Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 13
www.skoda.isHEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000
Allir velkomnir á ŠKODA daginn í HEKLU Laugavegi og hjá HÖLDI Akureyri
í dag milli kl. 12 og 16. Nýr KAROQ verður á svæðinu, Superb, Octavia og Fabia í boði
á sérstöku Sumarverði ŠKODA, andlitsmálun fyrir krakkana, grillaðar pylsur og svalandi
drykkir fyrir alla fjölskylduna. Komdu og fagnaðu deginum með okkur.
Hlökkum til að sjá þig!
Láttu sjá þig milli kl. 12 og 16!
ER
Í DAG
ŠKODA DAGURINN
Bandaríkin Kvikmyndaframleið
andinn Harvey Weinstein gaf sig
fram á lögreglustöð í New York í
gær og hefur hann nú verið ákærð
ur fyrir kynferðisbrot, þar á meðal
nauðgun, gegn tveimur konum.
Samkvæmt frétt BBC var Wein
stein leiddur út af lögreglustöðinni
í handjárnum og færður í dómsal.
Fyrir dómi sagði saksóknarinn
Joan Illuzzi framleiðandann hafa
„notað stöðu sína, peninga og vald
til að lokka ungar konur í aðstæður
þar sem hann gat misnotað þær
kynferðislega“.
Weinstein mun ekki þurfa að
sitja í varðhaldi heldur er hann laus
gegn tryggingu upp á eina milljón
dala, sem samsvarar rúmlega 100
milljónum króna. Þar að auki þurfti
hann að láta vegabréf sitt af hendi
og mun hann ganga með búnað sem
skráir staðsetningu hans, en ferðir
hans hafa verið takmarkaðar við
New York ríki og Connecticut.
Benjamin Brafman, lögmaður
Weinsteins, sagði að Weinstein
muni halda fram sakleysi sínu. Þeir
eru báðir vissir um að enginn fótur
sé fyrir ákærunum og hann segir
engin sönnunargögn styðja þær.
Ákærurnar koma í kjölfar langrar
rannsóknar sem saksóknaraemb
ættið í Manhattan hefur tekið þátt
í, en töluvert er síðan fyrstu ásak
anirnar á hendur Weinstein litu
dagsins ljós.
Það var í október í fyrra að New
York Times birti grein þar sem
Weinstein er sakaður um að hafa
í áratugi greitt fyrir þagmælsku
kvenna sem hann á að hafa mis
notað kynferðislega eða beitt
kyn ferðis legri áreitni. Samkvæmt
Reuters hafa yfir 70 konur stigið
fram síðan í október og sakað kvik
myndaframleiðandann um slíka
hegðun.
Í kjölfar ásakananna var Wein
stein rekinn frá framleiðslufyrir
tæki sínu, The Weinstein Comp
any, í október í fyrra en stjórn
fyrirtækisins óskaði eftir því að það
yrði tekið til gjaldþrotaskipta fyrr á
árinu. Weinstein hefur sjálfur verið
fordæmdur af helstu leikmönnum
í kvikmyndaiðnaðinum og hann
hefur verið rekinn úr Óskars
akademíunni.
Vel gæti verið að Weinstein þurfi
að glíma við fleiri ákærur en lög
regluyfirvöld í Lundúnum hafa sagst
vera að rannsaka ásakanir á hendur
Weinstein og saksóknarar í Los
Angeles sögðu í febrúar að þrjú mál
tengd Weinstein væru til skoðunar.
gretarthor@frettabladid.is
Weinstein loks ákærður fyrir nauðgun
Harvey Weinstein sagði ekkert í dómsal í gær. Við hlið hans stendur lögmaðurinn Benjamin Brafman. NordicpHotos/Getty
Kvikmyndaframleið-
andinn gaf sig fram við
lögregluyfirvöld á Man-
hattan í gær. Hann hefur
nú verið ákærður fyrir
kynferðisofbeldi gegn
tveimur konum. Wein-
stein var látinn laus gegn
tryggingu upp á eina
milljón Bandaríkjadala.
Mál tengd Weinstein
eru til skoðunar meðal
annars í Los Angeles og
Lundúnum.
Weinstein hefur verið
rekinn frá framleiðslufyrir-
tæki sínu, The Weinstein
Company vegna ásakananna
á hendur honum. Stjórn
fyrirtækisins hefur óskað
eftir þvi´að fyrirtækið verði
tekið til gjaldþrotaskipta.
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ða a 13L a U G a r d a G U r 2 6 . m a í 2 0 1 8
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
2
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
A
-2
3
D
C
1
F
E
A
-2
2
A
0
1
F
E
A
-2
1
6
4
1
F
E
A
-2
0
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K