Morgunblaðið - 09.11.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
ERLENT
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 19
Morgunblaðið/Kristinn
Á TÓLFTA aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem lauk
í gær spunnust m.a. miklar umræður um veiðileyfagjald og fram-
sal aflaheimilda.
Ályktun frá aðalfundi LS
Efla þarf flotann
en ekki úrelda
LANDSSAMBAND smábátaeigenda
ályktaði við lok 12. aðalfundar síns
í gær að frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um veiðar krókabáta, sem varð
að lögum í júní sl., feli í sér mikilvæg-
ar leiðréttingar hvað varðar veiðifyr-
irkomulag krókaveiðiflotans og var
framganga ráðherra lofuð. Á hinn
bóginn stæðu enn eftir óleyst vanda-
mál, sem furðu mætti gegna að ráða-
menn skyldu ekki nota tækifærið til
að leysa. Til margra ára hafí verið
ítrekaðar áskoranir til stjórnvalda
að styrkja rekstur smábáta á afla-
marki. Tilkoma Jöfnunarsjóðs í
þorski hefði verið spor í þá átt, ásamt
því að iínutvöföldun hafí verið ein
af Hfæðum þessara báta.
„Á Alþingi í vor kepptust þing-
menn um að lýsa því yfir að nú
væri timi til kominn að rétta hlut
smábáta á aflamarki ásamt hinum
hefðbundna vertíðarbátaflota. Þrátt
fyrir þetta hefur enn sigið á ógæfu-
hliðina. Línutvöföldun hefur verið
afnumin og steinbítur settur í kvóta.
Það verður stór stund þegar orð og
athafnir stjórnvalda falla saman í
þessum efnum. Fundurinn ítrekar
fyrri áskoranir er lúta að stöðu smá-
báta á aflamarki og skorar á stjórn-
völd að setja línutvöföldun á hið sna-
rasta þar sem miðað er við báta
minni en 50 brl. og/eða þorskheimild-
ir Jöfnunarsjóðs auknar verulega og
festar í sessi.“
Raunhæfur sóknardagafjöldi
Ennfremur segir í ályktuninni:
„Stjómvöld eru minnt á þær alþjóð-
legu viljayfiriýsingar, sem þau hafa
skrifað undir þess eðlis að þjóðum
heims beri að virða og styrkja rétt
smábátaveiða og strandbyggða. Þá
hefur ríkisstjórnin að auki gert
rammasamning um loftslagsbreyt-
ingar, sem segir að stuðla beri að
minni orkunotkun við fiskveiðar. Það
er með ólíkindum að á sama tíma
skulu á þriðja hundrað smábátar
vera úreltir sem nota í samanburði
við stærri skip nánast enga olíu við
sjálfar veiðarnar og margfalt minni
olíu til að koma sér á og af miðum.
Svo ísland geti áfram talist í forystu-
sveit fiskveiðiþjóða, sem veiða æ
hærra hlutfall botnfisks með vist-
vænum veiðarfærum, ber stjórnvöld-
um að efla þennan flota en ekki úr-
elda.
Þá stendur og óleyst það mál að
sóknardögum krókabáta getur fækk-
að svo óheyrilega að útilokað verður
að gera þá út. Megin ástæða svipt-
inganna kringum fiskveiðilögin sl.
vor var sú að í slíka fækkun sókn-
ardaga stefndi á nýbyijuðu fiskveiði-
ári. Þetta vandamál hefur aðeins
verið flutt til í tíma um eitt ár, þó
ýmsar aðrar kringumstæður innan
veiðikerfisins hafí breyst til batnað-
ar. Friður um þetta stýrikerfí skap-
ast ekki fyrr en þessum bátum hefur
verið tryggður sóknardagafjöldi sem
gerir útgerð þeirra raunhæfa.
Grundvallarkrafa LS frá stofnun
hefur verið að krókaveiðar verði gefn-
ar frjálsar. Frá þessari kröfu verður
hvergi fallið og þó að hún náist ekki
fram enn um sinn mun umræða á
alþjóðavettvangi gera að verkum að
vistvænleiki veiðarfæra mun vega æ
þyngra gagnvart fískveiðistjómun
þjóðanna. Undan þeirri umræðu getur
íslenska þjóðin ekki vikist," segir í
ályktun smábátaeigenda.
Nýkomin sending
g\ affrönsku
%.k/' lömpunum
ii -'XBT frá le Dauphin
" ' ■— \ Pardu : stytta á mynd:
Teg. Léode. (M • . I' \ '' Hæð8lcm' 11.500.
Isoö,, . HÚSGAGNAVERSLUN Slðumúla 20,sími 568 8799.
Dalsbraut li, sími 461 1115.
Deilur í Bandaríkjunum um kosningaframlög
Demókratar skíla
Gandhi-gj öfinni
BANDARÍSKI Demókrataflokkurinn
hefur skilað rúmlega 21 milljón króna,
sem maður nokkur, að eigin sögn fjar-
skyldur ættingi indversku frelsishetj-
unnar Mahatmas Gandhis, gaf honum
sl. vor. Skýrði Reuters-fréttastofan
frá þessu í gær og hafði eftir tals-
manni flokksins, að fénu hefði verið
skilað vegna þess, að ekki væri alveg
ljóst hvaðan það væri komið.
Amy Weiss Tobe, talsmaður Demó-
krataflokksins, sagði, að gefandan-
um, Yogesh Gandhi, sem býr í Orinda
í Kaliforníu, hefði verið skilað fénu
en það var eitt mesta og umdeildasta
framlagið til kosningabaráttu flokks-
ins að þessu sinni. Kosningaframlög
útlendinga voru nokkurt hitamál í
kosningunum þegar í ljós kom, að
fólk með tengsl við stórfyrirtæki í
Indónesíu, Tævan og Suður-Kóreu
hafði gefíð til kosningabaráttunnar
og aðallega til demókrata.
Gandhi-gjöfin varð strax umdeild
og Tobe sagði, að haft hefði verið
samband við Gandhi, sem stýrir Gand-
hi-stofnuninni í Orinda, og hann beð-
inn að gera grein fyrir peningunum.
„Við höfðum samband við hann
og spurðum hvort féð væri frá honum
komið og minntum á þá yfirlýsingu
hans fyrir rétti, að hann væri eigna-
laus. Hann kvaðst geta sýnt fram
á, að hann hefði átt peningana en
lét síðan ekki meira frá sér heyra,“
sagði Tobe en peningamir voru gefn-
ir á söfnunarfundi í maí sl. og var
Bill Clinton forseti þá viðstaddur.
Bandarísku stjórnmálaflokkarnir
mega ekki þiggja gjafir frá erlendum
VIÐ afhendingu „Gandhi-
friðarverðlaunanna". Á milli
þeirra dr. Fukunaga og Clint-
ons sést í Yogesh Gandhi.
fyrirtækjum eða ríkisborgumm en
það tekur ekki til þeirra, sem hafa
löglega búsetu í Bandaríkjunum, eins
og _er með Gandhi.
Á fjársöfnunarfundinum í vor var
Gandhi með styttu eða bijóstmynd
af Mahatma Gandhi, „Gandhi-friðar-
verðlaunin", og fór fram á að fá að
gefa hana Clinton. Var það heimilað
og Tobe segir, að Ronald Reagan,
fyrrverandi forseti, og Móðir Teresa
hafí einnig tekið við þessum styttum.
Dr. Fukunaga
Þótt Yogesh Gandhi hafi ekki getað
gert nægilega grein fyrir peningunum,
sem hann gaf demókrötum, þá hefur
hann áður látið hafa eftir sér, að þeir
væm hagnaður af mjög ábatasömum
viðskiptum. Ymsa granar þó, að hinn
raunvemlegi gefandi sé dr. Hogen
Fukunaga, japanskur milljónamæring-
ur, rúmlega fímmtugur að aldri.
Fukunaga er leiðtogi sértrúarsafn-
aðar með höfuðstöðvar rétt við Fuji-
fjall og þar er boðaður hinn aust-
ræni Tensei-átrúnaður. Heldur
Fukunaga því fram, að hann sé
gæddur yfirnáttúrulegum hæfileik-
um og geti læknað sjúka, þar á
meðal krabbameinssjúklinga. Talið
er, að áhangendur hans í Japan séu
um 110.000 en mörg hundmð þeirra
hafa höfðað mál á hendur honum
fyrir fjársvik.
Þegar hitna tók undir Fukunaga
í Japan leitaði hann út fyrir land-
steinana, meðal annars til Bandaríkj-
anna, í því skyni að auka veg sinn
og hróður. Þá mun fundum þeirra
Yogesh Gandhi hafa borið saman og
þegar Clinton tók við „Gandhi-friðar-
verðlaununum" var það Fukunaga,
sem afhenti þau.
Þess má geta, að Ástþór Magnús-
son, formaður Friðar 2000, fékk
„Gandhi-mannúðarverðlaunin“ frá
stofnun Yogesh Gandhis í maí í vor
og vom þau afhent í Hvíta húsinu
að því er sagði í fréttatilkynningu
frá Friði 2000.
í kosningabaráttunni sakaði Bob
Dole, forsetaefni repúblikana, Demó-
krataflokkinn um að selja aðgang
að Clinton og einkum fyrir milli-
göngu John Huangs, sem sá um að
afla honum fjár meðal fólks af asísk-
um upprana. Vilja repúblikanar á
þingi rannsaka umsvif þessa manns
sérstaklega en demókratar svara því
til, að ekki sé minni ástæða til að
rannsaka ýmis framlög til Repúblik-
anaflokksins.
METFÉ fékkst fyrir „gula
þriggja skildinga frímerkið" á
uppboði í Ziirich í gær eða tæp-
ar 150 milijónir kr. Hér er því
um að ræða dýrasta, einstaka
frímerki í heimi en það var selt
ókunnum safnara.
Frímerkið var gefið út í Sví-
þjóð 1857 og er svo óvenjulegt,
að það var einu sinni talið fals-
að. Svo er þó ekki en sérfræð-
ingar segja, að augljóslega hafi
eitthvað farið úr skorðum við
prentun frímerkisins á sínum
tíma. Það hafi átt að vera
grænt eins og þriggja skildinga
frímerki, sem gefin voru út á
sama tíma, en orðið þess í stað
gult eða gulrautt. Frímerkið
hefur verið í eigu margra safn-
ara í gegnum tíðina eða síðan
sænskur skólastrákur, Georg
Backman, fann það í handrað-
anum hjá ömmu sinni árið 1885.
Backman sagði seinna frá því,
að hann hefði farið með frí-
Heimsins
dýrasta
frímerki
Reuter
merkið til frímerlgasala í
Stokkhólmi og beðið hann að
kaupa það. Heyrði hann þá, að
frímerkjasalinn muldraði fyrir
munni sér hvað eftir annað, „en
það er gult“. Spurði þá Back-
man hvort hann vildi kaupa
frímerkið fyrir sjö krónur og
frímerkjasalinn var til í það.
Skömmu síðar frétti Backman
að frímerkjasalanum hefðu
verið boðnar 300 kr. fyrir frí-
merkið en hann neitað að selja.
„Það mun einhvern tíma fást
gott verð fyrir það,“ var haft
eftir honum.
• Sá, sem átti frímerkið nú síð-
ast er Svíinn Sven-Olof Karls-
son en hann ákvað að sejja það
fremur en að halda áfram að
borga af kaupverðinu, sem var
tæpar 100 millj. kr. fyrir sex
árum. Þá var það líka dýrasta
frímerki í heimi og dýrara en
hið fræga Bláa Máritíus-frí-
merki.
Kringlan stæhhar
WM eftir 5 daga
ItlEIRI flFÞREVinG