Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 11

Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 11
Spurningar og svör Spurning þessa blaðs hljóðar þannig: Hvað cr Be-bop og hvcrt er álit þitt á því? Hér fara á eftir svör þeirra manna, er spurðir voru. Baldur Kristjánsson hljómsveitarstjóri. Be-bop er nýr stíll í jazzmúsik. Þar pætir mjög margbreytilegra hreyfinga hljóðfallsins og mjög er undir því komið, að þ<jir sem leika þennan stíl hafi tækni og séu „rhythmiskir" og ekki sízt hug- myndaríkir (sbr. Dizzy Gillespie). Álit mitt á Be-bop er, að það sé stórt spor í rétta átt, til framþróunar góðrar jazztónlistar. Gunnar Egilsson klarinetleikari í hljómsveit Björns K. Einarssonar. Eins og Benny Goodman setti heiminn á annan endann meó sínu / i,swing“ árið 1936, munu Be-bopistarnir setja heiminn á annan end-j ann með Be-bopinu, og hafa reyndar þegar gert það. Be-bop er íl rauninni ekkert nýtt fyrirbrigði. Það hefur alltaf verið að þróast. \ en fékk ekki sitt fasta form fyrr en um árið 1940. Án efa eiga allir, sem vilja, eftir að kynnast því betur á komandi árum. Mér er ókleift að fara nánar út í að útskýra Be-bop, en bvað áliti mínu á því viðvikur þykir mér mjög gaman að því og eftir því sem ég heyri það oftar, þess betur líkar mér við það. Kristján Kristjánsson liljómsveitarstjóri. 1. Be-bop er ný stíltegund í jazz. 2. Aðaleinkenni eru langar „impró- viseraðar fraseringar", sem fara langt út fyrir bin upphaflegu hljómatakmörk lagsins. Aðallega byggt upp af stækkuðum fimm- andum. 3. Orðið Be-bop hefur skapast af hinum sérkennilegu ,rhythma“ fraseringum", sem heyrast oft hjá Be-bop hljóðfæraleik- íi'um; tvær áttunda parts nótur, „staccato", á fyrsta áherzluatkvæði i taktinum. Hlustið á Be-bop. Það skýrir sig- sjálft. Svavar Gests trommuleikari í K.K.-sextettinum. Hugtakið Be-bop er dregið af hljóði í „fraseringunni", sem sérkenn- andi er fyrir þessa tegund jazzins — kemur það venjulega fram í samstæðu af tríólum og nær hámarki sínu skyndilega með áttunda eða sextánda parts nótu í síðasta taktslætti. Þessi skýring er ef til vill ekki fyrir þá sem músikmálunum eru lítt kunnugir, en þeir ættu hæglega að geta þekkt þennan músikstíl á hinum margbrotnu „im- próviseringum“, sem eins og leysa upp alla laglínu og samhljóm tónverksins. Miiiir uppáhalds jazzleikarar eru Be-bop leikararnir og' ætti það að vera næg skýring, hvað áliti mínu á Be-bop viðvíkur. jaxxlUiS 11

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.