Morgunblaðið - 14.01.1937, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.01.1937, Blaðsíða 3
Fimtudagur 14. jan. 1937. MORGUNBLAÐIÐ 20 mfn, skothrfð á Valencia FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í gær. Herskip uppreisnarmanna unnu mikið tjón á tuttugu mínútum í Valencia, höfuð- vígi spönsku stjórnarinnar í gærkvöldi. Þegar skipin hófu skot- hríðina urðu íbúarnir skelf- ingu lostnir. Þúsundir manna flúðu í kjallara, til þess að forða lífi sínu. Átta manns týndu lífi, en fjöldi særðist. Efnislegt tjón var mikið. Stjórnarliðið svaraði skot- hríðinni úr varnarvirkjum borgarinnar og eftir 20 mín., höfðu herskip Francos sig á burt. Samninganefnd á föruni til Þýskalands. Til aö semja um viðskiítamál. Nefnd er á förum hjeðan til Þýskalands til þess fyrir hönd íslensku stjórn- arinnar að semja viði þýsk stjórnarvld um viðskiftamál ríkjanna. í samninganefndinni fyrir Is- lands hönd verða þeir Sveinn Björnsson sendiherra, Jóhann Þ. Jósefsson alþm., Helgi P. Briem erindreki og Stefán Þorvarðsson fulltrúi. Ráðgert er að þeir Jóhann Þ. Jósefsson og Stefán Þorvarðsson fari af stað hjeðan á mánudag, og hitta svo hina nefndarmennina í Kaupmannahöfn. Viðskifti okkar við Þýskaland undanfarin ár hafa bygst á samn- ingum sem gerðir hafa verið frá ári til árs. Núgildandi samningur gildir til febrúarloka. Síðustu árin hafa viðskiftin við Þýskaland aukist jafnt og þjett, sjerstaklega var aukningin mikil s.l. ár. Það er hið háa verð sem fengist hefir í Þýskalandi fyrir okkar framléiðslu, sem héfir verið orsök þess, að viðskiftin hafa auk- ist. ísfisksmarkaðurinn var yfir- leitt mjög góður í Þýskalandi s.l. ár og oft ágætur; einnig var þar gott verð á landbúnaðarvörum. Væri óskandi að samninganefnd inni tækist að ná hagkvæmum samningum við Þýskaland, því okkur ríður á miklu að þau við- skifti haldi áfram að aukast. Ekkert heyrist enn um það hve- nær Bretar ætli að taka aftur upþ samninga við okkur. Er jafn- vel búist við að það geti dregist fram eftir vetri að þeir samning- ar hefjist. Næturvörður er þessa viku í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð- inni Iðunn. ,KðnIgsbergM — skipið sem ógnaði friðniiiKi í Evrópu. Þýska herskipið „Königs berg“, sem tók tvö spönsk skip fyrir utan Spánarstrendur. Allar tillögur Sjalfstæðismanna samþyktar með atkvæðum þorra fundarmanna. Samfylkingarliðið stendur eitt um sínar tillðgur. Þingmálafundur var haldinn í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld, og boðuðu fundinn í sam- einingu þeir Jóhann Þ. Jósefsson alþm. og Pál! Þorbjörnsson alþm. Fundurinn var fjölmennur og er talið að um 500 manns hafi verið á fundi, þegar flest var. Þamiig stóð á, að kommúnistar höfðu boðað skemtisamkomu þetta kvöld, en aflýstu henm á síðustu stundu og smöluðu i þess stað öllu liðimi á þingmálafundinn. Voru þetta aðallega unglingar! Þetta varð til þess að mörg hundruð kjósendur urðu frá að hverfa, vegna þess að fundarhúsið rúmaði ekki nálægt því alla, sem vildu sitja fundinn. Allar tillögur Sjálfstæðismanna samþyktar. Jóhann Þ. Jósefssou alþm. hóf umræður á fundinum og flut.ti þar snjalla ræðu. Hann bar fram margar tillögur á fuiidinum, ýmist uip lands- eða hjeraðsmál. Allar tillögur hans voru sam- þyktar og- fengu þær tillögur — og annara Sjálfstæðismanna — langsamlega flest atkvæði fundar- manna. Meðal þeirra tillagna sem Jóh. Jós. flutti var ein þess efnis, að lýsa yfir því, að á síðustu þing- um hafi verið gengið svo langt í skattaálögu á landsmenn, að ei væri viðunandi, og skoraði á þing og stjórn að ljetta á skattabyrð- inni. Ennfremur tillaga um það, að Vestmannaeyjar hafi 2 síðustu ár- in verið afskiftar með atvinnu- bótafje, og skorað á Alþingi að veita Vestmannaeyjum jafnrjetti í þessu við önnur bæjarfjelög. Ólafur Auðunsson útgerðarmað- ur og bæjarfulltrúi flutti tillögu þess efnis, að skora á Alþingi að afgreiða nú í vetur lög um tekju- öflun bæjar- og sveitarfjelaga, og setja, allsherjar reglur um útsvars- álagninu, hliðstæðar skattalög- gjöfinni. Guðmundur Einarsson, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðismanna, flutti ítarlega tillögu um víðtækar um- bætur á tryggingarlögunum. Allar þessar tillögur, og aðrár frá Sjálfstæðismönnum, voru sam- þyktar með atkvæðum alls þorra fundarmanna. Samfylkingin að verki. Komu nú samfylkingarni'eiin fram á sjónarsviðið, undir for- ystu Jóns Rafnssonar og Páls Þor- björnssonar. Þeir studdu hvor annan í einu og öllu. Jón Rafnsson flutti fyrir hönd kommúnista (og samfylkingarinn- ar) tillögu í mörgum liðum, og var efnið þetta: 1. Að hækka stórlega fje til at- vinnubóta og útvega kaupstöðun- um rekstrarfje. 2. Yfirráð fisksölunnar úr hönd- um „hringanna“ — þ. e. samtök- um utgerðarmanna. 3. Leyfa ekki heildsölum neinn innflutning. 4. Krafa um endurskoðun milli- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. — „Britannia — rules the waves“ London í gær F.Ú. Vopnaður togari, í þjón- ustu uppreisnarmanna stöðv- aði í gærkvöldi breskt flutn- ingaskip, Bramhill, í Gibralt- arsundi. Eigendur þess segja, að það hafi einungis verið með löglegan farm. Bram- hill sendi út neyðarmerki og herskipið Sussex brá við. Skip uppreisnarmanna hafði sig á brott. Eftir loftárás: Nokkur hluti Malaga í björtu báli. OSLO í GÆR. Samkvæmt ýmsum fregnum var loftárásin á Malaga í fyrradag hin ógurlegasta. Sex flugvjelar uppreisnarmanna vörpuðu í- kveikjusprengjum yfir horgina, en um leið skutu tvö beitiskip, sem uppreisnarmenn hafa á valdi sínu, um 200 skotum á bæinn. Nokkur hluti bæjarins'er sagður standa í ljósum loga. Skipin „Saga“ frá Haugasundi og danska skipið Signe voru við bryggjur í Malaga, er þetta gerð- ist. Lögðu þau þegar frá hryggju og sigldu með fullum hraða í átt- ina til Gibraltar. Bæði skipin eru nú komin þangað ósködduð. Skip- stjórinn á „Saga“ segir, að brot úr sprengikúlu liafi valdið dálitlu tjópi á reykháfi skipsins. (NRP. — FB.). Landsþingsmaður Færeyinga, Poul Niclasen, hefir beðið þing- menn jafnaðaímanna á lögþing- inu í Færeyjum um leyfi til þess að mega greiða atkvæði með full- trúum jafnaðarmanna í danska landsþinginu. (FÚ.). 3- Ekkert nýlt i Landsbanka- mállnu. Lögregian vinnur enn að rann- sókn Lariflsbankamálsins án þess að nokkuð sje gert opinbert úr rjettarhöldunum. Vitnaleiðslur fóru frain . í mál- inu í gærdag, en ekki er kuwrtugt um hvaða árangur þær hafa borið. Rannsókn heldur áfram. Nafntogaðúr Iandkönnuður látinn. London 13. jan. F.Ú. Martin Johnson, hinú frægi dýraveiðari og kvik- myndatökumaður hefir lát- ist af sárum þeim sem hann hlaut í gær við það, að flugvjel sem hann var á ferð með, hrapaði til jarðar í Californíu. Alls voru 10 menn í flugvjelinni, og hafa nú tveir látist, en hinir eru meira og minna meiddir. Kona Johnsons er ekkí talin hættulega meidd. ‘ ------------- Furðuflugvjel yfir Noregi. OSLO t GÆR. Frá Harstad er símað að sjötta herfylki norska hersins liafi feng- * . ið skýrslu um dularfulla flugvjel, sem sást s.l. sunnudagskvöld frá l„Nátvannsuen“ milli Skoganvarre og Karsjok. Tveir menn sáu flugvjelina , og heyrðu í henni. Á henni voru stór ljós. Flugvjelin flajig allhátt og stefndi til vesturs. — Á sama stað sáust ljós og heyrðist hávaði, sem talið væri líklegt að stafaði frá flugvjelarhreyfli. (NRI’. — FB.). i | ' f rtd TJXf C i Mikil verðhækkun ð húðum og skinnum KHÖFN f GÆR, Mikil verðhækkun varð í gær á húðum og skinnum á uppböði sem‘ haldið var í Kaupmannahöfn. Bor- ið saman við upphoðið í desémbér 1936 nemur verðhéekkunin 10 % fyrir kindaskinn, fyrir kvíguhúðir 7%, fyrir kýrhúðir i4%, fyrir nautshúðir 12% og alt að 20% fyrir alikálfaskinn. Verðhækkunin stendur í sam- baudi við hið óstöðuga ásttmd á heimsmarkaðinum. íslenskiT námsmenn fá danskan styrk. KHÖFN í GÆR. Sjóður A. P. Möllers útgerðar- manns fyrir íslenska námsmenn í Kaupmannahöfn hefir veitt styrk, þeim Stefáni Arnórssyni, sem stundar nám við „Hándelsviden- skabelige Læreranstalt“, og Gísla Kristjánssyni við „Landbohöjskol-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.