Morgunblaðið - 13.04.1955, Blaðsíða 2
MORGUN BL.4ÐIÐ
Miðvikudagur 13. apríl 1955
iftlan Utveysbankans námu 440
milij. kr. m síiustu áramót
IGÆR voru 25 ár liðin síðan Útvegsbanki íslands h.f. tók til
starfa. Af því tilefni lét stjórn bankans blöðum og útvarpi í
té nokkrar upplýsingar um starfsemi hans.
í árslok 1930 voru innstæður í bankanum 6,2 millj. kr., útlán
31,8 millj. kr. og niðurstaða á jafnaðarreikningi 43 millj. kr. I
ársjok 1954 voru innstæður 280,6 millj. kr., útlán 440,2 millj. kr.
<>g niðurstaða á jafnaðarreikningi 515 millj. kr.
SJKIFTING ÚTLÁNA MILLI
ATVINNUVEGANNA
Útlán bankans skiptust bannig
milli atvinnuveganna um síðustu
áramót:
Sjávarútvegur 45,4%, iðnaður
13,3%, verzlun 28,9%, húsbygg-
ingar 3,8% og ýmislegt 8,6%.
Varasjóðir bankans nema nú
41,5 millj. kr. og eftirlaunasjóður
starfsfólks nam um síðustu ára-
mót 8,4 millj. kr.
Húsakostur bankans hefur und
anfarið verið bættur mjög og úti-
;bú hans á Akureyri, Siglufirði og
í Vestmannaeyjum hafa fengið ný
húsakynni.
BANKASTJÓRN
Núverandi bankastjórar Út-
vegsbankans eru þeir Helgi Guð-
mundsson, Jóhann Hafstein og
Valtýr Blöndal.
í bankaráði eiga sæti þeir
Stefán Jóhann Stefánsson, sem er
íormaður þess, Björn Ólafsson al-
Jjingismaður, Eyjólfur Jóhanns-
son forstjóri, Gísli Guðmundsson
alþingismaður og Lárus Fjeldsted
liæstaréttarlögmaður.
Fyrstu bankastjórar bankans
voru þeir Helgi P. Briem núver-
andi sendiherra, Jón Ólafsson al-
J>ingismaður og Jón Baldvinsson
alþingismaður. Ásgeir Ásgeirsson
forseti íslands gegndi banka-
stjórastöðu við bankann frá ár-
inu 1938 til 1952.
Verkfallið
Framh. af bls. 1
þetta verkfall, sem nú hefur
senn staðið í heilan mánuð sé
einhver tilgangslausasta vinnu
deila, sem hér hefur verið háð.
Ef grunnkaup hækkar svo ein
hverju nemi, verður sú kaup-
hækkun étin upp með tvennu
móti.
í fyrsta lagi með hækkun á
verðlagi landbúnaðarafurða
og jafnvel verðlagi aimennt. í
öðru lagi með hækkun bygg-
ingarkostnaðar og þar með
húsaleigunnar. En einmitt hin
háa húsaleiga undanfarið hef-
ur skapáð mörgu láglaunafólki
erfiðleika á að láta laun sín
hrökkva fyrir nauðsynjum.
Það sem mestu máli skiptir
er þó það, að af verulegri
kauphækkun hlyti að leiða
gengisfellingu og rekstrar-
erfiðleika hjá atvinnulífinu,
sem síðan leiddu yfir þjóðina
hættu á atvinnuleysi og kyrr-
stöðu.
A0EINS KOMMÚNISTAR
VILJA SKAPA
VANBRÆÐAÁSTAND
En þótt verkfallið sé þannig
tilgangslaust með tilliti til
kjarabóta fyrir þá launþega,
sem i því eru, eru þó aðrir
' aðilar, sem stefna að ákveðnu
takmarki með því. Það eru
kómmúnistarnir. Þeir vilja
skapa hér vandræðaástand.
Þessvegna hika þeir ekki við,
að setja fram kröfur, sem
skapa myndu fullkomið öng-
þveiti ef þær yrðu knúnar
fram.
Þetta verður allur almenn-
ingur að gera sér ljóst áður
{ en Iengra verður haldið, áður
en frekara öngþveiti hefur
skapazt af því verkfalli sem
nú stendur yfir.
' í forystugrein blaðsins í dag er
náiiar rætt um byggingarkostnað-
inn og lífskjörin.
í IVfloskvu
MOSKVU 12. apríl. — Raab,
forseti Aufturríkis, er komim,
til Moskvu til viðræðna við
Kremlmenn um framtíð Austur-
ríkis. Áður en viðræournar hóf-
ust, heimsótti Raabn Bulganin
forsætisráðherra.
ISi
§1
á Slglufirð!
SIGLUFIRÐI, 12. apríl: — Aðal-
fundur Sjálfstæðisfélaganna var
hér um síðustu mánaðamót í húsi
félagsins, Lækjargötu 2. í stjórn
félagsins voru kjörnir, formaður
Ólafur Stefánsson, meðstjórnend-
ur Kjartan Bjarnason og Nils
Isaksson.
Aðalfundur Sjálfstæðiskvenna-
félagsins var haldinn hér 29. f.m.
í stjórn voru kosnir, formaður
Erla Axelsdóttir, meðstjórnendur
Anna Hertevig, Bjarnveig Guð-
laugsdóttir, Ragna Bachmann og
Guðný Þorsteinsdóttir.
Fundirnir voru fjölmennir og
all fjörugar umræður um fram-
tíðarstörfin, og fóru þeir báðir
prýðilega fram. — Guðjón.
Björgvin Sigisrðsson:
Sveit Vilhjálms Siguiðssonar
íslandsmeistari í bridge
MEISTARAKEPPNI Bridgesambands íslands lauk á skírdag. —
Úrslit urðu þau, að sveit Vilhjálms Sigurðssonar vann með
16 stigum. íslandsmeistarar eru auk hans: Eggert Benónýsson,
Gunnlaugur Kristjánsson, Jóhann Jóhannsson, Magnús Jónasson
og Stefán Stefánsson.
Önnur varð sveit Gunngeirs
Péturssonar með 15 stigum, 3.
sveit Sigurðar Kristjánssonar
með 12. stigum, 4. sveit Hjalta
Elíassonar með 11 st., 5. sveit
Harðar Þórðarsonar með 9 st.,
6. sveit Róberts Sigmundssonar
með 8 st., 7. sveit Óla Arnar Óla-
sonar, Akranesi, 7 st., 8. sveit
Jóns Guðmundssonar, Hafnar-
firði, með 6 st., 9. sveit Ólafs
Einarssonar 4 stig og 10. sveit
Vigdísar Guðjónsdóttur með -2
stig.
Þá fór einnig fram tvímenn-
ingskeppni, svokölluð „Baró-
meterkeppni". Þar urðu hlut-
skarpastir Gunnar Guðmundsson
og Gunnar Pálsson, en Kristinn
!)r. Páll ísólfsson
fer í hljómleikaför
MEÐAL farþega í gærkvöldi með
Gullfossi, var dr. Páll ísólfsson,
sem mun verða erlendis um
tveggja mánaða skeið. Er ferð-
inni heitið til Danmerkur, Sví-
þjóðar og Þýzkalands.
í Kaupmannahöfn mun dr.
Páll hafa um viku dvöl og mun
hann þá leika á kirkjuorgel í
Bergþórsson og Lárus Karlsson
urðu aðrir. Allir eru þeir fyrr-
verandi íslandsmeistarar úr sveit
Harðar Þórðarsonar. Þriðju urðu
Zophonías Pétursson og Margrét
Jensdóttir. Allt tóku 64 tvímenn-
ingar þátt í keppninni.
131 yfírsfa
AÐ undanförnu hefur því verið
haldið fram í Alþýðublaðinu
og Þjóðviljanum, að vinnuveit-
endur hafi ekki boðið hinum
lægst launuðu neinar kauphækk-
anir.
Til þess að fyrirbyggja mis-
skilning þykir mér rétt að rekja
hið skriflega tilboð vinnuveit-
enda, sem samninganefnd verka-
lýðsfélaganna var gefið í upphafi
verkfallsins.
Samninganefnd vinnuveitenda
lofaði að mæla með 7% kjara-
bótum til handa Dagsbrúnarmönn
um, í formi orlofs, vísitölubreyt-
inga, sérkrafna og grunnkaups-
hækkana talið í þessari röð.
Hvað felst í þessu tilboði?
í fyrsta lagi, að orlof skuli
aukið úr 5% í 6% eða úr 15 virk-
um dögum í 18 virka daga á ári.
í öðru lagi skulu þeir launa-
flokkar, sem ekki hafa fengið
fulla visitölu, fá greitt eftir fullri
vísitölu í stað skertrar áður.
Þetta snertir ekki lægsta launa-
flokkinn, þar sem hann fær sam-
kvæmt eldri samningum fulla
vísitölu.
í þriðja lagi komi það af sér-
kröfum, sem að kynni að verða
gengið og meta má til peninga
(kjarabóta). Til þess að gera mál
ið einfaldara er ekki rétt, að
reikna með að neitt af 7% fari
í sérkröfur, enda skiptir það ekki
máli í sjálfu sér fyrir verka-
Fyrsfu hörputónleik-
arnir hér á landi
4. iénisikar Tsniislaríélagsins;
SÍÐASTL. laugardag kom til Reykjavíkur á vegum Tónlisrar-
félagsins spanski hörpuleikarinn Nicanor Zabaleta. Mun hann
halda tvenna einleikstónleika í Reykjavík og einn í Hafnarfirði
og verður efnisskráin fjölbreytt með frumsömdum verkum fyrir
hörpu.
Svo sem að ofan segir kom
hörpuleikarinn Nicanor Zabaleta
hingað til lands s.l. laugardag.
Er hann hingað kominn á vegum
Tónlistarfélagsins í Reykjavík.
Fréttamönnum var í gær boðið
á fund Zabaleta og ræddu þeir
við hann um stund.
BASKAÆTTAR
Zabaleta er fæddur og uppal-
inn á Norður-Spáni og er af þeim
þau Zabaleta og hann leikið þau
í fyrsta sinni opinberlega.
Efnisskráin hljóðar þannig:
Bochsa: 3 etýður. Beethoven- Til-
brigði um svissneskt stef. H. E.
danska útvarpið, orgelverk eftir gérstæða þjóðflokki kominn, er
Bach, og eftir Islendingana Jón
Þórarinsson og Jón Nordal. —
í Stokkhólmi verður Páll í hópi
sex íslendinga á móti norrænna
kirkjutónlistarmanna. Verður
þar flutt af kór Engebreckkirkj-
unnar íslenzk tónlist eftir þá
Hallgrím Helgason, Þórarinn
Jónsson, Sigurð Þórðarson, Pál
Kr. Pálsson, Jón Leifs o. fl. Þá
mun Páll leika orgelverk eftir
Jón Nordal, Jón Þórarinsson og
eftir sjálfan sig.
Að lokinni þessari norrænu
ráðstefnu heldur Páll suður til
Þýzkalands, en þangað hefur hon-
um verið boðið í hljómleikaför og
mun hann halda þar fjölda tón-
leika.
Úlfapláp á ílalfu
PESCARA, Ítalíu. — Hópur solt-
inna úlfa gerðist ágengur við
fjárhjörð hér í grendinni í dag.
Hafði sultur knúð þá niður úr
fjöllunum, og sló í æðisgenginn
bardaga milli þeirra og fjár-
hunda, sem lauk þannig að
hundarnir féllu. Úlfarnir urðu
síðan 10 sauðkindum að bana
áður en bændum tókst að hrekja
þá á brott. — Reuter.
nefnast Baskar, en þeir tala ekki
spönsku heldur sitt eigið mál og
hefur ekki tekizt að rekja skyld-
leika þess við neitt annað mál.
Sjö ára gamall hóf Zabaleta nám
í hörpuleik, fyrst á Spáni, en
síðar í París.
17 ÁR BÚSETTUR
í BANDARÍKJUNUM
Zabaleta er heimskunnur
hörpuleikari og hefur haldið tón-
leika víðsvegar um heim. Hann
var búset.tur um 17 ára skeið í
Bandaríkjunum, en s.l. 3 ár hef-
ur hann átt heimili í Porto Rieo
og þar eru kona hans og börn nú.
Hingað til lands kom Zabaleta
frá London, en þar hélt hann
nokkra tónleika og lék m. a. í
sjónvarpið þar. Hefur hann verið
á tónleikaí'ór um Evrópu undan-
farið og m. a. haldið 24 tónleika
í Þýzkalandi í vetur, 18 einleiks-
tónleika og 8 með hljómsveitum.
FJÖLBRE YTT EFNISSKRÁ
Efnisskráin á tónleikum
Zabaleta hér vei’ður, sem fyrr
segir, mjög fjölbreytt og öll verk-
in frumsamin fyrir hörpu. En
mörg tónskáld hafa m. a. samið
tónverk fyrir hörpu og tileinkað
N. Zabaleta
Mehul: Sonata. F. A. Rosetti:
Sonata. Parish-Alvars: Tilbrigði
um ítalskt stef. S Prokofieff:
Prelúdia. G. Pittaluga: Nocturna
og M. Tournier: Jazz-Band.
°----□□------o
Tónleikarnir í Austurbæjarbíói
í Reykjavík verða í kvöld og
annað kvöld, en í Hafnarfirði á
föstudagskvöld. Verða tónleikar
þessir eingöngu fyrir styrktar-
meðlimi Tónlistarfélaganna. Til
mála hefur komið, að Zabaleta
héldi tónleika með Sinfóníuhljóm
sveitinni, en óvíst er hvort af því
getur orðið vegna þess hvernig
stendur á flugferðum vegna sam
göngutruflananna af verkfalls-
ástæðum.
i verkSalli!
manninn hvort hann fær kjör sín
bætt með grunnkaupshækkun,
vísitölugreiðslu eða á annan hátt.
í fjórða lagi er grunnkaups-
hækkun, ef kjarabætur sam-
kvæmt fyrri liðum hafa ekki
numið 7%.
Af því, sem að framan er sagt,
er því augljóst, að lægsti launa-
flokkurinn myndi fá aukningu á
orlofi úr 5% í 6% og sem svarar
6% grunnkaupshækkun.
Augljóst er því, að þeir. sem
halda því fram að vinnuveitend-
ur hafi ekkert boðið, fara með
blekkingar einar.
Samkvæmt áðurnefndu tilboði
skyldu þeir, sem fengið hafa
grunnkaup sitt hækkað s.l. 12
mánuði ekki fá grunnkaupshækk-
un. Síðar sama kvöld og fyrr-
greint tilboð var gefið var það
tekið fram af Guðmundi Ás-
mundssyni hdi. framkv.stj. Vinnu
málasambands samvinnufélag-
anna og undirrituðum í viðtali
við Eðvarð Sigurðsson form.
samninganefndar verkalýðsfélag-
anna að takmörkun þessi næði
ekki til þeirra, sem með samn-
ingum dags. 31. maí 1954 hefðu
fengið grunnkaup sitt hækkað,
en það voru lægstu mánaðar-
kaupsflokkarnir hjá Dagsbrún.
Á hinn bóginn skyldu þeir, sem
á s.l. sumri fengu kaup sitt hækk-
að með smáskæruhernaði eða
með samningum í haust og síðar,
ekki að fá grunnkaupshækkanir,
en það eru allt menn á hærri
töxtum.
Á sama hátt var boðið að mæla
rr-ð, +11 iðnaðnrmanna 7% kjara-
böt en í flestum tilfellum myndu
þeir enga grunnkaupshækkun fá,
þar sem kjarabótin kæmi fram
í auknu orlofi og breyttu vísi-
töluf.vrirkomulagi.
Ég vona að af framansögðu sé
ljósrt, að vinnuveitendur hafa
boðið verulega kjarabót þegar
í upphafi verkfaílsins í þeirrl
von að með því móti væri
hægt að forðast tión verkfalls
ins fvrir báða aðila.
Gagntilboð verkalýðsfélaganna
var bað, að lækka kröfur sín-
ar að því er varðar lægst laun-
uðu Daesbrúnarmenn um 5%, en
ekkert kröfur þeirra hærra laun-
uðu í Dagsbrún. Iðnaðarmenn
lækkuðu grunnkaupshækkunar-
kröfur sínar í 21%.
Ég ætla ekki á bessu stigi máls-
ins að ræða ereiðslueetu atvinnu
veeanna. bað hafa aðrir gert.
Til fróðleiks. fyrir bá sem tala
um að laun verkamanna séu langt
fyrir neðan burftarlaun. má geta
þess, að meðaltekiur ’45 verka-
manna hjá Eimskinafélaei fslands
h.f. s.l. ár voru rúmlega kr.
51.000 00. Þetta ery bó flest menn
á lægstu launatöxtum Dagsbrún-
1
STOKKSEYRI, 12. apríl. —
Haugasjór hefur verið hér á
Stokkseyri undanfarna daga og
ekkert sjóveður. Hafa bátarnir
ekkert verið á sjó síðan á skírdag
að undanteknum einum báti sem
komst fram í gær. Fékk hann um
9—10 lestir. Munu bátsverjar þó
ekki hafa dregið öll net sín.
Ekki vur viðlit að lenda |
Stokkseyri og fór báturinn til
Þorlákshafnar með aflann,- en
þaðan var honum ekið á bifreið
til Stokkseyrar. f dag hafa Þor-
lákshafnarbátarnir ekki komizt i
net sín vegna storms og foráttu-
brims.
Á skírdag var afli góður hjá
bátunum héðan, eða 12—ig lest-
ir. — Magnús.