liðu, eftir þeim stjórnum eða nefnd- um þrem sem um fjalla. Landsverzunin hefir hingað til starfað samhliða stórkaupinönnum og kaupmönnum, um kaup og sölu einkum á kornvörum, sykri, koluin og steinolíu. Hefir sú orðið reynslan að meir og meir hefir verzlun með þessar vörur komist undir landsverzlunina. Nú hefir landsverzlunin algerlega einkasölu á þessum vörum, með þeirri und- antekning einni að botnvörpungar sem flytja fisk til Englands kaupa þar kol um leið og flytja til landsins. Frá þessum tíma og þangað til styrjöldin er búin, má því telja víst að engar kornvörur, sykur, stein- olía og kol — með undantekningunni sem nefnd var — flytjist til landsins fyrir milligöngu stórkaupmanna. Landsverzlunin kaupir eftirleiðis sjálf. Selur þvínæst til kaupmanna, kaupfélaga og sveitafélaga, eða um hendur sýslumanna, og ákveður hversu mikið megi leggja á i ó- makslaun. Liggur það í augum uppi hversu mikil trygging er í þessu fólgin að landsmenn þurfi ekki að borga meira en vera þarf fyrir nauðsynj- ar sínar. í annan stað hefir landsverzlun- in nú tekið undir sig skip Eim- skipafélagsins og sitja nú vörur hennar fyrir rúmi í skipunum. Var á það bent hér í blaðinu í vetur hvílíkt dæmalaust ólag það væri að láta kaupmenn flytja vörur sín- ar langmest með þeim skipum sem voru miklu ódýrari en lands- sjóðsskipin. En hvergi sást munur á vöruverðinu. Er þetta því og stórt og merkt spor í rétta átt. Og lendir nú ekki lengur á fárra manna höndum gróðinn af hinum lægri farmgjöld- um Eimskipafélags skipanna. Útflutningsnefndin tekur við starfi kjötsölunefndar, en er nú miklu rýmra, þar er allar útfluttar afurð- ir fara nú um hennar hendur. Verðið á útfluttu vörunum, tvenns- konar á sumum, gerir það nauð- synlegt að jafnaðarverð verði sett á vörurnar. Nefndin á að gera það og annast söluna í hendur um- boðsmanna bandamanna. Ætti nú með þessu móti að vera útilokað að ólíkl verð sé á innlendum af- urðum, þeim sem út flytjast, á ýmsum stöðum á landinu. Fram- leiðendum á að vera kunnugt um verðið sem fæst. Ættu því ekki að láta neina lokka sig til að selja öðru verði. Undanþeginn afskiftum útílutn- ingsnefndar er sá fiskur sem botn- vörpungar veiða í ís og fluttur er beinl til Englands án þess að vera fyrst fluttur á land hér. Hefir sú veiði verið mikið stunduð nú seinni part vetrar og í vor. Og hafa botnvörpungarnir flult margar miljónir króna inn í landið og auk þess nokkuð af kolum. Innflutningsnefndin er algerlega ný stofnun. Hefir hún ráð yfir því skipsrúmi í Eimskipafélags- skipunum og landssjóðsskipunum sem landsverzlunin notar ekki. — Innflytjendur snúa sér til innflutn- ingsnefndar um beiðnir um að fá að flytja inn þær vörur sem þeir vilja flytja inn. Er það verk nefndarinnar að sjá um að hæfi- lega mikið flytjist inn af hverri vörutegund — væntanlega líka að sjá uin að brýnni nauðsynjar sitji fyrir — og verður sá dómur vit- anlega að byggjast á því hversu mikið rúm muni fást í skipunum, Pað er ennfremur verkefni inn- flutningsnefndar að sjá um að innflytjendur beri frá borði hæfi- lega mikinn rétt til að flytja inn, væntanlega í hlutfalli við innflutn- ing þeirra áður. Og loks að sjá um að hæfilega mikið af hverri vörutegund komi á hvern stað á landinu. Þetta eru stórfeldar breytingar. En öll rás viðburðanna hefir mið- að í þessa átt. Brezku samning- arnir gerðu margt af þessu að nauðsyn. Landsstjórnin og forstjórar lands- verzlunarinnar hafa ráðið þessar breytingar, að sjálfsögðu i samráði og í samvinnu við alþingi, eink- um bjargráðanefndir. Er nú ekki lengur neitt hik á öllum stjórnar- völdum um þessa stefnu. Tíminn má vel við una þessar breytingar, því að eins og lesendum blaðsins er kunnugt, er hér komið á, beint framhald af þeirri stefnu um landsverslunina sem blaðið hefir talið hina einu réttu, um að ráða bót á hinu erfiða styrjaldar- ástandi. Verzlunarstefna sú sem prédikuð var í vetur í langsumblöðunum og Lögréttu, er aftur á móti nú með öllu kveðin niður. Það verð- ur varla sagt að einn einasti mað- ur af þeim sem ábyrgðina hafa, vilji lengur halda henni fram. Svo gersamlega fylgislaus er nú sú stefna orðin. Töðubrestur. Þegar tíðin var sem bezt í vor, gerðu margir sér vonir um að geta byrjað að slá tún upp úr Jóns- messu. Utlitið var þá svo afbragðs- gott. — Vorverkatíminn er nú orð- inn um sextán vikur og er það óvanalegt. Og svo verður sú raunin á, að sláttur byrjar varla alment fyr en eftir viku lil hálfan mánuð. Túnin hafa nálega ekkert sprotlið síðustu vikurnar. Og stráin eru svo fá sem vaxa, því að kal er meira i túnum og víða á útengi en elztu menn muna. Nálega alt land hefir brugðist annað en áveituland. Þau eru mörg vorin þegar al- ment er kvartað um grasbrest. En oftar verður það, að úr rætist þó seint verði og verður meðal- grasvöxtur upp úr miðjum slætti. Og eftirtekjan eftir því. Við þá von er ekki hœgt að hugga sig i þetta sinn. Úr því ekki hefir sprottið þetta langa vor, þá spretta túnin a. m. k. ekki sæmilega á þessu sumri. Og liið stórkostlega almenna kal — beztu blettirnir og beztu túnin verst farin — það batnar áreiðan- lega elcki í sumar og vafasamt hvort það batnar næsta sumar. Það er mögulegt, ef sérstaklega vel rætist úr, að heyskapur utan túns verði bærilegur. En það er fyrirsjáanlegur stórkosllegur töðu- brestur um alt land. — Hér skal ekki spurt um or- sakirnar né liitt hvort benda megi á ráð til þess að forðast kal í túnum. Það er verkefni hinna bú- fróðu manna að hugsa og ræða \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.