Kirkjuritið - 01.05.1959, Blaðsíða 26
Ólafur B. Björnsson, Akranesi.
Ólafur B. Björnsson ritstjóri
lézt að heimili sínu á Akra-
nesi 15. maí, og var jarðsett-
ur 22. s. m. að viðstöddu miklu
f jölmenni.
Ólafur var landskunnur
maður vegna farsælla afskipta
af mörgum málum, og svo ein-
dreginn stuðning veitti hann
kirkjumálunum, bæði heima
og heiman, að í hópi leikmanna
voru þeir áreiðanlega fáir, sem
betur gerðu á siðustu áratug-
um. Alla ævi var hann einlæg-
ur trúmaður og þráði, að
áhrifamáttur kristindómsins
mætti verða sem mestur í þjóð-
lífinu. Að því studdi hann af
lifandi áhuga og með margháttuðu starfi.
Ég sá Ólaf B. Björnsson fyrst í fundarstjórasæti á kirkju-
fundi fyrir 30 árum. Nokkru síðar lágu leiðir okkar saman á
Akranesi, er ég var settur sóknarprestur þar um tæplega eins
árs skeið 1932—1933. Tókst þá með okkur vinátta, sem aldrei
bar skugga á síðan. Heimili þeirra hjóna var frjálst og alkunn-
ugt að góðvild og gestrisni. Þar áttum við hjónin margar
ógleymanlegar yndisstundir, sem við minnumst síðan með
þakklátum huga.
Fæddur var Ólafur Björnsson á Akranesi 6. júlí 1895, sonur
hjónanna Björns Hannessonar Ólafssonar Stephensens og Katr-
ínar Oddsdóttur, prests að Rafnseyri Sveinssonar.
Ólafur var gæddur fjölþættum gáfum, háum hugsjónum,
leiftrandi áhuga og ríkulegri starfsorku, svo að segja mátti,
að hann væri hamhleypa til starfa. Merkilegt má það kallast,
hversu mikið honum varð úr hæfileikum sínum, þrátt fyrir það,
þó að hann nyti ekki kennslu í neinum skóla nema barnaskóla.
Á yngri árum tók hann virkan þátt í ungmennafélagshreyf-
ingunni og góðtemplarareglunni og mótaðist af hugsjónum