Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 9
GÍSLI SVEINSSON
SENDIHERRA
IX IVIEIUORIAIU
Gísli Sveinsson var fæddur að Sandfelli í Öræfum 7.
dezember 1880. Voru þau foreldrar hans Sveinn, prestur,
siðar að Ásum í Skaptártungu, Eiriksson, hreppstjóra i
Hlíð, Jónssonar, og kona lians Guðríður Pálsdóttir, pró-
fasts í Hörgsdal, Pálssonar. Var hann þannig stórættaður
maður og er allt það fólk þjóðkunnugt.
Gísli Sveinsson gekk í lærða skólann í Revkjavík ungur
sveinn og útskrifaðist þaðan 1903 með góðri I. einkunn.
Nam hann síðan lög við Kaupmannahafnarháskóla og
lauk lagaprófi með II. einkunn betri 1910. Á námsárunum
var hann um tíma settur sýslumaður Ejrfirðinga. Hann
gerðist 3’firdómslögmaður í Reykjavík 24. júní 1910 og'
gegndi þeirri sýslan, unz hann varð sýslumaður Skapt-
fellinga 1. júní 1918. Þvi emhætti þjónaði hann til 1. júlí
1947, en var frá þeim tima skipaður sendiherra í Osló.
Þar sat hann siðan, unz hann lét af embætti fyrir aldurs
sakir vorið 1951. Hann andaðist 30. nóv. 1959.
Margs konar trúnaðarstörf hlóðust á Gísla Sveinsson.
5rar það að vonum, en verður eigi rakið hér. Þó skal
þess getið, að hann var lögmaður Landsbanka íslands
1912—1918, sat í islenzk-dönsku samhandslaganefndinni
1937—1939, í kirkjuráði 1937—1917, i Landsbanka-nefnd
1934—1945, og var árum saman formaður sparisjóðs
Vestur-Skaptfellinga. Ótalið er það, er hann ritaði, eink-
um um þjóðmál. Var hann harla vel ritfær maður.
Tímarit lögfræðinga 7