Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ GEORGÍUMENN hafamátt þola erfið ár frá þvíað landið hlaut sjálfstæðiárið 1991. Georgía ramb- aði um tíma á barmi borgarastyrj- aldar, efnahagur landsins hrundi, meirihluti landsmanna missti vinn- una og er enn án vinnu, spilling í landinu er gífurleg og fjölmörg mis- tök hafa verið gerð við stjórn lands- ins. Með kjöri nýs forseta, Mikhail Saakashvili, hafa vaknað með þjóð- inni nýjar vonir um að takast megi að þoka málum til betri vegar. Þegar horft er á öll þau miklu vandamál sem Georgíumenn eiga við að stríða hlýtur bjartsýni lands- manna um betri hag með kjöri nýs forseta að virka sem dálítið barnaleg. Alexander Rondeli var um tíma ráðgjafi Eduards Shevardnadze, fyrrverandi forseta Georgíu, en hann veitir nú forstöðu sjálfstæðri stofnun sem hefur m.a. það hlutverk að stuðla að lýðræði í landinu. Rondeli segir að Georgía hafi gegnt sérstöku hlutverki á tímum Sovétríkjanna. „Georgía var á sínum tíma eins konar sýningarsvæði Sov- étríkjanna. Hér bjó fólk af mörgu þjóðerni og ráðamenn Sovétríkjanna töldu sig hafa skapað fyrirmyndar- þjóðfélag í Georgíu, hvort sem litið væri til iðnvæðingar eða menningar. Afkoma fólks var allgóð því að við seldum framleiðslu okkar á föstu verði án samkeppni frá öðrum fram- leiðendum. Við fengum ódýra orku frá Rússlandi og hráefni fengum við einnig ódýrt frá Rússlandi og öðrum lýðveldum Sovétríkjanna. En þrátt fyrir að hin efnahagslega staða Georgíu hafi verið góð var alltaf fyrir hendi sterk þjóðerniskennd í landinu og vilji til sjálfstæðis. Við hrun Sov- étríkjanna varð Georgía skyndilega sjálfstætt ríki án þess að hafa á nokk- urn hátt verið undirbúin undir það. Við reyndum að byggja upp lýðræð- islegt ríki með sjálfstæða utanríkis- stefnu. Við stóðum hins vegar frammi fyrir gríðarlegum vanda- málum og rússnesk stjórnvöld gerðu ekkert nema að ýta undir þessi vandamál.“ Georgía mikilvægt í augum Rússa Georgía er afar mikilvægt ríki í augum Rússa. Þeir beita landið alls kyns þrýstingi sem miðar að því að auka áhrif þeirra í landinu. Margir stjórnmála- menn í Rússlandi telja einnig að Georgíumenn séu þeim andsnúnir. „Rússland lítur á Georgíu sem afar mik- ilvægt ríki vegna stað- setningar landsins,“ segir Rondeli. „Georgía er eins konar hlið að Kákasus. Rússland lít- ur á sig sem stórveldi og hefur metnað til að viðhalda fyrri stöðu sinni. Rússnesk stjórn- völd gera sér grein fyrir því að ef þau stjórna Georgíu koma þau jafnframt til með að stjórna öllum Kákasushér- uðunum. Áhrif Rússa í Mið-Asíu verða einnig meiri ef þeir stjórna Georgíu. Með því að stjórna Georgíu geta Rússar líka staðið betur gegn áhrifum Tyrkja á fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna. Rússar átta sig líka á því að til að geta haft fulla stjórn á ol- íu- og gasvinnslu í Aserbaídsjan verða þeir að tryggja áhrif sín í Georgíu. Eina leið Aserbaídsjan til Vesturlanda er í gegnum Georgíu. Eini bandamaður Rússa á svæðinu, Armenía, er einangraður ef Rússar eru áhrifalausir í Georgíu. Það má því segja að það séu fjöl- margar ástæður fyrir því að Rússar vilja stjórna Georgíu. Georgíumenn vilja hins vegar vera sjálfstæðir og eru að reyna að byggja upp sjálfstætt og lýðræðislegt ríki. Við getum að- eins lifað sem sjálfstætt ríki ef okkur auðnast að byggja upp nútímalegt ríki sem byggir á lýðræðislegri stjórnun. Ef það tekst ekki verður landinu stjórnað af einstökum þjóða- brotum sem aftur þýðir að smærri þjóðabrot, sem ekki fá aðgang að landstjórninni, munu ekki vilja vera áfram innan Georgíu. Við munum ekki viðhalda sjálf- stæði okkar með því að leita í faðm Rússlands. Aðeins með nánum tengslum við Vesturlönd og stuðn- ingi þaðan mun okkur takast að byggja upp sjálfstætt ríki.“ Rússar stjórna í dag tveimur svæðum í Georgíu, Abkhazíu og Suð- ur-Ossetíu. Þeir eru með herlið í þessum héruðum og styðja aðskilnaðar- hreyfingar sem þar starfa. Rússar eru enn- fremur með herstöðvar á tveimur öðrum svæð- um í Georgíu. Rondeli telur að þessi hernaðar- legu áhrif Rússa séu meira en nóg. „Allt gas sem við kaupum kemur frá Rússlandi, en Rússar eiga til að loka fyrir gasið sem kemur sér auðvitað afar illa. Þetta gera þeir til að sýna okkur hver ræður. Það dynur líka á okkur stöðugur áróður um að Georgíumenn séu Rússum andsnúnir. Því er haldið fram að Georgía sé eina ríkið í heim- inum sem byggi utanríkisstefnu sína á andrússneskum viðhorfum. Þrátt fyrir allt ganga samskipti þjóðanna furðu vel fyrir sig. Sam- starf þjóðanna hefur verið náið í um 200 ár. Georgíumenn dást að og virða rússneska menningu. Margir Rússar hafa líka samúð með Georgíu. Við Georgíumenn gerum okkur einnig vel grein fyrir að Rússar eru mik- ilvægasti nágranni okkar. Við erum háðir Rússum í öryggismálum, orku- málum og efnahagsmálum. Við reyn- um því að taka tillit til Rússa, en kröf- ur þeirra í okkar garð eru oft á tíðum meiri við getum mætt.“ Mistök í tíð Shevardnadze Vandamálin sem hafa mætt Georgíu frá því að landið öðlaðist sjálfstæði eru bæði stór og mörg. Rondeli bendir á að landið hafi ekki byggt á neinni lýðræðishefð. Efna- hagslífið hafi hrunið og á sama tíma hafi landið verið undir stöðugum þrýstingi frá Rússlandi. „Við slíkar aðstæður er allt annað en auðvelt að byggja upp lýðræðislegt ríki.“ Shevardnadze kom til Georgíu frá Moskvu árið 1992. Hann var ekki sérlega velkominn því margir litu á hann sem rússneskan lepp. En marg- ir litu líka svo á að hann væri eini stjórnmálamaðurinn sem gæti bjarg- að Georgíu frá tortímingu. „Á þess- um tíma var borgarastyrjöld í land- inu. Barist var í Suður-Ossetíu og staðan í Abkhazíu var allt annað en traust. Shevardnaze reyndi að koma á friði, en það braust út stríð í Abkha- zíu og Georgía missti öll völd í hér- aðinu. Shevardnaze náði árangri á viss- um sviðum og honum má m.a. þakka að fjölmiðlun í landinu er frjáls. Stefna hans byggðist á því að færa landið í átt til Evrópu. En hann var sonur fortíðarinnar ef svo má að orði komast. Stjórnkerfið sem hann byggði upp var að sovéskri fyrir- mynd enda þekkti hann það nokkuð vel,“ segir Rondeli. Fólk missti vonina Frá 1996–97 var hagvöxtur mikill eða um 11% á ári, en það verður að hafa í huga að landsmenn byrjuðu nánast á núlli eftir hrun Sovétríkj- anna. Árið 1998 varð stöðnun, en á síðustu árum hefur árlegur hagvöxt- ur verið um 5%. „Vandamálið er hins vegar að þjóðin nýtur ekki þessa efnahagslega ávinnings nema að litlu leyti vegna spillingar innan landsins. Það er mik- ill og stöðugur halli á fjárlögum. Eft- irlaun eru afar lág og stundum ekki greidd mánuðum saman. Stjórn Shevardnadze var bæði óskilvirk og spillt. Segja má að fólk hafi að lokum algerlega misst vonina. Þegar svo var komið var að sjálf- sögðu búið að skapa mjög gott svig- rúm fyrir stjórnarandstöðuna, sem náði á skömmum tíma miklu fylgi. Ef ekki hefði grafið um sig vonleysi og óánægja með stjórn Shevardnadze hefði Saakashvili aldrei náð völdum. Kornið sem fyllti mælinn voru þing- kosningar þar sem stórkostlegt kosningasvindl var viðhaft. Vissulega notfærðu Saakashvili og stuðnings- menn hans sér ástandið, en engu að síður var þetta bylting fólksins vegna þess að Shevardnadze hafði gjörsam- lega glatað trausti þess.“ Spilling þrífst í skjóli ríkisvalds Rondeli segir að stærsta vandamál Georgíu sé léleg stjórnun. Vegna lé- legrar stjórnunar sé viðvarandi halli á fjárlögum, opinberir starfsmenn fái ekki greidd laun á réttum tímum, eft- irlaun séu ekki greidd á réttum tíma, spilling sé viðvarandi og stjórnar- stofnanir séu veikar. „Ríkisvaldið í Georgíu er veikt og við slíkar aðstæður þrífst spilling best. Veikt ríkisvald veldur því líka að landið á erfiðara með að standast þrýsting frá Rússlandi. Eitt af stærstu vandamálunum er léleg skattheimta. Endurbætur á þessu sviði þýða að stjórnvöld þurfa að fara gegn hagsmunum mjög öfl- ugra aðila. Þetta eru öfl sem eru í tengslum við glæpahópa. Þegar þú ert að berjast gegn mafíustarfsemi þarftu að fara varlega,“ segir Ron- deli. Rondeli segist telja að Saakashvili sé klókur stjórnmálamaður og að hann hafi mikinn vilja til að koma á framförum. Hann hafi leitast við að fá gott fólk til samstarfs. „Þessi hóp- ur í kringum hann segist hafa hug- myndir og áætlanir um hvernig hægt sé að gera Georgíu betri. En gleym- um því ekki að Shevardnadze var líka með hugmyndir og áætlanir. Fólk vonast eftir miklum breytingum og það er spurning hvernig nýjum for- seta tekst að standa undir þeim væntingum sem við hann eru bundn- ar. Ég hef mínar efasemdir. Ég held þó að flestir geri sér grein fyrir að Saakashvili er ekki töframaður og að hann þurfi tíma til að ná árangri. Fólk er hins vegar ekki mjög þolin- mótt. Saakashvili þarf því að sýna fljót- lega einhvern árangur og hann þarf að sýna að hann ætli sér að breyta hlutunum til betri vegar. Ef það kem- ur hins vegar í ljós að kjör hans felur ekki annað í sér en að byggt verður upp nýtt valdakerfi sem miðar að því að sópa til sín auði þjóðarinnar mun það hafa skelfilegar afleiðingar. Við verðum að hafa í huga að þetta er síð- asta tækifærið sem Vesturlönd gefa Georgíu. Vesturlönd, og þá sérstak- lega Bandaríkjamenn, eru búin að setja afar mikla fjármuni inn í Georgíu, en Georgíumönnum tókst því miður ekki að notfæra sér það vegna spillingar, vegna reynsluleysis og vegna ábyrgðarleysis. Vegna þessa eru leiðtogar Vesturlanda þreyttir á Georgíu. Stjórnarskiptin hafa vakið áhuga þeirra á landinu að nýju, en þeir segja líka við okkur: „Þetta er ykkar síðasta tækifæri.““ Síðasta tækifæri Georgíu Alexander Rondeli, fyrrum prófessor við Háskólann í Tbilisi í Georgíu, segir að með kjöri nýs forseta hafi Georgía fengið nýtt tæki- færi. Georgía hefur fengið mikinn stuðning frá Vest- urlöndum á síðustu árum en landsmönnum hefur ekki auðnast að nýta hann. Egill Ólafsson ræddi við Rondeli, sem segir að það tækifæri sem Georgía fái nú sé líka síðasta tækifæri landsins. Morgunblaðið/Egill Alexender Rondeli egol@mbl.is Georgía er mikið landbúnaðarland. Vegna efnahagserfiðleikanna hafa margir flust úr landi og þjóðinni hefur fækkað um 100 þúsund manns á ári síðustu ár. SPILLING er gríðarlegt vandamál í Georgíu og eitt af brýnustu verkefnum nýrra valdhafa er að berjast gegn henni. Það er hins vegar ekki auðvelt verkefni, m.a. vegna þess að valda- menn í stjórnkerfinu tengjast spilling- unni og hafa hagsmuni af því að við- halda óbreyttu ástandi. Til að gefa mynd af spillingunni í Georgíu er best að taka dæmi. Evrópu- maður kemur til Georgíu með þá fyrir- ætlan að flytja inn og pakka sykri. Hann telur að viðskipti af þessu tagi séu ábatasöm, en til að tryggja sér stuðn- ing við verkefnið gengur hann á fund hjá viðskiptaráðherra Georgíu. Hann tekur honum vel og segir sér lítast vel á verkefnið, ekki síst þar sem það kemur til með að skapa ný störf í landinu. Ráðherrann felur skrifstofustjóra sínum að vera sykurkaupmanninum til aðstoðar. Skrifstofustjóranum líst vel á sykurviðskiptin og bendir manninum á að tala við lögfræðing sem þekkir vel til alls þess sem lýtur að stofnun nýrra fyrirtækja. Lögfræðingurinn gerir kaupmannin- um grein fyrir að enn sé talsverð skrif- finnska í Georgíu og það sé í ýmis horn að líta þegar kemur að stofnun fyrir- tækisins. Hann býður honum að sjá um alla skriffinnsku gegn dágóðri upphæð. Sykurkaupmaðurinn ákveður að taka þessu boði enda óvanur að fást við kerfið í þessu framandi landi. Hann reið- ir fram upphæðina, en það sem kaup- maðurinn veit ekki er að um 80% fjár- ins fer í að greiða mútur af ýmsu tagi og m.a. fær skrifstofustjóri ráðuneyt- isins sitt. Fyrirtækið hefur nú starfsemi og gengur þokkalega. Að vísu ofbjóða syk- urkaupmanninum þau gjöld sem hon- um er gert að greiða vegna innflutnings á sykri og skrifstofustjórinn og lögfræð- ingurinn virðast lítið geta gert til að lækka þau. Það kemur kaupmanninum líka á óvart að sykur frá samkeppn- isaðila er seldur á mun lægra verði en hann selur sína framleiðslu á þó að- halds sé gætt í öllum rekstri. Fljótlega kemur í ljós að sykurinn kemur frá Tyrk- landi, en honum er smyglað inn til landsins í gegn um Adjara, sem er eitt af sjálfstjórnarhéruðum Georgíu. Nán- ari eftirgrennslan leiðir í ljós að stjórn- völd í Adjara innheimta miklu lægri gjöld af sykri en yfirvöld í Tibilisi. Lög- fræðingur sykurkaupmannsins bendir réttilega á að yfirvöld í Tibilisi ráði engu um skattlagningu í Adjara og við þessa skökku samkeppnisaðstæður verði því ekki ráðið. Það fer líka svo að syk- urkaupmaðurinn neyðist til að hætta starfsemi og segja upp starfsfólki sínu. Á nýjum Lexus Herinn í Georgíu er illa búinn og her- menn fá stundum ekki greidd laun á réttum tíma. Launin eru þar að auki mjög lág. Hvernig er þá hægt að skýra að dag einn stendur nýr svartur bíll af gerðinni Lexus fyrir utan snyrtistofu í Tibilisi og við hann standa bílstjóri og lífvörður á meðan eiginkona liðsforingja í georgíska hernum sinnir erindum sín- um á snyrtistofunni? Hvaðan koma peningarnir? Af raunum sykurkaupmanns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.