Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Smábátaeigendur á Reykjanesi: Vilja að allar drag- nótaveiðar verði bannaðar í Faxaflóa Smábátaeigendur á Reykja- nesi vilja banna allar veiðar með snurvoð (dragnót) í Faxaflóa aUt árið um kring. Aðalfundur Reykjaness, svæðis- félags smábátaeigenda á Reykja- nesskaga, var haldinn I Golfskálan- um í Leiru 18. október sl. Þar kom fram mikil og vaxandi óánægja og áhyggjur með auknar veiðiheimildir snurvoðarbáta og togbáta á aðal- veiðisvæðum smábátanna. Þetta veldur því að smábátamir þurfa að sækja æ lengra frá landi til að kom- ast í fisk og er það óheillavænleg þróun svo ekki sé meira sagt. Um þetta ályktaði fundurinn eftirfar- andi: Allar veiðar með snurvoð (dragnót) skulu bannaðar í Faxa- flóa árið um kring, segir í frétt frá félaginu. Bjart skrifborðsljós, heima og á vinnustað: DULUX'TABLE BYGGlNGAVORUOEHD HRINGBRAUT 120 simi 28600 SIEMENS Siemens Siwamat 640 . Fyrirferðarlítil og lipur topphlaðin þvottavéI • Aöeins 67 sm á hæð, á hjólum. •Yfir 29 þvottakerfi. •Vinduhraði: 350, 700 og 850 sn./mín. •Tekur 4,5 kg eins og venjuleg vél. Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Bourguiba burt eftir 31 valdaár: Ben Ali, forseti, virðist njóta trausts Tunisa „BOURGUIBA tímabilið er á enda. Allir eru sáttir við þessi málalok." Sagði nýr forseti Túnis, Abidine Ben Ali, sem ýtti Bourguiba úr sessi um helgina og tók sjálfur við embættinu. Ben Ali hafði verið skipaður forsætisráðherra fyrir um það bil mánuði og var þar með talinn arftaki hins aldurhnigna forseta. Þó bjuggust sennilega fæstir við, að hann myndi leiða málið til lykta eins fljótt og nú hefur komið á daginn. Ben AJi sagði, að ákveðið hefði verið að svipta Bourguiba völdum, þar sem hann væri orðinn elliær og alls ekki fær um það lengur að gegna embættinu. í opinberum yfirlýsingum hefur verið lögð áherzla á, að landið hafi í reynd verið forsetalaust um langt skeið vegna hrörnunar Bourguiba. Ifréttum frá Túnis segir, að borgarar hafi tekið tíðindum rólega og engin ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að einhveijir rísi upp til andmæla. Bourguiba dvelur, þegar þetta er ritað enn f forsetahöllinni í Karþagó og hjá honum er frænka hans Saida Sassa, sem margir valdamenn í Túnis hafa litið homauga. Hún hefur annast gamla manninn síðustu ár og margsinnis hefur hún komið í veg fyrir með ofríki sínu, að ráðherrar eða aðrir sem hafa þurft að ná tali af Bourguiba kæmust á hans fund. A tímabili var sagt, að hún stefndi að því að fá forsetann til að skipa sig í áhrifastöðu. Ekkert liggur fyrir um það, en fæstum blandast hug- ur um, að Sassa hefur haft töluverð afskipti af embættaskip- unum síðustu árin. Sagt er að í forsetahöllinni séu einnig ýmsir nánir stuðningsmenn Bourguiba og verði ekki hróflað við neinum. Forsetanum fyrver- andi verði gefinn kostur á að eyða því sem hann á eftir ólifað á ein- um þriggja setra sinna annars staðar í landinu og honum verði sýnd sú virðing, sem sé við hæfi. Habib Bourguiba hefur verið við völd í Túnis í 31 ár. Hann hefur notið virðingar erlendi og hefur verið elskaður af þegnum sínum. Á því er ekki nokkur minnsti vafi. Framan af hafði hann öll völd í sínum höndum og hann gerði sér far um að færa land sitt til nútímans, með auk- inni menntun, bættri heilsugæzlu og þrátt fyrir takmarkaðar auð- lindir í landinu, reyndi hann eftir megrii að sjá til þess að hagur manna batnaði.Bourguiba sýndi áhuga á að breyta stöðu konunnar í samfélagi múhammeðstrúar- manna, svo að hún er nú líkust þar og á Vesturlöndum, allra Ara- baríkja. Hann var hlynntur Bandaríkjunum og Vesturlöndum almennt og hefur viljað halda góðum og nánum samskiptum við Bandaríkin, einnig á þeim tíma, þegar Sovétmenn létu að sér kveða í Norður Afríku. Það fór hins vegar ekki milli mála, að lýðræði var ekki í Túnis í stjómartíð Bourguiba. Það bend- ir raunar ekkert til að þar verði breyting á með nýjum valdhöfum. Én Bourguiba var lengst af vitur og velviljaður einræðisherra og enginn hefur dregið f efa að Tún- is hefur miðað fram á veginn undir hans sljóm. Bourguiba féll í þá gryfju að átta sig ekki á, hvenær hans tími liðinn. Misvitrir ráðgjafar undan- farin ár, sem ugglaust hafa hugsað meira um að skara eld að eigin köku, en ráða öldruðum og heilsuveilum manni hollt, bættu ekki úr skák. í nágrannaríkjunum Túnis, Marokkó og Alsír, hefur Ben Ali verið tekið vinsamlega. Nokkur vestræn ríki hafa einnig látið frá sér heyra um valdaskiptin og ver- ið mjög jákvæð. Stjómarand- stöðuflokkur Túnis, Islamski flokkurinn, sem er raunar bannað- ur, hefur sömuleiðis lýst ánægju sinni án þess neitt bendi til að Ben Ali hyggist leyfa honum að starfa. Islamski flokkurinn hefur látið meira til sín taka að undanf- ömu og eins og fram hefur komið í fréttaskýringum um Túnis á síðustu mánuðum, hefur það vald- ið vaxandi kvíða. Skemmst er að minnast, hve harkalega var tekið á málum islamskra bókstafstrúar- manna þar og að flestra dómi em öfgastefnur af öllu tagi eitur í beinum Túnisa. Sumir álíta, að það sem hafi riðið baggamuninn, að Ben Ali lét til skarar skríða nú hafi verið sú, að hann áliti mjög nauðsynlegt að vináttusamningur yrði gerður við Libýu og staðfest yrði að taka upp langtum nánari samvinnu við Alsír og Máritaníu. Túnisar hafa verið á báðum áttum og gruna Moammar Gaddafí, hæstráðanda í Líbýu um græsku og ekki að ósekju. Á hinn bóginn hafa sam- skiptin farið batnandi og nýlega voru flugsamgöngur milli þeirra teknar upp eftir æðilangt hlé. Túnisar voru tregir til að stíga skrefið til fulls að friðmælast við Líbýu og taka alvarlega til athug- unar einhvers konar ríkjasamband Alsír, Líbýu og Túnis. Meðal ann- ars af ótta við að Marokkó einangraðist, vegna erfiðra sam- skipta Alsír og Marokkó einkum sakir stuðnings við Polisario- skæruliðana. Samt er ekki vafí á því að meiri samvinna grannþjóð- anna í Norður Afríku gæti reynzt heilladijúg og Túnisar nytu þá ef til vill góðs af olíuauðæfum Líbýu. Skyldleiki þjóðanna hvað sem ágreiningi líður er meiri en milli flestra annarra þjóða í Araba- heiminum. Því er samvinna milli þeirra rökrétt og félagslega mikil- væg. Vonandi mun það þegar tími líður og línur skýrast, verða þessu landi og ljúfum þegnum þess til fram- dráttar. Það er ekkert sem bendir til annars nú. do !gB||ÍE- hu Pnt* Sotóentronsen öansune noureH Ben Ali og Habib Bourguiba. Myndin var tekin fyrir um það bil mánuði, þegar Ben Ali var skipaður forsætisráðherra. „Tími Bourguiba er liðinn. Við erum öll sátt við að hann fan frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.