Jazzblaðið - 01.10.1948, Blaðsíða 4
I
Hallur Símonarson:
Í5LENZKIR H LJÓÐFÆRALEI KARAR
Baldur Kristjánsson
Baldur Kristjánsson er fæddur hér í
Reykjavík 21. okt. 1922. Hann fékk fljótt
áhuga fyrir tónlist og byrjaði kornungur
að læra á píanó, og var Páll ísólfsson
skólastjóri, einn af fyrstu kennurum hans.
Síðar meir lærði Raldur einnig hjá tveim
þekktum útlendingum, sem dvaljast hér á
landi. Hjá Róbert Abraham lærði hann
píanóleik og tónfræði og hjá Dr. Urbands-
chitch lærði hann píanóleik og kontrapúnt.
Að afloknu barnaskólanámi byrjaði Bald-
ur í Verzlunarskóla íslands og stundaði
hann þar nám í fjóra vetur. A skóladans-
æfingum í Verzlunarskólanum byrjaði hann
fyrst að leika dansmúsik opinberlega, og
fljótlega eftir einnig í öðrum skólum og
víðar. Sumarið 1939, eða þegar Baldur var
16 ára gamall, fór hann til Siglufjarðar
og lék þar í hljómsveit, sem Óskar Cortes
stóð fyrir. Óskar lék á fiðlu og klarinet,
Baldur á píanó, og auk þeirra léku þar
Stefán Þorleifsson, með harmóniku og tenór-
saxafón og Þórhallur Stefánsson, með
trommur. Um haustið snéri hann aftur til
Reykjavíkur og settist í fjórða bekk Verzl-
unarskólans, og lauk hann þaðan námi um
vorið. En hugur hans hneigðist ekki að verzl
unarstörfum, þó hann hefði lokið verzlunar-
skólaprófi. Tónlistin lét hann ekki í friði
og hann ákvað að gera hljóðfæraleik
að atvinnu sinni. Um vorið fór Baidur á-
samt Kjartani Runólfssyni til Akureyrar.
Réðust þeir til að leika að Hótel Akureyri.
Um sumarið léku þeir þar tveir, Baldur á
píanó, en Kjartan á trommur, harmoniku og
stundum einnig á trompet. Um haustið byrj-
aði Jóhannes G. V. Þorsteinsson að leika
með þeim og' lék hann á trompet. Eins og
lesendum er kunnugt, þá lézt Jóhannes í
Danmörku fyrir tæj)um tveim árum, og
seg'ir Baldur, að Jóhannes hafi verið gædd-
ui' einna mestri tóngáfu af öllum, sem hann
hafi komizt í kynni við. Eftir ársdvöi á
Akureyri, snéri Baldur hingað suður aftur
og lék á ýmsum stöðum fram til 1944, er
hann réðist til Þóris Jónssonar að Hótel
Borg. Baldur lék að Hótel Borg í tæp þrjú
ár, eða þangað til um haustið 1 !)46_. Þá
vantaði hijómsveit í Tjarnarcafe og stofn-
aði Baldur þá sína eigin hljómsveit og í'éð-
ist þangað. Meðlimir þessarar fyrstu hljóm-
svcitar hans voru, Karl Karlsson, trommur,
og hefur Karl alltaf leikið hjá Baldri síð-
an, Guðmundui' Vilbergsson, með trompet
og harmóniku og Guðmundur Norðdal, með
klarinet. Guðm. Norðdal hætti eftir nokkra
mánuði og byrjaði Einar B. Waage þá að
leika í hljómsveitinni og lék hann á altó-
caxafón. Um haustið 1947 hættu svo bæði
Einar og Guðm. Vilbergsson. Einar hóf
kennsiu við Tónlistarskólann og hætti af
þeim ástæðum, en Guðm. réði sig til Krist-
jáns Kristjánssonar í K.K.-sextetinn. í
þeirra stað réði Baldur til sín tvo menn,
er höfðu leikið með honum oft áður, þá
Þórhall Stefánsson með kontrabassa og
4 jjazdLU