Réttur - 01.08.1989, Blaðsíða 47
FIDEL CASTRO:
Tvenns konar
lífsafkoma og
tvenns konar friður
Úr ræðu frá 5. dcsember 1988, haldin í tilefni af 30 ára afmæli byltingarinnar
á Kúbu. Ræðubúturinn er valinn sem nokkurs konar eftirmáli að greininni hér á
undan, Namibía: Aldarlöng nýlendukúgun.
Spurningin um hvort mannkynið lifi af
snertir okkur öll. Friður snertir okkur öll.
En lífsafkoma og friður hafa ólíka merk-
ingu í ólíkum löndum. Það eru tvenns
konar leiðir til að lifa af og tvenns konar
friður: Lífsafkoma hinna ríku og lífsaf-
koma hinna fátæku, friður til handa rík-
um og friður til handa fátækum.
I heimi hinna ríku þekkist vart ung-
barnadauði. í heimi hinna ríku þekkist
vart vannæring. í heimi hinna ríku þekk-
ist vart að fólk deyi af völdum sjúkdóma
sem nútíma tækni, vísindi og forvarnar-
aðgerðir geta komið í veg fyrir. í heimi
hinna ríku þekkist vart ólæsi eða sú teg-
und ólæsis er þjakar aðrar þjóðir. í heimi
hinna ríku þekkjast vart fátækrahverfi. í
heimi hinna ríku er meðalaldur sjötíu ár
eða meir. í heimi hinna ríku eru matvæli
eyðilögð, sem þúsundir milljóna í heimin-
um þarfnast, einfaldlega til þess að selja
afganginn á hærra verði, sprengja upp
verðið. í heimi hinna ríku er veitt niður-
greiðsla, ekki bara til þess að keppa við
landbúnaðarframleiðslu þriðja heims
r'kja, heldur er niðurgreiðsla einnig veitt
til atvinnulausra, og þeir eru margir, þar
sem atvinnuleysi er eðlislægt kapítalísk-
um samfélögum.
Þegar rætt er um frið verður að sjálf-
sögðu ekki komist hjá því að hugsa til
fólksins er deyr daglega í þeim þriðja
heimi sem ég er að tala unr.
í frásögnum, bókum og pólitískum
yfirlýsingum er fjallað um fjölda látinna
og önnur fórnarlömb fyrri og seinni
heimsstyrjaldarinnar. Talað er um að í
fyrri heimsstyrjöldinni hafi látist nærri 20
milljónir og í þeirri seinni nærri 40 mill-
jónir. í bókum er rætt um kjarnorku-
sprengjurnar í Hiroshima og Nagasaki og
mannkynið er enn harmi slegið yfir til-
hugsuninni um að á einungis einum degi
hafi 120.000 nranns dáið, einungis á ein-
um degi og af afleiðingunum, og að
hundruð þúsunda þjáist af afleiðingum
geislunar eftir hrottafengnar tilraunir
Bandaríkjastjórnar á japönskum borgum.
Við höfum bent á það við önnur tæki-
færi að í þriðja heiminum deyja daglega
40.000 börn sem hægt hefði vcrið að
bjarga. Á þremur dögum, — og þessar
143