Morgunblaðið - 07.06.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur 126. tbl. — Föstudagur 7. júní 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins Óhagnanleg skýrsla SÞ. um Ungverjaland New York, 6. júní: FRÁ ÞVÍ var skýrt í fyrradag, að hin sérstaka Ungverjalands- nefnd S.Þ. væri að leggja síðustu hönd á ýtarlegustu skýrslu, sem birt hefur verið um október-byltinguna í Ungverjalandi. Skýrsl- an er um 100.000 orð og byggð á samtölum við 111 flóttamenn, skýrslum erlendra sendiráða í Búdapest, ungverskum blöðum og tímaritum og fregnum útvarpsstöðva í Ungverjalandi og víðar. Skýrslu þessari er nú að fullu lokið eftir þriggja mánaða ötult starf fimm manna nefndar undir forsæti danska þingmannsins Alsing Andersen, og verður hún lögð fyrir Allsherjarþing SÞ. í næstu viku. í skýrslunni er lýst „dýrslegu grimmdaræði“ kommúnistastjórn arinnar, þegar byltingin var bæld niður.Þá eru þar ennfremur ummæli kunnugra manna, sem virðast staðfesta þann þráláta orðróm, að Kadar hafi ekki orðið auðsveipt verkfæri Bússa, fyrr en búið var að pynda hann og jafn vel vana. Áreiðanlegar heimildir hjá S. Þ. herma, að skýrslan staðfesti það, að grimmdaræðið náði há- marki undir ógnarstjórn Avó- anna, hinnar alræmdu öryggis- lögreglu, eftir að rússneski her- inn hafði barið niður uppreisn þjóðarinnar. Meðferðin á Kadari, sem talin er munu skýra að nokkru blinda hlýðni hans við Rússa, tekur ekki yfir nema örstattan kafla skýrsl- unnar. Er þar m. a. sagt, að hann bókstaflega hneigi sig í duftið i hvert sinn sem Rússi er ná- lægur — svo magnaður er ótti hans orðinn. Sagt er, að hinn raunsæi og hlutlægi tónn skýrslunnar skapi greinilegt mótvægi gegn þeim hryllilegu atburðum, sem hún lýsir. Nefndin telur sig hafa sönnur fyrir því, að hinar pólitísku aftökur í Ung- verjalandi hafi haldið áfram látlaust til skammrs tíma, og séu að líkindum enn í algleym ingi. Hefur nefndin fengið í hendur fjölda prentaðra til- kynninga og brefa til ættingja hinna dauðadæmdu, þar sem skýrt er frá því, að pólitískar aftökur hafi farið fram. í skýrslunni er skýrt frá því, að í fyrstu hafi uppreisn alþýð- unnar í Ungverjalandi undir for- ustu menntamanna verið tiltölu- lega friðsamleg, en það hefði breytzt strax og fréttist um grimmdarverk Avóanna. Hins vegar hófust ekki verulegir bar- dagar, fyrr en rússneski herinn skarst í leikinn. Ncfndin telur sig ennfremur geta slegið því föstu, að Imre Nagy hafi aldrei komið til hugar að kalla á rússneska herinn til að bæla niður uppreisnina. Þá segir ennfremur, að nauðungar- flutningar á frelsishetjunum og mönnum, sem grunaðir eru um and-konrmúniskar tilhneigingar, hafi verið framkvæmdar í stórum stíl, og hafi menn einkum verið fluttir til Sovétríkjanna yfir Rúm eníu. H. C. Hansen gefur ráðherrum sínum bitmúl KAUPMANNAHÖFN 6. júní — „Dagens Nyneder" skýrir frá því í gær, að meðlimir dönsku stjórnarinnar hafi nú fengið bit- múl. Á ráðherrafundi í fyrradag sló Hansen forsætisráðherra í borðið og fékk samráðherra sína til að heita því að vera orðvarari í ummælum sínum um samning- ana, sem gerðir voru, áður en stjórnin var mynduð, og um sam- band ráðherranna innbyrðis. Hansen hefur orðið vitni að því með síaukinni gremju, að ráð- herrar Réttarsambandsins hafa PARÍS, 6. júní. — Rússneski hlauparinn Albert Ivanon setti heimsmet í dag í 30 km hlaupi á hlaupabraut. Metið, sem er 1:35:01, var sett á Len- in-leikvanginum í Mokvu. — Fyrra heimsmetið, sem var 1:35:03, átti Finninn Antti Viskari. MeSjtan irú herhví Merlánar iútin BERLlN, 6. júní. FYRRVERANDI borgarstjóri Berlínar, Louise Schröder, sem varð fræg undir nafninu „hetj- an frá herkví Berlínar", lézt í fyrrakvöld 70 ára að aldri. Louise Schröder hafði frá því snemma á þessu ári þjáðst Louise Schröder af alvarlegu hjartameini og verið rúmföst lengi. I apríl var henni þó leyft að taka þátt í hátíðahöldum, þar sem hún var útnefnd heiðursdokt- er við háskólann í Vestur- Berlín og heiðursborgari Ber- línar. Upp frá því fór heilsu hennar hrakandi. Louise Schröder var einn af þekktustu stjórnmálamönnum Þýzkalands eftir stríð. Hún var dóttir starfsmanns hjá Jafnaðar- mannaflokknum í Hamborg og tók snemma þátt í stjórnmálum borgarinnar. Á árunum 1920—33 var hún fulltrúi Jafnaðarmanna á þýzka þinginu. Þrátt fyrir slæma heilsu hóf hún stjórnmálabaráttu strax að síðari heimsstyrjöld lokinni og varð varaborgarstjóri í Berlín 1946, en þá var borgin þegar fjórskipt milli stórveldanna. Ári síðar varð hún yfirborgarstjóri í Berlín, eftir að Rússar höfðu neitað að viðurkenna kosningu Ernst Reuters í embættið. Þegar kalda stríðið náði hámarki sínu með hinni frægu herkví Berlínar, varð hún eins konar tákn þol- gæðis og seiglu hinnar aðþrengdu höfuðborgar. Árið 1949 var hún kosin á þing og lagði niður borg- arst j óraembættið. talað mjög opinskátt og látið frá sér fara ummæli, sem gefa ljósa mynd af ósamkomulagi ráðherr- i anna í nýju stjórninni. Þess vegna hefur hann farið þess á leit, að ráðherrarnir hætt* að láta uppi skoðanir sínar í stjórnarsam- vinnunni við hvern, sem hafa vill. Sagt er, að Hansen hafi einnig látið í ljós áhyggjur yfir um- mælum flokksforingja utan ríkisstjórnarinnar þ.e.a.s. ým- issa leiðtoga Vinstri flokksins og Réttarsambandsins, og farið þess á leit, að æðstu menn þessara flokka tækju fyrir sögusagnir og sleggjudóma. Ber 6. tilraun árangur ? PARÍS, 6. júní. Frá Reuter. MAURICE BOURGES- MAUNOURY, sjötti maður- inn sem reynir að mynda stjórn í Frakklandi, síðan Mollet sagði af sér, komst yfir fyrstu hindrun sína í dag, þeg- ar hann fékk flokk sinn Rót- tæka jafnaðarmenn til að styðja viðleitni sína til stjórn- armyndunar. Þessi flokkur sem Mendes-France stjórnaði eitt sinn, hefur verið marg klofinn, en í dag samþykkti þingflokkurinn með 44 atkv. gegn 9 að styðja Bourges- Maunoury. Mun hann þá snúa sér að samningum við Jafn- aðarmenn, en til að fá þing- meirihluta verður hann líka að semja við einn af miðflokk- unum. Bourges-Maunoury var landvarnaráðherra í stjórn Mollets og studdi stefnu hans í Alsír-málinu, en hann er sagður fylgjandi pólitískum endurbótum í Alsír. Fyrir nokkrum dögum var getið um það fáheyrða níðingsverk upp- reisnarmanna í Alsir að drepa alla karlmenn, yngri sem eldri, í þorpinu Casbah. Létu rúmlega 300 manns lífið í blóðbaðinu. Aðeins þrír karlmenn komust lífs af og sjást þeir hér á myndinni eftir hinn óhugnanlega atburð. Frönsk stjórnarvöld óttast, að framhald verði á fjöldamorðum af þessu tæi. í skriflegri skipun til uppreisnarmanna, sem féll í hendur Frakka, segir skýrum stöfum, að hvert það þorp, sem biðji um vernd Frakka, verði brennt og allir íbúar þess 20 ára og eldri skotnir. t skipuninni er sérstaklega tiltekið þorpið Oundadja í Kabylíu, og er lagt svo fyrir, að það skuli brennt og allir íbúar þess, jafnt konur sem karlar, teknir af lífi. Mörg þúsund Arabar frá tveimur þorpum í Melouza-héraðinu tóku sig upp í dag og héldu norður á bóginn með allt sitt hafur- task. Er talið að hér sé um 5000 manns að ræða. tbúar margra þorpa í Melouza-héraðinu hafa beðið Frakka um vopn til að verja heimili sin gegn uppreisnarmönnum. 1 morgun handtók lögreglan í París 144 Alsír-búa víðs vegar í borginni, og verða þeir fluttir til Alsír hið fyrsta, en þar verða þeir yfirheyrðir. t fórum margra þessara manna fundust skamm- byssur, rýtingar og miklar fjárhæðir. Fimmhurar í Afríku Lourenco Marques, 6. júní. Frá Reuter-NTB: INNFÆDD KONA í portúgölsku Vestur-Afríku hefur alið fimmbura, fjóra drengi og eina stúlku, á sjúkrahúsinu í Vila de Joad Belo. Fimmburarnir eru allir á lífi og þeim líður eftir atvikum vel, segir í fréttastofufregnum. Konan hefur áður alið tvíbura, þríhura og fjórhura, sem allir eru á lífi. Undanfarna daga hefur ekki verið nokkur friður í sjúkrahúsinu, þar sem næstum allir íbúar bæjarins vilja fyrir hvern mun sjá móðurina og fimmburana nýfæddu. Þá segir og, að héraðsstjórinn hafi ákveðið, að konan skuli fá ókeypis sjúkrahúsvist og læknishjálp. Fundi Bngdud-bandaiugsins lohið Karachi, 6. júní: TJUNDI utanríkisráðherra Bagdad-bandalagsins lauk í dag. Hafði * hann staðið í 4 daga. í bandalaginu, sem var stofnað fyrir 2 árum, eru írak, íran, Pakistan, Tyrkland og Bretland, en Banda- ríkin eru meðlimir hinna þriggja höfuðnefnda þess. Þau eiga einnig áheyrnarfulltrúa í Bagdad-ráðinu. í dag var gefin út tilkynning að loknum fundi ráðherranna, þar sem segir m.a., að hættan á undirróðri kommúnista í ríkjum Bagdad-bandalagsins sé enn brýn, og því sé þess full þörf að styrkja varnir þessara ríkja og samræma þær, þannig að þau landamærinTsíðan" þeir fóru'til geti mætt hugsanlegum árásum. I Bretlands fyrir rúmu ári. BogKí Finnlandi HELSINKI, 6. júní'. Frá NTB Tekið var á móti Búlganin og Krúsjeff með mikilli viðhöfn í Helsinki þegar þeir komu þangað í dag með lest frá Rússlandi. í fylgd með þeim voru ýmsir af æðstu mönnum Rússa, þ.á.m. Gromyko utanríkisráðherra. Þeir verða í Finnlandi eina .viku. Þetta er fyrsta för þeirra félaga Búlganins og Krúsjeffs út fyrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.