Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.05.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ SV-kaldi þokuloft, víða rigninjf. lllúripmMaMííi 106. tbl. — Fimmtudagur 14. maí 1959 Rceður úr útvarps- I umrœðunum Sjá bls. 8, 10 og 13. j Hlýindi um land allt Litur út tyrir oð vel ætli oð vora Þá eru Færeyingarnir að kveðja að sinni. Þeir hafa verið að hópast í bæinn undanfarna daga úr verstöðvunum. 1 gær fór fyrsti hópurinn. Rúmlega 130 kátir Færeyingar kvöddu þá Reykjavík, er færeyska flutningaskipið Karink lét úr höfn. — Skipið ætlaði að koma við í Vestmannaeyjum og þar áttu enn að bætast í hópinn allmargir sjómenn. (Ljósm. Mbl. ÓL K. M.) Infineazo í rénun í Reykjnvlk en breiðist Ört út í sumum sveitum UNDANFARNA daga hefur ver- ið hlýtt og gott veður um land allt, og er gróður því víðast að koma til. í gær hafði blaðið sam- band við fréttaritara sína á ýms- um stöðum á landinu og fékk fregnir af því hvernig voraði í þeirra héruðum. í Barðastrandarsýslu HVALLÁTRUM, 13. maí. — Fram undir þetta hefur verið hér ákaflega kalt, og frost á nótt- unni, en nú er komin hlýja og bezta tíð og farið að lita á tún. Haldi þessu áfram, eru líkur til að vel vori. Vegir eru mjög illa farnir vegna vatnavaxtanna í vetur, og í vor tafðist viðgerð á vegum vsgna frostanna. En nú er vegaviðgerð hafin. Sauðburður er víðast að byrja. Guðmundur Kristjánsson bóndi í Vatnsdal varð fyrir því óhappi í vetur að meginn hlutinn af án- um lét lömbunum. Varð hann að bera út 50 dauð lömb á einum sólarhring. Ekki er vitað um á- stæðuna. Haft var samband við dýralækni, sem telur að þetta sé ekki óalgengt á Suður- og Aust- urlandi, þó ekki sé það í svo stórum stíl. Hér hefur þetta kom- ið fyrir, en aldrei svona mikið. Hefur bóndinn orðið fyrir til- finnanlegu tjóni. Talið er að að- eins fáar kindur séu eftir með lömbum af yfir 100 fjár. — Þ. Norðanlands AKUREYRI, 13. maí. — Sunnan- átt og hlýindi hafa verið hér að undanförnu, sól á daginn, en allt fram undir þetta kalt um nætur og jafnvel frost á stundum. Þurr- viðri er mikið og mun það valda mestu um að jörð er lítið tekin að grænka. Þó sést orðið litur á túnum. Það mun einnig tefja fyrir gróðri að fyrir og um páska var hér mikill hlýindakafli, svo gróður tók við sér. í kuldakast- inu sem á eftir kom, fölnaði gróð urinn á ný. Sauðburður er um það bil að hefjast hjá þeim sem fyrst láta bera og mun innan skamms byrja hjá öllum þorra bænda. Þurrkarnir hafa valdið því að vegirnir hafa ekki spillst að marki, en klaki mun vera tals- verður í þeim enn. Færð er því yfirleitt góð. bæði um fjallvegi og lágsveitir. Fundir Sjálfslæðis manna í Dalasýslu Fundur trúnaðarmanna Sjálf- stæðisflokksins í Dalasýslu verð- ur haldinn í Búðardal n.k. laug- ardag 16. maí kl. 2 sd. Á fund- inum verður tekin ákvörðun um framboð flokksins í í höndfarandi alþingiskosningum. Sama dag verður haldinn al- mennur kjósendafundur Sjálf- stæðisflokksins í Dalasýslu og hefst hann í Búðardal kl. 4 sd. Á fundinum mæta, alþingismenn- irnir, Friðjón Þórðarson og Magnús Jónsson. í dag er skýjað, stinningskaldi á sunnan, hlýtt í veðri og mikið moldryk á vegum. — vig. ★ SIGLUFIRÐI, 13. maí. — Hafizt var handa um snjóruðning af Siglufjarðarskarði í gær. Er óvenjulítill snjór á fjallveginum og minnkar hann með degi hverj um, enda hlýir og mildir dagar um þessar mundir hér nyrðra. Gert er ráð fyrir að vegurinn yfi Siglufjarðarskarð opnist til umferðar að einni til tveim vik- um liðnum. — Stefán. Á Héraði EGILSSTÖÐUM, 13. maí. — Hér er sumarblíða og sunnanvindur. Gróður þýtur upp, og orðið er æði sumarlegt. Tún grænka ört. Hér eru alltaf þíðviðri og hitar núna. — Fréttaritari. Sunnanlands KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 13. maí. — Enn sem komið er má segja að vorið hafi verið gott. Að vísu er ekki enn kominn það mikill gróður að hægt sé að sleppa fé af húsi, því að ekki hefur verið hér reglu- legt grasveður nema allra síðustu dagana. En ef svona viðrar fram Á MORGUN, 15. maí, verður í útborg Hamborgar lagður kjölur að nýju íslenzku flutningaskipi. Er hér um að ræða 750 tonna skip, sem hlutafélagið Hafskip lætur byggja, en þetta nýstofn- aða skipafélag er stofnað fyrir atbeina Verzlanasambandsins hf. Standa vonir til að skipið komi hingað tii iands í nóvembermán- uði næstkomandi. Helgi Bergsson, framkvæmda- stjóri Vérzlanasambandsins, skýrði blaðamönnum frá þessu í gær, og gat þess við þetta tæki- færi, að fyrirtækið hefði verið stofnað haustið 1954 og væru nú aðilar að því 50 fyrirtæki víðs vegar um landið. Annast það margs konar þjónustu við þessi fyrirtæki á sviði viðskipta. Rakti Helgi Bergsson allítarlega að- dragandann að stofnun Verzlana- sambandsins, sem hann kvað ekki vera gróðafyrirtæki, heldur þjónustufyrirtæki við félags- menn. Hann kvað sambandið snemma hafa sett sér það mark að reyna að eignast eigið skip. Þörfin fyrir flutninga á vegum þess er mikil. Gat Helgi þess hér t. d., að frá upphafi hafi sambandið haft fjölda skipa á leigu og hefði það greitt vegna leigu erlendra skipa um 4 millj. kr. árið 1957, miðað við núverandi gengi. I fyrrasumar leitaði Verzlana- sambandið til fyrrverandi ríkis- stjórnar um leyfi til skipakaupa og var það veitt gegn því að lán fengist erlendis til 10 ára, út- borgun væri sem allra minnst og önnur kjör sanngjörn. Áður en leyfið fyrir skipinu var veitt, SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA Umdæmisfulltrúar í LAUGAR- NES- og TÚNAHVERFI. Áríð- andi fundur í Valhöll við Suður- götu í kvöld kl. 20,30. yfir hvítasunnana, má gera sér vonir um að hætta megi að gefa fé þegar sauðburður hefst fyrir alvöru um 20. maí. Nú er um það bil lokið flutn- ingi á vörum til Öræfa á þessu vori. Hafa þeir gengið mjcg greiðlega, enda hefur veður og vegir verið upp á það bezta. — G. B. ★ HÆLI, Gnúpverjhr., 13. maí. — Ekki er hægt að segja annað en að hér hafi vorað vel. Farið er að slá grænum lit á túnin og byrjað að næla í útjörð. Sauðburður er yfirleitt ekki byrjaður, en búast má við að hann byrji um helgina. Hér hefur verið gott veður undanfarið, hlýindi og úrkoma í dag. Vegir eru óspilltir hér um slóðir. — Fréttaritari. hafði Helgi Bergsson ásamt ein- um stjórnarmanna skipafélagsins gert sér ferð til Þýzkalands til þess að kanna möguleika á skipa- kaupunum, og árangurinn varð sá, að á föstudaginn verður kjöl- urinn lagður að 750 tonna flutn- ingaskipi. Er það ekki ósvipað útlits þeim litlu þýzku flutninga- skipum, sem hingað koma iðu- lega, en ýmsu þó breytt, sem bet- ur á við staðhætti hér. Standa vonir til að skipinu verði hleypt af stokkunum í ágústmánuði næstkomandi. Hlutafélagið Hafskip var stofn- að með rúmlega 1,5 millj. kr. hlutafé og í aðalstjórn félagsins voru kosnir þeir Helgi Bergsson, Reykjavík, Axel Kristjánsson, Hafnarfirði, Gísli Gíslason, Vest- mannaeyjum, Ingólfur Jónsson, Hellu, og Ólafur Jónsson, Sand- gerði. Þess skal að lokum getið, að í aðalstjórn Verzlanasambandsins, sem nú er til húsa í rúmgóðu húsnæði í Borgartúni, eru Tómas Björnsson, Akureyri, Friðrik Þórðarson, Borgarnesi, Jónatan Einarsson, Bolungarvík, Ragnar Jónsson, Vík í Mýrdal, og Sig- urður Ó. Ólafsson, SelfossL EKKI eru enn til neinar tölur sem sýna inflúensutilfellin í Reykjavík það sem af er þessari viku, en samkvæmt lauslegri áætlun mun vera hægt að reikna með að flensan sé heldur í rén- un síðan um helgi. Tölur síðustu viku sýndu að ekkert var þá far- ið að draga úr faraldrinum, en Þiuglausnir í dag kl. 1.30 EINS og skýrt er frá annars stað- ar í blaðinu voru fundir í báðum deildum Alþingis og sameinuðu þingi í gær og allmörg mál hlutu þar fullnaðarafgreiðslu. — Fundi sameinaðs þings var slitið síðd. í gær og boðaður fundur kl. 9 í gærkvöldi, en er til kom reynd- ist ekki fundarfært. í dag er boð- aður fundur í sameinuðu þingi og eru aðeins tvö mál á dagskrá: fjáraukalög til 3. umræðu og síð- an þinglausnir. inflúensan hefur verið mjög út- breidd í bænum í þetta skiptí, eins og kunnugt er. • Úti á landi breiðist veikin mjög ört út þar sem hún kemur. Fréttaritari blaðsins á Kirkju- bæjarklaustri símaði t. d. að fyrir um það bil hálfum mánuði hefði inflúensan borizt austur í Meðal- land. Breiddist hún mjög ört út, því á skemmtun sem haldin var um það leyti, smitaðist fólkið á öllum bæjum í sveitinni nema þremur. Kveður hann óvenju mikið um fylgikvilla með inflú- ensunni að þessu sinni. Ekki hef- ur inflúensan enn komið í aðrar sveitir en Meðalland fyrir austan Mýrdalssand, nema á eitt heim- ili á Kirkjubæjarklaustri. Gestkvæmt á heim- ili íorsetahjón- anna í gær f GÆR var mjög gestkvæmt á heimili forsetahjónanna í tilefni 65 ára afmælis herra Ásgeirs Ás- geirssonar, forseta íslands. Auk vina og vandamanna komu þar ráðherrar, alþingismenn, fulltrú- ar erlendra ríkja og ýmsir em- bættismenn, ennfremur fulltrúar ýmissa félagasamtaka, svo sem Slysavarnafélags íslands, íþrótta sambands fslands, Sambands isl. barnakennara, Formannafélags íþróttafélaga Reykjavíkur, full- trúar frá Stórstúku íslands, stjórn Starfsmannafélags Útvegs bankans og margir fleiri. Jón Pálmason, forseti Samein- aðs alþingis, hafði orð fyrir gest- unum og flutti sköruglega ræðu fyrir minni forsetans. Forsetan- um bárust fjöldi heillaóska- skeyta, fagrar blómasendingar og góðar gjafir. Kosningaskrifstofa Sjálfstœðisflokksins í Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6 II. hæð, er opin alla virka daga fra kl. 10—6 e ,h. Sjálfstæðisfólk, hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um fólk, sem verður fjarverandi á kjör- dag innanlands og utan. Símar skrifstofunnar eru 12757 og 13 56 0. Vormót ungra Sjálfstœðis manna í Vestmannaeyjum SAMBAND ungra Sjálfstæðismanna og F. U. S. í Vestmannaeyjum efna á hvítasunnukvöld til vormóts í samkomuhúsinu í Vestmanna- eyjum. Hefst mótið kl. 20.30. Þar munu flytja ræður þeir Jóhann Hafstein, alþingismaður, Guðlaugur Gíslason, bæjarstjóri, og Bald- vin Tryggvason, lögfræðingur. Ennfremur mun Kristinn Hallsson, söngvari, syngja einsöng við undirleik Fritz Weisshappels og Klemenz Jónsson, leikari, flytja gamanþátt. Að lokum mun hljómsveit hússins Ieika fyrir dansi til kl. 2 eftir miðnætti. Á annan hvítasunnudag verður fundur með fulltrúaráði Sjálf- stæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Verður fundurinn í samkomu- búsinu og hefst kl. 4 síðdegis. Þar munu þeir einnig mæta Jóhann Hafstein, Guðlaugur Gíslason og Baldvin Tryggvason. Á fundinum verða rædd þau mál, sem nú ber hæst og gefnar ýmsar upplýsingar varðandi kosningaundirbúning. Nýtt skipafélag lœtur byggja flutningaskip

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.