Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 52

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 52
Trésmiðjan Brim í Hafnarfirði: „Sérhæfum okkur í trésmíðavinmi um borð í skipum og bátum“ - segir Þorsteinn Geirsson, annar eigenda TYésmiöjan Brim í Hafharfirði er ungt fyrirtœki sem sérhœfir sig í trésmíði um borð í skipum og bátum. Eigendur fyrirtœkisins eru þeir Þor- steinn Geirsson og Aðalsteinn Svav- arsson sem báðir hafa starfað lengi við stœrri skipasmíðastöðvar en tóku þann kostinn að setja á stofn sérltceft trésmíðafyrirtœki fyrir skip og báta og reynslan sýnir að þörfiit var sann- arlega fyrir Itendi. í dag starfa 8 tnenn hjá fyrirtœkinu og eru verkefn- itt að stœrstum hluta á suðvestur- horni landsins. „Margar stærri skipasmíðastöðvarn- ar eru ennþá með fastráðna trésmiði í vinnu en ég held að þessir menn séu mun færri en voru á árum áður. Stöðv- arnar hafa í vaxandi mæli sótt þessa þjónustu til annarra en ég held að það séu mjög fá fyrirtæki sem sérhæfa sig á þessu sviði, eins og við gerum," segir Þorsteinn. Að hans mati er ekki ólík- legt að ætla að þróunin verði áfram í þessa átt á komandi árum. Samstarf við Ósey Trésmiðjan Brim hefur séð um tré- smíðavinnu um borð í skipum og bát- um sem hafa verið í breytingum og viðgerðum hjá Ósey í Hafnarfirði. Þetta samstarf segir Þorsteinn vera mjög mikilvægt fyrir trésmiðjuna og til að mynda er nú á næstu mánuðum stórt verkefni við smíði innréttinga í raðsmíðaskipin sem Ósey er að smíða. Það verkefni eitt og sér verður uppi- staðan í vinnu trésmiðjunnar á vetrar- mánuðunum. Þorsteinn segir að trésmíðavinnan 52 MdlU ------------------------- Meðai þeirra verkefita sem Tréstniðjan Britn hefur fengist við er innréttingasmíði í varðskipin Tý og Ægi. Eins og sjá má er vandað til allrar hönnunar og frágangs. um borð í skipum sé um margt sér- hæfð og ólík annarri trésmíði. Taka verði mið af því að mikið mæði á inn- réttingunum og yfir höfuð verði allt um borð að vera úr góðum efnum og frágangur allur fyrsta flokks. „Það er vissulega mikið lagt í inn- réttingar í skipum í dag en ég held að þetta sé ekkert óeðlilegt þegar haft er í huga að þetta eru önnur heimili mannanna um borð. Þess vegna á að vanda tii verka þannig að mönnum líði vel í þessu umhverfi," segir Þor- steinn. Skemmtilegra að smíða í ný skip Verkefnin hjá Trésmiðjunni Brim snú- ast bæði um viðgerðir og innréttinga- smíði í ný skip en Þorsteinn segir að þeir hjá Brim láti öðrum eftir trébáta- smíði og trébátaviðgerðir. Það sé önn- ur sérhæfð trésmíðavinna en Þor- steinn viðurkennir að smíði í ný skip sé alltaf skemmtilegri og viss tilfinn- ing að sjá nýtt skip halda til veiða. „Jú, mér finnst skemmtilegra að smíða í nýtt skip heldur en bæta eldra, þó það sé líka mjög gefandi og ánægjulegt. En þetta er eins og að smíða sitt eigið hús, það er allt annað en kaupa gamalt." Að mati Þorsteins mætti vera meira um nýsmíði skipa hér á landi en raun ber vitni. „En svona er þetta í samkeppninni. Hins vegar er það öruggt mál að íslendingar eru góðir fagmenn í skipasmíði og ekkert síðri en þær þjóðir sem við keppum hvað harðast við." Meðal verkefna Trésmiðjunnar Brims má nefna þrjá báta sem endur- byggðir voru hjá Ósey í Hafnarfirði. Þetta eru Farsæll GK, Sæbjörgin ST-7 og Ásdís ST-37. Aðalsteinn Svavarsson, annar eigenda Trésmiðjunnar Brims (t.h.) er hér ásamt starfsmanni sínum að byrja á gólft í brii eins af raðsmíðaskiptim Óseyjar. Jóhantt Ólafur Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.