Jazzblaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 4

Jazzblaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 4
GLÐMLMDUR VILBERGSSOM Guðmundur Vilbergsson trompetleik- ari hefur verið sá hljóðfæraleikarinn, sem Jazzblaðið hefur oftast fengið til að leika á jam-sessionum þess undanfarinn vetur. Því er nefnilega þannig farið með Guðmund, að hann hefur ætið get- að hrifið áheyrendur — og allir kom- ist i „stuð“. Hann á það sameiginlegt með uppáhaldstrompetleikara sínum, hinum ameríska Roy Eldridge, að vinna sig upp í sólóum — og þótt stíll þeirra sé ekki hinn sami, þar sem Roy er Guð- mundi miklu fremri, eins og við er að búast, þá er það þessi sameiginlegi kost- ur þeirra, sem hefur orðið til þess, að gera þá vinsæla meðal jazzunnenda hvorn í sínu heimalandi. Guðmundur Vilbergsson fæddist á Flateyri 3. desember 1924. Faðir Guð- mundar hafði yndi af tónlist, og gerði hann nokkuð af því að smíða hljóðfæri. T. d. var fyrsta hljóðfæri Guðmundar smíðað af honum — var það fiðla, sem þó ekki lifði lengi, þar sem Guðmundur var full harðhentur við hana. Orgel var á heimilinu og sat Guð- mundur löngum við það og lék danslög, einnig áskotnaðist honum tvöföld har- monika, sem hann lék oft og mikið á. — Nokkru innan við fermingu var hann farinn að leika á dansskemmtunum, og eftirminnanlegasta ballið var á ferming- ardaginn hans. Þá stóð yfir einhvers- konar uppeldisfræðingaþing á Flateyri, sem mikið ræddi um vandamál æskunn- ar — og hélt svo ball á eftir, þar sem Guðmundur, aðeins þrettán ára gamall, lék í fermingarskrúðanum lengi fram eftir nóttu — á orgel. Guðmundur segist hafa verið 15—16 ára, þegar hann eignaðist nothæfa har- moniku og var hann nokkrum vikum síðar ráðinn til að leika á Hótel Helga- felli í Stykkishólmi. Hann var ráðinn upp á fast mánaðarkaup og lék hann þar í tæpt ár. Hann lék á böllum um helgar og svo ef eitthvað var um að vera á hótelinu, þá var hann sendur niður í sal til að skemmta gestunum. Þá gengdi hann og starfi heillar hljómsveitar, þegar hann lék í sjónleik, sem þarna var sýndur — lék á milli þátta og líkaði Hólmurum vel. Síðan fór hann til ísafjarðar, þar sem hann vann alla algenga vinnu og spil- 4 flaizLUíÍ

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.