Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 1
Hörmulegt sjóslys við Reykjanes Hermóður fórst með tólf manna áhöfn við Reykjanes Skipið var í fyrrinótt á leið til Reykjavikur frá Vestmannaeyjum í stormi og stórsjó 1 FYRRINÓTT varð íslenzka þjóðin fyrir öðru stóráfallinu á sjó á skömmum tíma, er vitaskipið Hermóður fórst með allri áhöfn, 12 mönnum, undan Reykjanesi. í gærkvöldi sendi Landhelgisgæzlan út svohljóðandi fréttatilkynningu um þennan hörmulega atburð: Talið er víst að vitaskipið Hermóður hafi farizt með allri áhöfn í stórsjó og ofviðri undan Reykjanesi í nótt. Var síðast haft samband við það frá öðru skipi um kl. 4 í nótt. Var Hermóður þá staddur við Reykjanes, en síðan hefur ekkert heyrzt eða sézt tii skipsins. Hermóður var á leið frá Vestmannaeyjum, þar sem hann hafði verið við bátagæzlu á vegum Landhelgisgæzlunnar undanfarinn hálfan mánuð, og var væntanlegur til Reykja- víkur í morgun. Strax þegar ekki heyrðist til skipsins í morgun og það var heldur ekki komið til Reykjavíkur, sendi Landhelgis- gæzlan gæzluflugvélina Rán til þess að leita að því og nokkru síðar var Slysavarnafélagið beðið um að láta leita meðfram ströndinni frá Grindavík og vestur og norður fyrir Reykja- nes allt að Garðskaga. Brugðu slysavarnadeildirnar í Grinda- vík og Höfnum, svo og þrír leitarflokkar frá Reykjavík skjótt við og fundu skömmu eftir hádegi brak úr skipinu rekið undan bænum Kalmanstjörn sunnan við Hafnir. Leitað var allt til dimmu, en mun verða haldið áfram strax í birtingu á morgun. Á Hermóði var 12 manna áhöfn og voru það þessir menn: Vitaskipið Hermóður var viðurkennt sjóskip, þó ekki væri það stærra en 200 lestir. Skipið var hyggt í Svíþjóð árið 1947 fyrir vitamálastjórnina. Hermóður hefur einnig komið við sögu i land- helgisgæzlunni og hefur á undanförnum vertíðum verið með Vestmannaeyjabátum. Ólafur G. Jóhannesson skip- stjóri, Skaptahlíð 10, Rvík, 41 árs. Hann var kvæntur og auk konu lætur hann eftir sig sjö börn á aldrinum 10, 8, T, 5, 4 og tvö tveggja ára. Sveinbjörn Finnsson, 1. stýri- maður, Útgerði við Breiðholtsveg, Rvík, 24 ára. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn árs gamalt. Foreldrar hans búa vestur í Grundarfirði. Eyjólfur Hafstein, 2. stýrimað- ur, Bústaðavegi 65, 47 ára. Hann lætur eftir sig konu og 4 börn, 12, 9, 7 ára og 8 mánaða. Móðir hans öldruð, er á lífi. Gniðjón Sigurjónsson, 1. vél- stjóri, Kópavogsbraut 43, Kópa- vogi, 40 ára. Kvæntur og auk konu lætur hann eftir sig 5 börn á aldrinum 5—14 ára. Guðjón Sigurðsson, 2. vélstjóri, Freyjugötu 24, 65 ára. Lætur eft- ir sig konu og uppkomin börn. Birgir Gunnarsson, matsveinn, Nökkvavogi 31, 20 ára. Ókvæntur. Var í foreldrahúsum. Magnús Ragnar Pétursson, háseti, Hávallagötu 13, 46 ára. Ókvæntur. Jónbjörn Sigurðsflon, háseli, Gnoðarvogi 32, 19 ára. Var hjá foreldrum sínum og er elztur 10 systkina. Kristján Friðbjörnsson, háseti, 27 ára, til heimilis austur á Vopna firði. Davíð Sigurðsson, háseti, Sam- túni 32, 23 ára. Elztur 5 syskina. Einar Björnsson, aðstoðarmað- ur, frá Vopnafirði, 30 ára. Helgi Vattnes Kristjánsson, að- stoðarmaður í vél, Þinghólsbraut 23, Kópavogi, 16 ára. Var hann á heimili foreldra sinna. Skip það, sem minnzt er á í tilkynningu Landhelgisgæzlunn- ar að Hermóður hafi haft sam- band við um kl. 4 í fyrrinótt, er flutningaskipið Vatnajökull, en hann hafði nokkrum klukku stundum áður farið fyrir Reykja- nes. Einnig hafði þar farið um á leið til Reykjavíkur, strand- ferðaskipið Esja, sem fór kl. 3,30 á þriðjudaginn frá Vestmanna- eyjum, en vitaskipið Hermóður fór þaðan kl. 4 þennan sama dag. Brak það, sem fannst við Kal- manstjörn, var björgunarbátur frá Hermóði og léttbáturinn, en báðir voru bátarnir lítt brotnir er þeir fundust þar í fjörunni. Að áliti siglingafróðra manna, mun Hermóður hafa verið kom- inn í gegnum Reykjanesröstina, er slysið bar að höndum. Um það leyti, sem frá Hermóði heyrðist, var vindur og sjór orðinn suð- vestanstæður á þessum slóðum. Telja þessir sömu menn það sennilegast, að hnútur hafi kom- ið á skipið og fært það á kaf. Gizkað er á, að skipið hafi verið 2,5—3 sjómílur undan ströndinni. ☆ Vitaskipið Hermóður var við- urkennt sjóskip, þó ekki væri það stærra en 200 lestir. Skipið var byggt í Svíþjóð 1947 fyrir vitamálastjórnina, en auk þess að vera á vegum hennar, hefur Her- móður verið við landhelgisgæzlu. Hefur skipið t. d. verið undan- farin ár á miðum Vestmanna- eyjabáta á vetrarvertíðum og verið bátaflotanum til ómetan- legs gagns, sagði fréttaritari Mbl. í Vestmannaeyjum. Ólafur G. Jóhannesson skip- stjóri, hefur verið stýrimaður á Hermóði frá því skipið kom og hefur hann ætíð farið með skip- stjórn á Hermóði þá er Guðni Thorlacius skipstjóri, hefur ver- ið í orlofi, og svo var nú. Ólafur var að þeirra dómi er bezt þekkja, mjög traustur skipstjóri. Aðrir yfirmenn skipsins áttu að baki sér lengri eða skemmri feril hjá Landhelgisgæzlunni eða á skip- um Skipaútgerðarinnar. Geta má þess og að Guðjón Sigurðsson, vélstjóri, Freyjugötu 24, hætti vélstjórastarfi á Hermóði í haust er leið, vegna aldurs, en var í af- leysingum nú. Hann hafði áður verið vélstjóri á Hermóði allt frá því skipið kom til landsins, en þar áður var hann á gamla Her- móði. Geta má þess og að hinn reglulegi matsveinn Hermóðs er í sjúkrahúsi um þessar mundir. ★-------------* Fimmtudagur 19. febrúar. Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Fallinna sjóhetja minnzt á Al- þingi. — Sjópróf yegna svaðilfarar Þor- kels mána. — 6: íslendingar stöðugt háðari Sov- étríkjunum — segir Aftenpost- en. — Bridgeþáttur. — 8: Forystugreinin „Tímamennska* Hljóðrituð talstöðvarsamtöl — og Lundúnaþoka (Utan úr heimi.) — 9: Kýpur verður sjálfstætt iýð- veldi. — 14: íþróttafréttir. Veðurofsi veldur tjóni á Akureyri. *-----------------------------★ Kortið sýnir þær slóðir, sem talið er að Hermóður hafi farizt. Undirstrikað er nafn Kalmanstjarnar, þar sem hiutir frá skipinu fundust reknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.