Kirkjuritið - 01.12.1962, Blaðsíða 17
Séra GarSar Þorsteinsson:
Séra Eiríkur
Brynjólísson
Séra Eiríkur Brynjólfsson andaðist í Vancouver á Kyrraliafs-
strönd 21. októbr s. 1.
Eiríkur Sverrir, eins og hann liét fullu nafni, var fæddur 7.
september 1903 í Litladal í Svínadal í Húnavatnssýslu. Þar
bjuggu þá foreldrar lians, Brynjólfur Gíslason, prests á Reyni-
völlum og kona hans Guðný Jónsdóttir, prófasts á Auðkúlu.
Eru ættir þeirra beggja hinar merkustu. Eiríkur varð stúdent
árið 1923 og kandidat í guðfræði vorið 1927. Næsta vetur var
hann við framhaldsnám í Svíþjóð og Þýzkalandi. Var hann
ókominn úr þeirri námsför, er hann var kosinn sóknarprestur
að Útskálum. Hlaut liann veitingu og var vígður 13. maí 1928.
Þegar séra Eiríkur kom lil Útskála, liöfðu úrvals prestar setið
þann stað, hver af öðrum, prestar, sem með miklum ágætum
höfðu gengt því þríþætta hlutverki, að vera mikilhæfir, andleg-
tr leiðtogar, góðir húliöldar og forastumeun í framfaramálum
byggð arinnar. Það var því í mikið ráðist fyrir ungan mann og
lítt reyndan, að ætla að feta í fótspor slíkra fyrirrennara. En
sera Eiríkur reyndist þeim vanda vaxinn. Er liann liafði verið
prestur að Útskálum í nokkur ár, sagði sóknarbarn hans við
mig eitt sinn: „Prestarnir okkar á Útskálum hafa yfirleitt verið
afljurðamenn og svo er enn“. Og þegar litið er yfir 24 ára starfs-
þjónustu séra Eiríks á Útskálum, þá veit ég, að sóknarbörn
hans eru á einu máli um það, að hann sæti staðinn með sóma,
rækti embættisskyldur sínar af virðuleik og kostgæfni, væri
búhöldar til fyrirmyndar, og ötull og mikilvirkur forgöngu-
niaður og liðsmaður liverju góðu málefni.