Tíminn - 08.03.1919, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.03.1919, Blaðsíða 1
TÍMINN ®ð minsta kosti 80 Wöð á ári, kostar 5 ikrónur árgangurinn. AFGREIÐSLA i Reykjavik Laugaveg 18, simi 286, át um land i Laafási simi 91. III. ár. Reykjavík, 8. mars 1919. 16. l)lað. Ný siglingateppa Hafnbönnin eru ekki lengur til. Tundurduflin eru slædd upp. Þáð Terður hættuminna með hverjum degi að fara um höfin. En annað kemur í staðinn. Englendingar hafa veilt útílntn- angs og innflulningsleyfi á öllum vörum, en því samfara herða þeir eftirlitið með innflutningi á mönnum. Njósnarhræðslan olli áður. Nú hræðlan við æsingar og undirróður byitingamanna. Frá »sýktum löndum« þ. e. þeim löndum þar sem kenningar Bolche- vicka hafa náð nokkurri útbreiðslu, í. d. frá Norðurlöndum, fá menn mú ekki landgöngu í Englandi án Majög brýnna erinda og án þess að Þe>r hafi vegabrét, enda liggi fyrir fnllar upplýsingar um manninn. Þegar blöð bárust siðast frá Bandaríkjunum í Vesturheimi, var þar til umræðu í þinginu frum- varp um að banna með öllu inn- flutninga til landsins í bili. Höfuðástæðurnar fyrir frumvarp- inu voru taldar tvær: Fyrst og fremst að nú þyrfti að sjá öllum bermönnunum fyrir atvinnu, er þeir kæmu heim úr stríðinu og því væri ekki rétt að hleypa nýj- um vinnukrafti inn í landið. Hin, að með þessu einu móti væri hægt að verja landið fyrir Bolchevickum Og undirróðri þeirra. Það er ljóst hvert stefnir. Eitt af öðru taka ríki veraldar- inriar upp þá stefnu að einangra sig, frá þeim löndum sem »sýkt« af Boichevickismanum. Það má gera ráð fyrir að nú komi upp nýir »svörtu listar«. Á hann koma þau lönd sem leyfa Bolchevickutn að koma og slarfa Bjá sér. Allur landslýður í þeim löndum kemst á »svarla lislann« þ. ®* ^ær ekki að fara ferða sinna til einangruðu landanna, nema með vegabréfi, nemameð ströngu ettirliti. Það ræður að líkindum hversu mikil óþægindi mun geta stafað af þessari mannflutninga siglinga- teppu. Það flaug sú fregn um bæinn nýlega að einn Bolchevick váeri væntanlegur hingað á næstunni. Er vafalaust flugufregn. En hvað er' í rauninni eðlilegra en að er- endrekar Bolchevicka reýndu að fara krókinn til íslands, gætu þeir 3íleð því móti komist þangað sem þeir geta ekki komist beina leið. alvörumál mikið er það fyrir okkar land, hvort ekki sé rélt að íáia að hafa eftirlit með því hvaða fólk flyst hingað, með því að krefjast vegabréfs af hverj um sem komast vill til landsins, ekki svo ritjög af því að við þurfum að ótt- ast þessa lireifing fyrir sjálfa okk- ur, heldur af hinu að eiga það víst að önnur lönd, sem óttast hana, setji okkur ekki á wsvarta listann«, fari ekki að setja okkur sérslakar tálmanir um að geta farið ferða okkar. 6amlar vxringar. Flokkaskiftingin gamla hefir rist djúpar rætur hjá þjóðinni. F*eir skifta þúsundum, kjósendurnir, sem voru ávalt fastir í rásinni, eitt kjörtímabilið á fætur öðru, urn að halda fast við aðra hvora aðferðina um lausn sjálfstæðismáls- ir.s. Og það var vottur um póli- tiskan þroska, hve margir voru stefnufastir i því máli, meðan það var óleyst, meðan það slflfti flokk- um. En hitt væri jafn-fávíslegt, héldu menn nú enn dauðahaldi í þær gömlu væringar, þá er málið er, a. m. k. í bili, endanlega til lykta leitl. Gamall bóndi á Vesturlandi skrif- ar ritstj. Tímans á þessa leið: »Hingað til hefi eg krafist þess af þingmanni mínum, að hann væri sjálfstæðismaður. Nú væri heimska að hugsa lengur á þá leið. Nú á að kasta slíku fyrir borð.« Miðaldra bóndi, af Norðurlandi, ritar á þessa leið: »Hingað til hefi ég ekki getað gefið öðrum atkvæði mitt en ein- dregnum heimastjórnarmanni. Nú eru ailir orðnir heimasljórnarmenn og allir sjálfstæðistnenn og nú kýs eg á þing eftir alt öðrum mæli- kvarða.« Þetta er hvorttveggja vottur um pólitiskan þroska, vottur um að menn skilja að öldungis eins og menn kasta frá sér þeim fötum sem eru gatslitin, eða orðin of lítil og fá sér ný i staðinn, eins eiga menn að fara að í stjórnmálunum, þegar þar verða jafn fullkomin veðrabrigði og nú hafa orðið. Það væri jafn fávíslegt héldu menn nú enn áfram með það að gefa atkvæði sín við kjörborðið eftir gömlu flokkaskiftingunni — eins og ef landslýður á íslandi hefði haldið fast við flokkaskift- inguna »niðurskurðarmenn« og »lækningarmenn«, löngu eftir það að fjárkláðinn var læknaður, og kosið menn á þing eftir því. Það er nauðsynlegt til þess að heilbrigt pólitiskt líf geti þróast í landinu að þjóðin átti sig á þessu. Það er skylda gömlu flokkanna að hjálpa þjóðinni til þess að átta sig á þessu, með því að tilkynna henni það formlega að þeir eigi ekki lengur tilverurétt. Ef þeir ekki gera það, á þjóðin að sýna þeim það í verkinu að hún lítur svo á málið. I Vinstrimannaflokknum eru jafnt menn úr báðum aðalflokkunum gömlu. Og það mun verða stefna hans, að breiða yfir allar gamlar væringar, áð fá góða krafta úr báðum gömlu herbúðunum, sem saman eiga, til þess að vinna sam- an i bróðerni að viðreisn landsins, í frjálsri framsókn. Kristinn Ketilsson. 16. des. s. 1. andaðist að Reyk- húsum í Eyjafirði Kristinn Ketils- son. Hann var fæddur á Litlaeyrar- landi 1851. Fluttist barn að aldri með foreldrum sinum að Mikla- garði og dvaldist þar til 1874 er hann giftist eftirlifandi ekkju sinni Hólmfriði Pálsdóttur ættaðri úr Svarfaðardal. Bjuggu þau mest- allan sinn búskap á litlu koti, Húsum, í Eyjafirði. Þau áttu fjóra sonu. Hatlgrím framkvæmdarstjóra Samvinnufélaganna. Sigurð kaup- félagsstjóra á Akureyri. Jakob prest í Ameríku og Aðalstein verzlunar- mann á Akureyri. Kristinn heiíinn var að eðlisfari prýðilega vel gefinn og fjármaður mikill. En síðari hluta æfinnar naut hann sín aldrei til fulls. — Snemma á búskaparárum sínum lagðist hann í taugaveiki mjög ill- kynjaðri. Lá lengi og hættulega. Læknishjálp ekki svo fullkomin sem skyldi, eins og þá var títt i landinu. Um síðir rétti hann við, en náði aldrei fjöri og heilsu til fulls. Hann var efnalítill smábóndi alla æfi, einn af þeim fjölmörgu, sem þá voru í Eyjafirði. En i litla kotinu hans fæddust upp synir hans, sern það átti fyrir að liggja, að hafa svo giftusamleg áhrif á hag Eyjafjarðar. Þeir erfðu gáfur, fjör og manndóm föður síns, en ekki vanheilsu hans. Og tveimur þeirra, hinum elstu, tókst að hafa þau áhrif á hag Eyjafjarðar á fá- uin árum, sem nú eru landfræg orðin. Það er haft með sannindum eftir gáfuðum kaupmannssyni við Eyjafjörð, að kaupfélag Eyfirðinga hafi á 10 árum lyft héraðinu meira, andlega og fjárhagslega, heldur en góður skóli hefði getað gert á heilli öld, Og þegar saga þess verks, sem svo margir nýtir menn hafa unnið að, verður skráð, þá mun ekki gleymt þeim skerf, sem lilla heimilið á Húsum hefir Iagt í við- reisn Eyjafjavðar. Norðlendingur. Samgöngur eftir Jón Á. Guðmnndsson. IV. Þó að sjórinn verði hér aðal samgöngubrautin, er langt frá því, að samgöngur á landi megi fyrir það sitja á hakanum, heldur verða þær að aukast að sama skapi. Þá fyrst koma strandferðirnar þjóð- inni að fullum notum, þegar góðir vegir eru komnir um allar sveitir landsins. Það er alkunnugt hve það er miklu betra og ódýrara að ferðast á góðum vegum en síæmum, þó að flutningstækin séu að eins okk- ar góðu og gömlu hestar. En flutningur á þungavöru sýnir þó enn þá hetur ágæti veganna, því í reyndinni er akstur eftir sæmilega góðum vegum að minsta kosti þrisvar sinnum ódýrari held- ur en baggaflutningurinn. Þegar nú flutningar allir, eru talsvert stór liður í framleiðslu- kostnaðinum, er auðsætt hve góðir vegir eru beint arðvænlegir fyrir sveitinar. Á siðustu árum hefir talsvert verið rætt um járnbrautarlagningu hér á landi, og málið auk þess nokkuð rannsakað. Járnbrautirnar eru viðurkendar að vera ódýrustu flutningstækin á landi, sem enn þá er völ á, þar sem flutningur er nógur. Það er því nauðsynlegt að rannsaka isem best þau skilyrði sem hér eru, og þá möguleika sem kunna að skapast með lagningu brautarinnar. Það hafa vist fáir eða engir gert sér hugmynd um eins mikinn beinan og óbeinan gróða af simanum — þegar hann var lagður — og raun hefir á orð- ið, og svo gæti líka farið með járnbrautina. Það þarf að gæta þess að öll samgöngutæki eru undirstaða fram- leiðslu á öllum sviðum, svo að þau beinlínis skapa arðvænlega at- vinnuvegi, og þannig jafnframt samgönguþörf og skilyrði fyrir því að þau sjálf geti þrifist og borið beinan arð. Það er því sennilegt að járn- brautarlagningar, séu alls ekki ó- timabært mál hér á landi, þó á hinn bóginn að það sé of mikið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.