Morgunblaðið - 15.05.1928, Blaðsíða 3
MO-ROFNBLAÐTÐ
3 '
MORGUNBLAÐIÐ
Btofnandl: Vilh; Finsen.
tJtfcjefandi: Fjelag í Reykjavlk.
Ritatjórar: .16n Kjartansson.
\raltýr Stefánsson.
Auglýöingrastjóri: E. Hafberg.
Skrlfstofa Austurstræíi 8.
Síml nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Keimaslmar:
Jön Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Aj#kriftag:jald:
Innanlands kr. 2.00 á mánutSi.
Utanlands kr. 2.50 - —
I Jausasölii 10 aura eintakib.
'x-trzztmjr&ntæm
Erlendar símfregmv.
Khöfn 13. raaí. F.B.
Japanar leita samþykkis
stórveldanna.
Frá London er símað: Blaðið
Daily Telegraph skýrir frá því,
að japanska stjórnin muni hafa
farið. þess á leit við stórveldin,
að þau leyfi Japönum að þeir
kernemi sjö enskra mílna belti
hringinn í kringum Tientsin. Ef
leyfi stórveldanna fengist og Jap-
anar hefði her manns á þessu
svæði, þá mundi það leiða það af
sjer, að þjóðernissinnum reyndist
erfitt að taka Peking herskildi.
Stórveldin, en einkum þó Banda-
xíkin, ern t.alin vera mótfallin því,
að Japönum verði veitt leyfi til
þessa.
Blaðasýning í Köln.
Frá Köln er símað: Alheims-
sýning blaðanna var opnuð í gær
að viðstöddu miklu fjölmenni. —
Viðstaddir voru fulltróar frá
fjörutín og þremur löndum.
að her Japana í Kína skuli hætta
öllum hernaðaraðgerðum, þar sem
ástandið sje nú viðunandi.
Deilur Lithauen og Póllands.
Frá Berlín er símað: Lithauen
hefir felt tillögu Póllands um ör-
yggissamning á milli Póllands og
Lithauen. Mikill mannfjoldi safn-
aðist saman í Kovno í gær og ljet
í Ijós andúð gegn fulltrúum Pól-
lands, sem sömdu við Lithauen.
Lögreglan neyddist til þess að
skerast í leikinn.
Stýfing í Grikklandi.
Frá Aþenuborg er símað: Stjórn
in í Grilcklandi hefir samþykt
verðfestingu. Þrjii hundruð sjötíu
og fimm drökmur jafngilda einu
sterlingspundi.
Frá 5?y3 sfirð.
Seyðisfirði 14. maí. F. B,-
Garðavinna byrjaði snemma í
ár. Vár byrjað að setja í kartöflu
og rófnagarða í maíbyrjun. Þorsk
afli góður, síldarvart öðru hvoru,
mokfiski sagt á Hvalbak.
Barnaskólaprófi lokið, uppsögn
skólans fer fram á morgun. —
Kenslu nutu 75 börn í vetur.
Sauðburður byrjaður. Öndvegis-
tíð.
Finnur pröf. lónsnon
lætur af embætti.
muaMf
r.u-
umJ
Taka flest menningarlönd
heimsins þátt í henni. íslandi er
þar ætluð sjerstök sýningardeild
og stendur prófessor H. Erkes fyr-
ir því. íslendingar hafa sjálfir
ækki átt neinn þátt að þessu, og
er ekki að vita hvernig það gefst.
Mun íslandsvinafjelagið þýska
liafa gert það á sitt eindæmi. í
•sambandi við sýninguna verða
haldnir 200 functir eða ráðstefnur.
Myndin lijer að ofan er af einni
•sýmngarhöllinni. Er á henni turn
85 metra hár.
Khöfn 14. maí. F.B.
Frá Kína.
Frá Peking ei* símað: Norður-
herinn flytur frá öllum vígstöðv-
unum. Suðurherinn nálgast Ti-
entsin. Vestúrhluti Shantung-hjer-
aðs er algerlega hernuminn af
Japönum.
Frá Tokio er símað: Japanska
herstjórnin hefir skipað svo fýrir,
Finnur -Tónsson prófessor hjelt
seinasta, háskólafyrirlestur sinn á
föstudaginn. Öll sæti í salnum
voru skipúð stúdentum og auk
þess voru þar prófessorarnir Vil-
lielm Andersen, Hans Brix, Brönd-
um Nielsen, Arup og Hammerich.
Kennarastóllinn var rósum skreytt
ur og er prófessorinn kom inn var
honum tekið með fagnaðarópum,
en ungur stúdent, Alf Henriques
hafði orð fyrir fjelögum sínnm,
færði honum þakkir þeirra og
fagran silfurbikar með blómum.
Prófessorinn þakkaði með hjart
næmum orðum og flutti síðan sein
asta fýrirlestur sinn. Að honum
lolcnum þakkaði Hans Brix pró-
fessor dr. Finni fyrir hönd hinna
eldri kennara, það fordæmi, sem
hann hefði gefið í 40 ár, skarp-
skygni lians, nákvæxnni og ást á
mentagrein sinni, dug lians og
djörfung þegar á þurfti að lialda,
t. d. í því að ráðast á hinar hæpnu
lcenningár Soi>hus Bugge. Síðan
talaði Vilhelm Andersen, sem er
einn af lærisveinum Finns og
mælti: „Þjer hafið orðið góður
Dani, jafnframt því að vera góður
íslendingur. Vjer þökkum yður
líka fyrir það. Þjer hafið lialdið
við sambandi norrænnar menn-
ingar og það samband má aldrei
bila.“
Finnur prófessor tók í hönd
samverkamanns síns og þakkaði
síðan ölluni enn á ný hjartanlega.
Og í seinasta sinn gekk hann úr
kenslustólnum og fylgdu honum
innilegar árnaðaróskir gamalla og
nýrra lærisveina hans.
(Tilk. frá sendiherýa Dana).
Finnlandsförin. Samkv. einka-
skeyti á konungsskipið „Niels
Juul“, sem þeir eru á konungur
vor, Moltesen utanríkisráðherra
og Ttyggvi Þórhallsson forsætis-
ráðherra, að kasta akkerum á
Helsingforshöfn kl. 11.30 f. h. í
dag. Relander forseti kemur þá
um borð til að bjóða gestina vel-
ltomna.
Veðrið (í gærkvöldi kl. 5). All-
djúp lægð fyrir norðaustan land.
Vestan hvassvirði á N- og A-landi,
en úrkomulaust. Vestan stinnings-
kaldi og skúrir á SV-landi. 15—
16 stiga hiti víða á Austurlandi.
Skamt fyrir norðan landið er
fremur kaldur norðanvindur. Og
því útlit fyrir kuldakast á Norð-
urlandi.
Veðurútlit í dag: NV stinnings-
kaldi. Skúrir.
Sundkensla byrjaði að Álafossi
í gær hjá Sigurjóni Pjetúrssyni,
í hinni ágætu laug ofan við foss-
inn. Sundkenmri er Sveinn Þór-
arinsson málari frá Kílakoti í
Kelduhverfi. — Nemendur verða
mjög margir, líklega eitthvað um
40.
Jón H. Þorbergsson flytur frá
Bessastöðum að Laxamýri í Þing-
eyjarsýslu seint í þessum mánuði.
Hann biður Morgunblaðið að bera
öllum kunningjum sínum, sem
banii nær ekki til áður en bann
fer, kveðju sína og árnaðaróskir.
Útgefendnr biður hann að senda
sjer blöð og tímarit norður til
Hiísavíkur og heimta ándvírði
þeirra með póstkröfu.
Knattspyrna yar háð á íþrótta-
vellinum á sunnudaginn milli K.
It. og Englendinga af skipinu
„Knebwortb“. — Var skipstjóri
sjálfur, stýrimaður og fleiri yfir-
menn skipsins meðal leikenda. Úr-
slit urðu þau, að. K. R. sig'raði
með 14 : 0. Báru Bretarnir hið
mesta hrós á K. R. menn og sögðu
að þeir mundu verða teknir í ensk
knattspyrnufjelög, sem iðka kapp-
leika, ef þeir kæmi út.
Söng’skemtun, Blandað kór, sem
Jón Halldórsson hefir verið að
æfa að undanförnn, fór suðúr til
Vífilsstaða á sunnudaginn og
'■kemti sjúklingum með söng. Var
það áður venja Karlakórs K. F.
U, M. að fara til Vífilsstaða og
endurtaka þar söngskemtanir þær,
er bæjarbúar böfðu áður hlýtt á.
’> nú ljet þetta kór sjúklingana
sitja fyrir því að heyra til sín,
Það mun syngja opinberlega hjer
í Reykjavík áður en langt um
líður.
Hjálpræðisherinn heldur vorhá-
tíð sína í kvöld kl. 8. Eyjólfur
Jónsson rakari les upp. Ka'rlakór
frá St. Skjaldbreið syngur, for-
ingjar Hjálpræðishersins í Færeyj-
um syngja færeyska söngva o.
fl. verður þar til skemtunar.
Togaramir. — Tryggvi gamli,
Karlsefni, Otur, Egill Skallagríms-
son og Kári Sölmundarson eru ný-
komnir af veiðum, allir fullhlaðn-
ir. Er það mestmegnis smáfiskur
ng millifiskur, sem þeir hafa feng-
ið og er lifrarlítill — voru skipin
með 60—70 tunnur.
„Æfintýri á g'önguför" verður
leikið ■ í kvöld. Aðgöngumiða til
kvöldsins má panta í síma 191,
annars seldir frá 10—12 og eftir
2 í dag.
Línuveiðaraeigendur við Faxa-
flóa koma saman á Hótel Hekla í
kvöld ld. 8 til þess að ræða um
komandi síldarvertíð o. fl.
akandi eftir Klapparstíg og er
sýnilega að flýta sjer alveg eins
og lífið liggi við. Skamt fyrir of-
an Laugaveginn stendur heljar-
mikill staur úti í götujaðri, rjett
við eystri gangstjettina. Staurinn:
er bæði hár og digur, og ófúinn.
Hann ber uppi brunasíma og raf-
síma. Bifreiðin rennir beint á
staurinn og varð höggið svo mik-
ið, að liinn mikli stólpi þverbrotn-
aði á tveimur stöðum eins og
hann hefði verið höggvinn sund-1
ur. Hrökk hann upp á gangstjett-;
ina, kom niður á endann og fjell;
svo með braki og bramli, en húsin
í nágrenninu ljeku á þræði og var
sem brothljóð í hverju bandi, er
símarnir slitnuðu. Bifreiðin stað-
næmist, bifreiðarst jórinn kemur
út og borfir um stund á staurinn.
„Þetta er ljótt,“ segir hann, stíg-
ur svo upp í bifreiðina aftur, set-
ur hreýfilinn á stað og — ekur
burt, eins og ekkert hafi í skor-
ist. Furðaði þá, sem sán, að hægt
skyldi að aka bifreiðijmi eftir
þetta mikla áfall, og ekki
skyldi mennirnir, sem í henni
voru, stórslasaðir. — Bifreiðin var
frá „Litlu bifreiðastöðinni", ogbif
reiðarst.jórinn heitir Sigurður. Á
sunnudaginn var settur upp nýr
staur í staðinn fyrir þann brotna.
Næturlæknir í nótt Ólafur Þor-
steinsson, sími 181.
„Mikill ertu munur." í höfuð-
borg Póllands vildi það til 1. maí,
að kröfugöngur sósíaldemokrata
og kommúnista mættust á torgi
einu. Varð þeim svo mikið nm að
sjást þarna á þessum hátíðisdegi,
að flokkarnir lentu í bardaga. —
Þrír menn biðu bana, en allmargir
voru fluttir særðir af vígvellinum.
Svo mikið er hatrið þar milli þess-
ára flokka. Það er eitthvað ann-
að hjer um slóðir. Danskir sósíal-
demokratar eni svo fjarri því að
amast við kommúnistum, að þeir
styrkja íslenska kommúnista með
stórfeldum fjegjöfum.
Knud Rasmussen fór með Fyllu
Í gær áleiðis til ísafjarðar og Ak-
ureyrar. Hann kemur hingað aft-
ur um næstu helgi. Hvert sæti var
skipað í Nýja Bíó á sunnudaginn,
á myndasýningu hans. Flutti hann
þar stuttan fyrirlestur um lífs-
kjör Eskimóa og tilgang sinn með
rannsóknum á högum þeirra. Þó
fjölmargir bæjarbúar hafi enn
eigi haft tækifæri til þess að hlusta
á hann og sjá myndir hans, tekst
sennilega elcki að fá hann til þess
að halda hjer fleiri myndasýning-
ar og fyrtrlestra. Enn hefir mest-
allur tími lians hjer farið í fyrir-
lestrana. En hann lcom hingað m.
í). til þess að kynnast landi og
þjóð.
G.s. fsland kom frá Höfn á
sunnudagskyöld. Meðal farþega
voru: Frú Soffja Kvaran, Ásgeir
Pjetursson kanpm., Páll -Ölafsson
framkv.stj., Páll Bjarnason lögfr.,
H. Thors, Lorentz Thors, L. Kaab-
er bankastj., Sig. Kristjánsson,
ungfrú Margrjet Sveinsdóttir, Sig
ríður Hallgrímsdóttir, frú Zwads-
by, ungfr. Matth. Helgason, Val-
gerður Sæmundsdóttir, Odda Sæ-
mundsdóttir o. fl. Alls um 50 far-
þegar. — Skipið fer í kvöld kl. 6
til Norðurlandsins með fjölda far-
þega. Meðal annars: Sigurjón
Jónsson útibústj. og frú, Magnús
Thorberg útg.m., Árni Helgason
læknir, Kristinn Magnússon versl-
unarm., Björn Arnórsson kaupm.,
Axel Arnfjörð, Karl Einarsson
fyrv. sýslum., Þorgeir Jónasson
kaupm., Elías Halldórsson, Páll
Guðmundsson, ’ Grímur Bjamason
og Magnús Björnsson tollverðir
o. m. fl.
í „Politiken" frá 5. þ. m. er
kjallaragrein eftir Guðmund Finn-
bogason, þar sem hann gerir grein
fyrir tillögum þeim er hann rit-
, aði um í bólt sinni „stjórnarbót",
og' miða að því að koma í veg fyr-
! ir ófrið.
UPDhOð
veröur halðið að Bessa-
stöðum á Álftanesi, mið-
vikudaginn 23. þ. m. ki.
1 e m.
Þar verða seldir ýms-
ir búsmunir, svo sem:
kerrur og ýms áhold.
t
Ný tegnnd
jurtasmjörlíki
78 anra
alveg nýkomið
Irma
Smjörlíkissjerverslunin,
Hafnarstræti 22.
Jeg hefi flutt vinnustofu
mina í Midstræti 12.
Guðrún Jónsdóttir,
straukona.
Ditrkopp
■WMt
m
'S
saumavjelar, hand-
snúnar og stignar,
fyrirliggjanði.
Verslunin
lðn Björnsson 6 Go.
lliijið bier megrast?
notiö þá
Oftmos-bftði
0; 2L . jþ . ' ; • .v ,-v
4 Við hvert bað Ijettist þjer
• a!t ad 500 grðmm.
-Í!)
3 Fæst i
Laugavegs RpöfgkS.
SfTT,l 21
*] Iráma 2.12?
Bifreið stangast við staur. Það Bretar og „bretaveig". Heyrst
var á sunnudagsmorgun kl. 5. — hefir að enskir ferðalangar, sem
Veður var kýrt og hjart og dagur ætluðu sjer að heimsækja ísland
á lofti fvrir löngu. Bifreið kemur í sumar, gangi óðum aftur úr