Morgunblaðið - 27.02.1941, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.02.1941, Blaðsíða 6
Fimtudagur 27. febrúar 1941 MORGUNBLAÐIÐ LofthcrnaSurinn: .Loftið yfir Dover sundi hrannað J flugvjelum* Engir stóryiðburðu' gerðust í gœr í lofthernaðinum. Þýsk- ar flugvjelar voru víða á ‘sveimi yfir suðaustur ströndum Englands, en sprengjum var óvíða varpað niður. Breskar sprengjuflugvjelar varð ar öflijgum; sveitum örustuflug- Vjela fóru tíl árása á staði í Norð- ur-Frakklaudi og var varpað nið- ur sprengjum. Á Calais var gerð iiörð árás. Komust kvöldblöðin bresku svo að orði, að „loftið yfir Dover- isundi hefði um skeið vérið hrann- uð af flugvjelum. sem rallar voru hreskar“. « í fyrrinótt vpru gerðar árásir á iðnaðarborgir í Ruhrhjeraðinn Skákþing Reykjavíkur Síðasta uinferð á Skákþingi Reykvíkinga hefst, í kvöld kl. 8 í Góðtemplarahúsinu uppi. Flesta vinninga hafa Guðmund- ur S, Guðmundsson, Einar Þor- valdsson og Sturla Pjetursson. Guðmundur teflir með svörtu við Gttðmund Ágústsson, Sturla við Hafstein, en Einar hefir lokið sínum skákum. — Engir aðrir koma til greina um fyrsta sætið. Til eftirbreytni Nýlega kom til mín kona og afhenti mjer 100 krónur, með þeimnmmælum, að þær væru gjöf til vinnuheimilissjóðs Sam- bands ísl. þerklasjúklinga., Nafu konunnar fjekk jeg ekki að vita og var tæpléga að jeg fengi ráð- rúm tií að rjetta henni hönd mína í þakkarskyni áður en hún hvarf nt úr dyrunum. Nokkrum dögum seinna kom síra Árni Sigurðsson til min og færði mjer aðrar 100 krónur. Voru þær gjof frá annari konu í sáma augnámiði. Heldur ekki vildi sú kona láta nafns síns getið. Fyrir hönd miðstjórnar S. í. B. S. færi jeg þessum ágætu konum alúðar þákkir. Gjafir þeirra ern til hinnar mestu fyrirmyndar. Grunur minn er sá, að hvorug þessara kvenha sj’eu ríkár og er fórnarlund þeirra því að ineiri. Sýnir þetta enn sem fyr að konur eru jafnan skjótastar til að rjetta fram hjálþándi hendur þegar um • mannúðarmál er að ræða. „ Hver kemur n æst, ? Þeim, sem kynnu að vilja styrkja þetta þarfa málefni með peningagjöfum, skal á það bent, að slíkuúi gjöfum veita móttöku, auk undirritaðs, dr. theol. Eiríkur úlbert.sson, Laugaveg 76; Kristinn Stefánsson, Leifsgötu 22; Sígur- Ieifur Vagnsson, Þórsgötu 13; Gísli Guðmundsson, alþingismað- nr; Oddur Ólafsson læknir á Víf- ilsstöðum og Jón Rafnsson. Andrjes Straumland. „Sæbjöro“ sækir bát með bilaða vjel Björgunarskipið Sæbjörg hefir nóg að gera við að aðstoða fiskibáta, sem lent hafa í hrakn- ingnm. I gærmorgun fór Sæbjörg til aðstoðar v.b. Stíganda frá Sand- gerði, sem var með bilaða vjel á Sandgerðismiðum. f fyrradag kom SæbjÖrg hing- að með vjelbátinn Rúnu í eftir- dragi, eins og skýrt vár ’frá í blaðinn í gær. Vörurnar á hafnarbakkanum FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. svæðið við höfnina sje eitt saman- hangandi geymslubúr, víðáttumik- ið og eftirsóknarvert skotmark fyrir árásartæki heimaðarþjóðar. Þess þarf enginn að ganga dul- inn, að verði einhverntíma gerðar árásir á þennan bæ úr lofti, af sjó, eða hvortteggja, þá verður höfnin og umhverfi hennar fyrsta skotmarkið, sem leitað verður að. Ofan á það tjón, sem yrði í sum- um af íbiiðahverfum bæjarins bættist svo það, að mikill hluti af vÖrubirgðum bæjarbúa og raúnar landsmanna allra, eyddist af eldi vegna þess, að ekki var hirt um sem skyldi, að dreifa birgðim- um á öruggari staði jafnóðum og þær komu og tími vanst til. Hvort sem hjer er um að kenna kæruleysi viðtakenda nm að nálg- ast vöruna, tregum samgöngum, ónógu geymsluplássi eða töfnm á að fá vöruna innleysta eða af- henta, þá liggur í augum uppi, að við svo búið má ekki standa lengur. Afkoma landsmanna er svo mjög komin nndir greiðum aðflutnigni erlendrar vörn og dreifingu hennar, að allir aðilar verða að hjálpast að við að kippá þessu í bétra hörf áðúr en það er um seinan. Friðrik V. Ólafsson. Hernaðurinh í Afríku FRAMH. AF ANNARI SÍÐU ar hafa að leynilegum leiðum feng ið vopn í hendur. í Eritreu hafa Bretar einnig styrkt, aðstoðu sína og sótt lengr i fram. 1 ítölskum blöðum er lítið rætt um hernaðarhorfur í Afríku, en þjóðin hvött til þess að standa saman í blíðu sem stríðu. Segir eitt breskt blað, að fas- cistarnir sjái nú óðum þrengjast „rúm Ítalíu í sól Afríku“. Gjaldi þeir þar glópsku og græðgi Musso- linis, sem viljað hafi vera með í því uppgjöri þreska heimsveldis- ins, sem hann taldi standa fyrir dyrum, er hann kastaði Ítalíu út, í styrjöldina við hlið Þýskalands. Italir sjái nú ekki einungí-: fram á hrun nýlenduveldis síns í Afríku, heldur og missi óhemju verðmæta í herbúnaði. Þýskar herdeildir í Libyu? Frá því var skýrt í fyrsta skifti í Berlín í gœr, að þýskt herlið væri komið til Li- byu. Áður hafði Mussolini get- ið þess í ræðu sinni á sunnu- daginn, að þýsk herdeild væri komin til vígstöðvanna í Norð- ur-Afríku. í tilkynningu þýsku her- stjórnarinnar í gær er getið um orústu milli þýskra og breskra vjelahersveita hjá Agedabia, 145 km. fyrir sunn- an Benghazi. I London er skýrt frá því, að þar sje ekki kunnugt um að nein átök hafi átt sjer stað milli breskra og þýskra her- sveit í Libyu. En hinsvegar er það talið geta verið rjett, að litlar þýskar herdeildir hafi vérið fluttar til Libyu frá Sik- iley, eða öðrum landjhlutum í Ifalíu. Tilkynning þýsku herstjórn- arinnar í gær var á þessa leið: Þýska herstfórnar- ttlkynningin Þýskur kafbátsforingi skýrir frá því að sökt hafi verið vopn- uðu bresku kaupskipi, sem var hjer um bil 8 þúsund smálestir að burðarmagni. Ánnar þýskur kafbátur sökti bresku varðskipi. Nokkrir menn af áhöfn breska skipsins voru teknir til fanga. Á svæðinu í suð-austur frá Englandi sökti þýskur tundur- skeytavjelbátur breskum tund- urspilli. Á Libyuströndinni í suð-aust- ur frá Agedabia sló í bardaga milli þýskrar og breskrar vjela hersveitar snemma morguns í fyrradag. Fjöldi breskra bif- reiða þ. á. m. nokkrar bryn- varðar bifreiðar voru eyðilagð- ar. Fangar voru teknir. Þýski herinn beið ekkert tjón. Síðdegis sama dag kveiktu þýskar sprengjuflugvjelar í 2 stórum kaupskipum í höfn í Cyrenaicaströndinni. — Einnig fjellu sprengjur á hafnarmann- virki. Þýskar orustuflugvjelar skutu niður breska flugvjel af Hurricanegerðinni yfir Malta- eyju. I gærkvöldi rjeðúst litlar þýskar flugvjeladeildir með góðum árangri á hernaðarlega mikilvæga staði og .Jhafnir í Hull, Harwick og Great Yar- mouth. Aðrar árásir voru gerð- ar á flugvelli í A.ustur-Englandi og á hergagnaverksmiðjur í Ipswick og Norwick. Bretar gerðu árangurslausa árás á Ermarsundsströndina og skutu þýskar orustuflugvjelar niður 3 bréskar flugvjelar. Breskar flugvjelar «Ieptu tundursprengjum og íkveikju- sprengjum af handa hófi, á nokkrum stöðum í Vestur- Þýskalandi, í gærkvöldi. Tjón varð aðeins lítilvægt. Eldarnir voru slöktir strax. ,Goodriehtt-vfelareimar 1” — 8”. REIMLÁSAR. VEBZLUN O. ELLINGSEN H.F. Skrifstofupláss í Miðbænum, heil hæð, 7 herbergi, til leigu 14. maí. Tilboð merkt „Hamar“ sendist Morgunblaðinu fyrir laugardags- kvöld. Áskilinn rjettur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Tryggingarstofnun ríkisins filkynnir: Að gefnu tilefni skal vakin athygli slysatrygðra manna á því, að þeim er nauðsýnlegt að vera í fullum rjettindum hjá sjúkrasamlagi sínu, ef þeir vilja öðlast rjett til greiðslu sjúkrahjálpar, er slys ber að höndum. Hvað lögskráða sjómenn snertir, greiða útgerðarmenn iðgjöld þeirra meðan þeir eru lögskráðir, en nauðsynlegt er þeim einnig að vera í fullum rjettindum þegar lögskrán- ing f er f ram. . Xryggin^arsfoffuun riklsios S JÚKRÁTRY GGIN G ADEILD. Utsvðr fastra starfsmanna árið 1940, sem greiða ber af kaupi þeirra skv. lög- um nr. 23, 12. febrúar 1940, eru nú öll FALLIN I GJALDDAGA. Síðasta 1/7 hlutann ber að greiða af launum starfsmannanna fyrir febrúar. Þeir kaupgreiðendur, sem hafa ekki skilað bæj- argjaldkera innheimtum útsvörum frá starfs- mönnum sínum, eru beðnir að gera skil N Ú ÞEG AR. BORGARRITARINN. Flutningur til íslands Reglulegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bret- lands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sjerstaklega hagkvæm flutningsgjöld ef um stærri vörusendingar er að ræða. Tilkynningar um vörur sendist Culliford & Clark L«d. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, eða er gefur frekari upplýsingar. Geir H. Zoega Símar 1964 og 4017, Fyrirliggfandi Þvotfaiódi í 50 kg. pokum. Eggerf RrisliánKNon & Co. h.í. Sími 1400.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.