Alþýðublaðið - 28.02.1960, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 28.02.1960, Blaðsíða 4
í SÖGU verkalýðshrevfing- arinnar og hinnar alþjóðlegu jafnaðarstefnu er oft talað um kynslóðina frá 1920 til 1930. Þá er átt við þá, sem á þessum árum voru að taka til starfa í þessum tveimur voldugu hreyfingum. Flestir þessara manna fæddust skömmu eftir aldamótin, fengu æskuþroska sinn á heim ilum þar sem hugsjónir verka lýðshreyfingarinnar og jafn- aðarstefnunnar mótuðu flest og margir þeirra voru synir foreldra, sem sjálf höfðu lagt fram alla krafta sína við bygg ingu þeirrar undirstöðu, sem verkalýðurinn byggði síðan á. Kynslóðin frá 1920 vann í íaun og véru ekki að því að leggja grunninn, eða ryðja brautina sjálfa, en hún hófst handa með að byggja á grunn inum eða leggja greiðfæran veg þar sem torfærum hafði verlð rutt úr leið. Allir höfðu þessir ungu menn fengið þroska sinn á samtökum al- ■þýðúnnar, auk þess, sem þeir höfðu drukkið í sig með móð- urmjólkinni hugsjónir foreldr anna. — Ég vil aðeins minn- ast í þessu sambandi ummæla, sem Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokksins, sagði við mig í v-ðtali á fimmtugsaf- mæli sínu. Hann sagði eitt- hvað á þá leið, að eitt fyrsta, sem hann heyrði um verka- lýðssamtök voru umræður um leynifúndi á heimili foreldra hans, en þeir voru haldnir til þess að undirbúa stofnun verkamannafélagsins í Hafn- arfirð', Þannig fengu nær all- ir leiðtogar alþýðuhreyfing- arinnar, sem tóku við for- ystu eftir 1930 fyrsta þroska sinn og fyrstu kynni af frelsisbaráttu alþýðunnar nm og upp úr aldamótum. Þessi staðreynd takmarkast ekki af landamærum. Allir þessir leiðtogar tóku við arfi, þeir nutu hahs og njóta enn. Starf fyrstu for- vígismannanna og þe'rra hef- ur aldrei slitnað. Línan hefur haldizt heil frá því löngu fyr- ir aldamót, starfið verið eitt svo að segja gengið frá föður til sonar. Hans Christian Svane Han- sen, eða H. C. Hansen, hinn látni forsætisráðherra Dana, var einn þeirra, sem hæst hef ur borið í hóp: kynslóðarinn- ar frá 1920. Hann fæddist í Árósum 8. nóvember árið 1906, sonur fátæks skósmiðs, og voru börnin mörg. Faðir hans tók öflugan þátt í verka- lýðssamtökunum í Árósum, en þar í borg urðu þau fyrst öflug í Danmörku, enda áttu þau á að skipa mörgum frá- hærum forystumönnum. Má í því sambandi benda á, að það- •an hafa oftast komið helztu og beztu forystumenn danskra jafnaðarmanna og er jafnvel svo enn. H. C. Hansen átti ekki kost roikillar skólagöngu. Hann lauk aðeins barnaskólaprófi. Hann fór, þegar hann hafði aldur til, að læra prentverk, og lauk því námi tvítugur. Þá þegar var hann orðhn kunn- breiðum grundvelli, vinnu- hsstur hinn mesti, glaður í goðum hóp — og svo nær- gætin gagnvart umhverfi sínu að það var bókstaflega eins og hann sæi í einu vetfangi í inni þess Sem á fund hans gekk. — H. C.: Hlédrægur nokkuð við fyrstu kynni, en allur í handtakinu að lítilli stundu liðinni. Raunsær með afbrigðum og réðist gegn hverju viðfangsefni af kaldri og rólegri skynsemi. — Og þó skáld gott, söngvari og gít- arleikari, sem gat glejmt sér í söngnum og leiknum. Hann var óvenjulegur þersónuleiki að því leyti, að þó að hann virtist rólegur og eins og á verði á yfirborðinu, ólguðu undir niðri ríkar tilfinningar og dillandi humör, sem gat orðið dálítið iróniskur — og þá oft gagnvart sjálfum sér. Kom það oft fram í ræðum yfir lauk: Þegar Hedtoft var kosinn formaður var H. C. kos inn ritari. Þegar Hedtoft varð, fvrir atbeina' Staunings, arf- taki hans. formaður flokksins, varð H. C. ritari hans. Þegar Hedtoft lézt datt engum ann- að í hug en að H. C. tæki við störfum hans sem formaður flokksins og forsætisráðherra. Ég átti því láni að fagna, að kynnast báðum þessum leið- togum náið Ég kynntist þeim fyrst á alþjóðamóti ungra jafnaðarmanna, sem haldið var í Vínarborg árið 1929. Þá var H. C. aðeins 23 ára gam- -all. Ég fór, ásamt þeim félög- um, á nokkra fundi í æsku- lýðsfélögum ungra jafnaðar- manna, áður en haldið var til Vínarborgar og síðan vorum við H. C. m'kið saman á leið- inni þangað. Hann stóð oft einn við glugga á gangi lest- arinnar eða sat í horni og Úfför hans fer fram í dag starði fram fyrir sig hugsi. Annað hvort hafði hann gítar inn við öxl eða á hnjám sér. Allt í einu gat hann gripið gítarinn óg hafið söng og þá flykktust unglingarnir að hon um úr öðrum klefum. Hann var fánaberi þegar við geng- um frá brautarstöðinni í Ber- lín að Jugendhaus þar sem við áttum að gista eina nótt í stórum sal — og svefnstað- ur hans var skammt frá mér. Hann flutti stutta ræðu og snögga seint um kvöldið og hóf svo upp leik og söng. Hann virtist þannig grípa forustuna án þess að um það væri talað fyrirfram —• og öll- um virtist það þósSjálfsagt. — Upp frá þessu vorum við góð- ir kunningjar og, skiptumst á bréfum og kveðjum — og er ég kom til Kaupmannahafnar heimsótti ég hann alltaf — og átti þá gjarnan viðtöl við hann. Hann hafði þó þann sið, eins og Stauning hafði haft, að hann spurði mig hvað ég vildi helzt vita — og skrifaði síðan sjálfur viðtalið og sendi mér þangað sem ég dvaldi. Hann var annálaður starfs- maður. Ég get ekki verið að telj a hér upp öll hin mörgu emib- ætti, sem H. C. Hansen gegndi eða áitöl í því sam- bandi, en hann tók að sér öll æðstu embætti alþjóðasam- taka jafnaðarmanna: Hamt var um skeið forseti Alþjóða- sambands ungra jafnaðar- manna, og síðar Alþjóðasam- bands jafnaðarmanna. Hann varð forseti Sambands ungra jafnaðarmanna í Danmörku, síðar útbreiðslustjóri flokks- ins, ritarj hans og loks for- maður, gegndi síðar mörgum ráðherrastörfum og tók við forsætisráðherraembættinu að Hedtoft látnum. En jafn- framt þessu stundaði hann ritstörf: Hann skrifaði þrjá ,,talkóra“ í ljóðum: Ny slægt, Ny styrke, og Talekor. Hann gaf út eina ljóðabók: Tro og trods, og eina ferðabók: Blandt nye naboer — um fýrsta farþegaflugið yfir Norðurpólinn, en hann tók þátt í því og flutti ræðu er farið var yfir heimsskautið, og útvarpað var um allan heim. H. C. Hansen kom fjórum sinnum hingað til lands, í fyrsta sinn með S'tauning, á- samt Hedtoft, 1939. Hann unni íslandi og vildi veg þess sem mestan. Mér var kunnugt um það, að þeir báðir vildu ganga sem lengst^í handrita- málinu og sk la íslendingum öllu því sem þeir óskuðu eftir. Þegar ég lít yfir liðin ár og minnist þeirra mörgu ágætu félaga, sem hæst bar í Vín- arborg á alþjóðamóti ungra Framhald á 14. síðu. ur forystumaður í félagsskap ungra jafnaðarmanna og eins í iðnnemafélagi prentara. Um sama leyti var að alast upp í Árósum annar piltur, Hans Hansen, síðar Hans Hedtoft, hann lærði prentmyndagerð og gerðist öflugur þátttak- andi í félagsskap ungra jafn- aðarmanna og iðnnemafélagi stéttar sinnar. Þeir H. C. Han sen og Hedtoft, en hann var nokkrum árum eldri en H. C., urðu brátt óaðskiljanlegir vin ir. Þegar rætt er um annan er h'ns minnst, svo nánir vin- ir urðu þeir og samstarfs- menn, svo samtvinnuð urðu og örlög þeirra. Það, sem sam einaði þessa tvo ungu menn, var uppeldið á heimilunum, þar sem alltaf var rætt um jafnaðarstefnuna, starfið í hreyfingunni — og hugsjón- in. Þeir tileinkuðu sér þegar í upphafi h'nn socialdemo- kratiska kúltúr: víðfeðma al- þjóðahyggju, sem byggðist á órofa frelsisþrá til handa öll- um kúguðum, mannúð og mannhelgi — og síðast en ekki sízt: umburðarlyndi og ríkan skilning á aðstöðu og afstöðu annarra, sem kunnu að vera á annarri skoðun en þeir sjálfir. — Að öðru leyti voru þeir félagarnir ólíkir. Hedtoft var víðfeðmur, eins 'og hann, jafnvel við fyrstu kynni, tæki alla í faðm sér, alþýðlegur ræðumaður á hans og ritverkum eins og ljósast má sjá í bók hans Blandt nye naboer. Ég hef leyft mér að segja skoðun mína á báðum þessum leiðtogum um leið og ég minn ist H. C. Hansens látins og ástæðan er sú, að þeir eru ó- aðskiljanlegir í huga mínum. Þannig voru þeir og meðal danskra félaga. Um þá hafa aldrei staðið neinar déilúr innan flokksins. Línan varð óslitin frá æsku þeirra þar til MIKILHÆFUR stjórnmála- maður, socialisti, skáld og listamaður, góður vinur, er látinn, forsætisráðherra Dana, H. C. Hansen. Þessi látlausi, gáfaði maður skipaði sér á unga aldri undir merki soci- alismans og verkalýðshreyf- ingarinnar og var í farar- broddi ungdómshreyfingar þeirra samtaka við hlið hins góða og gegna samherja Hans Hedtofts. Er fátítt að svo góð samvinna og eindrægni eigi ser stað meðal manna sem eru á jafn líkum aldri og jafnan í sama flokki, svo vel sem þeir voru báðir til forustu fallnir, en yfirskyggðu þó aldrei hvorn annan heldur unnu saman vel. Samheldnin og vináttan, forustan í mál- efnúm lýðræðisj afnaðar- manna entist þeim meðan ævi naut og báðir fé'llu þeir mitt í dáðríku ævistarfi fyrir land sitt og þjóð. H. C. Hansen var einlægur íslandsvinur, boðberi eindreg innar samvinnu Norðuriand- anna allra í raun og sannleika. Hann kom oft h.ngað til þess að læra og þekkja þjóðina, hann var einn þeirra sem allt af var að stúdera, menn og málefni, glöggt var hans gests auga. Ég þakka hinum látna vin, ánægjulegar samverustundir. Þakka honum skilninginn á hogum lands míns og þjóðar, við hvert tækifæri það ég vissi til. Þökk sé honum fyrir víðsýn- inga og hjartsýnina, um aukna samvinnu Norðurland anna í raun og veru, trú hans og baráttu fyrir sigri mannúð arinnar og betra lífs í heimi hér. Frú Gerd konu hans og dætrum, sonum hans og sam- herjum samhryggist ég inni- lega. Jón Axel Pétursson. 4 28. febr. 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.