Morgunblaðið - 25.04.1937, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.04.1937, Blaðsíða 5
'Sunnudagur 25. apríl 1937, 5 MORGUNBLAÐIÐ _ J^orjgttttWaðíð Útjuíef.t H.f. Árvakur, Reykjavlk. Hitstjómr: J6n Kjartanaaon og: Valtýr Stefáns*on <áL;'ri<TSarma6ur). r 'AuKlýNÍitgnn Árni Óla. UitMtjórn, Ru^lýsiiiKar ok af^relflMla» Au»tur»trœti 8 — Stml 1600. ÁM|r''tftRrju:jfil<lt kr. 3.00 á niánuBI. f I^^Mu.stílut 15 aura eintaklts — 86 aura ineO LeabOk 1 ___________________________________ _________ _____________ ' BORGARSTJÓRiNN í REYKJAVÍK. Pjetur Halldórsson borgar- stjóri verður fimtugur á morgun. Hann hefir lengi tekið mildnn þátt í ýmiskonar fjelags- starfsemi hjer í bænum, auk um- svifamikillar bókaverslunar og bókaútg'áfu. Hann hefir t, d. unnið mikið að sönglistarmálum, staðið framarlega í flokki Good- templara, haft mikil afskifti af safnaðarmálurn, verið einn af ■helstu forgöngumönnum fyrstu flugtilrauna hjer á landi, beitt sjer fyrir ræktun bæjarlandsins með starfi sínu í fjelaginu Land- nám, verið formaður Bóksalafje- lagsins og' tekið þátt í útgerðar- fjelögum. Hann hefir verið í hópi fremstu og áhrifamestu bæjar- fulltrúa Reykjavíkur alt frá því 1920, eða á mesta uppgangstíma bæjarins. Hann hefir átt sæti á „Alþing'i frá því 1932 og getið sjer þar góðan orðstír. Loks hef- ir hann verið borgarstjóri frá því 1935, er hann ljet tilleiðast að taka við þessari mjög vanda- sömu stöðn á miklum erfiðleika- tímum. Hefir hann veitt málefn- um bæjarins örugga forustu, gætt þess að rasa hvergi fyrir ráð fram, en unnið eindregið og' markvíst að lielstu framfaramál- um, svo sem hrtaveitunni. Pjetur Halldórsson hefir því fengist meira við opinber mál og átt meiri hlut að ýmiskonar fje- lagsmálum en flestir aðrir sam- tímamenn hans. , Hanu hefir þannig öðrum fremur með verk- um sínum sýnt, að hann trúir á mátt samtakanna, góðum málum til framdráttar. Þrátt fyrir þetta er Pjetri Halldórssyni ]>að Ijósara en flest- um mönnum öðrum, að með fje- lasgsamtökum og „skipulagn- ingu“ er ekki alt fengið. Honum er það Ijóst, að ef menn vilja ekki bjarga sjer sjálfir, þá geta < engar nefndir tekið af þeim ráð- ún í því efni, þó að þær geti ýmsu góðu komið til leíðar fyrir jþá, sem Iiafa bæði vilja og mann- • dóm til að standa á eigin fótum. Þessi skoðun er af ýmsum nú ,á dögurn kölluð íhaldssemi. Hjá Pjetri Halldórssyni er þetta eðli- leg afleiðing ríkustu skapeiginda hans, skyldutilfinningar, dreng- skapar og ósveig'jandi heiðar- leika. Hann hefir at' löngu starfi ‘lært, hverju er hægt að koma fram með opinberum ráðstöfun- um og' fjelagssamtökum. Hanu ■ telur það skyldu sína að vinna að öllum slíkum málum og aúII hvorki í einu nje öðru bregðast þeim, sem á hann treysta. En einmitt vegna þessa vill hann ekki ljá sig til að gefa loforð • eða þykjast ætla að gera það, ■ sem hann og aðrir vita, að er óframkvæmanlegt. Á máli góðra Islendinga Iieitir slíkt ekki í- haldssemi, heldur heiðarleiki. Það er sjálfsagður hlutur, að . á erfiðum tímum hljóta að verða skiftar skoðanir um, hver úr- ræða sjeu helst til bjargar. En um það efast áreiðanlega enginn, . jafnvel ekki svæsnasti andstæð- ; ingur hans, að alt, sem Pjetur Halldórsson gerir, það gerir hann af einlægum vilja til að gera það eitt, sem hann telur rjett. Þetta álit er flokki þeim, sem styður Pjetnr Halldórsson ómet- anlegur styrkur, og ekki flokkn- um einum heldur bæjarfjelaginu í lieild. Enda eru það áreiðan- lega ekki flokksmenn Pjeturs Halldórssonar einir, heldur miklu fleiri, sem álíta að á þeim tím- um, þegar fyrst og fremst verð- -ur að gæta þess, að alt fari ekki í auðn, en þó verður að sækja fram eftir því, sem frekast eru föng til, þá sje Pjetur Halldórs- son einmitt rjetti maðurinn til að veita málefnum borgarinnar forstöðu. GarOræktifl. Aöðrum stað lijer í blaðinu er minst á garðrækt bæj- armanna og leigugarðana hjer í bænum, eftir viðtali við Óskar Vilhjálmsson garðyrkjufræðing. Er mjög ánægjnlegt hve áhugi ínanna fyrir garðrækt fer vax- andi hjer í bænum. Garðávextirnir verða mörgum heimilum góð búdrýgindi. Þar fá luismæðurnar hina hóllustu fæðu til heimilisþarfa. Og mörg heim- ili geta unnið sjer garðvinnuna á ódýran hátt. Þar sem börn og unglingar eru vanin við garð- yrkjustörfin, fá þau störf sem þeim eru holl bæði andlega og' líkamlega. Það ber því að þakka bæjar- stjórninni skilning þann, sem hún hefir sýnt á garðræktarmál- um bæjarbúa, bæði með því mú síðast að ráða sjerstakan garð- yrkjuráðunaut bæjarbúum til leiðbeiningar og þá ekki síður hinu að láta bæjarbúum í tje lönd til gai'ðræktar. Þarf að halda þeirri starfsemi áfram og vanda undirbúning landanna sem mest þannig, að framræsla sje t. d. fullkomin, svo garðjurtir bíði ekki óþarfa hnekld af vatnsaga hvorki á vorin nje í votviðra sumrum. Garðyrkjustjórinn bendir rjetti- lega á það í grein sinni, að mjög er það leiðinlegt, að eigi sje gert neitt til þess að prýða leigugarð- ana. Þó ekki væri nema það að setja þar niður runna, er litla hirðingu þurfa, væri að því mikil hót. Ribsrunnar ná hjer miklum þroska t. d. og gefa bæði skjól í görðum og almikil ber. Eins má gróðursetja víðirunna til skjóls. Þar sem eitthvað skjól er feng-ið má svo setja niður trjáplöntur. Með því að hafa lítinn slíkan græðireit í lei'gugörðunum gætu ]>eir brátt orðið vistlegir veru- staðir á góðviðrisdögum. Sjúklingar á Vífilsstöðum hafa beðið Mbl. að flytja Karlakórn- um Vísi kærar þakkir fyrir komu þeirra og skemtun á sumardaginn fyrsta. — Keijkjavíkurbrjef — Barnavinafjelasið. arnavinafjelagið Sumargjöf á að fagna vaxandi samúð bæjarbiia. Það sýna undirtektir þær er fjársöfnun fjelagsins fekk á sumardaginn fyrsta. Er það gleðilegt tímanna tákn. Aldrei hafa barnauppeldismálin verið eins erfið og nú fyrir þjóð vora. Síðan mikill hluti æskunnar fær uppeldi sitt í kaupstöðum, en ekki í sveit, koma þar mörg við- fangsefni til greina, sem áður voru ekki til. Foreldrar, sem Iiafa fengið uppeldi sitt í sveit og not- ið hollra upeldisáhrifa sveitalífs- ins, en eiga í^ð ala upp börn sín í kaupstöðum, eiga blátt áfrain erfitt með að skilja þá æsku, sem þekkir ekki daglegt líf í sveitum, og hefir ekki öðlast þami skilning á lífskjörum, sem sveitalífi er sam- fara. Barnavinaf jelagið hefir unnið mikið og gott starf í því, að bæta kjör bágstaddra barna lijer í bæn- um. En starfsemi barnavinahna þarf xað verða víðtækari. Þeir þurfa að leg'gja rækt við þau vandamál viðvíkjandi uppeldi barnanna alment, sem aðkallandi eru, þann vanda, hvernig yfirleitt á að ala upp íslenska æsku svo vel sje, þegar hún fær uppeldi sitt „á mölinni“. BandalaRÍÖ við þjóðarhættuna. kosningariti Alþýðuflokksins frá 1934 — 4 ára áætluninni — er lögð megináhersla á, að Alþýðu flokkurinn sje lýðræðisflokkur. En svo segir með feitu letri í þessum stefnuskrárbæklingi Al- þýðuflokksins: „Risnir eru upp í landinu tveir stjórnmálaflokkar, sem sett hafa sjer það mark að afnema lýðræð- ið og þingræðið“. Þessum tveim flokkum, komm- únistaflokknum og nasistaflokkn- um, er síðan lýst, en síðan lýkur með því, að „Alþýðuflokkurinn bendir ltjósendunum á þá yfir- vofandi hættu, sem liggur í því að styðja kosningu kommúnista“. Nú er þetta alt jafnað innbyrð- is milli Alþýðu- og Kommúnista- flokksins, gleymt og' grafið. Nú undirbúa „lýðræðishetjurnar“ í Alþýðuflokknum, Hjeðinn Valdi- marsson, Jón Baldvinsson og at- vinnumálaráðherrann Haraldur Guðmundsson fullkomna samfylk ingu við einræðisflokk kommún- ista. Á samfylking þessi að opin- berast almenningi þ. 1. maí. Sjálfstæðismenn um land alt munu fagna því, að einmitt nú, þegar kosningar standa fyrir dyr um, skuli Alþýðuflokkurinn hverfa opinberlega frá braut lýð- ræðisins og sameinast þjóðarvoð- anum, sem svo fagurlega er lýst í 4. ára áætluninni. Bjargráð sósíalista. greinargerð sósíalista fyrir frumvarpi því, er þeir fluttu á þingi, er þeir nefndu skipulagn ing togaraútgerðarinnar, er því lýst, að ritgerð þessi hafi á und- anförnum árum átt við mikla erf- iðleika að etja vegna hinna al- 24. ap íl. ------------ mennu örðugleika á sölu saltfisks í aðal markaðslöndunum. Af því er það ljóst, að Alþýðu- flokkurinn viðurkennir fyllilega, að erfiðleilrar togaraútgerðarinU- ar eru af eðlilegum rótum runnir. En bjargráðið, sem þeir sósíal- istar fluttu þar, var það, að velta þessum taprekstri yfir á ríkis- sjóð og bæjarsjóði. Þá var ]>að, sem Tímamenu á Alþingi Ijetu svo, sem þeir gætu ekki eða vildu ekki lengur fylgja sósíalistum að málum í svip. Þeim þótti vissara að ganga til kosn- inga og freista hvort ekki væri liægt að halda nokkru af sveita- fylginu í Framsóknarflokknum á meðan Framsóknarbændur værn ekki alveg búnir að átta sig á því, sem stendur fyrir dyrum lijá stjórharflokkunum, að taka upp fult samstarf og- stefnu liinna rót- tæku kommúnista, sem liafa sett sjer það markmið, að „afnema þingræði og' lýðræði“. Höfuðbólið. lt kjörtímabilið hefir Fram- sóknarflokkurinn verið á þingi sem undirlægjuflokkur sós- íalistanna. Fet fyrir fet hafa Al- þýðuflokksmenn teymt þenna fyr verandi bændaflokk lengra og lengra inn á braut sósíalisma og þjóðnýtingar. Nægir í því efni að minna á, livernig skipulagsnefnd atvinnumála smeyg'ði ómenguðum ríkissósíalisma inn í Jarðræktar- lögin með jarðránsákvæði 17. greinar. En það er kannske ástæða fyrir ennverandi fylgismenn Framsókn arfl. úti mn bygðir landsins, að gefa því gaum, að Alþýðufl. ísl. er eklii eins sjálfstætt höfnðból, eins og' þeir sósíalistar halda fram í daglegu tali. Af blaðaskrifum íslenskra sósíalista, eins og Skúla nokkurs Þórðarsonar í aðalmál- gagn dönsku flokksbræðranna, verð-ur greinilega sjeð, að Alþýðu flokkm’inn hjerlenski er fyrst og fremst einskonar útibú frá víg- stöðvmn sósalismans við Eyrar- sund. Þegar þeir Alþýðuflokks- menn þykjast verða fyrir von- brigðum í samvinnunni við hinn fyrverandi bændaflokk hjer' heima, þá hlaupa þeir til og klaga í málgagni danskra sósíal- ista, yfir því, að Framsóknar- menn liafi sviltið í þjóðnýtingar- málunum (!) Sósíalistiskur atvinnurósur. n Alþýðuflokksburgeisarnir liafa sín sjerstöku þjóðráð til þess að bæta hag hinna vinn- andi stjetta í landinu. Þeir vita sem er, að togaraiitgerðin á mjög í vök að verjast og þarf á erlendn lánstrausti að lialda sí og æ, t'il þess að geta fengið nauðsynlegar framleiðsluvörur sínar. Sendimaður Alþýðuflokksins í Kaupmannahöfn, íslandsfrjettarit ari í aðalmálgagn sósíalisfanna þar, gefur þá þær upplýsingar, að flestöll íslensk togaraútgerðar- fjelög eigi ekki fyrir skuldum. Og fái ákveðin fjelög, er hann til tekur, ný lán, þá muni þau aldrei geta staðið í skilum. Er hjer beinlínis verið að gera hina lúalegustu árás á íslenskt atvinnulíf, árás, sem ekki síst bitnar á þeim mönnum, sem at- vinnu sína hafa við útgerðina. Því geta má nærri, að ef fjelög þessi liafa átt erfitt með að halda áfram rekstri sínuin, þá aukast erfiðleikarnir, þegar þau fá svo skipulagða árás í bakið, eins 'og Skúli Þórðarson er látinn s'tanda fyrir í Kaupmannahöfn. Stólfætur Hjeðins. vo segir í blaði lcommúhista hjer í bænum frá 23. nóv. 1932: ;,Á fundi þeim, sem hinir úti- lokuðu verkamannafulltrúar á Alþýðusambandsþing hjeldu > Bröttugötusalnum síðastliðið mið vikudagskvöld, sagði Jón Rafns- son, fulltrúi Sjómannafjelags Vestmannaeyja, um Hjeðrnn Valdimarsson, að stólfætnrnir, sem hann greip til á síðasta bæj- arstjórnarfundi í Reykjavík, væru þeir einu fætur, sem hann nú stæði á“. Um nokkur ár reyndi Hjeðinn að láta líta svo út, sem Jón Rafnsson hefði ekki rjett íyrir sjer í þessu efni. En nú, síðan hann leggur meg- ináherslu á, að sameinast ofbeld- isklíku kommúnistaflokksins, er auðsjeð, að hann er kominn að raun mn, að honum þýðir ekki lengur að fegra s.ig og málstað sinn með lýðræðisskrumi — of- beldi, stólfótapólitík á framvegis að vera stai'fsaðferð hans. Komm- únistinn var þetta framsýnni en Hjeðinn. Maupassant: W 1 tlrvalssögur Meinfyndnar og snjallar. Aðeins fáein eintök eftir af upplaginu. • O O • :

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.