Morgunblaðið - 24.01.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2012
Rithöfundurinn Per Haakonsen hefur verið gagnrýndur í
Noregi fyrir að lýsa fjöldamorðunum í Ósló og Útey 22.
júlí sem hugsanlegri viðvörun frá Guði. Haakonsen sagði
í fyrirlestri á opnum fundi Kristilega þjóðarflokksins í
Sarpsborg að hægt væri að „skoða fjöldamorðin í ljósi sí-
versnandi samskipta Ísraels og Noregs“.
Umræðuefnið á fundinum var andúð á gyðingum í Nor-
egi og meðal kristinna manna. Haakonsen skrifaði bókina
Israel Guds folk sem kom út í Noregi árið 2006.
Haakonsen skírskotaði einnig til slyss í norskum olíu-
borpalli sem kostaði 123 manns lífið árið 1980 og sagði að
það hefði orðið skömmu eftir að Norðmenn neituðu að
selja Ísrael olíu. „Það er umhugsunarvert að tvær
stærstu ógæfurnar í Noregi eftir stríð er hægt að tengja
við samband Noregs við Ísrael. Við hljótum að spyrja
ósjálfrátt: Hefðum við komist hjá þessum ógæfum ef
samband okkar við Ísrael hefði verið betra?“ hefur
norska ríkisútvarpið eftir Haakonsen.
Margir norskir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt um-
mæli Haakonsens, þeirra á meðal Knut Arild Hareide,
leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins. Hann lagði áherslu á
að flokkurinn væri ekki sömu skoðunar og rithöfundur-
inn.
Leiðtogi flokksins í Sarpsborg, Inger Marit Sverresen,
er á öndverðum meiði. „Haakonsen er maður með mikla
menntun og þekkingu, sem hefur rannsakað þetta. Þegar
maður eins og hann kemur með slíkar viðvaranir tel ég að
menn eigi ekki að vera með yfirlýsingar um hversu rang-
ar þær séu, heldur hugsa um þær og kanna hvort hann
hafi ef til vill rétt fyrir sér.“
Viðvörun frá Guði?
Norðmaður tengir fjöldamorðin við deilur um Ísrael
Rúmur milljarður Asíubúa fagnaði kínverska nýárinu
sem gekk í garð í gær þegar ár drekans tók við af ári
kanínunnar. Dansarar taka hér þátt í drekadansi við
700 ára gamalt hof í Peking. Mikil mengun var í kín-
versku höfuðborginni þegar flugeldum var skotið á loft
og kínverjar voru sprengdir til að fagna nýja árinu.
Reuters
Ár kanínunnar kvatt í Kína og fleiri Asíulöndum
Nýju ári fagnað með drekadansi
Friðaráætlun
Arababanda-
lagsins í Sýr-
landi virtist
vera í molum í
gær eftir að
sýrlensk stjórn-
völd höfnuðu
kröfu banda-
lagsins um að
Bashar al-Assad
forseti segði af sér og mynduð
yrði þjóðstjórn. Sýrlenska stjórn-
in sagði að friðaráætlunin væri
„árás á fullveldi Sýrlands og sví-
virðileg afskipti af innanríkis-
málum landsins“.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu sögð-
ust ætla að kalla heim fulltrúa
sína í eftirlitsnefnd Arababanda-
lagsins í Sýrlandi vegna óánægju
með viðbrögð þarlendra stjórn-
valda.
Arababandalagið ákvað að
framlengja eftirlitið í Sýrlandi
um mánuð en brotthvarf Sádi-
Araba er til marks um óeiningu
sem kyndir undir efasemdum um
að bandalaginu takist að koma á
friði í landinu.
Friðaráætlun Araba-
bandalags í molum
Bashar al-Assad
SÝRLAND
Bresk þingnefnd
kom saman í
gærkvöldi til að
ræða nauðsyn-
legar viðgerðir á
þinghúsinu í
Lundúnum, með-
al annars til að
koma í veg fyrir
að klukkuturn-
inn frægi haldi
áfram að skekkj-
ast. Turninn hallast núna um 0,26
gráður og hallinn hefur aukist lítil-
lega frá árinu 2003. Sprungur hafa
einnig fundist í veggjum þinghúss-
ins.
Samkvæmt leiðbeiningum frá
bresku stjórninni á nefndin að meta
alla möguleika, m.a. hvort ódýrast
sé að selja bygginguna, eða jafnvel
hvort rífa eigi þinghúsið niður og
endurreisa það.
Hafa áhyggjur af
halla klukkuturnsins
Klukkuturninn
frægi.
BRETLAND
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Íran áréttuðu í gær þá
hótun sína að loka Hormuz-sundi
eftir að utanríkisráðherrar aðildar-
ríkja Evrópusambandsins sam-
þykktu bann við kaupum á olíu frá
Íran vegna deilunnar um kjarnorku-
áætlun landsins.
„Ef einhverjar truflanir verða á
sölu á íranskri olíu verður Hormuz-
sundi örugglega lokað,“ sagði Mo-
hammad Kossari, varaformaður
utanríkis- og öryggismálanefndar
íranska þingsins. Hormuz-sund er
eina leiðin á sjó úr Persaflóa og sér-
fræðingar segja að ef Íranar standa
við hótunina verði það til þess að
olíuverð rjúki upp á heimsmarkaði.
Setur Grikki í vanda
Utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna
samþykktu bann við frekari samn-
ingum um olíukaup frá Íran og að
samningar, sem þegar hafa verið
gerðir, féllu úr gildi 1. júlí.
Íran er annar mesti olíuframleið-
andinn í OPEC, samtökum olíuút-
flutningsríkja, á eftir Sádi-Arabíu.
Um 20% af olíuútflutningi Írans fer
til Evrópuríkja. Nokkur ESB-ríki
voru treg til að fallast á bannið,
þeirra á meðal Grikkland sem hefur
flutt inn íranska olíu í miklum mæli á
hagstæðum kjörum. Grikkir eru í
slæmri aðstöðu í málinu vegna efna-
hagsþrenginga þeirra og þeir beittu
sér fyrir því að hin ESB-ríkin bættu
þeim skaðann sem þeir hafa af bann-
inu. Utanríkisráðherrarnir sam-
þykktu að áhrif bannsins á ríki eins
og Grikkland yrðu metin í maí.
Embættismenn Evrópusam-
bandsins viðurkenndu að viðskipta-
bannið væru áhættusamt, gæti orðið
til þess að olíuverð snarhækkaði og
aukið þar með efnahagserfiðleika
vestrænna ríkja.
Embættismennirnir lögðu áherslu
á að markmiðið með banninu væri að
knýja Írana til samningaviðræðna
um kjarnorkuáætlun þeirra. Viðræð-
ur ESB og Írana um málið fóru út
um þúfur á liðnu ári.
Íranar eru sakaðir um að reyna að
framleiða kjarnorkuvopn en þeir
neita því.
Óttast að olíuverð rjúki
upp vegna deilu við Íran
ESB samþykkir
bann við kaupum
á íranskri olíu
Reuters
Bann William Hague ræðir við
blaðamenn eftir fundinn í Brussel.
Hætti auðgun úrans
» William Hague, utanríkis-
ráðherra Breta, sagði að bann-
ið væru nauðsynlegt til að
knýja Írana til að hætta að
auðga úran sem hægt væri að
nota í kjarnavopn.
» „Íranar halda áfram að virða
ályktanir Sameinuðu þjóðanna
að vettugi og auðga úran,“
sagði Hague. Talið er að 20%
úransins sé aðeins hægt að
nota í kjarnavopn.
Tveir stuðningsmenn evrunnar og
aðildar Finnlands að Evrópusam-
bandinu – hægrimaðurinn Sauli
Niinisto og Pekka Haavisto, forseta-
efni Græna flokksins – fengu mest
fylgi í fyrri umferð forsetakosninga í
fyrradag. Kosið verður því á milli
þeirra tveggja 5. febrúar.
Paavo Väyrynen, sem er andvígur
evrunni og vill að Finnar taki upp
finnska markið að nýju, varð í þriðja
sæti. Finnskir fjölmiðlar sögðu úr-
slitin sigur fyrir stuðningsmenn evr-
unnar sem var í brennidepli í kosn-
ingabaráttunni.
Úrslitin eru einnig mikið áfall fyr-
ir finnska jafnaðarmenn. Forseta-
efni þeirra, Paavo Lipponen, fyrr-
verandi forsætisráðherra og forseti
þingsins, galt afhroð, fékk aðeins
6,7% atkvæðanna. Þetta er í fyrsta
skipti í þrjá áratugi sem forsetaefni
jafnaðarmanna er ekki kjörinn for-
seti landsins.
Þjóðernissinninn Timo Soini, leið-
togi Sannra Finna, fékk 9,4%.
Sigur fyr-
ir finnska
evrusinna
Jafnaðarmenn
guldu afhroð
ÚRSLITIN Í FINNLANDI
Heimildir: Finnskir fjölmiðlar
Sauli
Niinistö,
Sambands-
flokkurinn
Paavo
Väyrynen,
Miðflokkurinn
17,5%
Pekka
Haavisto,
Græni
flokkurinn
Aðrir
26,7%
37%
18,8%
Sauli Niinistö og Pekka Haavisto fengu
mest fylgi í fyrri umferð forsetakosninga
á sunnudag og kosið verður aftur á milli
þeirra tveggja 5. febrúar
Lokatölur í fyrri umferð
forsetakosninganna
Króatar samþykktu aðild að Evr-
ópusambandinu með tveimur þriðju
greiddra atkvæða í þjóðaratkvæða-
greiðslu á sunnudag. Króatía verður
því 28. aðildarríki sambandsins í júlí
á næsta ári.
„Bless Balkanskagi,“ sagði í for-
síðufyrirsögn stærsta dagblaðs Kró-
atíu, Vecernji List. „Króatía snýr nú
baki við Balkanskaga, pólitískum
hefðum Balkanlanda en ekki í þeim
skilningi að landið forðist skuldbind-
ingar sínar í þessum heimshluta.“
Króatía verður annað fyrrverandi
lýðveldi Júgóslavíu til að ganga í
ESB á eftir Slóveníu sem fékk aðild
árið 2004. „Þetta er söguleg ákvörð-
un … hugsanlega mikil tímamót í
sögu okkar,“ sagði Zoran Milanovic,
forsætisráðherra Króatíu.
Aðeins 43% þeirra sem voru á
kjörskrá greiddu atkvæði. Frétta-
skýrendur sögðu þessa litlu kjör-
sókn til marks um að áhuginn á aðild
að ESB hefði minnkað eftir að
aðildarsamningurinn var gerður.
Reuters
Í ESB Zoran Milanovic, forsætisráðherra Króatíu, Ivo Josipovic forseti og
Boris Sprem, forseti þingsins, fagna niðurstöðu þjóðaratkvæðisins.
Aðild að ESB sam-
þykkt í Króatíu