Morgunblaðið - 24.04.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.04.1957, Blaðsíða 6
6 MORGVNBl 4ÐW Miðvikud. 24. apríl 1957. Ari Arnalds ARI JÓNSSON ARNALDS, fyrr- um ritstjóri, alþingismaður, sýsiu maður og bæjarfógeti, er til grafar borinn í dag. Hans mun lengi verða minnzt, fyrst og fremst sem eins af helztu foringjum Landvarnarmanna, en þeir áttu sem kunnugt er ómet- anlegan þátt í því að vekja með þjóðinni trúna á eigin málstað og viljann til sjálfstæðis. — Fyrir þeirra atbeina var hrundið sam- bandslaga- „uppkastinu" 1908 og þeir ásamt þeim sem þeir fengu til liðs við sig öfluðu frelslskröf- unum þess fylgis sem leiddi til fullveldisviðurkenningar lands- ins 1918 og stofnunar lýðveldis- ins 1944. ___ í öðru lagi mun Ara minnzt sem snjalls rithöfundar og ræðu- manns. í þriðja lagi sem skörulegs og vinsæls yfirvalds í nærri aldar- fjórðung. Það má segja um Ara Arnalds eins og Gísli Sveinsson, fyrrum Alþingisforseti og Landvamar- maður, kvað svo hnittilega að orði um sjálfan sig: „Að hann hafi lifað frá landnámstíð til vorra daga“. í æsku Ara var flest í sama gamla farinu hér á landi sem það hafði verið um aldir. Hann lifði breytinguna miklu. Lagði ótrauð- ur fram sitt lið sjálfstæðisbar- áttunni. Hann og samherjar hans skildu, að öflun stjórnarfarslegs frelsis og varðveizla þess er grundvöllur og forsenda allra framfara og velmegunar þjóðar- innar. Ari átti við fátækt að stríða á skólaárum sínum og veiktist al- varlega í miðju lagaprófi úti í Kaupmannahöfn, en heilladísir, sem fylgt höfðu honum úr föður- garði, brugðust honum ekki, svo að alltaf fékk hann hjálp góðra manna, þegar mest á reið og bet- ur rættist úr, en á horfðist. Ari naut alla ævi óvenjulegrar hylli og vinsælda hjá þeim, sem hann hafði saman við að sælda, enda var hann maður ráðholiur, góðviljaður, fróður og svo skemmtilegur i viðræðum, að af bar. ★ ★ Á ofanverðri nítjándu öld bjuggu að Hjöllum við Þorska- fjörð um 40 ára skeið hjónin Jón Finnsson, hreppstjóri, og Sigríður Jónsdóttir, ljósmóðir. Voru þau bæði komin af góðkunnum breið- firzkum ættum. Þeim hjónum varð 11 barna auðið, 10 drengja og einnar stúlku. Komust 8 synir og dóttirin til fullorðins ára og var Ari yngstur barnanna, sem upp komust. Hann var fæddur 7. júní 1872. Ari var vel gefinn eins og þau systkin og komu snemma í Ijós afbragðsnámsgáfur hans. Átti Ari þá ósk heitasta, að hann yrði settur til mennta í Latínuskólan- um í Reykjavík. Sjálfur segir hann svo frá hugrenningum sín- um í æsku: „Hugurinn dvaldi alltaf við það, þegar ég var að smala og sitja hjá ánum um næt- ur og daga, þegar ég var að fara á milli engja og bæjar með hey- band, þegar ég var að slá á túni og engjum, þegar ég var að láta í meisana í heyhlöðunni á vet- urna og þegar ég sat í vefstóln- um, — alltaf það sama áform, — að reyna að komast í skóla“. Ekki blés byrlega um skóla- gönguna, því að foreldrar Ara áttu fullt í fangi með að sjá fyiir barnahópnum eins og þá var hátt- að. Eldri synirnir áttu inni í bú- inu og þurftu á sínu að halda til þess að reisa bú sjálfir. Nóttina eftir fermingardag sinn dreymdi Ara á Hjöllum merkilegan draum, sem sagði að sumu leyti fyrir örlög hans. Skýrir Ari skemmtilega og fróð- lega frá því í Minningum sínum hvernig draumurinn rættist. mmnmg Hugurinn ber menn hálfa leið og svo varð um skólagöngu Ara. Séra Guðmundur í Gufudal og séra Arnór Árnason í Felii kenndu Ara undir skóla og tók hann inntökupróf í 2. bekk Latínuskólans 21 árs gamall vorið 1893. Stúdentspróf tók Ari vorið 1898 og lauk lögfræðiprófi við Kaupmannahafnarháskóla árið 1905. Ari hafði veikst alvarlega af berklum í Kaupmannahöfn árið 1904. Fékk hann þá styrk hjá dönskum vinum sínum til þess að fara til Noregs sér til heilsubótar og meðmæli þeirra til þekktra manna í Noregi. Dvaldist hann I Noregi om tíma undir læknis hendi, en hafði ferilvist og fór heilsa hans batnandi. — Komst hann í kynni við marga þekkta Norðmenn, m. a. hin stórmerku hjón, Sigurd Ibsen, ráðherra Norðmanna í Stokkhólmi 1904—5, einkason Henriks Ibsens, og konu Sigurðar, Bergljótu, dóttur Björnstjerne Björnson. Ari varð blaðamaður við „Verd ens Gang“, eitt helzta blaðið í Ósló, frá því um vorið 1905 fram á haust sama ár. Á þessu tímabili varð koll- hríðin í sjálfstæðisbaráttu Norð- manna og fylgdist Ari með sjálf- stæðisbaráttu þeirra af brennandi áhuga, enda var vart um annað rætt í Noregi árið 1905 en frelsis- mál landsins. Svo vildi til að samþykkt norska þjóðþingsins um, að for- sætisráðherrann Michelsen skyldi fara með konungsvald Noregs, vegna þess að konungurinn (sænski) starfaði ekki lengur sem norskur konungur, var gerð 7. júní 1905 á 33. afmælisdegi Ara. Varð þetta atvik Ara til hvatn- ingar. Gerðir þjóðþingsins voru síðan samþykktar með þjóðaratkvæði og samkomulag náðist milli Norð- manna og Svía um skilnað land- anna og sjálfstætt konungsdæmi Ari Arnalds i skrifstofu sinni, — sjötugur að aldri. var stofnað í Noregi í nóvember 1905. Skilnaður Noregs og Svíþjóðar hafði talsverð áhrif á íslendinga og gaf forustusveit þeirra í sjálf- stæðisbaráttunni, Landvarnar- mönnum, byr í seglin. Ari var nú fastráðinn blaða- maður við „Verdens Gang“, en fékk orlof til íslandsferðar haust- ið 1905. f þeirri ferð réðist það, fyrir atbeina Björns Jónssonar, ritstjóra og síðar ráðherra, að Ari stofnaði til blaðaútgáfu á Eski- firði, en þeir voru þremenningar að frændsemi Björn og Ari. Skyldi blaðið prentað í nýrri prentsmiðju, sem stórkaupmaður af íslenzkum ættum, búsettur í Kaupmannahöfn, hafði ákveðið að setja á stofn á Eskifirði, að áeggjan íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn. Sagði Ari lausu starfi sínu í Noregi og hélt aftur heim til íslands í árslok 1905. Hóf Ari útgáfu blaðsins „Dag- fara“ í ársbyrjun 1906. Fylgdi blaðið frá öndverðu Landvarnar- mönnum að málum. Landvarnarflokkurinn hafði verið stofnaður árið 1902 og um áramótin 1902—1903 hófu tvö blöð hans göngu sína, Landvörn, ritstjórar Benedikt Sveinsson, Einar Benediktsson og Einar Gunnarsson, og Ingólfur. Rit- stjóri hans var Bjarni Jónsson frá Vogi tvö fyrstu árin og síðan Benedikt Sveinsson 1905 og 1906 og Ari Jónsson Arnalds ásamt honum 1907 til 1909, en Benedikt aftur frá vorinu 1912 til miðsum- shrifar úr daglega lifinu ÞÁ eru páskarnir horfnir hjá. Okkur blaðamönnunum er einkar hlýtt til páskanna. Uppáhaldshátíð blaðamannanna ÞEIR eru okkar uppáhaldshútíð, og það er vegna þess að þá fáum við okkar lengsta frí á ár- inu. Síðasta blaðið kemur út á skírdag og svo ekki fyrr en aftur á miðvikudag, í dag. En þótt okkur komi fríið vel, þá eru ekki allir jafnánægðir með það. Yfir páskana hittir maður alla jafnan margt fólk að máli og oft heyrist sú athugasemd, að illt sé að sjá ekkert blað í fimm daga. Vafalaust er sá söknuður ekki sprottinn af því að mönnum þyki svo geysilegur fengur í því að fá dagblöðin í hendur fyrir ágæti þeirra, heldur ræður hér trúlega vaninn að vakna til að lesa þau á hverjum morgni. Maðurinn er þræll vanans, eins og margir vitrir menn hafa mörgum sinnum sagt, og því heimta þeir sín dag- blöð á hverjum morgni og vilja þar engar refjar. Mat á dagblöðum STUNDUM heyrir maður um það spjallað hve íslenzku dagblöðin séu léleg og tilkomu- lítil. Oft eru það menn, sem dval- izt hafa lengi erlendis, sem helzt hafa þetta á orði, stúdentar og aðrir. Og víst situr það ekki á blaðamönnunum að hæla dag- blöðunum, sem hér eru gefin út. Þar á heilbrigð gagnrýni við ekki síður en annars staðar. En hitt hef ég rekið mig á, að stundum leynist nokkur ósann- girni í þessum dómum manna, einkum vegna þess, að þeir líta ekki til aðstæðnanna hér heima fyrir. Fjárhagur íslenzku dag- blaðanna hefur frá upphafi skor- ið þeim stakk sem er mjög miklu þrengri en blöðum Norðurlanda- þjóðanna, svo eitthvert dæmi sé tekið. Við blöð erlendis, sem eru svipuð að stærð og íslenzku blöð- in, vinnur stórum meiri fjöldi blaðamanna og þar eru tæki og efni til þess að gera blaðið úr garði miklum mun betur en unnt hefur reynzt hér á landi. Því verður að gæta þess í dómum um íslenzk blöð og tímarit, að mann- fæðin hér á landi, lesendafæðin sníður þeim svo þröngan stakk að útilokað er að bera þau sam- an við erlend stórblöð og tímarit í milljónalöndum. Fáir á f jöllum EN svo við snúum okkur frá spjalli um dagblöðin og páskahelgina, þá vakti það at- hygli, hve fáir leituðu í páskafríi sínu til fjalla að þessu sinni. Upp- lýsingar frá ferðaskrifstofum og frásagnir þeirra sem á fjöllum voru yfir bsenadagana bera það með sér, að óveniu fáir hafa stundað skíðaíþróttína, þrátt fyr- ir allgott veður flesta dagana. Auðvitað hafa mestu áhugamenn- irnir. um skíðaíþróttina leitað norður til Akureyrar á skíðamót- ið, sem þar fór fram, og það er eðlilegt. En hinir sátu margir hverjir heima, þeir sem ekki leggja það í vana sinn að fara á skíði til þess að taka þátt í keppn um og reyna að verða fyrstir. Tilgangur íþróttanna ÞAÐ er illa farið, vegna þess að íþróttirnar eru fyrst og fremst til þess að hressa líkam- ann og gleðja sálina, en ekki til þess að afla mönnum silfur- og gullpeninga á mótum. Mótin eru að vísu nauðsynleg og þau hvetja menn ávallt mjög til þess að leggja stund á íþróttir, en að því hlýtur að verða stefnt, að sem flestir leggi stund á þær og öðlist við það heilbrigði og hreysti. Það er þess vegna, að norræna sund- keppnin og landsskíðagangan voru svo ágætar hugmyndir. Þær keppnir fengu almenning til þátt- töku í íþróttunum og þegar mað- ur er einu sinni kominn af stað er ísinn brotinn og ekki ósenni- legt að eftirleikurinn verði auð- veldari. En það er oftar hægt að fara á skíði en um páskana. Fjöllin í kringum Reykjavík eru þakin dá- samlegum snjó, og nú virðist veðráttan hafa snúizt upp í sum arblíðu. Hvers vegna skreppum við ekki eftir vinnutíma á daginn, hálf- tíma ferð í hin prýðilegustu skíða lönd, skammt frá bæjardyrunum? ars 1915, að blaðið hætti að koma út. Meðal annarra helztu forustu- manna Landvarnarflokksins voru þeir bræður Jón Jensson yfirdóm ari og séra Sigurður Jensson í Flatey á Breiðafirði, þingmaður Barðstrendinga. f byrjun var meginfylgi Land- varnarflokksins meðal ungra menntamanna, þar á mcðal í Stúdentafélaginu. Landvarnarmenn töldu, að all- ir sannir íslendingar ættu að stefna að fullkomnu sjálfstæði landsins. Þeir trúðu því, að ís- lendingar hefðu þrótt og þor til þess að verða sjálfstæð þjóð, enda ætti að miða allt við það að svo yrði. Landvarnarmenn hófu barátt- una fyrir íslenzkum fána, sem sýnilegu tákni þess, að íslending- ar væru sérstök þjóð, sem vildi verða frjáls. Barátta þessara ungu manna var borin uppi af hugsjónum þeirra og óskum um að vegur þjóðarinnar yrði sem mestur og hag hennar sem bezt borgið. Eigi skort.i þá áhuga né fórnarvilja, en mjög var þeim fjár vants og háði það starfsemi flokksins. Var vrð ramman reip að draga 1 fyrstu þar sem á annan bóginn var sinnuieysi, kjarkleysi og von- leysi Isler.dinga sjálfra og á hinn bóginn verzlun, fjármál og stgl- ingar landsins að mestu leyti I höndum Dana. Ráðherra íslands var að vísu búsettur í landinu frá árinu 1904, en bera varð málefni íslands upp í danska ríkisráðinu, Danir fóru með utanríkismál, margir íslenzkir embættismenn dansklundaðir, þjóðin fátæk og vankunnandi í verklegum efnum. Ari Jónsson hikaði samt ekki við að styðja af alefli flokk hinna ungu hugsjónamanna. — „Dagfari" Ara fylgdi Landvarnar mönnum fast að málum. Afleiðingarnar komu líka fljótt í ljós. Prentsmiðjueigandinn, sem búsettur var í Danmörku og háð- ur Dönum um viðskipti, sagði Ara upp samningnum um prent- un blaðsins, svo að útgáfa þess var úr sögunni að ári liðnu. Upp- sagnarbréfið sýnir vel við hvaða örðugleika Ari og aðrir forustu- menn í frelsisbaráttunni áttu þá við að etja, en kafli úr því hljóð- ar svo: .....Einn af menntamönnun- um íslenzku hér í Kaupmanna- höfn hefur gefið mér álit sitt á blaðinu „Dagfara“ svohljóðandi: „Dagfari er ekkert annað en dulbúið skilnaðarblað. Rítstjór- inn Ari Jónsson hefur drukkið 1 sig skilnaðarveigar Norðmanna 1 sinni löngu dvöl í Noregi. Vil ég beda á tvær greinar í b'aðinu eftir þenna skilnaðarpostula: a) stefnuyfirlýsingu Dagfara í fyrsta tölublaði og b) greinina „Verið á verði“ í 29. tölublaðinu. Og á einum stað í Dagfara stendur: „Skilnaðurinn einn veitir fglend- ingum það, sem er kjarninn í kröfum þeirra“. Slíkt blaí er hættulegt og óhæfilegt gagnvari Dönum. . ..“ .... Af framangreindum ástæS- um er ég neyddur til að segja upp prentsmiðjusamningnum fré 1. janúar 1907.“ Ari fluttist nú frá Eskifirði til Reykjavíkur. Þar gerðist hann meðritstjóri „Ingólfs“ árin 1907 til 1909. Jafnframt varð hann málafærslumaður við yfirréttinn. Tók hann mikinn þátt í stjórn- málum á næstu árum. Hann átti drjúgan þátt í undirbúningi þjóð- fundarins, sem haldinn var á Þingvöllum 29. júní 1907. Tók hann þátt í þjóðfundinum og hef- ur ritað ágæta frásögn af honum í Minningum sínum og hefur minnzt hans víðar. Hann hefur ritað svo um þjóð- fundinn: „Aðalsamþykkt fundarins var svohljóðandi: „Fundurinn krefst þess, að væntanlegur sáttmáli við Dani um afstöðu landanna verði gerð- ur á þeim grundvelli einum, að íshmd sé frjálst land í konungs- sambandi við Danmörku með fullu jafnrétti og fullu valdi yfir Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.