Morgunblaðið - 17.04.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 17. APRÍL 1988
LEIKKONAN
„Ég ákvað mjög snemma
ævinnar að verða fræg,“
segir söngkonan Cher
sem undanfarin ár hefur
getið sér gott orð sem
leikkona. Nu er svo komið
að hún, sem einu sinni var
forsmáð fyrir frumlega
framkomu og enn
frumlegri klæðaburð, er
orðin ein eftirsóttasta
kvikmyndaleikkona
vestur í Bandaríkjunum,
jafnvel dáð. „En gallinn
var bara sá að ég vissi
ekki, hvernig ég átti að
geta mér frægðar,“
heldur hún áfram. Og hún
varð fræg — og nú er hún
búin að vera svo lengi í
sviðsljósinu, að nýja
kynslóðin, jafnaldrar
barna hennar, segja i
fullri alvöru: „Cher? Ertu
að tala um leikkonuna
Cher? Kann hún að
syngjá
Konan sem er aldrei eins
„Ég veit óttalega lítið um karl-
menn. Því eldri sem ég verð því
betur geri ég mér grein fyrir því
hvað ég veit í raun og veru lítið
um karlmenn."
Því verður vart á móti mælt að
Cher hefur tekist ætlunarverk sitt.
Hún er að sönnu fræg, en mörg
undanfarin ár hefur hún aðallega
verið meira fræg af endemum og
það var ekki fyrr en á allra síðustu
árum að hún fór að njóta virðing-
ar. Fékk meira að segja verðlaun
fyrir kvikmyndaleik og náði hátind-
inum 11. aprfl síðastliðinn þegar
hún fékk Óskarinn fyrir aðalhlut-
verk í kvikmyndinni „Moonstruck"
sem þýðir „ástsjúk" en Bíóborgin
kallar „Fullt tungl". Leikkonan
sagði af því tilefni, að þessi verð-
launaveiting þýddi ekki að hún
væri eitthvað sérstök, en benti þó
til þess að henni hefði miðað á leið.
Margir halda því fram að Cher
sé kleyfhugi. Kannski bara vegna
þess að hún hefur alltaf gert það
sem hana langar til að gera, hún
hefur aldrei látið aðra ráða ferð.
Enn aðrir hreinlega hata hana eða
er mikið í nöp við hana. Ef til vili
vegna þess hversu áberandi hún er
búin að vera í þjóðlífinu síðustu
tuttugu árin. En svo mikið er víst,
að hún er aldrei eins á ytra borð-
Cher komin á fimmtugsaldurinn. T.v. Sonny og Cher við sjónvarpsupptöku árið 1966.
.Leikarar mega ekki halda
að Óskarsverðlaunin séu
æðsta takmark lífsins*
Svo segir leikkonan Cher sem fékk Óskarinn um síðustu helgi fyrir leik sinn í „Moonstruck“
• inu, en undir niðri er alltaf sama
viðkvæma, auðsæranlega stúlkusál-
in, þótt hún sýni það ekki. Gamall
vinur hennar sagði eitt sinn að
Cher klæddi sig sérkennilega til að
fela persónuleikann, til að fólk fengi
síður á tilfinninguna að hún væri
óörugg, hún vildi að fólkið teldi sig
veraldarvanari en hún er í raun og
veru.
„Æska mín var ruglingsleg. Einn
daginn var ég hamingjusöm, en
sorgmædd þann næsta. Eg býst við
að þess konar sálarlíf magni upp
sál listamannsins. Það er að
minnsta kosti dæmigert fyrir alvöru
listamenn að stefna að einhveiju æ
hærra í lífínu. Móðir mín var fá-
tæk. Hun var aldrei hamingjusöm,
alltaf að kynnast karlmönnum til
þess eins að skilja við þá. Ég annað-
ist yngri systur mínar. Það var
mjög skemmtilegt. En ég áttaði
mig ekki á því að við værum fátæk-
ar fyrr en mörgum árum síðar,
þegar ég fór að rifja upp æsku
mína í ró og næði."
Hún var ekki há í loftinu Þegar
hún ætlaði sér að gerast leikkona.
Það var stóri draumurinn í lífí henn-
ar. Hún sá alltaf fyrir sér gömlu
goðin, vissa leikara og leikkonur
sem hún dáði, og dáir enn. En það
voru mörg ljón í veginum.
Hun hafði kynnst manni að nafni
Sonny sem var tíu árum eldri en
hún. Cher, sem heitir fullu nafni
Cherilyn Sarkisian, var ekki nema
sextán ára þegar hún kynnti Sonny
fyrir móður sinni, sem spurði í sak-
leysi sínu: „Hvaða maður er þetta?“
(Sonny var í leðurbuxum og klippti
hárið eins og Prins Valíant.) Og
Cher svaraði því til að þetta væri
maðurinn sem hún ætlaði að giftast.
Cher var svo ástfangin af Sonny,
að hún hætti strax í skóla og fór
að hanga fyrir utan aðalhljómverið
í bænum, en þar vann Sonny ýmist
sem sendill eða söngvari. Dag einn
kom söngvari ekki á tilsettum tíma
og upptökustjórinn bað þá Cher að
hlaupa f skarðið. Cher sagðist ekki
kunna að syngja, en upptökustjór-
inn sagði að það gerði ekki til, hann
þyrfti bara að taka upp smávegis
hávaða. En hann fékk ekki hávað-
ann sem hann bað um, heldur fal-
lega söngrödd. Þannig varð til
söngdúettinn „Sonny and Cher“.