Morgunblaðið - 20.06.1930, Blaðsíða 5
Föstudaginn 20. júní 1930.
5
Qkuskrifstoía tllbina sliátlðarTnnar tilkynnir
Reglur
um akstnr á Þiasvailaveginnni
nm Alþingishátíáina.
Frá 25. júní að morgni til 29.
júní að kvöldi gilda eftirfarandi
reglur um akstur á báðum Þing-
vallavegunum.
1. Hinn 25., 26. og 27. júní eiga
allar bifreiðar að aka austur eftir
gamla veginum og suður eftir nýja
veginum. 28. og 29. júní verður
þessu snúið við. Þá verður ekið
suður eftir gamla veginum, og
austur eftir nýja ve'ginum. Varð-
menn verða á öllum vegamótum
til þess að sjá um að þessu verði
hlýtt.
2. Fólksflutningur frá ökuskrif
stofunni gengur fyrir öllum öðrum
akstri um veginn 25.—29. júní.
Þess vegna verða þeir sem ætía að
annast að efinhverju leyti fólks-
flutning til Þingvalla úr öðrum
hje'ruðum þessa daga, að liaga ferð
um sínum í samráði við ökuskrif-
stofuna.
3. Þessa daga frá kl. 6 að
morgni til kl. 12 að kveldi, verður
engum bifreiðum með vöruflutning
leyft að fara um veginn. Allur
vöruflutningur fer fram á nótt-
unni frá kl. 12—6. Kl. 6 að morgni
má engin vöruflutningabifreið vera
á veginum.
4. Bifreiðum einstakra manna
verður aðeins leyft að fara um
veginn hvern dag svo sem hjer
segir:
Frá Reykjavík kl. 7—9 árd.
— ----- — 1—2 e. h.
— ----- — 6—7 e. h.
Frá Þinvöllum kl. 9—10 árd.
— ----- — 3— 4 e. h.
— ----- —10—11 e .h.
•
Á öðrum tímum verður umfe'rð
einkabifreiða ekki leyfð um veg-
inn.
5. Þeir bifreiðaeigendur sem
hafa liugsað sjer að aka fólki til
eða frá Þingvöllum gegn gjaldi,
ve'rða að láta bifreiðar sínar til
nmráða ökuskrifstofunnar, að öðr-
um kosti verður þeim ekki heimil-
að að aka um veginn.
6. Bngum bifreiðum verður
leyfð umferð um veginn nema þær
sjeu í fullkomnu standi, svo að um-
ferðin verði e'kki heft vegna bilana
sem stafa af ljelegu ástandi bif-
reiðanna.
7. Engin bifreið má aka fram
lir annari áu | css að sjerstaklega
standi á, svo sem ef bifreið bilar
á veginum. Bifreiðarstjórar verða
að gæta hinnar ýtrustu varúðar í
hvívetna.
Isleniklr munlr
.teknir til sölu á skrifstofu
Ferðafjelagsins Heklu.
(Frá 21. þ. m. í Mjólkurfjelagshúsinu niðri).
nmingishðiiðin.
I VALHÖLL vatnar fjórar stúlkur við uppþvott, og
nokkrar viS framreiðslu.
Upplýsingar hjá frú Theódóru Sveinsdóttur, Kirkju-
torgi 4.
Theodor Johnsson.
ísinnsku snilii
með myaiium nr (slendingasögnnnm,
ern komin.
Kaupmenn og kaupf jelög geta pantað þau hjá Tryggva
Magnússyni, Grundarstíg 2. — Sími 2176.
Friðiintur GBðifinssun.
40 ára leikafmæli.
í dag á einhver elsti og merk-
asti leikari þessa lands, 40 ára
leikafmæli. Kannast hver einasti
Reykvíkingur, sem kominn er til
vits og ára við manninn, því
ekki erú þær svo fáar ánægju-
stundirnar, sem Friðfinnur Guo-
jónsson hefir veitt leikhúsgest-
um þessa bæjar, en hlutverkin,
sem hann hefir leikið um dag-
ana verða vart með tölum talin,
og efa jeg, að nokkur annar ís-
lenskur leikari hafi leikið fleiri
hlutverk en hann.
Mann furðar á því, að Frið-
finnur skuli vera orðinn svona
gamall. — Fæstir leikarar geta
litið um öxl og bent á 40 ára ó-
slitið starf í þágu listarinnar. —
Fáum er svo mikill starfsþrótt-
Friðfinnur Guðjónsson
ur gefinn, og sjaldgæfir eru slík-
ir áhugamenn, að þeir gefist
ekki upp, þó á skemmra skeiði
væri. En Friðfinnur er enn í
dag ungur í anda og áhugi hans
er óbilandi. Á síðastliðnu hausti
tók hann að sjer formannsstörf-
fn í Leikfjelagi Reykjavíkur, því
fjelaginu, sem hann hefir starf-
að með frá því að það var stofn-
að, og sýnir það eitt með öðru á-
huga hans, að hann, gamall mað-
urinn, tekur að sjer umsvifa-
mikil og þreytandi formanns-
störf. En á síðari árum hefir
hann hvað eftir annað sýnt það,
að hann á enn gnógt skapandi
hæfileika, sem leikarí.
Fyrsta hlutverkið, sem Frið-
finnur ljek, var lítið hlutverk 1
sjónleiknum „Helga magra“ eft-
ir Matthías Jochumsson. — Var
sjónleikurinn sýndur á Akureyri
20. júní 1890 í sambandi við þús
und ára minnig Eyjafjarðarbygð
ar, en í fyrsta skifti, sem hann
ljek hjer í Reykjavík, var tveim-
ur árum síðar. Á síðari árum
hefir Friðfinnur Guðjónsson leik
ið sum bestu hlutverk sín, vil jeg
sjerstaklega nefna Argcm í 1-
myndunarveikinni eftir Moliere.
Hefi jeg haft tækifæri til þess
að gera samanburð á meðferð
Friðfinns á þessu hlutverki og
meðferð danska leikarans Ein-
irs Juels á sama hlutverkinu, og
hallaði síst á íslenska leikarann.
í örsmáum hlutverkum hefir
Friðfinnur skapað lifandi per-
sónur, sem minnisstæðar munu
þeim, er sjeð hafa. Mætti nefna
Jón bónda í Fjalla Eyvindi, en
um það hlutverk hefir Bjarni
Jónsson frá Vogi sagt, „að þeim
karli hefði hann viljað kynnast
betur", svo saknaði hann karls-
ins, er hann hvarf af leiksvið-
nu eftir að hafa hinar fáu, ó-
Tleymanlegu setningar um há-
''arlinn, brennivínið og kvenfólk-
ið, sem skáídið leggur honum í
munn; en hlutverk þetta leikur
Friðfinnur nú á 40 ára leikaf-
mæli sínu í kvöld.
L. S.
íslenska songmóíið.
Eins og mörgum er kunnugt var
stofnað hjer samband íslenskra
karlakóra árið 1929. Til þessa lief-
ir verið allhljótt um starfsemi sam- .
bandsins, en nú á Alþingishátíðinni
verður þögnin rofin með djarfle'g-
um söng 150 karlmanna. Áður en
Sambandið varð til, sungu kórin
hvert í sínu horni, um beina sam-
vinnu milli þeirra var ekki að
ræða og sundin milli landshlutanna
voru að þessu leyti óbrúuð. Verður
það að teljast mildð framfaraspor
í hljómlistarviðleitni Islendinga að
úr þessu hefir verið bætt. Fyrst
og fremst geta landsmenn vænst
þess lijer e'ftir að fá að heyra
stórfenglegri söng en liingað til
hefir verið kóstur á, en um le'ið er
trygð samvinna og viðltynning
þeirra manna, sem eiga sönglistina
sem sameiginlegt áhugamál.
í sambandi íslenskra karlakóra
eru þessi sex lcarlakór: Karlakór
Isafjarðar, söngstjóri Jónas Tómas
son tónskáld, meðlimir 20. Karla-
kór Siglufjarðar, söngstjóri Þor-
móður Eyjólfsson ræðismaður, með
limir 20. Söngfjelagið Geysir Ak-
ureyri, söngstjóri Ingimundur
Árnason frá Grenivík, meðlimir 28.
Karlakór Reykjavíkur, söngstjóri
Sigurður Þórðarson, meðlimir 34.
Karlakór K. F. U. M., söngstjóri
Jón Halldórsson ríkisfjehirðir, með
limir 38. Söngfjelag Stúdenta,
söngstjóri Páll Isólfsson organleik-
ari, meðlimir 14.
Til þessa he'fir starf Sambands-
ins einkum verið það, að undirbúa
og’ hrinda í framkvæmd söngmót-
inu-nú x sumar. í allan vetur hefir
verið sleitulaust unnið. Flestir af
söngmönnunum hafa notið kenslú
Sig. Birkis söngkennara að meira
eða rninna leyti, en auk þe'ss æft
þau lög, sem sungin verða, hver í
sínu fjelagi. Tilhögun mótsins verð
ur í stuttu máli þessi: Sungið verð
ur á Þingvöllum síðasta dag Al-
þingishátíðar og syngja þá öll kór-
in saman undir stjórn Jóns Hall-
dórssonar ríkisfjehirðis, en hann
hefir verið kjörinn sem söngstjóri
þá er öll kórin syngja saman. Þe'ss
má geta, að hann sókti xitanbæjar-
kórin heim á síðastliðnum vetri,
og lauk hann lofsorði á söng þeirra
Aðal-söngmótið verður síðan háð
í Reykjavík dagana 2. og 3. júlí.
Sungið verður í Gamla Bíó að
kvöldi báða dagana. Eftir samsöng
inn verður veisla á Hótel Borg fyr-
ir söngmennina. Á þessum 2 sam-
söngvum syngja allir söngmennirn
ir (um 150 meún) saman 10—12
Jög undir stjórn Jóns Halldórsson-
ar, en auk þess kemur hvert kór
fram sjerstaklega undir stjórn síns
söngstjóra. Alls munu vera á tak-
teinum 40—50 lög og mörg þeirra
góðir kunningjar og gullfalleg.
Það má því vera bæjarbúum ó-
blandið fagnaðarefni að eiga von á
þessari sjaldgæfu og stórfenglegu
skemtxm, þar sem þetta verður
stærsta karlakór ,sem sungið hefir
hjer á landi. Alþingishátíðargest-
irnir geta líka hlakkað til, að fá
að heyra þennan söng í hinni veg-
legustu sönghöll ísleúskrar nátt-
úru — hamraborginni á Þingvöll-
i um. Auk þess hefir Sambandið heit
Saltkjöt
í tunnum og smærri vigt. Hangi-
kjöt. Frosin dilkalæri. Silungur.
Reyktur rauðmagi. Nýsoðinn og
súrsaður hvalur. Sauðatólg.
Yörur sendar heim.
Versl. BjiðrniiKn.
Bergsstaðastræti 35. Sími 1091»
ppSMKBRl
Nokkrar stúlkur geta fengið at-
vinnu hjer í bænum dagana 23. til
30. júní. Gott kaup.
Httfnm ávalt
fyrirliggjandi:
Gr. Ertur Extra fínar.
Gr. Ertur Fínar.
Gr. Ertur Miðlungs.
Gr. Ertur Grófar.
Belgjabaunir.
Tomato Purée.
Champignous.
Carotter.
Asparger.
Capers.
Bouillon.
H, Ólafsson &
Beruböft.
Símar 2090 og 1609.
Hásgagnaverslnn
Reykjavíbnr.
Vatnsstíg 3. -Sími 1940.
Mikið úrval af alls konar hús-
gögnum: Reykborð, Stofuborð (úr
eik og mahogni), Stráborð, Bam-
busborð, Strástólar, Borðstofuborð
og stólar, Bamakerrur, vagnar og
vöggur. — Alls konar leikföng,
Ferðatöskur, Beddar, Borð og
Stólar í tjöldin á Þingvöllum. —-
---Alt með lægsta verði. -
Soussa
eru bestu egypsku Oignrettursar,
20 st. pabki
á kr. 1.25.