Tíminn - 04.09.1934, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.09.1934, Blaðsíða 1
(5>jaíbbagi ilaCsine ec I. )Ani. iÁrsangurlrtn Ceslac 10 fc. XTHL irg. Reykjavík, 4. september 1934. Mjólkurmálið leyst Aðalatriði bráðabirgðalaganna um skipulagning mjólkursöl- unnar verða þessi: Yfirstjórn mjólkursölunnar í landinu verður falin sjö manna nefnd (,,mjólkursölunefnd“), er ríkisstjórnin skipar. í nefndinni verða fulltrúar frá framleiðendum og neytendum. Landinu verður skipt í verðjöfnunarsvæði, og sé kaupstað- ur eða kauptún í hverju. Á hverju verðjöfnunarsvæði verður fimm manna verðlagsnefnd, sem ákveður útsöluverð mjólkur á verðjöfnunarsvæðinu. Af þessum 5 mönnum skulu tveir til- nefndir af mjólkurframleiðendum, tveir kosnir hlutfallskosn- ingu af viðkomandi bæjarstjórn eða hreppsnefnd, en landbún- aðarráðherra skipar oddamann. Á alla neyzlumjólk og rjónra, sem selt er, verður lagt verð- jöfnunargjald, 5% af útsöluverðinu, en má hækka upp í 7%. Verðjöfnunargjaldinu verður varið til verðuppbótar á vinnzlu- mjólk, eftir því sem stjórnir mjólkurfélaganna koma sér saman um. En mjólkursölunefnd úrskurðar, ef ágreiningur verður. Öll mjólk (og rjómi), sem seld er í sama kaupstað eða káuptúni, skal vera seld frá einni sölumiðstöð. Sölumiðstöðin hefir einkarétt til að starfrækja mjólkurbúðir, enda sjái hún um, að nóg neyzlumjólk sé til sölu. Sölumjólk skal vera geril- sneydd. Um framleiðslu og meðferð á mjólk handa ungbörnum og sjúklingum verður þó sett sérstök reglugerð í samráði við heilbrigðisstj órnina. Framkvæmdastjórn sölumiðstöðvarinnar skal skipuð af mjólkurfélögum á verðjöfnunarsvæðinu. Verði ekki samkomu- lag innan félagsstj órnanna, skipar mjólkursölunefnd fram- k væmdast j órnina. Landbúnaðarráðherra getur veitt undanþágu frá verðjöfn- unargjaldi á mjólk, sem framleidd er á ræktuðu landi kaup- staðar eða kauptúns, þar sem hún er seld. Má undanþágan ná til mjólkur úr jafnmörgum kúm og hektarar eru af rækt- uðu landi innan kaupstaðarins. En á þá mjólk, sem þar er framyfir, má ieggja tvöfalt verðjöfnunargjald. Ákvæðin um samsölu frá einni sölumiðstöð og um geril- sneyðingu koma ekki til framkvæmda fyr en um áramót. Víðtaí við forsætisráðherra Tíminn hafði nýlega tal af Hermanni Jónassyni for- sætisráðherra og spurði hann um undirbúning bráðabirgða- laganna. — Undirbúningur bráða- birgðalaganna hefir staðið yf- ir svo að segja óslitið síðan inn stjórnarskiptin, segir ráð- herrann. Hafa verið haldnir fjöldamargir fundir um málið. Hafa hinir ýmsu aðilar mætt á fundum þessum til að skýra afstöðu sína og gera tillögur. — Hverjir eru aðilar máls- ins? — Aðilar málsins af hálfu framleiðenda eru Mjólkur- bandalag Suðurlands, en í því eru mjólkurbúin austan- fjalls og vestan, ennfremur Mjólkursamlag Borgfirðinga og Nautgriparæktar. og mjólkur- sölufélag Reykjavíkur, en í því eru flestallir nautgripaeig- endur í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Auk þessa eru svo að sjálfsögðu neytendur mjólkurinnar höfuðaðili máls- málsins. — Hafa þessir aðilar geng- ið inn á samkomulagsgrund- völlinn ? — Aðalerfiðleikamir við þessa löggjöf hafa alltaf ver- ið og eru þeir, að samræma hina mismunandi hagsmuni, sem a. m. k. framleiðendun- um á hinum ýmsu svæðum, sjálfum virðist þeir hafa í málinu. Á þessu hefir málið strandað hingað til. Nú hefir verið unnið að undirbúningi þannig, að milliþinganefndin í afurðasölumálinu hefir unnið að samning tillagna. En jafn- framt hefi ég méð fundahöld- um með hinum ýmsu aðiluní málsins unnið að því að fá samkomulagsgrundvöll. Hefi ég jafnharðan skýrt nefndar- mönnum frá þeim atriðum, sem samkomulag hefir náðst um. Og nú hefir fullnaðar samkomulag náðst í öllum aðalatriðum þessa máls. Eðli- lega hafa aðilar orðið að slá ýmsu af sínum upphaflegu kröfum og taka tillit hver til annars. En ég hefi lagt mikla áherzlu á, að niálið gæti orðið afgi-eitt með samkomulagi, þar eð ég álít að það hafi mjög mikla þýðingu fyrir fram- kvæmd þess. Tel ég að aðilar hafi sýnt mikinn skilning á þörfinni til að leysa málið á þennan hátt, og hina mestu lipurð í samningunum. Nú þegar bráðabirgðalögin verða gefin út, liggur fyrir yf- irlýsing allra aðila um, að þeir sætti sig við samkomulag- ið. — Hvað teljið þér höfuðat- riði laganna? — Ég tel það höfuðatriði laganna, að öll mjólk vérður frá áramótum seld frá einni sölumiðstöð og að mjólkin verður öll gerilsneydd, nema e. t. v. barnamjólk og sjúkra- mjólk, sem verður nánar á- kveðið um í reglugerð. Með þessu vinnst tvennt: Neytend- urnir geta verið öruggir um það, að fá góða og óskemmda vöru, hin yfirvofandi sýking- arhætta frá mjólkinni er úti- lokuð. Framleiðendurnir geta hinsvegar með þessu móti og e. t. v. með því einu móti kom- ið fullkomnu og hagkvæmu skipulagi á dreifingu mjólk- urinnar, og lækkað dreifingar- kostnaðinn að miklum mun. Hermann Jónasson. Annað atriði, sem er álíka þýðingarmikið, er verðjöfnun- in. Ilún, ásamt sölumiðstöð- inni, gerir það mögulegt að nota þá mjólk aðallega til neyzlu í bæjunum, sem ódýr- ast er að flytja þangað á hverjum tíma og að öðru leyti hagkvæmast. Um þennan markað verður nú engin óheilbrigð samkeppni, vegna ákvæðanna um verðupp- bót á vinnzlumjólkina. — Hvenær verða bráða- birgðalögin staðfest ? • — Lögin ganga sennilega í gildi einhvern næstu daga. Og ég er þess fullviss, að ef íramkvæmd þessara laga tekst vel, og af hálfu stjórnarinnar verður vitanlega gert allt til þess að svo megi verða — hljóta þau að verða til mik- illa hagsbóta fyrir mjólkur- íramleiðendur, og fyrir neyt- endurna líka. 8a£a málsins. Mjólkurmálið hefir verið eitt af erfiðustu viðfangsefn- um síðustu ára. Flestir hafa verið sammála um, að skipu- lagsleysið í mjólkursölunni væri óþolandi, bæði fyrir fram- leiðendur og neytendur. Hvað eftir annað hefir verið gerð tilraun til að leysa málið, á Alþingi, í fyrverandi ríkis- stjórn og jafnvel í bæjarstjórn Reykjavíkur. En stöðugt hafa þær tilraunir strandað. Þær hafa strandað á ýmiskonar hagsmunaandstæðum, sumum ímynduðum og sumum sem þurfti að greiða úr með sam- komulagi. Þetta erfiða mjál, sem bæði fyrverandi ríkisstjóm og Al- þingi eins og það áður var skip- að, hafði gefizt upp við að ráða fram úr, hefir nú -Hermanni Jónassyni forsætisráðherra tekist að leysa. Og honum hef- ir tekizt að leysa það á þann hátt, að þeir, sem áður deildu innbyrðis, telja sig geta unað við þá lausn og hafa fallizt á það fyrirkomulag, sem nú verður lögfest. Hinum nýja forsætisráð- herra hefir þannig tekizt með dugnaði sínum og lægni að koma í veg fyrir þá miklu hættu, sem yfirvofandi var í þessu máli. Honum1 hefir tek- izt að hindra mjólkurstríðið, sem mýndi hafa leitt bágindi og jafnvel neyð yfir fjölda manna. Og jafnframt hefir honum tekizt að fá samkomu- lag um þá skipun mjólkursöl- unnar, sem tryggir neytend- um góða og heilnæroa vöru. Það má segja til lofs öllum aðilum þessa máls, að þeir hafa nú, þegar þeir sáu, að einlæg- ur vilji var hjá stjórn landsins til að leysa málið, látið hin smærri ágreiningsefni niður falla og tekið þau tillit, sem nauðsynleg voru til að binda enda á það ófremdarástand, sem verið hefir. Því var spáð í þessu blaði um það leyti sem stjórnar- skiptin fóru fram, að hin nýja ríkisstjórn myndi verða starf- söm stjórn. Það hefir líka leynzt svo þann stutta tíma, sem liðinn er síðan. Andstæð- ingarnir eru jafnvel farnir að hvísla því sín á milli, að þessi stjórn muni sitja lengi að völd- um. En hvað sem er um það, þá er hitt víst, að sjaldan hefir verið meira framkvæmt af gagnlegum stjórnarráðstöfun- um á jafn skömmum tíma og í mánuðinum, sem leið. Islenzkir hestar til Þýzkalands Hingað koxnu til lands fyrir nokkru síðan, tveir sendimenn frá þýzku stjórninn, Jáger og Busch að nafni, í því skyni að athuga möguleika til að gera kaup á íslenzkum hestum. En það hefir komið í ljós, að í því umtali, sem orðið hef- ii við Þjóðverja um kaup á íslenzkum hestum á árinu sem leið og í þeim upplýsingum, sem gefnar hafa verið héðan, hefir verið gert ráð fyrir hestum ca. 56 þuml. á hæð að band- máli, en það er meiri hæð en hægt er að gera ráð fyrir yfir- leitt á íslenzkum hestum. Þjóðverjamir tveir hafa verið á ferð um sýslumar austan fjalls og einnig norður í Húnavatnssýslu og skoðað hesta. Eru þeir sæmilega ánægðir og er nú gengið frá aðalatriðum í samningi um kaup á 200 hestum 4—8 vetra til reynslu, þó að því tilskildu, að samkomulag verði um hæð- ina, en hún er minni en gert hafði verið ráð fyrir. — Selj- andi hestanna er Samband ís- lenzkra samvinnufélaga og ef samningurinn verður sam- þykktur, verða þeir sendir út seint í þessum mánuði. — Verðið mun vera fremur gott, en kaupin eru því skilyrði bund. in að andvirðið verði notað til kaupa á þýzkum vörum. — Það eru þýzkir smábændur, sem eiga að fá hestana. Frumvarp um kartöfluverzlun- ina mun landbúnaðarráðherra leggja fyrir nœsta þing. [ Maymis Guðmundsson oy por- steinn Briem hafa ekki verið al- veg aðgerðalausir í stjórnarráðinu 14. júlí s. I. þann dag leigði M. G. Sigurði búnaðarmálastjóra hluta úr landi rikisins á hvera- svæðinu í Ölfusi til 75 ára og launaði honum þannig sprengi- framboðið í Árnessýslu. En þor- steinn Briem útnefndi þennan sama dag fimm prófessora, sein hefir orðið til mikiis athlægis síð- an, Er þetta gott sýnishorn af vinnubrögfium þessara fyrverandi stjórnarherra. ^fereifcsla ®ð tnnþelmta á £anganeg 10. &lml 2353 — Póstþáíf ðöl 40. blað. Stjórnmálin í ágústmánuði. Þessi mánuður hefir verið óvenjulega viðburðaríkur. Hin nýja landstjórn tók við í lok júlímánaðar og af stjórnarskiftunum liefir leitt margháttaðar breytingar. íhaldið tók liinni nýju stjórn ekki illa fcftir ástæðum, talaði jafnvel ekki að öllu leyti óvingjarnlega um Ilarald Guðmunds- son í byrjun, en ekki hefir orðið framhald af því. Einna mest fór útnefning Her- manns Jónassonar fyrir brjóst kyrstöðu- mannanna. Vegna einbeittni og dugnaðar í embætti sínu og sem leiðtogi í Framsóknar- ílokknum höfðu kyrstöðumenn á honum ill- an bifur. Honum hafði verið hótað embætt- ismissi af pólitískum ástæðum, og móti lionum hafði verið gert samsæri með æfð- um ljúgvitnum, til að reyna að sanna á hann tyllisök. Að H. J. varð forsætis- og- dómsmálaráðherra í hinni nýju stjórn, var íhaldinu mikil og verðskulduð háðung. í- haldið fann þetta, fann að tilefnið var rétt- mætt, og lætur sennilega ráðninguna verða til viðvörunar í framtíðinni. Það sem hefir einkennt starf stjómarinn- ar hinn fyrsta mánuð, eru hin mörgu bráðabirgðalög um atvinnumálin, sem gef- in hafa verið út eða undirbúin. M. Guðm. hafði þar gefið fordæmi með því að gefa út bráðabirgðalög' um eignarnám á afnota- rétti Sólbakkaverksmiðjunnar. Kom íhald- inu þetta illa, því að hér var gefið einstakt fordæmi, um að ríkisstjórnin taki ónotuð atvinnutæki eignarnámi með yfirráðabreyt- ingu á afnotaréttindum. Þótti íhaldsmönn- um þetta hinn versti viðskilnaður hjá M. G. En tilefnið var greiðasemi M. G. við félag-a sinn Ásgeir fræðslumálastjóra. Óskar lækn- ir á Þingeyri hafði á framboðsfundum í vor krafizt þess, að verksmiðjan yrði starf- rækt, og; fylgdu kjósendur því fast fram og varð þingmaðurinn að heita því, að svo skyldi verða. En þetta gekk ekki nema með hinu merkilega eignarnámi, sem íhaldið lét valdalausan ráðherra gera með bráðabirgða- lögum. Nýja stjórnin tók til meðferðar ennþá stærri mál, en rekstur Sólbakkastöðvarinn- av. Haraldur Guðmundsson kom með bráða- birgðarlögum skipulagi á verzlunina með léttverkaða síld. Urðu íhaldsmenn að þiggja þar einkasölu og með bráðabirgðalögum og af socialista. En hin léttverkaða síld selst vel, íhaldið græðir á framleiðslunni og Mbl. iagði blessun sína yfir einkasöluna, bráða- birgðalögin og ráðherrann, sem stýrði í höfn með vandasamt mál. Litlu síðar kemur Hermann Jónasson skipulagi á kaup í opinberri vinnu. Þor- steinn Briem var búinn að hækka kaupið í vor, svo að litlu var þar við að bæta- En með samningi stjórnarinnar var fallið burtu hið ósvikna réttleysi, sem aðallega náði til bænda og bændasona í opinberri vinnu. Hafði Sigurþór í Kollabæ hafið baráttuna fyrir jafnrétti innanhéraðsmanna gagnvart aðkomumönnum, á bændafundi í Rangár- vallasýslu snemma í janúar í vetur, og er sú réttarbót nú íengin. Auk þess er innan- héraðsmönnum tryggður atvinnuréttur, sem varalið íhaldsins vildi ekki unna þeim. Kreppulánasjóður var raunverulega slífl- aður þegar stjórnarskiftin gerðust, bænd- um var að vísu heitið lánum, en í hundr- aðatali neituðu bændur og umboðsmenn þeirra, að ganga að vaxtakjörunum, enda voru þau svo óaðgengileg, að oft urðu vext- ir og afboKganir í Kreppulánasjóði fyrstu ávin eins og af víxlum í bönkum. Þetta kom að vísu ekki af óvild til bænda, heldur af því, að Þorsteini Briem, Pétri Magnússyni og Jóni Jónssyni var svo mikið í mun að klófesta yfirráð kreppusjóðs í sínum hönd- um, rétt fyrir þingkosningar, að þeir gáðu miður en skyldi, að innihaldinu. En nú vildu bændur ekki þola þessi hraksmánarlegu greiðslukjör. Eysteinn Jónsson gaf þá út bráðabirgðalög, „ sem leiðréttu þessar mis-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.