Morgunblaðið - 15.03.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.03.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAVI* s 3ftorgtntH*M& ] H.f. Arvakur, RtTkltTlk, Rltatjðrar: Jðn KJartanaaon. ValtjT Btefánaaoe. j Rltatjðrn og afgreiOala: Auaturatrœtl 8. — Sfaal 1(00. ( Aurlýainaaatjðrl: B. Hafbarg. 5 Auclýalngraakrlfatofa: Auaturatrœtl 17. — Slaal (700 ' Haiaaaafaaar: j Jðn KJartanaaon nr. (7<I. Valtýr Stef&naaon nr. 41(0. B. Hafberr nr. (770. XakrtftarJald: Innanlanda kr. (.00 á aeánnVi. Ctanlanda kr. (.50 A atánuBli 1 lauaaaölu 10 anrn alntakl*. (0 anra maS Leabák. * Síðan Austurbæjarskólinn tók ■iil starfa, hefir skólinn að mestu verið látinn afskiftalaus í blöð- nm bæjarins, blaðamenn o. a. lát- ið sögusagnir og orðróm, um hann, sem vind um eyrun þjóta. Þegar þess er gætt, hve geysi- þýðingarmikið starf barnaskól- ,anna er fyrir hina uppvaxandi kynslóð, og alla framtíð bæjar- f jelagsins, verður eigi annað sagt, «en tómlæti blaðanna, bæjarmanna >og þó einkum foreldrar sem börn ■sín eiga í skólanum, sje mjög varhugavert. Bn afsökun er fyrir hendi. Hún •er sú, að menn hafa í lengstu lög vifjað vona, að þeir tiltölulega fáu ■starfsmenn skólans, er lakast hafa reynst starfi sínu vaxnir, sæju að sjer, breyttu um stefnu í starf- inu af sjálfsdáðum, tækju sjer til «eftirbreytni þá menn innan vje- ’banda skólans, sem best standa í stöðu sinni, og mætti þetta verða án þess til opinberra umvandana, kæmi, og rekistefnu, sem truflað •gæti starfsemi skólans í bili. Síðan dregið hefir úr áhrifum •skólastjóra, Sigurðar Thorlacius- =ar, og hann hefir lítið sem ekk- ■«rt skift sjer persónulega af stjórn skólans, er það almannarómur, að kensluástand, agi og stjórn hafi ‘breyst þar til batnaðar. En nú hafa hinir innilegustu fylgismenn Hrifluriga, er við •skólann starfa, tekið upp á því, að flytja með offorsi og frekju háfleygt lof um Sigurð Thorlacius í þeim augljósa tilgangi, að slá ryki i augu bæjarmanna. Ofstopamennirnir meðal starfs- -manna skólans, mennirnir, sem með framkomu sinni sýna og sanna, að þeir eru lakast til þess ‘fallnir að vera kennarar og leið- ‘beinendur æskulýðsins, ætla sem -sje ekki að bæta ráð sitt. ekki að sleppa þeim tökum, sem þeir hafa ’fengið á uppeldismálum Reykja- víkur, fyr en í fulla hnefana. Svar við slíkum skrifum eins «og grein er birtist í Vísi á sunnudaginn var, eftir Aðalstein 'Sigmundsson, verður' það eitt, að 'foreldrar, sem börn sín eiga í skólanum sameinast, um þá kröfu, að starfsemi skólans í heild, og kenslustarf ein.stakra kennara verði rannsakað ítarlega og gaum gæfilega. Mun sii krafa verða borin fram til sigurs, hvort sem pólitískum -gorkúlum, á sorphaug hins ís- lenska kommúnisma, eins og Aðal- ■steini Sigmundssyni, líkar betur <sða ver. molar. Fíflið. í vantrausts-skrípaleik sósíalista í sambandi við Reykjahlíðarmálið, benti dómsmálaráðlierra á, að Jón- as frá Hriflu ljeki fíflið í þessum sjónleik. Og það var vissulega ástæða til, að benda á þetta. í júlímánuði s.l. ár lætur Jónas frá Hriflu Vigfúsi Einarssyni skrifstofustjóra í tje skriflega um sögn um jarðeignina Reykjahlíð í Mosfellssveít. Þar var ekki verið að draga úr ágæti þessarar eignar, en J. J. kveðst hafa samið um- sögnina með tilliti til þess, að eignin yrði seld annað hvort rík- inu eða bæjarsjóði Reykjavíkur. 1 umsögn sinni segir J. J., að eignin Reykjahlíð sje hin „prýði- legasta“ í alla staði „jarðhitinn mikill og góður og byggingar, sem eru miklar, vel og traustlega gerðar.“ Að lokum segir J. J. ,,að jörðin muni vel fallin til ein- hverra opinberra nota, svo sem fyrir gamalmennahæli eða • eitt- hvað slíkt hæli, ef til kæmi.“ ITmsögn J. J. verður ekki mis- skilin. Þegar svo það vitnast, að M. Guðmundsson hafði gert kaup- samning um eign þessa til notkun- ar fyrir gamalmennahæli, verður T. J. æfur; hann skrifar skrif- stofustjóranum brjef, þar sem hann krefst þess að fá umsögn sína til baka og hótar skrifstofu- stjóra missi embættis og æru, ef liann ekki hlýðnast þessu boði. Sem betur fer, mun það algert einsdæmi, að maður í opinberri trúnaðarstöðu hagi sjer eins og Jónas frá Hriflu hefir hjer gert. Jarðabrask Hriflu-Jónasar. Jónas frá Hriflu hafði þá einu afsökun fram að bera fyrir fífla- látum sínum, að eignina Reykja- hlíð hefði átt að kaupa of háu verði. Og hann miðaði við fast- eignamat jarðarinnar, sem er rúmlega 30 þús. kr., taldi ófor- svaranlegt að kaupa hana hærra verði en sem svaraði fasteignamats verði. Nú er við þetta það að athuga, að fasteignamat á Reykjahlíð fór fram áður en farið var að gera jörðinni nokkuð verulegt til góða. Stórfeldar umbætur fóru fram eftir fasteignamatið. Því til sönn- unar má benda, á, að virðingamenn Ræktunarsjóðs hafa nýlega virt eignina og nam virðing þeirra um 105 þúsundum króna. En sje mi gengið út frá því, að J. J. hafi í raun og veru meint það, að fasteignamat ætti að ráða kaupverði eignarinnar. þá er rjett að líta á, hvernig hann sjálfur liegðaði sjer í þessu efni, þegar hann var að kaupa jarðir fyrir hið opinberá. Hann keypti Reykjatorfuna í Ölfusi fyrir 100 þúsund krónur. Það er meira en þrefalt fasteigna- mat. Hann keypti hálfa jörðina Laugarvatn, einnig fyrir meira en þrefalt fasteignamat. Jarðhitann í hálfu Laugarvatni mat, liann á yfir 300 þúsund krónur(!) Jarð- liitinn í Reykjahlíð er ein^Jris virði að láliti þessa sama J. J. •■— Þá ljet J. J. kirkjujarðasjóð kaupa ca. 5 hektara skika úr Reykjarhóli í Skagafirði. Öll jörðin er í fast- eignamati metin á 4200 krónur. Skiki sá er J. J. keypti er um 50. partur af jörðinni og þvi um 80 krónur að fasteignamati. En hvað gaf J. J. fyrir skikann? Hann gaf fyrir hann 12 — tólf þúsund — krónur! Hjer hefir J. J. því einnig verið að leika fíflið. Lærisveinninn og meistarinn Einn af lærisveinum Jónasar frá Hriflu, síra Sveinbjörn Högnason á Breiðabólstað, liafði löngun til að þjóna meistara sínum í sam- bandi við Reykjahlíðarmálið, en varð sjer til athlægis á tvennan hátt. Síra Sveinbjörn vildi víta dóms málaráðherra. fyrir það, að hann með samningstilboðinu um Reykja hlíð gaf Alþingi kost á að koma upp fávitahæli, án þess þingið þyrfti að leggja fram fje í stofn- kostnað. Nú hafði Efri deild í fyrra falið stjórninni, að sjá um undirbúning að stofnun fávita- hælis, og á þetta var síra Svein- birni bent. Samt sem áður hjelt hann fast við, að víta dómsmála- ráðherrann fyrir þetta. Yar ómögu legt að skilja framkomu síra Sveinbjarnar á annan hiátt en þann, að það væri vítavert hjá ráðherra að fara að vilja Alþingis. Þessi skoðun er og í samræmi við pólitískt uppeldi klerksins, því að hann hafði vanist því í stjórnartíð Hriflunga, að meistarinn færi í engu að vilja þingsins. En svo skeði það einkennilega, að læiisveinninn afneitaði meistar- anum þcgar að gamalmennahælinu kom. Síra Sveinbjörn hjelt því sem sje fram, að ekkert væri upplýst um það, að jörðin Reykjahlíð væri hentug til að hafa þar gamal- mennahæli. Var klerki þá bent á umsögn meistarans frá Hriflu, sem taldi jörðina einkar hentuga. ein- mitt til slíkrar notkunar. Klerkur vissi ekki hverju hann átti að svara, en þingmaður einn skaut fram í: „Lærisveinninn afneitar meistaranum11, og varð þá hlátur um allan þingsalinn. Yfirgangur Pólverja. Berlin, 14. mars. Pólverjar hafa fyrir skömmu safnað liði á svokallaðri Wester- platte við höfnina í Danzig. — Hefir stjórnin í Hanzig haldið því fram, að þessi liðsöfnun Pólverja sje algerlega ólögleg samkvæmt alþjóðasamningum, og var málið kært fyrir Þjóðabandalaginu. — T morgun lijelt Þjóðabandalagsráðið fund um þetta mál. og virtust all- ir á eitt sáttir um það. að frarn- ferði Pólverja væri ólöglegt, en áður en til atkvæðagreiðslu kom um nrálið, lýsti pólski utanríkis- ráðherrann því yfir, að Pólverjar myndu kalla herlið þetta heim. — (FÚ,). ______ Bankarnir í U, S. A. Neiv York City, 14. mars. ITnited Press. P. B. Eimtíu og tveir Eederal Reserve bankar hafa byrjað starfsemi sína, á ný og tuttugu og fjórir bankar aðrir. Fimtíu og níu sparisjóðir í New York borg liafa verið opnað- ir á ný. —- Harrimans National Bank & Trust Company, sem 1032 taldi 32 miljónir dollara fram til eigna, var ekki opnaður til við- slrifta, og var þá anglýst af um- sjónarmanni ríkissjóðs, að bank- annm væri lokað að lians boði. Uppistanö kommúnista á Rkureyri. Þeir hindra uppskip- un úr e.s. Novu. í fyrrakvöld barst bæjarstjórn Akureyrar hótunarbrjef frá stjórn Verkamannafjelags Akureyrar, þar sem fjelagsstjórnin tilkynti, að hún legði affermingarbann á e. s. Novu á Akureyri, ef bæjar- stjórnin hjeldi fast við samþvkt sína viðvíkjandi ákvæðisvinnu í atvinnubótavinnunni við tunnu- smíðina. Krafðist fjelagsstjórnin þess af bæjarst.jórn, að greiddur vrði kauptaxti fjelagsins í vinn- unni, og að stjórh Yerkamanna- fjelagsins rjeði hverjir fengjn mnnu við tunnusmíðina. Er bæjarstjórn samþykti að virða kröfur þessar frá kommún- istum vettugi, auglýstu kommún- istar að þeir settu verkbann á Novu. Rjett fyrir kl. 10 f.h. í gær kom Nova til Akureyrar og lagðíst upp að Torfunefsbryggjunni. Jafnskjótt og skipið var komið fjölmentu kommúnistar á bryggj- una. —- Skömmu síðar kom þangað Stein grímur .Tónsson bæjarfógeti. -— Ilöfðu kommúnistapiltar þábyrjað ræðuhöld þarna á bryggjunni. — Hafði formaður Verkamennafje- lagsins, Steingrímur Aðalsteinsson, lokið máli ^ínu er bæjarfógeti kom. En síðar töluðu þeir Jón Rafnsson iir Ey.jum og Þóroddur Guðmundsson frá Siglufirði. Bæjarfógeti vjek sjer nú að þeim og bað -þá að hverfa af bryggjunni. En þeir neituðu. — Spurði hann þá hvort, þeim væri alvara að hindra affermingu skips ins. Sögðu þeir svo vera. Gekk bæjarfógeti síðan á tal við skipstjóra og óskaði eftir því, að eigi vrði hreyft, við affermingu fvrri en kl. 1. Klukkan eitt kom bæjarfógeti að nýju á bryggjuna, og voru lög- regluþjónar bæjarins í fylgd með honum. Þá mun þar hafa verið á annað hundrað í flokki kommúnistapilta, karlar og konur. En allmargt var þar áhorfenda, eins og gengur, þar sem menn eiga von á að eitthvað sögulegt sje í vændum. Á bryggjunni við skipshliðina, þar sem vænta mátti að vörur yrðu rjettar út fyrir borðstokk- inn, höfðu kommúnistar sett bíl, og stóðu þar í hnapp. Gekk bæjarfógeti þangað og fór fram á að þeir flyttu bíl sinn. En skipverja bað hann að taka til af- fermingar. Kommúnistar hreyfðu sig hvergi og fóru að öllu sem dólgslegast. Fór bæjarfógeti þá fram á það við löglilýðna borgara er þarna væru viðstaddir, að þeir vikju flokki kommúnista frá skipinu og af bryggjunni Flokkur manna fór nú út á bryggjusporðinn. Höfðu þeir með sjer kaðal og hjeldu sjer saman í fylking. Ruddu þeir nú hægt og hægt brvggjuna, og hopuðu kom- múnistar undan, og aðrir sem á bryggjunni voru. Farm skyldi taka úr forlest Novu. Lá hún við bryggjúna með stefni til suðurs, svo uppskipun út- forlest skyldi fram fara allofar- lega á bryggjunni. En áður flokkur sá er liafði t.ek- ið s.jer fyrir hendur að ryðja bryggjuna var kominn á móts við forlest skipsins tókst kommúnist- um að skera sundur kaðalinn er fylgismenn bæ.jarfógeta hiifðu til að treysta fylking sína. Yið það sundraðist fylking sú. og urðu brátt almennar stympingar um brvggjuna og barsmíðar nokkrar, en eigi svo að nein veruleg meiðsl hlytust af. Um kl. 2 lauk viðureign þessari, án þess að kommúnistum yrði í það sinn komið af bryggjunni. En , er afferming tókst ekki lagði Nova frá bryggjunni og liggur úti á Polli. Löggœslumenn helmscekja Höshulö. Björn Blöndal ræðst inn í Saurbæ til Hösk- uldar Eyjólfssonar |____meðan fólk er í svefni Söffuleg viðureign. Seint á laugardagskvöld lagði Björn Blöndal af stað i eftir- litsferð austur yfir fjall. Segir ekki af ferðum hans fyr en hann kom að Saurbæ, bústað hins víðkunna Höskuldar Eyjólfs- sonar. Hann kom þar við fjórða mann. Þetta mun hafa verið nokkru fyrir fótaferðatíma á sunnudag, að því er heimildar- maður blaðsins best vissi. Gerði Björn löggæslumaður vart við komu sína með því að lið hans braust inn í íbúðarhúsið í Saurbæ. Eigi er þeim, sem þetta ritar, kunnugt um herbergjaskip- un þar, svo hjer verður eigi lýst hvaða hurðir voru brotnar upp: En mælt er að þær hafi verið tvær. Og er hjer var komið var hin næsta eldhúshurð og var hún lok- uð. — Nii sem aðkomumenn rjeðust að hurð þeirri, gaf húsráðandi Hösk- uldur Eyjólfsson það til kynna, en hann var þá, kominn á kreik, og var í eldhúsinu, að aðkomumenn, eða innbrotsmenn, en svo mun hann hafa nefnt þá, mættu vita það, áður en þeir brytu hfna þriðju hurð, að hann hefði byssu hlaðna í höndum, og myndi hann eigi hlífast við að skjóta á hvern þann, er hurðina bryt.i. Er eigi kunnugt um frekari orðaskifti um hinar hoknðu dyr. En svo mikið er víst, að hik kom á aðkomumenn. En síðar opnaði húsráðandi fyrir þeim dyrnar. Segir sagan, að enn hafi lög- gæslumáðurinn ekki gefið til kynna hver maðurinn var. En þeir eigi kunnugir fyr i sjón, Höskuldur og Björn. Einum af samferðamönnum Björns varð reikað inn í herbergi þar sem kona Höskuldar var fyr- ir. Er hinn ókunna óvin húsfreyju bar þar að —• hafði hún eigi önn- ur varnarvopn en næturgagn er hún tók undan rúmi sínu. Henti hún því af afli • og kom í öxl komumanni. Segir eigi frekar af viðskiftum þeirra. Að vörmu spori ltom inn í her- bergið Björn Blöndal. Fann hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.