Morgunblaðið - 29.06.1957, Blaðsíða 19
Laugardagur 29. júnl 1957
Mnnr.TjNitT ánift
19
Hvernig fer landskeppnin við Dani?
Við spáum Isiandi sigri
með 2 stiga mun
En ekkert má útaf bera
VIÐ HÖLDUM nú áfram að spá um úrslit landskeppninnar við
Dani. Við hurfum þar frá í blaðinu í gær, að á pappírnum hjá
okkur höfðu Danir fengið 55 stig en Islendingar 51. Lítum nú á
keppnigreinar síðari dagsins.
hefur verið með í öllum lands-
keppnum íslands í frjálsíþróttum.
En við skulum ekki byggja spána
á heppnL Réttara er að gera ráð
fyrir tvöföldum dönskum sigri,
og vona hið bezta. Danmörk 8,
ísland 3.
200 M HLAUP
Hilmar verður þar sem í 100 m
hlaupinu að telja í sérflokki. Ras
mussen hefur hlaupið á 22,8 en
Jensen og Höskuldur hafa hvor-
ugur hlaupið í ár. Höskuldur
hafði góða „takta“ í þessu hlaupi í
fyrra, og þó hann sé ef til vill
ekki í eins góðri þjálfun nú, þá
íleppir hann aldrei báðum Dön-
unum. Spáin er því: ísland 7,
Danmörk 4.
800 M HLAUP '
Eftir afrekum til þessa ættu
hlaupararnir að skiptast. Svav-
ar og Roholm í forystu en Þórir
og Stockfelt á eftir. Við teljum
Svavar sterkari Roholm, og minn
umst þá fyrri keppna þeirra. En
oss er nær að halda að Þórir
blandi sér í stríð þeirra, en að
berjast við Stockflet. Spáin er því
tsland 7, Danmörk 4.
10 KM OG HINDRUNAHLAUP
Svo koma tvær danskar grein-
ar. Það er 10 km hlaupið og hindr
unarhlaupið. Þar eigá Danir þá
menn, sem íslendingar ekki fá að
skilið eða sigrað. Það er því í báð
um greinum Danmörk 8, ísland 3.
Eða 16 stig gegn 6 Dönum í vil.
400 M GRINDAHLAUP
Engum þarf að koma á óvart
þó 400 m grindahlaup verði ein-
hver sögulegasta grein lands-
keppninnar. Víst er að baráttan
verður hörð. Guðjón hefur náð
beztum tíma, þó lítið skilji hann
og Christensen. En Guðjón hefur
ekki í ár fengið keppni og engin
veit hvað Daníel gerir á úrslita-
stund. Hann átti eitthvert óvænt-
asta afrek landskeppninnar í
fyrra. Við spáum ísland 7, Dan-
mörk 4.
4x400 M HLAUP
Ef spá okkar í 400 m (tvöf aldur
sigur) og í 400 m. gr. (1. og 3.
sæti) stenzt, þá ætti sigurinn í
þessari grein að vera viss, því
sömu menn keppa að mestu. ís-
land því 5 stig, Danmörk 2.
STANGARSTÖKK
Valbjörn tryggir sigurinn, því
4,15—4,25 er ekki mikið fyrir
hann, en það mun Larsen veitast
erfitt nú, því hann er sagður
hafa verið veikur í vor. 3. sætið
tryggir Heiðar, þó einfættur sé í
bili vegna meiðsla. Spáin er þvi
ísland 7, Danmörk 4.
ÞRÍSTÖKK
Fyrirliði landsliðsins, Vilhj.
Einarsson er þar í sérflokki, en
hinum unga og óreynda Þórði
Indriðasyni, sem er frá Skóga-
strönd, verður sennilega ofraun
að komast upp á milli Dananna.
ísland því 6, Danmörk 5.
SPJÓTKAST
Það hefur verið dálítið götótt
grein hjá okkur í sumar. Jóel hef
ur verið dálítið óöruggur og
sama er að segja um Gylfa. En
báðir geta þeir náð góðum köst-
um, því báðir og ekki sízt Jóel
eru reyndir keppnismenn. Hann
2. deildai keppoin í Keilavik
ÞRÍR leikir hafa farið fram í H.
deild á hinum nýja glæsilega
grasvelli í Ytri-Njarðvík. Sunnu
daginn 23. júní fóru fram tveir
leikir. Fyrst áttust við íþrótta-
bandalag Keflavíkur og UMF
Breiðablik í Kópavogi. Sigraði
ÍBK með 8:0. Síðari leikurinn
var milh Þróttar og íþróttabanda
lags Suðurnesja. Sigraði Þróttur
ineð 6:0.
* ÍBK — BREIÐABLIK
Leikurinn var mjög ójafn svo
$em markatalan sýnir og hefði
munurinn jafnvel getað verið enn
meiri þar sem Keflvíkingar áttu
mörg góð tækifæri sem mistók-
ust. Bæði liðin virtust eiga erfitt
með að fóta sig á grasinu og var
íyrri hálfleikur því nokkuð þóf-
•g tilviljanakenndur. í síðari
hálfleik náðú Keflvíkingar hins
vegar stuttu samspili og höfðu þá
algjörlega yfirhöndina. Beztu
menn ÍBK voru Sigurður Alberts
*on, Páll Jónsson og Svavar Fær-
■et, auk hins gamalkunna knatt-
ipyrnumanns Hafsteins Guð-
mundssonar, sem stóð eins og
klettur í vörninni. — Dómari var
Magnús Pétursson.
* ÞRÓTTUR — I.S. 6:0
Markatalan gefur ekki rétta
hugmynd um gang leiksins, sem
eins hefði átt að geta orðið 6:4
eða jafntefli ef Suðurnesjamenn
hefðu notað sín tækifæri eins
▼el og Þróttur gerðL En þeir
Suðurnesjamenn voru ekki á
skotskónum þennan dag. Knött-
urinn lenti í stöng, þverslá eða
markmanni auk fjölda skota sem
smugu hárfínt framhjá markinu.
Leikur Í.S. einkenndist af iöngum
spyrnum upp að marki Þróttar,
en samleik á vallarmiðju vantaði.
Þróttur átti skemmtileg upphiaup
þar sem knötturinn gekk frá
manni til manns unz hann hafn-
aði í netinu hjá Suðurnesja-
mönnum. Driffjöður og skipu-
leggjari Þróttar var William
Sheriffs, en auk hans sýndu
vinstri innherji „Baddi“ og mark-
maður góðan leik.
Knattspyrnuiega séð var Þrótt-
ur vel að sigrinum kominn. —
Dómari var Sigurður Ólafsson.
★ I.S. — BREIÖABLIK
Miðvikudaginn 25. kepptu f.S.
og Breiðablik og lauk þeim leik
með sigri f.S. 8:1.
Suðurnesjaliðið var óþekkjan-
legt frá leiknum gegn Þrótti
enda var við mun veikara lið að
etja. Liðið náði oft mjög skemmti
legum samleik upp að marki en
mörg ágæt tækifæri fóru for-
görðum vegna ónákvæmni í
spyrnum. Úrslitin hefðu eins get-
að verið 12—15:1 ef öll tækifæri
hefðu notazt. Skiptingar í fram-
línunni hjá þeim Skúla, Herði
og Gunnlaugi voru oft mjög
skemmtilegar, enda settu þeir
öll mörkin. Vilbergur, Ingi og
Yngvi léku einnig vel. — Dómari
var Bjarni Jensson.
KÚLUVARP
I kúluvarpinu er sagan önnur.
Þar er það Thorsager sem er hinn
óöruggi, en Skúli og Huseby eru
æ ofan í æ með 15,50. Tvöfaldur
sigur íslands skal því bókaður.
ísland 8, Danmörk 3.
Og þá er komið að hinni spenn
andi samlagningu. Eftir fyrri dag
inn stóð samkvæmt okkar spá:
ísland 51 — Danmörk 55
Og síðari dagurinn reiknast
vera:
ísland 56 — Danmörk 50
Og úrslit landskeppninnar því
107 gegn 105 íslandi í vil. Ekki er
nú mikið upp á að hlaupa og ekk
ert má mistakast. Það er því kom
ið á daginn, að þetta er ein tví-
sýnasta og mest spennandi lands-
keppni sem ísland hefur gengið
til í frjálsum íþróttum.
Hótíð UMFÍ
ó Þiagvöliaoi
f DAG hefst á Þingvöllum 10.
landsmót Ungmennafélags fs-
lands. Verður það fjölbreytt
íþróttahátíð og margvísleg önnur
hátíðahöld, en á móti þessu er
minnst 50 ára afmælis UMFÍ.
Fram fer íþróttakeppni í sundi
(í Hveragerði), í frjálsíþróttum, í
knattspyrnu og í handknattleik,
og sýningar í fimleikum og þjóð-
dönsum verða. f keppnisgreinun-
um er keppt um bikara er það
héraðssamband hlýtur er flest
stig fær í viðkomandi grein. í
frjálsíþróttum er keppt um bikar
er Morgunblaðið hefur gefið, í
sundi um bikar Kaupfél. Árnes-
inga, í knattspyrnu um bikar er
Tryggingamiðstöðin hefur gefið
og í handknattleik kvenna um
bikar er Tíminn hefur gefið.
í blaðinu í gær var afmælis-
grein um UMFÍ. Láðist þá að
geta höfundar, en hann er Axel
Jónsson, sundlaugarvörður, stjórn
armaður í UMFÍ.
Félagslíf
Frí Sundfélagi Hafnarfjarðar
Á kveðið er að fara í skemmti-
ferð að Gullfossi og Geysi, sunnu-
daginn 7. júlí. Þátttakendur skrái
nöfn sín t. lista, sem liggur
frammi í Sundhöll Hafnarfjarðar
fyrir fimmtudaginn 4. júlí, n.k.
________________— Stjórnin.
I.R. skíðadeild.
Farið verður í skálann í dag kl.
2 e.h. frá Varðarhúinu.
— Msetum 811.
Skíðadeildd KR
Nú skorum við á okkar ágæta
hóp, að mæta vel, um þessa helgi.
Aðeins vantar nokkur handtök til
að fullgera herbergin í kjallar-
amun. Með samstilltu átaki tekst
okkur allt. Farið kl. 2 í dag og
kl. 9,30 á sunnudag.
Stjórnin.
Reykjavíkurmót 4. fl. A
laugardaginn 29. júní á Fram-
vellinum. — Kl. 14 Víkingur—Val
ur. Dómari: Sveinn Hálfdánar-
son. — Kl. 15 KR—Þróttur. Dóm-
ari Guðjón Einarsson.
Mótanefndin,
Reykjavíkurmót 2. fl. A
laugardaginn 29. júní á Háskóla-
vellinum. — Kl. 14 Þróttur—Val-
ur. — Kl. 15 KR—Fram.
Mótanefndin.
Eins og skýrt var frá á dögunum, verður unglingadagur KSf 7. júll.
Fara fram lcikir á öllHm knattspyrnuvöllum landsins og drengir
í 3. og 4. aldursflokki fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku. Þá
verða knattþrautir, keppni í þeim milli sveita um fagra bikara
og loks kappleikur. —
Þrautirnar sem í er keppt eru 6. Hér kynnum við eina þeirra.
Það er hornspyrna með rist. Lyfta skal knettinum. Miðja hrings-
ins á markteigslínu gegnt marksúlu fjær. Þrjár spyrnur með hver-
um fæti; 5 stig fyrir að hitta hringinn.
Aðrar þrautir eru: Höfuðspyrna, knattrekstur milli súlna og
sending, knattrekstur eftir miðjuhring knattspyrnuvallar, knetti
haldið á lofti og knattrekstur og skot á mark. Þær verða kynnt-
ar síðar, en drengir! Æfið nú vel.
Úrslit auglinga-
leikjanua
í 2. FL. A fór fram næstsíðasta
leikumferðin í Reykjavíkurmót-
inu, KR sigraði Val með 2:1, og
Fram sigraði Víking með 3:0. —
Staðan er nú:
L U J T Mrk St.
3 3 0
3 2 0
KR .....
Fram ...
Valur ...
Víkingur
Þróttur .
3 10
4 10
3 10
0 10:2 6
1 4:2 4
2 3:4 2
3 5:10 2
3 3:7 2
1 2. fl. B sigraði Fram KR með
2:1 og eru öll félögin 3 nú jöfn
að stigum með 2 stig hvert, og
verður að leika mótið upp að
nýju.
I 3. fl. A fór einn leikur fram,
KR sigraði Val með 2:1, en leik
Fram og Þróttar var frestað. —
Staðan er nú:
L U J T Mrk St.
'KR .......... 3 3 0 0 10:1 6
Þróttur .... 2 2 0 0 3:1 4
Víkingur .. 3 1 0 2 2:7 2
Fram ....... 2 0 1 1 1:4 1
Valur ...... 4 0 1 3 4:7 1
I 3 fl. B sigraði Frám KR með
1:0 og hefir Fram unnið mótið,
þótt enn séu eftir 2 leikir.
*í 4. fl. A gerðu KR og Valur
jafntefli, 1:1, en Fram sigraði
Þrótt með 8:0. Fram-liðið hefur
þegar unnið mótið og unnið alla
sína leiki með yfirburðum, e»i
staðan er þannig:
Fram ......
Víkingur ..
Valur......
KR ........
Þróttur ....
L U J T Mrk St.
4 4 0 0 21:1 8
3 2 0 1 13:6 4
3 1 1 1 6:3 3
3 0 1 2 2:9 1
3 0 0 3 0:23 0
Samkomur
Bræðraborgarstígur * 34.
Alm. samkoma í kvöld kl. 8,30.
Arthur Gook David Prostor trú
boðar talar. — Allir velkomnir.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á átt-
ræðisafmælinu.
Guð blessi ykkur öll.
Jóanna JónsdóUir,
Hringbraut 64,
Hafnarfirði.
Mínar innilegustu þakkir vil ég færa öllum vinum og
vandamönnum, sem á margvíslegan hátt glöddu mig og
sýndu mér sóma á áttatíu ára afmælisdegi mínum 22. júní
sl., með heimsóknum, gjöfum og skeytum.
G.uð blessi ykkur öll.
Gunnar Gunnarsson,
Vegamótum, StokkseyrL
Móðir min
RÓSA KRISTJÁNSDÓTTIR
Stórholti 20, andaðist að heimili sínu, fimmtudaginn 27. þ.
m.. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
Konan mín og móðir okkar
HELGA ÍVARSDÓTTIR,
ívarsseli, lézt 19. júní.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Einar Sigurðsmn,
og börn.
Þökkum sýndan hlýhug við andlát og jarðarför
SIGRÓBAR GUDNADÓTTUR,
Skarðshlíð
Aðstandendur.