Morgunblaðið - 15.05.1947, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.05.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: Stinningskaldi á austan. — Dálítil rigning. Fimmtudagur 15. maí 1947 Þeir skemta bæjarbúum í dag í DAG byrjar Lúðrasveit Rcykjavíkur sumarstarfsemina. Ætl- ar hún að leika fyrir bæjarbúa á Austurvelli. Fyrsta íagið, sem leikið verður er K. R.-marsinn eftir Markús Kristjánsson, þá Jubel (Hátíða) forspil eftir Christian Bach og Inflamatus aría fyrir Piston, einleikur, eftir Rossini. Fjórða viðfangsefni er „Beet hoven“ syrpa, eftir Albert Klahn hljómsveitarstjórann, þá „valsa syrpa“ eftir Robrecht og Humoreske eftir Dvorak, en hljómleik- unum lýkur með því að Lúðrasveitin leikur mars. Mjólkureftírlitsmaðurinn í Reykjavík rekinn frá starfi Upplýsingar Gunnars Thoroddsen á Alþingi í dag GUNNAR Thoroddsen upplýsti á Alþingi í gær, að Sigurði Pjeturssyni gerlafræðingi, sem haft hefir eftirlit með neyslu- mjólk Reykvíkinga og þráfaldlega fundið að Samsölumjólkinni, hafi verið vikið frá starfi fyrirvaralaust. Eysteinn Jónsson, heilbrigðismálaráðherra framkvæmdi þenna verknað. Þessar upplýsingar gaf Gunnar um leið og hann mælti fyrir ýmsum gagngerðum umbótatillögum í mjólkurmálunum, sem hann ásamt nokkrum þingmönnum Reykvíkinga flytja í sam- bandi við frumvarp ríkisstjórnarinnar um afurðasölumálin. Þingmannanefud'm fil Helsingfors Á LAUGARDAG fara hinir íslensku ])ingfulltrúar, sem sitja eiga Norræna þingmanna fundinn, sem haldinn verður í Helsingfors um miðja næstu viku. Þingmennimir fara hjeðan með Douglas flugvjel Flugfje- lags íslands, til Osló. 1 för með þingmönnunum verða konur þeirra. Þeir sem fara eru: Jó- hann Hafstein, Einar Olgeirs- snn, Barði Guðmundsson og Bernharð Stefánsson. Háiíðahöld Norð- manna 17. maí FJELAG Norðmanna hjer í bænum heldur þjóðhátíðardag- inn hátíðlegan 17. maí, eins og venja er til. Klukkan 9 árd. safnast sam- an við leiði fallinna Norðmanna í Fossvogskirkjugarði og lögð blóm á leiðin. Kl. 11—13 eru norsk og ís- lensk börn boðin til norska sendiherrans og frúar hans að Fjólugötu 15. Kl. 16—18 verður móttaka hjá norska sendiherranum, hr. Anderssen-Rysst og frú í sendi herrabústaðnum. --- » ♦ » . Hraðkepnfn í hand- knattieik er í dag ÞAÐ ER í dag, sem hrað- keppni Ármanns í handknatt- leík fer fram. Hún hefst á Iþróttavellinum kl. 2 e.h. — Níu fjelög taka þátt í keppn- inni eins og áður hefir verið sagt frá. Þetta er útsláttarkeppni, þann ig að það lið, sem tapar einum leik, er úr keppninni. í fyrstu umferð verða leikir, sem hjer segir: Meistaraflokkur karla: Hauk ar keppa við lR, Ármann við Víking og Valur við Fram. II. flokkur karla: Valur — Fram, ÍA (Iþróttabandalag Akraness) — Ármann, iPi — FH og Haukar — KR. III. flokkur karla: ÍR — FH, lA — Ármann og Haukar — KR. I fyrra vann Víkingur í meistaraflokki, Ármann í II. flokki og Haukar í III. flokki. Sveinn iónsson frjesmíðameisiari láfinn SVEINN JÓNSSON trjesmíða- meístari andaðist að heimili sínu, Tjarnargötu 16 hjer í bæ, i fyrri nótt, 85 ára. Sveinn var einn af merkari borgurum þessa bæjarfjelags, athafnamaður um langt skeið. Þessa merka manns verður getið nánar síðar hjer í blað- inu. Þessar breytingatillögur eru við V. kafla frumvarpsins, sem fjallar um sölu mjólkur og mjólkurafurða og eru á þessa leið: 1) Hjeraðslækni eða heil- brigðisfulltrúa sje veitt heimild til að stöðva sölu á mjólk, sem hann telur gallaða. 2) Þriðju málsgrein 20. gr. sje breytt þannig, að öllum þeim, sem selja mjólk, hyort sem það er beint til neytenda eða í gegn um mjólkursamsöluna, sje skylt að hlíta fyrirmælum um hrein- læti og hollustuhætti, sem til- skilin eru í lögum, heilbrigðis- reglugerðum, mjólkurreglu- gerðum o. s. frv. á hverjúm tíma. 3) Skylt er að greiða fram- leiðendum mjólkur hæst verð fyrir 1. flokks mjólk, en svo stiglækkandi fyrir aðra flokka. 4) Mjólkurbúi og mjólkur- stöð, sem bæjarfjelagið rekur eða er þátttakandi í, sje trygð- ur rjettur til að selja mjólk beint ti.l neytenda. Sigurður Pjetursson rekinn. Gunnar gerði grein fyrir til- lögunum og lagði áherslu á að þær næðu fram að ganga. Hann sagði að meiri hluti landbúnaðarnefndar hefði að vísu með brtt. sínum gengið nokkuð á móts við þessar til- lögur sínar, en þó mundi ekki í reyndinni verða ýkjamikill munur frá því ástandi, sem nú er. Sú tilhögun spáir ekki góðu gagnvart neytendum eftir reynslu fyrri ára. Og hún spáir ekki góðu, sagði Gunnar, þar sem sá sjerfræð- ingur, sem hefir haft með hönd um cftirlit með gæðum mjólk- urinnar (en það er eins og kunn ugt er Sigurður Pjetursson gerlafræðingur) og gert athuga semdir um galla á henni, hon- um hefir nýlega verið vikið frá störfum af Eysteini Jóns- syni, ráðherra, en hann hefur með höndum heilbrigðismálin. Tillaga Jóns Pálmasonar. Jón Pálmason leggur til að frumvarpinu í heild sje vísað frá með svohljóðandi rök- studdri dagskrá: ,,Þar sem ákvæði frumvarps- ins um gerðardóm í verðlags- málum bænda eru verulegt spor aftur á bak fyrir hagsmuni bænda og þar sem nauðsyn er á því endursk. afurðasölulöggjöf- ina miklu rækilegar en gert hefir verið við undirbúning þössa frúmv., þá telur deild- in ekki heppilegt að lögfesta frumvarpið og tekur fyrir næsta mál á dagskrá11. ÞANNIG er það bak við járntjaldið. Sjá grein á bls. 7. Eimskip kaupir vöruflutninga- ] skíp af „Knot-gerif j Fæsi fyrir lægra verð en byggingarkosfnaður þess. EIMSKIPAFJELAG ISLANDS hefur ákveðið að festa kaup á einu amerísku vöruflutningaskipi, sem er af sömu gerð og þau er fjelagið hefur haft á leigu undanfarin ár til þess að annast ferðir milli Ameríku og Islands. Skip af þessari gerð eru um 5.800 D.W. smál. Verður því hið nýja skip Eimskipa- fjelagsins stærsta skip hins íslenska flota. Það er Bandaríkja- stjórn sem selur skipið og mun verð þess vera því sem næst 4,50 miljónir króna. Morgunblaðinu barst. í gær- dag frjettatilkynning frá Eim- skiþafjelaginu og er hún svo- hljóðandi: Hentug skip. Nokkur undanfarin ár hefir Eimskipafjelagið haft á leigu amerísk vöruflutningaskip, af sömu gerð og t. d. „Salmon Knot“, sem lengi hefir verið í förnum hingað. Fyrir nokkru hefir fengist vitneskja um að skip þessi, sem eru eign Bandarikjastjórnar, væru til sölu fyrir all-miklu lægra verð en byggingarkostn aður þeirra nam, þrátt fyrir það þó þau sjeu svo að segja nýbyggð, og sum mjög lítið notuð. Skipin, sem Eimskipafjelagið hefir fengið leigð, hafa yfirleitt reynst vel og verið að mörgu leyti hentug til Ameríkuferða, og þó þau sjeu nokkuð stór fyr ir hafnir úti á landi, eru þau frekar grunnskreið, og því hægt að nota þau til siglinga hjer við land, a. m. k. á aðal- hafnirnar. Hagkvænit fyrir Eimskip. Fjelagið hefir því athugað vandlega ýms atriði í sam- bandi við kaup á einu skipi af þessari gerð. Hefir sú athugun leitt í ljós, að hagkvæmt geti I verið að fjelagið eignaðist slíkt skip, einkum með tilliti til þess að þá hefir fjelagið umráð yfir skipinu, og getur sent það hvert sem er, en það hefir reynst því nær ómögulegt að fá samþykki eigenda skipanna til þess að þau megi fara út á land, en hafi það fengist, hefir fjelagið orðið að greiða mjög háa aukaleigu. Kaupln samþykkt. Að lokinni þessari athugun, samþykkti stjórn Eimskipafje- lagsins á fundi sínum 13. þ.m. að kaupa eitt skip af þessari gerð, og hafa þegar verið gerð- ar ráðstafanir til að skipið verði valið úr þeim skipum, sem til sölu eru. Lýsing á skipinu. Skip þessi eru um 5800 D.W. smál. að stærð. Lengd þeirra er 338 fet og 8 þuml. Breidd 50 fet, og rista þau 21 fet full- fermd. Þau hafa um 225,000 teningsfeta lestarrúm, þar af um 10,000 teningsfeta frysti- rúm. Þau geta flutt alt að 3800 smál. af almennum vörum, en af þungavöru (salti, kolum ó. þ. h.) alt að 5000 smál. Út- búnaður allur er fyrsta flokks, og einkum lestarop, vindur og bómur hentugar til þess að hægt sje að afferma þau fljótt. Skipin eru með 1700 hestafla dieselmótor, og ganghraðinn er 10—11 mílur. Skipshöfn um 35 manns. Verð skipanna er um 693.000 dollarar (ca. 4.5 milj. kr.) en' nýbyggð kostuðu þau 1.280000 dollara (ca. 8.3 milj. kr.). Eim skipafjelagið hefir nú eins og fyrr notið velvilja óg stuðnings Nýbyggingarráðs í sambandi við þessi skipakaup, og hefir ráðið veitt fjelaginu nauðsyn-i legt gjaldeyris- og innflutnings lejdi til kaupanna. Bresku bridgespil- ararnir unnu enn BRESKU bridgespilararnir unnu bæði liðin, sem þeir kepptu við í gær. Þá Gunnail Pálsson, Stein Steinsen, Stefán Stefánsson og Torfa Jóhanns- son með 2540 stigum, en sveit Gunnars Möller með 5100 stig um. Spiluð voru 32 spil í báðnnt þessum keppnum. i Sundknattleiks- méfið hófst í gær SUNDKNATTLEIKSMÓT Islands hófst í Sundhöllinni f gærkveldi. Leikar fóru þannig, að Ár- mann (A-hð) vann Ármannj (B-lið) með 4:1, en KR vanR Ægi með 2:1. Mótið heldur áfram á föstu- dag. Þá keppir KR við Ármanni (B-lið) og Ægir við Ármanrt (A-lið). Endurupptaka dansk færeysku samninga- umleifananna DANSKA stjórnarblaðið „Köbenhavn“, segir, að samn- ingar milli Dana og Færeyinga’ byrji í næstu viku. Búist er við að viðræðurnar standi að minsta kosti í mánuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.