Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 60

Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 60
70/76 kjarninn ViðTaL Þ egar Vigdísi Hauksdóttur, þingkonu Framsóknar flokksins, ber á góma fara and- stæðingar hennar oft af hjörunum. Þegar blaðamaður skimar eftir fréttum af henni á Facebook og þeim athugasemdum sem skrifaðar eru um hana sést að Vigdís er ekki bara umdeild, heldur virðist hún kalla fram það versta í fari fólks sem skrifar á samfélagsmiðla. Orð eins og „heimsk“, „mannhatari“ og „fífl“ sá blaðamaður í nokkur skipti þegar Vigdísi bar á góma á internetinu. Þá fullyrti einn netverjinn að Vigdís væri „einfald lega vond manneskja“. Spurð um þessa hörðu umræðu og oft á tíðum óvægnu segist hún ekkert hugsa um það. „Ég tek þetta ekkert inn á mig og velti þessu ekkert fyrir mér. Fólk í Samfylkingunni, Vinstri grænum og síðan valdir bloggarar eru alltaf að skrifa eitthvað um það sem ég er að segja en ég velti því ekkert fyrir mér. Þau verða að eiga þetta við sig. Fyrir vikið er ég töluvert mikið í fjölmiðlum og fæ þannig tækifæri til þess að koma mínum sjónarmiðum á framfæri, það er kannski jákvæða hliðin á þessu,“ segir Vigdís og glottir við tönn. Hún virðist njóta þess að vera hötuð og játar raunar fyrir blaðamanni að þannig sé það. „Þetta bítur bara ekkert á mig,“ segir Vigdís aftur og hlær við. (Uõ°VWD°DU­NLVIM¡UP¡OD Þó að óvægin orðræða bíti ekkert á Vigdísi, að hennar sögn, er hún að glíma við grafalvarlega hluti alla daga þessar vikurnar eins og þingmenn allir í sameiningu. Sjálf ríkis- fjármálin, fjárlög næsta árs. Íslenska ríkið skuldar tæplega 1.500 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Lána- sýslu ríkisins, sem jafngildir ríflega 90 prósentum af árlegri landsframleiðslu Íslands. Til viðbótar koma síðan þungir gjalddagar vegna erlendra lána sem hvíla á þjóðarbúinu í fyrirsjáan legri framtíð, ekki síst frá árinu 2016. Seðla- banki Íslands hefur endurtekið varað við miklum skuldum þjóðarbúsins og þörf sé á því að létta á gjalddögum með því að lengja í lánum, ekki síst þegar kemur að skuldum viðtal Magnús Halldórsson magnush@kjarninn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.